Hoppa yfir valmynd

Nr. 69/2020 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 27. febrúar 2020 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 69/2020

í stjórnsýslumáli nr. KNU19100009

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 1. október 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 13. september 2019 um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa henni frá landinu.

Þess er krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 24. júní 2019. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Þann 3. júlí 2019 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þar sem ekki barst svar innan tilskilins tímafrests frá ítölskum yfirvöldum litu íslensk stjórnvöld svo á að þau hefðu samþykkt viðtöku kæranda, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, og sendi Útlendingastofnun ítölskum yfirvöldum bréf þess efnis, dags. 26. júlí 2019. Útlendingastofnun ákvað þann 13. september 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 17. september 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 1. október 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 10. október 2019 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari upplýsingar þann 25. nóvember 2019 og þann 13. febrúar 2020 bárust viðbótargögn. Kærandi eignaðist þá stúlkubarn þann [...].

Kærandi óskaði eftir því í greinargerð að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Taldi kærunefnd ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga. Að mati nefndarinnar, í ljósi gagna málsins, eru málsatvik með þeim hætti að viðtal við kæranda hefði ekki verið til þess fallið að varpa frekara ljósi á málið. Kærandi nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns og hefur fengið að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í gegnum hann, m.a. í greinargerð og með framlagningu gagna.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að ítölsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu með því þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Ítalíu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá ástæðu þess að hún hafi yfirgefið heimaríki sitt og að hún væri barnshafandi. Aðspurð hafi kærandi greint frá því að [...]. Kærandi kvað sig hafa fengið aðstoð við að komast til Líbíu og að þar hafi verið farið fram á að hún endurgreiddi farið með kynlífsþjónustu. Þegar kærandi hafi neitað hafi hún verið beitt ofbeldi og hafi kærandi sýnt ummerki þess á líkama sínum í viðtali hjá Útlendingastofnun. Hún hafi verið handtekin, sett í fangelsi og orðið vitni að því þegar menn voru pyndaðir og drepnir. Kærandi kvað sig hafa farið með lekum bát frá Líbíu til Ítalíu og einn hafi drukknað á leiðinni. Þá kvað hún að [...] á Ítalíu og óttast að hann gæti endurtekið verknaðinn yrði hún send þangað aftur. Kærandi kvað aðstæður sínar á Ítalíu hafi verið hræðilegar. Hún hafi dvalið í flóttamannabúðum en verið vísað úr þeim og í kjölfarið enga aðstoð fengið frá yfirvöldum. Hún hafi neyðst til að hafast við á götum úti þar sem hún hafi framfleytt sér með betli, ekki verið heimilt að stunda atvinnu og oft verið svöng. Þá kvað kærandi sig hafa upplifað fordóma vegna [...] og stöðu á Ítalíu.

