Mannanafnanefnd, úrskurður 28. október 2009
FUNDARGERÐ
Ár 2009, miðvikudaginn 28. október, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Baldur Sigurðsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:
1. Mál nr. 80/2009 Eiginnafn: Moli (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Moli (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Mola, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Moli (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
--------------------------------------------
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.
Ágústa Þorbergsdóttir (sign)