Mál nr. 55/2017 Úrskurður 22. september 2017
Mál nr. 55/2017 Eiginnafn: Gilla
Hinn 22. ágúst 2017 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 55/2017 en erindið barst nefndinni 18. september.
Eiginnafnið Gilla (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Gillu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Gilla (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.