Kærandi gerir athugasemdir við hina kærðu ákvörðun í greinargerð sinni. Kærandi telji m.a. rökstuðning Útlendingastofnunar áfátt varðandi mat á einstaklingsbundinni stöðu hennar og barns hennar, sem þá var ófætt, og ljóst að á skorti að heildarmat á aðstæðum hafi farið fram. Vísað hafi verið með almennum hætti til þess að ekki væru til staðar sérstakar ástæður hjá kæranda í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, og ekki tekið inn í heildarmatið að staða hennar myndi breytast. Frá því að vera þunguð, í að vera einstæð móðir. Þá gerir kærandi athugasemd við að ekkert mat hafi farið fram á hagsmunum barnsins og hvað því sé fyrir bestu. Þá sé í ákvörðuninni ekki fjallað um [...]. Kærandi telji sig muni þurfa faglega aðstoð til að vinna úr reynslu sinni og beri heimildir með sér að slík aðstoð sé erfiðleikum bundin á Ítalíu. Telji kærandi að af heimildum sem hún hafi vísað til megi ljóst vera að þær aðstæður sem bíði hennar og barns hennar á Ítalíu séu afar slæmar. Þar komi m.a. fram að þúsundir umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamenn lifi við erfiðar aðstæður á Ítalíu með takmarkað aðgengi að heilbrigðisþjónustu, grunnmenntun og annarri almannaþjónustu. Telji kærandi að hræðilegt líf bíði hennar og barns hennar verði þau send aftur til Ítalíu, þau hafi þar engan dvalarstað og að ekkert bíði þeirra. Þá gerir kærandi athugasemd við að skimunarlisti, sem lagður sé fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd, til að meta andlegt ástand þeirra, hafi ekki verið lagður fyrir hana af þeirri ástæðu að hún sé illa læs. Þá hafi beiðni kæranda um að gangast undir sálfræðimat verið hafnað og mat Útlendingastofnunar á stöðu kæranda byggt á takmörkuðum upplýsingum. Stofnunin hafi talið fyrirliggjandi gögn nægan grundvöll til þess að taka ákvörðun í máli kæranda en samt sem áður gert athugasemd um að frekari læknisfræðileg gögn skorti til stuðnings frásagnar kæranda. Kærandi gerir athugasemd við þessa mótsögn í ákvörðun Útlendingastofnunar og bendir á að stofnuninni hafi borið að kalla eftir þeim gögnum sem henni hafi verið ljóst að væru fyrir hendi. Vísar kærandi til hinnar almennu rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar, sem lögfest sé í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og áréttuð í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi m.a. til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 316/2017 frá 2. júní 2017 þar sem efni rannsóknarreglunnar hafi verið reifað. Þá hafi kærandi vísað í þrjá úrskurði kærunefndar sem hún hafi talið að hafa ætti til hliðsjónar við töku ákvörðunar í málinu en í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi einvörðungu verið vísað til eins þeirra.

Kærandi gerir í fyrsta lagi kröfu um að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem sérstakar ástæður séu uppi í málinu í skilningi ákvæðisins. Gerir kærandi með almennum hætti grein fyrir ákvæðinu og vísar til þeirrar skyldu stjórnvalda að leggja viðhlítandi mat á hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd teljist til sérstaklega viðkvæms einstaklings í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og hvort sú staða leiði til þess að sérstakar ástæður séu uppi í málinu. Kærandi telji að ekki hafi legið fyrir mat, skv. 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, þegar ákvörðun í málinu hafi verið tekin. Vísar kærandi til umfjöllunar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu og heimildir þess efnis að tilviljunarkennt sé hvers konar aðstæður bíði þeirra þar. Kærandi leggur áherslu á greinargerð innanríkisráðuneytisins frá desember 2015 þar sem kveðið hafi verið á um að einstaklingar í viðkvæmri stöðu skuli ekki endursendir til Ítalíu. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður viðkvæmra einstaklinga á Ítalíu í tilvitnuðum heimildum vísar kærandi innihaldi bréfs ítalskra stjórnvalda, til aðildarríkja Dyflinnarreglugerðarinnar (e. Circular letter) frá 8. janúar 2019, sem og þeim skilningi og vægi sem Útlendingastofnun hafi gefið því, á bug. Þá vísar kærandi til nánar tilgreindra úrskurða kærunefndar sem hún telji gefa til kynna að viðkvæm staða umsækjenda um alþjóðlega vernd eigi að hafa aukið vægi andspænis sjónarmiðum sem tengist m.a. skilvirkni við meðferð umsókna. Telji kærandi að af þeim leiði að stjórnvöld þurfi við mat á því hvort sérstakar ástæður, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sé um að ræða, að kanna hvort kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, annað hvort vegna einstaklingsbundinna aðstæðna sinna eða vegna almennra aðstæðna í viðtökuríki. Þá vísar kærandi til tilgreindra úrskurða kærunefndar þar sem hún telji að um sambærilegar aðstæður hafi verið að ræða og í máli hennar. Þá telji kærandi að það muni ekki þjóna hagsmunum barns hennar best að hún verði send aftur til Ítalíu, þar sem þeirra bíði ekkert annað en öryggisleysi og óvissa. Verði kæranda gert að snúa aftur til Ítalíu sé óvíst hvort barni hennar bíði heimili og aðgengi að skólakerfi og heilbrigðisþjónustu. Með vísan til heimilda telji kærandi að hún og barn hennar muni þurfa að yfirstíga gífurlegar hindranir til þess að sækja sér grunnþjónustu.

Í öðru lagi byggir kærandi kröfu sína um að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar á grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Kærandi telji, með vísan til heimilda, að aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá telji kærandi aðstæður flóttamanna á Ítalíu svo slæmar að þær samræmist skilgreiningu á ofsóknum í skilningi flóttamannahugtaksins. Telji kærandi að endursending hennar til Ítalíu væri brot á framangreindum ákvæðum ásamt 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 7. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamningsins.

Í þriðja lagi gerir kærandi varakröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju og vísar til brots á rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barns kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til þess að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Eins og að framan greinir var kærandi þunguð er hún kom hingað til lands. Barn kæranda er fætt hér á landi, þann [...], eftir að Útlendingastofnun tók ákvörðun í máli hennar. Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda hjá Útlendingastofnun og gögn um heilsufar hennar og barns kæranda. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum barnsins sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða barnsins verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið er í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Ítalíu á umsókn kæranda er byggð á 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem ítölsk yfirvöld hafi ekki svarað beiðni um endurviðtöku innan tilskilins frests. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja ítölsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi er [...] kona sem kom einsömul hingað til lands. Samkvæmt þeim upplýsingum sem kærunefnd hafa borist er hún einstæð móðir barns sem hún fæddi hér á landi þann [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að hafa orðið fyrir [...] ofbeldi í heimaríki, auk þess að hafa sætt ofbeldi í Líbíu, og að henni líði illa andlega. Þá kveðst hún vera þolandi mansals og að hún hafi orðið fyrir fordómum á Ítalíu. Þá kemur fram í gögnum máls að kærandi sé illa læs.

Í gögnum um heilsufar kæranda, sem hún hefur lagt fram við meðferð málsins, kemur m.a. fram að hún hafi verið þunguð er hún kom hingað til lands, sbr. framlögð gögn frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. júlí 2019. Þá kemur fram í meðgönguskrá kæranda að [...].

Gögn málsins bera ekki annað með sér en að barn kæranda sé við góða heilsu.

Í greinargerð kæranda er óskað eftir því að kærunefnd láti framkvæma sálfræðilegt mat á kæranda. Við meðferð málsins hefur kærandi lagt fram gögn um heilsufar sitt, m.a. gögn um sálfræðitíma sem kærandi hefur mætt í hjá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna, sem áður hefur verið vísað til. Kærunefnd hefur ekki borist frekari gögn um heilsufar kæranda, eða barns hennar, en þau sem hér hefur verið vísað til. Kærunefnd tekur fram að kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 3. júlí 2019, leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dags. 4. febrúar 2020, um framlagningu frekari gagna í málinu og bárust frekari gögn um heilsufar kæranda þann 13. febrúar 2020. Með tölvupósti kærunefndar, dags. 25. febrúar 2020, var kæranda aftur leiðbeint um framlagningu frekari gagna í málinu. Var það m.a. gert vegna þess að af samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 10. febrúar, sem barst kærunefnd þann 13. s.m. mátti hugsanlega ráða að kærandi nyti stuðnings eða þjónustu frá viðeigandi sveitarfélagi. Var því veittur frekari frestur til framlagningu gagna vildi kærandi leggja fram frekari gögn. Með tölvupósti frá talsmanni kæranda, dags. 26. febrúar 2020, kom fram að engin frekari gögn yrðu lögð fram að þessu sinni í málinu. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að málið sé nægjanlega upplýst með tilliti til heilsufars. Það er mat kærunefndar að frekari gögn um heilsufar séu ekki til þess fallin að varpa nýju ljósi á málið, þannig að það hafi áhrif á niðurstöðu þess, og fellst því ekki á að kærunefnd aðhafist við að afla sálfræðimats á kæranda.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2018 Country Reports on Human Rights Practices: Italy (United States Department of State, 13. mars 2019),
  • 2019 Trafficking in Persons Report – Italy (United States Department of State, 20. júní 2019),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2018 (European Asylum Support Office, 24. júní 2019),
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 16. apríl 2019),• Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017),
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016),
  • Freedom in the World 2019 – Italy (Freedom House, febrúar 2019),• Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015),
  • Investing in Children´s Services – Improving Outcomes (European Social Network, 2016),
  • Multi-country Study on the Drivers of Violence Affecting Children. Italian Report (Istituto degli Innocenti, 2016),
  • Mutual Trust is Still Not Enough. The situation of persons with special needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish Refugee Council og Swiss Refugee Council, 12. desember 2018),
  • Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, janúar 2020),
  • Report concerning the implementation of the Council of Europe Convention on Action against Trafficking in Human Beings by Italy (Council of Europe: Group of Experts on Action against Trafficking in Human Beings, 25. janúar 2019),
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, desember 2019),
  • The Journey of Hope: Education for Refugee and Unaccompanied Children in Italy (Education International Research, 31. maí 2017),
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013),
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/),
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy) og
  • Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Baobab Experience (https://baobabexperience.org/).
  • Wave Country Report 2019 (Women against Violence Europe, 30. desember 2019),
  • World Report 2020 – European Union (Human Rights Watch, 8. janúar 2020),

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni þá hefur hann kost á því að bera synjunina undir dómstóla (í. Tribunale Civile). Jafnframt eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, eru frjáls félagasamtök til staðar sem veita umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veita gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu. Þá geta umsækjendur lagt fram beiðni um gjafsókn (í. gratuito patrocinio) kjósi þeir að bera endanlega synjun á umsókn sinni undir dómstóla.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að í ítalska hæliskerfinu sé ekki skimað kerfisbundið eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera viðkvæmir einstaklingar. Hins vegar getur greining á þolendum pyndinga eða alvarlegs ofbeldis átt sér stað á öllum stigum umsóknarferlisins um alþjóðlega vernd. Svokallaðar svæðisnefndir (í. Commissione territoriale per il riconoscimento della protezione internazionale) taka ákvörðun á fyrsta stigi málsmeðferðar og geta þær m.a. óskað eftir því að umsækjandi fari í sérstaka læknisskoðun þar sem fram fer mat á því hvaða áhrif ofsóknir og ofbeldi hafa haft á umsækjanda. Slíkt mat sé framkvæmt í samræmi við leiðbeiningarreglur sem gefnar hafa verið út af heilbrigðisráðuneytinu varðandi þjónustu til handa flóttamönnum sem þjást af andlegum veikindum og/eða eru þolendur pyndinga, nauðgana eða annars konar andlegs, líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis.

Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á gistirými í móttökumiðstöðvum. Samkvæmt lagabreytingu, sem tók gildi í desember 2018, eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir eru til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum ítölskum móttökumiðstöðvum sem staðsettar eru í sjö héruðum landsins. Ef engin pláss eru til staðar í slíkum móttökumiðstöðvum eru til staðar gistirými í móttökumiðstöðvum sem nefnast CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria). CAS miðstöðvarnar eru einungis ætlaðar til tímabundinnar dvalar en vegna mikils fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu nýtur meiri hluti umsækjenda um alþjóðlega vernd eingöngu þjónustu í CAS miðstöðvunum. Aðstæður þar hafa verið gagnrýndar, m.a. þar sem einhverjar miðstöðvar séu lítið kyntar og þar verði vart við skort á heitu vatni og rafmagni. Þá kemur fram í fyrrgreindum gögnum að frjáls félagasamtök og trúfélög bjóði upp á gistiaðstöðu en þau séu einnig af skornum skammti. Samkvæmt fyrrgreindri lagabreytingu frá því í desember 2018 heita búsetuúrræði sem áður hétu SPRAR og voru aðgengileg umsækjendum um alþjóðlega vernd nú SIPROIMI (e. System for the Protection of Beneficiaries of International Protection and Unaccompanied Foreign Minors) og eru þau nánast eingöngu ætluð þeim sem eru handhafar alþjóðlegrar verndar og fylgdarlausum börnum. Þá kemur fram í skýrslu Asylum Information Database að virða skuli einingu fjölskyldunnar þegar kemur að úthlutun á gistirýmum í móttökumiðstöðvum. Þó þekkist dæmi þess að feður fái ekki úthlutað gistirými með fjölskyldu sinni en fái þess í stað úthlutað plássi í öðrum álmum eða móttökumiðstöðvum ásamt öðrum karlmönnum. Mæður og börn séu þó almennt hýst saman. Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd geti í einhverjum tilvikum tapað þeirri aðstoð sem þeim stendur til boða, þ.m.t. gistirými, t.a.m. vegna alvarlegs brots á reglum eða ofbeldisfullrar hegðunar. Í þeim tilvikum getur umsækjandi þó lagt ákvörðun þess efnis fyrir stjórnsýsludómstól (í. Tribunale amministrativo regionale) og á við þá umleitan rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu, bæði börn og fullorðnir, eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og gjaldfrjálsrar almennrar heilbrigðisþjónustu fyrir börn, þ.m.t. bólusetninga. Þeir þurfa þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fá þeir útgefið tryggingarkort sem veitir þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna. Fyrir útgáfu tryggingarkortsins eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þó rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Skortur á sérhæfingu í málefnum flóttamanna og tungumálakunnátta gerir þó sumum umsækjendum um alþjóðlega vernd erfitt fyrir að sækja sér viðunandi heilbrigðisþjónustu, einkum einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá aðgang að ítalska vinnumarkaðnum tveimur mánuðum eftir að þeir hafa lagt fram umsókn sína. Þó kemur fram í framangreindum gögnum að atvinnuleysi á Ítalíu hafi verið mjög mikið á undanförnum árum og erfitt hafi reynst fyrir marga, bæði ítalska ríkisborgara sem og umsækjendur um alþjóðlega vernd, að finna atvinnu.

Foreldrar barna á aldrinum þriggja mánaða til tveggja ára geta sótt um aðgang að vöggustofum en aðgengi að þeim og gjöldum er stjórnað af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Börn á aldrinum þriggja til sex ára eiga þá að geta fengið aðgang að leikskólum, og í einhverjum tilvikum bjóða sveitarfélög upp á lækkuð gjöld, falla frá gjöldum eða bjóða forgang að plássi þegar aðstæður krefjast slíks og tiltekin skilyrði eru uppfyllt. Í skýrslu Asylum Information Database og skýrslu samtakanna Education International Research kemur m.a. fram að ítölsk lög kveði á um skólaskyldu til 16 ára aldurs. Öll börn sem dvelja á ítölsku yfirráðasvæði eiga því rétt á skyldubundinni menntun frá sex til 16 ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá eiga erlend börn rétt á sérstakri aðstoð hafi þau sérþarfir og jafnframt bjóða sumir skólar upp á sérstakt undirbúningsnámskeið til að aðstoða erlenda nemendur við að aðlagast skólanum. Þegar erlend börn leggja fram umsókn um skólavist þá er krafist sömu upplýsinga um barnið og hjá ítölskum börnum og skortur á framlagningu gagna á ekki að koma í veg fyrir að barn sé skráð í skólann.

Af framangreindum skýrslum verður jafnframt ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna séu vandamál á Ítalíu en ítölsk stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk yfirvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með gerð aðgerðaráætlunar gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance) sem var í gildi á árunum 2014-2016. Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.

Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana. Þá eru sérstök úrræði til staðar að því er varðar ofbeldi gagnvart konum og börnum, þ. á m. sérstakar neyðarlínur sem opnar eru allan sólarhringinn, auk þess sem til staðar eru kvennaathvörf í flestum héruðum landsins þar sem hægt er að leita eftir aðstoð og ráðgjöf. Í ofangreindum skýrslum, þ.m.t. skýrslu United States Department of State, kemur fram að ítölsk stjórnvöld hafi ekki náð að útrýma mansali en hafi þó á undanförnum árum gripið til ýmissa aðgerða í því skyni að berjast gegn mansali, m.a. með gerð og eftirfylgni með aðgerðaráætlun gegn mansali (e. National Action Plan against Trafficking in, and Serious Exploitation of, Human Beings) og með aukinni samvinnu ríkisstofnana og frjálsra félagasamtaka. Þá hefur Ítalía á undanförnum árum sett aukið fjármagn í rannsóknir á mansali í landinu sem og til ýmissa frjálsra félagasamtaka sem aðstoða þolendur mansals. Meðal úrræða sem eru til staðar á Ítalíu eru sérstök húsnæðisathvörf fyrir þolendur mansals. Auk þess hefur verið lögð áhersla á þjálfun lögreglumanna og annarra viðeigandi starfsmanna í þessum málaflokki.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Að því er varðar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu hefur Mannréttindadómstóll Evrópu lagt til grundvallar að uppbygging móttökukerfis fyrir umsækjendur og almennar aðstæður á Ítalíu séu ekki þess eðlis að þær standi í vegi fyrir öllum sendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd til landsins, sbr. t.d. ákvörðun í máli Ali o.fl. gegn Sviss (mál nr. 30474/14) frá 4. október 2016. Aftur á móti hefur í framkvæmd dómstólsins verið byggt á því að viðhlítandi trygging verði að liggja fyrir af hálfu ítalskra yfirvalda um viðunandi móttökuaðstæður áður en umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru í svo viðkvæmri stöðu að þeir þurfi sérstaka vernd eru sendir þangað. Um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vísar kærunefnd jafnframt til dóms Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barns hennar ekki slíkar að vegna stöðu þeirra sem umsækjanda um alþjóðlega vernd á Ítalíu verði endursending þeirra þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Þá er ekki fallist á með kæranda að aðstæður þeirra þar feli í sér ofsóknir í skilningi flóttamannahugtaksins gagnvart kæranda eða barni hennar. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kæranda og barns hennar leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði á Ítalíu, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hún og barn hennar verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda og barns hennar hefur þegar verið lýst en ljóst er að kærandi er ung einstæð móðir með ungabarn sem hefur leitað sér stuðnings vegna andlegrar vanlíðunar. Af gögnum máls verður ekki annað ráðið en að barn kæranda sé við góða heilsu. Það er mat kærunefndar að aðstæður hennar, eða barns hennar, séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í því sambandi hefur nefndin m.a. litið til þess að gögn um heilsufar kæranda og barns hennar bendi ekki til þess að heilsufar þeirra sé með þeim hætti að þær teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Líkt og áður hefur komið fram hefur kærandi notið stuðnings sálfræðings hér á landi. Auk þess er hún með ungabarn með sér. Kærunefnd ítrekar að af þeim gögnum sem nefndin hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu megi ráða að umsækjendur hafi aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir börn. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd því ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi og barn hennar geti leitað sér viðhlítandi þjónustu á Ítalíu í samræmi við þarfir sínar. Það er mat kærunefndar að aðstæður kæranda, og barns hennar, þ.m.t. m.t.t. heilsufars þeirra, séu ekki þess eðlis að kærandi muni ekki geta sótt sér þá heilbrigðisþjónustu eða aðra þá þjónustu sem hún og barn hennar þurfi á að halda á Ítalíu.

Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár ítalskra yfirvalda verði hún fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hún leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Kærandi vísar til þess í greinargerð sinni að hún óttist tiltekinn mann á Ítalíu, [...]. Kærunefnd áréttar að framangreind gögn beri með sér að ítölsk löggæsluyfirvöld hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að bregðast við hótunum og ofbeldisbrotum sem íbúar landsins og þeir sem þar dvelji verði fyrir. Þá séu til staðar frjáls félagasamtök og kvennaathvörf sem m.a. bjóði upp á ráðgjöf og þjónustu til kvenna. Telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hún geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hennar verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að ofangreindu sögðu telur nefndin ljóst að kæranda og barni hennar standi til boða viðeigandi úrræði og aðstoð á Ítalíu og að mati nefndarinnar benda gögn málsins ekki til þess að aðstæður kæranda eða heilsufar sé með þeim hætti að kærandi geti ekki borið sig eftir slíkum úrræðum.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma jafnframt fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Sem fyrr segir eru mæður og börn sem leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu vistuð saman. Þá verður ráðið af ofangreindum gögnum að leyst sé úr umsóknum þeirra m.t.t. meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar. Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd á Ítalíu er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Ítalíu samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn barns kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda það til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kæranda að umsókn þess verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar kæranda til úrskurða kærunefndar nr. 242/2018 frá 29. maí 2018 og nr. 339/2019 frá 11. júlí sl. er það mat kærunefndar að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í þeim úrskurðum, m.a. þegar litið er til þess að í báðum málum var um að ræða einstaklinga sem höfðu aðra réttarstöðu á Ítalíu en kærandi og aðstæður þeirra því ekki sambærilegar. Að því er varðar tilvísun kæranda til úrskurðar kærunefndar nr. 393/2018 frá 27. september 2018 tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda í þessu máli við stöðu kærenda í framangreindum úrskurði, enda er ekki um sömu viðtökuríki að ræða.

Í greinargerð kæranda er lögð sérstök áhersla á greinargerð innanríkisráðuneytisins um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu frá því í desember 2015. Kærunefnd tekur fram að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna leggur nefndin mat á einstaklingsbundnar aðstæður einstaklingsins í hverju máli fyrir sig, með tilliti til aðstæðna í viðtökuríki, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, sem tók gildi þann 6. mars 2018 þar sem m.a. kemur fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar aðstæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Vísar kærunefnd í þessu sambandi jafnframt til tilkynningar dómsmálaráðuneytisins frá september 2017, sem talsmanni kæranda er vel kunnugt um, um að greinargerð innanríkisráðuneytisins frá því í desember 2015 væri afturkölluð. Í tilkynningunni kom fram að lögð væri áhersla á að sjálfstætt mat færi fram hjá stjórnvöldum í hverju máli fyrir sig en í lögum um útlendinga séu ákvæði sem eigi að koma í veg fyrir að umsækjendur um alþjóðlega vernd verði sendir í óviðunandi aðstæður.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barns hennar er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna athugasemda kæranda í greinargerð um beitingu ákvæða 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 3. júlí 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi eða barn hennar hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda og barns hennar þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en kærandi lagði fram umsókn sína þann 24. júní 2019.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi athugasemdir í greinargerð sinni við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hennar, þ. á m. við mat stofnunarinnar á aðstæðum á Ítalíu, rannsókn stofnunarinnar á aðstæðum kæranda og að ekki hafi verið lagt mat á bestu hagsmuni barnsins.

Líkt og áður greinir gerir kærandi m.a. athugasemd við að í ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið gerð athugasemd um að frekari læknisfræðileg gögn skorti en þó komist að þeirri niðurstöðu að fyrirliggjandi gögn nægðu til að taka ákvörðun í málinu. Þá vísar kærandi til þess að í ákvörðun Útlendingastofnunar komi fram að kærandi hafi átt tíma hjá sálfræðingi þann 13. ágúst 2019. Talsmaður kæranda hafi þó ekki verið upplýstur um tímann og hafi skilað greinargerð í máli kæranda til Útlendingastofnunar þann 12. ágúst 2019 þar sem öll fyrirliggjandi gögn voru lögð fram. Telur kærandi að verulega skorti á að heildstætt mat á aðstæðum hennar hafi verið framkvæmt og gerir athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar á stöðu hennar. Vísar hún í því sambandi til 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá vísar kærandi einnig til 1. mgr. 25. gr. sömu laga. Vegna tilvísunar kæranda í úrskurð kærunefndar útlendingamála nr. 316/2017 frá 2. júní 2017 um efni rannsóknarreglunnar tekur kærunefnd fram að ekki sé hægt að jafna máli kæranda við mál kæranda í framangreindum úrskurði, enda aðstæður þeirra ólíkar m.a. m.t.t. rannsóknar Útlendingastofnunar og aldurs og heilsufars kærenda í málunum. Líkt og fram kemur í áðurgreindum úrskurði skal stjórnvald, samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga, sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla nauðsynlegra upplýsinga. Þá segi jafnframt í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Í máli kæranda liggur fyrir að henni hafi verið leiðbeint, í viðtali hjá Útlendingastofnun, að leggja fram þau læknisfræðilegu gögn sem gætu haft þýðingu við ákvörðun í máli hennar Í því sambandi bendir kærunefnd á að kærandi hafi hitt sérfræðinga Göngudeildar sóttvarna og hafi lýst andlegri líðan sinni í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Í ljósi stöðu kæranda, sem ungrar einstæðrar barnshafandi konu sem kom einsömul hingað til lands, gerir kærunefnd athugasemd við þá málsmeðferð Útlendingastofnunar að leiðbeina kæranda ekki um framlagningu þeirra gagna sem upplýst var að kynnu að hafa myndast eftir að greinargerð, og öðrum gögnum, í málinu var skilað. Telur kærunefnd að, eins og málum hafi hér verið sérstaklega háttað, stofnuninni hafi borið að leiðbeina kæranda og talsmanni hennar um framlagningu frekari gagna. Kærunefnd áréttar þó að það er fyrst og fremst á ábyrgð kæranda og talsmanns að leggja fram þau gögn sem teljast nauðsynleg við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd. Upplýsingar um framangreindan tíma, þann 13. ágúst 2019, viðtal við hjúkrunarfræðing á Göngudeild sóttvarna hafa legið fyrir við málsmeðferð á kærustigi. Með vísan til fyrrgreindrar umfjöllunar um málsmeðferð kærunefndar varðandi öflun heilsufarsgagna, telur kærunefnd að bætt hafi verið úr framangreindu atriði á kærustigi og ljóst sé að það hafi ekki haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærandi gerir þá athugasemd við að ekki hafi farið fram mat á hagsmunum þá ófædds barns hennar og hvað því sé fyrir bestu í ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærunefnd telur ljóst af rökstuðningi í ákvörðun Útlendingastofnunar að við vinnslu málsins hjá stofnuninni hafi verið litið til þess hvaða aðstæður biðu barns kæranda á Ítalíu. Var t.a.m. í ákvörðun Útlendingastofnunar vikið að aðgengi einstæðra foreldra ungra barna að húsnæði á Ítalíu, aðgengi að ungbarnaeftirliti, menntun og aðgengi að daggæslu, þ.e. vöggustofum og leikskólum, þar í landi. Af lestri ákvörðunarinnar sé því ljóst að væntanlegar aðstæður barnsins á Ítalíu hafi verið meðal þess sem lagt var til grundvallar þegar ákvörðun í málinu var tekin. Þá hefur kærunefnd endurskoðað málið á grundvelli viðeigandi ákvæða, þ. á m. 3. mgr. 25. gr. og 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga, með bestu hagsmuni barnsins að leiðarljósi, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun í málinu.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera frekari athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 23. júní 2019 og samkvæmt gögnum máls sótti hún um alþjóðlega vernd þann 24. júní 2019. Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þær því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda og barni hennar því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þær verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi og barn hennar skulu fluttar til Ítalíu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa ítölsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hennar um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda og barn hennar til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

 

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                           Ívar Örn Ívarsson 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta