Hoppa yfir valmynd

Nr. 451/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 26. september 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 451/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19060019

Kæra [...]

og barns hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 11. júní 2019 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 22. maí 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir hennar og barns hennar, [...], fd. [...] (hér eftir A), um alþjóðlega vernd og vísa þeim frá landinu.

Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar, í fyrsta lagi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga og í öðru lagi á grundvelli 1. mgr. 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 27. janúar 2019. Við meðferð málsins framvísaði kærandi m.a. ítölsku dvalarleyfisskírteini á grundvelli viðbótarverndar með gildistíma til 14. apríl 2021. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 13. febrúar 2019, ásamt talsmanni sínum. Þá greinir í gögnum málsins að barn kæranda, A, hafi fæðst hér á landi þann 4. maí 2019. Útlendingastofnun ákvað þann 22. maí 2019 að taka ekki umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda þann 28. maí sl. og kærði kærandi ákvarðanirnar þann 11. júní sl. til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda, ásamt fylgigögnum, bárust kærunefnd þann 21. júní sl. Þá bárust kærunefnd viðbótargögn í máli kæranda þann 24. júlí sl. og 10. og 16. september sl.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að henni hefði verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Ítalíu.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins A kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli móður hennar, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum barnsins væri best borgið með því að fylgja móður sinni til Ítalíu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að andleg heilsa hennar sé bág vegna alls sem hún hafi gengið í gegnum. Hún eigi m.a. erfitt með svefn og bresti í grát innan um annað fólk. Kærandi greini frá því að hún hafi misst foreldra sína á unga aldri og hafi yfirgefið [...] vegna þess að systkini hennar hafi viljað að hún gifti sig. Kærandi greini þá frá því að kona í [...] hafi gefið henni fyrirheit um að hún gæti fylgt henni til Ítalíu gegn gjaldi. Á leiðinni til Ítalíu hafi kærandi verið beitt ofbeldi í [...], þar sem hún hafi verið í haldi í einn mánuð, áður en hún hafi verið látin laus gegn greiðslu lausnargjalds. Á Ítalíu hafi henni verið tjáð að hún yrði að búa hjá konunni sem hafði milligöngu um flótta hennar til landsins. Jafnframt yrði hún að greiða fyrir ferðina með því að stunda vændi. Kærandi kveði að kæmi hún ekki með nægan pening í lok dags hafi hún verið beitt ofbeldi og send aftur út á götuna. Hún hafi reynt að finna aðra vinnu en konan hafi komið í veg fyrir að hún stundaði önnur störf. Þá hafi hún ekki þorað að leita til félagsmálayfirvalda eða tjá útlendingayfirvöldum frá aðstæðum sínum af ótta við að lögreglan hefði afskipti af vændisstarfseminni og að það kæmi niður á systkinum hennar í [...]. Kærandi greini frá því að þrátt fyrir að hún hafi orðið barnshafandi á Ítalíu hafi hún þurft að halda áfram að stunda vændi. Kærandi hafi átt von á tvíburum en misst annað fóstrið og hafi hún þá ákveðið að yfirgefa Ítalíu. Hún sé í sambandi við barnsföður sinn, sem búi í annarri borg á Ítalíu, en hann sé ófær um að veita henni stuðning og hafi ekki aðstoðað hana að nokkru leyti. Þá greini kærandi frá því að hún hafi upplifað fordóma á Ítalíu vegna húðlitar síns og aðstæðna.

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Í fyrsta lagi mótmælir kærandi mati Útlendingastofnunar um að kæranda og dóttur hennar muni standa til boða öll viðeigandi þjónusta og aðstoð á Ítalíu, þ.e. aðgangur að heilbrigðis- og félagsþjónustu og húsnæði. Kærandi hafi í greinargerð til stofnunarinnar rakið heimildir um það að flóttamenn á Ítalíu lendi gjarnan í vandræðum með aðgang að heilbrigðisþjónustu og félagslegum úrræðum vegna þess að þeir hafi ekki skráða búsetu neins staðar eða vegna þess að aðgangur sé í sumum tilfellum bundinn skilyrðum um samfellda búsetu á Ítalíu í tiltekinn tíma. Fullvíst sé að kærandi muni ekki eiga í nein hús að venda á Ítalíu, verði henni gert að snúa þangað aftur, og því litlar líkur á því að hún geti sýnt fram á fast heimilisfang. Muni kærandi og dóttir hennar þar af leiðandi ekki hafa fullnægjandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu á Ítalíu. Auk þess hafi kærunefnd útlendingamála, í úrskurði nr. 103/2019 frá 13. mars 2019, fjallað um að annmarkar séu á húsnæðisúrræðum á Ítalíu. Enn fremur hafnar kærandi því að hún hafi átt kost á því að stunda atvinnu í landinu, enda hafi hún alfarið verið á valdi konu sem hafi stöðugt fylgst með henni.

Í öðru lagi mótmælir kærandi því að hún og dóttir hennar eigi ekki á hættu að verða fyrir alvarlegri mismunun eða að staða þeirra komi til með að verða verulega síðri en almennings þar í landi. Kærandi hafi greint frá því að hafa mætt kynþáttafordómum og fordómum vegna stöðu sinnar sem flóttamaður á Ítalíu auk þess sem fyrirliggjandi heimildir beri með sér að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna séu vandamál á Ítalíu. Í þriðja lagi mótmælir kærandi því að virk úrræði séu til staðar fyrir þolendur mansals á Ítalíu og að kærandi geti fengið lögregluvernd frá konunni sem hafi gert kæranda út og valdið henni ótta. Frásögn kæranda sé í samræmi við áreiðanlegar heimildir um erfiðar aðstæður mansalsþolenda. Kærandi vísi þá til skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal fyrir árið 2018 þar sem fram komi m.a. að ítölsk stjórnvöld hafi ekki gert nægilegar ráðstafanir til þess að greina þolendur mansals eða bregðast við þeim fjölda kvenna sem þarf á aðstoð að halda. Auk þess hafi stjórnvöld ekki gripið til marktækra aðgerða til að draga úr ólöglegum kynlífsiðnaði í landinu.

Í fjórða lagi hafnar kærandi því að öll börn á Ítalíu eigi rétt til menntunar. Líkt og rakið sé í ákvörðun stofnunarinnar sé réttur barna með stöðu flóttamanns til menntunar skertur og ekki sambærilegur rétti annarra barna. Þá vísar kærandi því alfarið á bug, m.a. í ljósi umfjöllunar í greinargerð um slæmar aðstæður og réttindi flóttafólks á Ítalíu, að stofnunin hafi litið til hagsmuna barnsins við ákvörðunartöku um sendingu þess til Ítalíu. Í fimmta lagi gerir kærandi athugasemd við umfjöllun stofnunarinnar um samband kæranda við barnsföður hennar. Nánar tiltekið mótmælir kærandi því mati stofnunarinnar að ráða megi af frásögn hennar að hún sé í sambandi við barnsföður sinn og að ekkert í málinu gefi til kynna að hann sé ófær um að styðja kæranda og barn þeirra eða að þeim sé fyrirmunað að vera saman. Barnsfaðir kæranda hafi búið í mikilli fjarlægð frá kæranda á Ítalíu og verið atvinnulaus. Hafi hann því ekki getað sent henni peninga eða veitt henni þann stuðning sem hún hafi þurft á að halda. Þá hafi hún, sem fyrr segir, ekki getað um frjálst höfuð strokið vegna þeirrar staðreyndar að hún hafi verið þolandi mansals á Ítalíu. Loks hafnar kærandi alfarið staðhæfingu stofnunarinnar þess efnis að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að kærandi glími við alvarleg eftirköst ofbeldis, pyndinga eða annarra áfalla á lífsleiðinni. Kærandi hafi lýst því í viðtali hjá stofnuninni að hafa verið þolandi mansals og verið beitt kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi í um níu ár á Ítalíu. Að öllu framangreindu virtu telur kærandi ómálefnalegt af hálfu Útlendingastofnunar að efast um að henni og dóttur hennar muni reynast erfitt, ef ekki ómögulegt, að sækja sér félagslega aðstoð, menntun, atvinnu og fullnægjandi heilbrigðisaðstoð á Ítalíu. Þá telur kærandi að stofnunin hafi ekki gætt að rannsóknarskyldu sinni varðandi þann möguleika að kærandi muni verða fyrir hefndaraðgerðum og verði aftur hneppt í mansal, fari hún aftur til Ítalíu. Jafnframt hafi stofnunin ekki rannsakað hvaða afleiðingar sú staða geti haft í för með sér fyrir dóttur kæranda.

Kærandi gerir í greinargerð fyrirvara við lagastoð reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Kærandi bendir m.a. á að þau atriði sem talin séu upp í dæmaskyni í 32. gr. a umræddrar reglugerðar geti ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda hverju sinni. Kærandi telur að aðstæður hennar og dóttur hennar séu það einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Áréttar kærandi í því samhengi að frásögn hennar og þær heimildir sem hún hafi vísað til sýni fram á að hún hafi átt afar erfitt uppdráttar og upplifað alvarlega mismunun á Ítalíu.

Í greinargerð er auk þess fjallað ítarlega um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna á Ítalíu og er vísað í ýmsar alþjóðlegar skýrslur til stuðnings þeirri umfjöllun. Í skýrslunum komi m.a. fram að ítalska hæliskerfið hafi verið undir miklu álagi síðustu ár og aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks þar í landi séu mjög bágbornar. Jafnframt sé takmarkað aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga sem hlotið hafi alþjóðlega vernd en þeir þurfi að skrá sig hjá heilbrigðisyfirvöldum þar sem endurnýjun heilbrigðisþjónustukorts sé háð því að viðkomandi hafi fengið endurnýjað búsetuleyfi frá bæjarfélagi sem hann sé búsettur í. Einnig geti endurnýjun dvalarleyfa verið erfiðleikum háð en það geti tekið nokkra mánuði fyrir útlendingayfirvöld að ganga frá slíkri beiðni og afhenda umsækjanda nýtt dvalarleyfiskort. Þá hafi kynþáttahatur og mismunun á grundvelli kynþáttar farið vaxandi þar í landi.

Til stuðnings kröfu sinni um efnismeðferð vísar kærandi m.a. til þess að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hennar og A, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum og fyrri úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Kærandi áréttar að líkur standi til að hún hafi sætt pyndingum eða afar illri meðferð í [...], auk þess að hafa lifað við erfiðar aðstæður á Ítalíu í níu ár sem þolandi mansals og alvarlegs líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis. Þá greinir kærandi frá því að staða hennar hafi breyst verulega frá því að hún var á Ítalíu en hún hafi fætt barn hér á landi 4. maí sl. og njóti ekki stuðnings barnsföður síns á Ítalíu. Af þeim sökum sé ljóst að hún þurfi á sérhæfðri heilbrigðisaðstoð að halda. Kærandi telur að staða hennar og A verði verulega síðri en staða almennings á Ítalíu, verði þær sendar þangað.

Að því er varðar mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísar kærandi til fyrri úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 nr. 550/2017 og 552/2017 og frá 24. október 2017 nr. 581/2017, nr. 583/2017 og nr. 586/2017. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 393/2018 frá 27. september 2018. Þar hafi kærunefnd lagt fyrir Útlendingastofnun að taka mál fjölskyldu til efnismeðferðar þar sem að þær aðstæður sem biðu þeirra í Grikklandi yrðu verulega síðri en staða almennings. Jafnframt vísar kærandi í úrskurði kærunefndar nr. 103/2019 frá 13. mars sl. og 110/2019 frá 1. apríl sl. Í fyrrgreinda úrskurðinum komi m.a. fram að skortur á sérhæfingu í málefnum flóttamanna og tungumálakunnátta á Ítalíu geri sumum umsækjendum um alþjóðlega vernd erfitt fyrir að sækja sér viðunandi heilbrigðisþjónustu þar í landi, einkum einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Telur kærandi enga ástæðu til að ætla að annað gildi um handhafa alþjóðlegrar verndar. Þá áréttar kærandi að á stjórnvöldum hvíli rík skylda til að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barns hennar og þær afleiðingar sem endursending til Ítalíu geti haft í för með sér.

Í greinargerð sinni fjallar kærandi jafnframt um hagsmuni A og athugasemdir við mat Útlendingastofnunar þar um. Í því sambandi vísar kærandi m.a. til 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003, 1. mgr. 3. gr. og 1. mgr. 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt alþjóðasamningum og lögum séu börn álitinn sérstaklega viðkvæmur þjóðfélagshópur og beri þeim því að njóta sérstakrar verndar og umönnunar. Kærandi greini frá því að fjölmargar rannsóknir séu til vitnis um hversu mikilvægt sé að búa börnum umhverfi þar sem þau fái tækifæri til að þroskast og dafna fjarri áhyggjum og öryggisleysi. Hin tiltölulega nýfædda stúlka kæranda sé á því skeiði ævinnar þar sem þroskabreytingar séu gífurlegar og sé ákaflega mikilvægt að hún njóti verndar, viðeigandi umönnunar og heilbrigðisþjónustu. Að mati kæranda sé ljóst að barni hennar sé ekki fyrir bestu að verða sent til Ítalíu þar sem þess bíði brostið kerfi og líf á götunni.

Kærandi gerir jafnframt kröfu um að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, en í ákvæðinu megi finna regluna um non-refoulement, eða bann við að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Telur kærandi að þær aðstæður sem hún og dóttir hennar megi búast við á Ítalíu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barns kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda hjá Útlendingastofnun og gögn um heilsufar hennar og barns hennar. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málanna er kærandi með viðbótarvernd á Ítalíu og dvalarleyfi á grundvelli þeirrar verndar með gildistíma til 14. apríl 2021. Gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér bera ekki annað með sér en að A, sem er fædd hér á landi, hafi aðgang að sambærilegri vernd á Ítalíu og kærandi. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur á Ítalíu í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi er einstæð kona á [...] sem fæddi barn [...]. Samkvæmt gögnum málsins er kærandi almennt við góða líkamlega heilsu. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi m.a. hafa verið beitt ofbeldi á Ítalíu og vera við bága andlega heilsu vegna þess sem hafi komið fyrir hana þar. Þá kvaðst kærandi hafa framfleytt sér með vændi á Ítalíu og ber frásögn hennar með sér að hún kveðist vera þolandi mansals. Gögn málsins bera með sér að kærandi hafi sótt sálfræðiviðtal hjá Göngudeild sóttvarna í eitt skipti. Í gögnum um heilsufar barnsins A kemur m.a. fram að stuttu eftir fæðingu hafi hún verið lögð inn á vökudeild Landspítala vegna þess að hún hafi verið með E.coli sýkingu. Þá kemur fram að hún hafi fengið viðeigandi sýklalyfjameðferð vegna þess. Gefa gögn málsins ekki annað til kynna en að hún sé nú við góða heilsu.

Í ljósi ofangreinds og með hliðsjón af ungum aldri barns kæranda, m.a. í ljósi þess að kærandi er hér á landi án föður A, er það mat kærunefndar að kærandi og A hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka hefur þurft tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Italy 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, apríl 2019);
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2018 (European Asylum Support Office, 24. júní 2019);
  • Report concerning the implementation of the Council of Europe Convention on Action against Trafficking in Human Beings by Italy (Council of Europe: Group of Experts on Action against Trafficking in Human Beings, 25. janúar 2019);
  • 2019 Trafficking in Persons Report – Italy (United States Department of State, 20. júní 2019);
  • Freedom in the World 2019 – Italy (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Amnesty International Report 2017/18 - Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Mutual Trust Is Still Not Enough – The situation of persons with special reception needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish Refugee Council og Swiss Refugee Council, 12. desember 2018);
  • Wave Country Report 2017 (Women against Violence Europe, mars 2018);
  • The Journey of Hope: Education for Refugee and Unaccompanied Children in Italy (Education International Research, 31. maí 2017);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • Integration of Refugees in Greece, Hungary and Italy: Comparative Analysis (European Parliament, desember 2017);
  • Investing in Children´s Services – Improving Outcomes (European Social Network, 2016);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016);
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016);
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014);
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013);
  • Upplýsingar af vefsíðu Istituto Nazionale della Previdenza Sociale/INPS (https://www.inps.it);
  • Upplýsingar af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (http://ec.europa.eu);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy) og
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/).

Samkvæmt ofangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geta öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fá ferðaskilríki (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geta fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað snertir aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.

Í skýrslu Asylum Information Database kemur m.a. fram að húsnæðisaðstoð við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu sé af skornum skammti. Ítölsk yfirvöld reka þó búsetuúrræðin SIPROIMI (e. System for the Protection of Beneficiaries of International Protection and Unaccompanied Foreign Minors) sem eru nánast eingöngu ætluð handhöfum alþjóðlegrar verndar og fylgdarlausum börnum. Þegar einstaklingar hafa fengið inngöngu í SIPROIMI úrræði mega þeir dvelja þar í sex mánuði. Aftur á móti eru ekki nógu mörg SIPROIMI úrræði til að mæta þeim fjölda sem hefur fengið alþjóðlega vernd. Í framangreindum skýrslum kemur jafnframt fram að sambærileg félagsleg húsnæðisúrræði á vegum sveitarfélaga séu aðgengileg einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar og ítölskum ríkisborgurum, þó að einhver dæmi séu um að sveitarfélög geri kröfu um búsetu á Ítalíu í tiltekinn tíma til að öðlast rétt til aðgangs að slíkum úrræðum.

Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafa dvalarleyfi á Ítalíu hafa sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar. Hins vegar sé atvinnuleysi mikið og eigi útlendingar oft í erfiðleikum með að finna atvinnu við hæfi. Einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu eiga almennt sama rétt og ítalskir ríkisborgar til velferðarþjónustu sem er m.a. veitt af tryggingastofnun ríkisins (í. Istituto Nazionale della Previdenza Sociale/INPS) og sveitarfélögum. Þjónustan getur eftir atvikum falið í sér m.a. atvinnuleysisbætur, fæðingarorlof og fjölskyldubætur. Búseta á tilteknu svæði er ekki skilyrði fyrir félagslegri þjónustu, en í einhverjum tilvikum er gerð krafa um búsetu á Ítalíu í ákveðinn tíma, t.a.m. er tiltekin aðstoð við framfærslu eingöngu veitt einstaklingum sem hafa búið í tíu ár á Ítalíu.

Hægt er að skrá fæðingu barns á spítala innan þriggja daga frá fæðingu eða síðar í sveitarfélagi viðkomandi að framlögðum persónuskilríkum. Foreldrar barna á aldrinum þriggja mánaða til tveggja ára geta sótt um aðgang að vöggustofum en aðgengi að þeim og gjöldum er stjórnað af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Börn á aldrinum þriggja til sex ára eiga þá að geta fengið aðgang að leikskólum, og í einhverjum tilvikum bjóða sveitarfélög upp á lækkuð gjöld, falla frá gjöldum eða bjóða forgang að plássi þegar aðstæður krefjast slíks og tiltekin skilyrði eru uppfyllt. Í skýrslu Asylum Information Database og skýrslu samtakanna Education International Research kemur m.a. fram að ítölsk lög kveði á um skólaskyldu til 16 ára aldurs. Öll börn sem dvelja á ítölsku yfirráðasvæði eiga því rétt á skyldubundinni menntun frá sex til 16 ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá eiga erlend börn rétt á sérstakri aðstoð hafi þau sérþarfir og jafnframt bjóða sumir skólar upp á sérstakt undirbúningsnámskeið til að aðstoða erlenda nemendur við að aðlagast skólanum. Þegar erlend börn leggja fram umsókn um skólavist þá er krafist sömu upplýsinga um barnið og hjá ítölskum börnum og skortur á framlagningu gagna á ekki að koma í veg fyrir að barn sé skráð í skólann.

Í framangreindum gögnum kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. til endurgjaldslausrar ungbarnaverndar, að því gefnu að þeir hafi skráð sig inn í heilbrigðiskerfið. Slík skráning er háð því að umsækjandi hafi skráð lögheimili sem eðli máls samkvæmt getur verið hindrun fyrir einstaklinga sem eru án fastrar búsetu. Í ofangreindri skýrslu Asylum Information Database kemur fram að skráning í heilbrigðiskerfið gildi jafn lengi og dvalarleyfi einstaklings og falli ekki sjálfkrafa úr gildi á meðan á málsmeðferð endurnýjunar dvalarleyfisins standi. Í framkvæmd geti þó einstaklingar með útrunnin dvalarleyfi átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu. Einstaklingar þurfa almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem fellur til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýta sér en frá því eru þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar einstaklingar eru utan vinnumarkaðar og án annarrar framfærslu. Í skýrslu Asylum Information Database kemur þó fram að mismunandi túlkun á reglum um greiðsluþátttöku sjúklinga hafi leitt til þess að í sumum sveitarfélögum hafi verið gerð krafa um að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar en eru utan vinnumarkaðar greiði kostnað við heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt framangreindum heimildum eru því ýmsar aðgangshindranir til staðar þegar kemur að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk yfirvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk stjórnvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með aðgerðaráætlun gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana.

Í ofangreindum skýrslum, þ.m.t. skýrslu United States Department of State, kemur fram að ítölsk stjórnvöld hafi ekki náð að útrýma mansali en hafi þó á undanförnum árum gripið til ýmissa aðgerða í því skyni að berjast gegn því, m.a. með gerð og eftirfylgni með aðgerðaráætlun gegn mansali (e. National Action Plan against Trafficking in and Serious Exploitation of Human Beings) og með aukinni samvinnu ríkisstofnana og frjálsra félagasamtaka. Þá hefur Ítalía á undanförnum árum sett aukið fjármagn í rannsóknir á mansali í landinu sem og til ýmissa frjálsra félagasamtaka sem aðstoða þolendur mansals. Meðal úrræða sem eru til staðar á Ítalíu eru sérstök húsnæðisathvörf fyrir þolendur mansals. Auk þess hefur verið lögð áhersla á þjálfun lögreglumanna og annarra viðeigandi starfsmanna í þessum málaflokki.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barns hennar ekki slíkar að endursending þeirra þangað verði talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Þá er ekki fallist á með kæranda að aðstæður þeirra þar feli í sér ofsóknir gagnvart kæranda og barni hennar. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar á Ítalíu telur kærunefnd að tryggt sé að hún og barn hennar verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Af hálfu kæranda er á því byggt að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu vegna kerfislægrar mismununar gegn einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu. Hana hafi skort félagslegan stuðning, aðstoð við atvinnuleit og aðstoð yfirvalda á Ítalíu við að komast undan þeim sem hafi selt hana mansali. Þótt skýrslur um aðstæður á Ítalíu bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Við mat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og barns hennar að þessu leyti telur kærunefnd ekki unnt að líta framhjá því að samkvæmt frásögn kæranda og öðrum gögnum málsins hefur hún dvalið á Ítalíu um árabil. Er því mat nefndarinnar að aðstæður þeirra séu ekki þess eðlis að önnur sjónarmið eigi að gilda í málinu en að framan hafa verið rakin.

Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda jafnframt til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hún um öryggi sitt og A að einhverju leyti á Ítalíu séu þarlend yfirvöld í stakk búin til þess að veita henni og barni hennar fullnægjandi vernd. Kærandi geti því leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Af framangreindum gögnum um aðstæður á Ítalíu verður jafnframt ráðið að þótt fordómar og mismunun á grundvelli kynþáttar séu til staðar á Ítalíu búi ítölsk stjórnvöld yfir fullnægjandi úrræðum til að bregðast við þeim. Kærunefnd áréttar að framangreind gögn beri með sér að ítölsk löggæsluyfirvöld hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að bregðast við hótunum og ofbeldisbrotum sem íbúar landsins og þeir sem dvelja þar verði fyrir. Þá bera framangreind gögn með sér að yfirvöld á Ítalíu fjármagni rekstur athvarfa þar sem þolendur mansals geti nálgast viðeigandi aðstoð og þjónustu. Eins og að framan greinir hafa einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar sambærilegan aðgang að lögum að félagsþjónustu á vegum ítalska ríkisins og ítalskir ríkisborgarar. Hindranir sem einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar þar kunna að þurfa að yfirstíga til að fá aðgang að umræddri þjónustu fela að mati nefndarinnar ekki í sér alvarlega mismunun. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi og barn hennar muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þær geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Þá eru að mati kærunefndarinnar ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærandi og dóttir hennar geti leitað sér fullnægjandi heilbrigðisþjónustu í samræmi við þarfir sínar en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu að lögum sama rétt á heilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð og ríkisborgarar Ítalíu þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að sækja þá þjónustu, til að mynda skilyrði um skráningu. Kærunefnd telur að gögn málsins bendi ekki til þess að þær glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar á Ítalíu og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 14. apríl 2021. Af framangreindri skýrslu Asylum Information Database verður ráðið að handhafar alþjóðlegrar verndar geta skráð fæðingu barns á spítala innan þriggja daga frá fæðingu eða síðar í sveitarfélagi viðkomandi að framlögðum persónuskilríkjum. Þá tekur kærunefnd fram að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu, hvort sem um er að ræða einstakling með réttarstöðu flóttamanns eða handhafa viðbótarverndar, geta sótt um fjölskyldusameiningu og þurfa ekki að sýna fram á að húsnæði eða lágmarkstekjur séu fyrir hendi. Kærunefnd leggur því til grundvallar að úrræði séu í boði fyrir kæranda að því er varðar stöðu dóttur hennar, A, sem fædd er hér á landi. Það er þá mat kærunefndar, á grundvelli þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu, að flutningur kæranda og dóttur hennar til Ítalíu muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Þá sé jafnframt ljóst af þeim gögnum sem kærunefnd hafi skoðað og vísað er í hér að framan að kæranda standi að einhverju leyti til boða úrræði að því er varðar m.a. aðgang að leikskólum fyrir A. Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd á Ítalíu er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Ítalíu samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn barns kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kæranda að umsókn þess verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Vegna tilvísunar kæranda til úrskurða kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017, 552/2017, 581/2017, 583/2017, 586/2017, 393/2018, 103/2019 og 110/2019 verður tekið fram að kærunefnd telur mál kæranda ekki sambærilegt framangreindum málum, m.a. þar sem í þeim málum er ýmist um að ræða önnur viðtökuríki, þungaðar konur, alvarleg veikindi eða aðstæður einstaklinga sem ekki hafa fengið alþjóðlega vernd í viðtökuríki.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barns hennar er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 13. febrúar 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að hún eða dóttir hennar hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi m.a. athugasemd við beitingu Útlendingastofnunar á reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga auk þess að gera fyrirvara við lagastoð reglugerðarinnar. Þá gerir kærandi frekari athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við mat á aðstæðum hennar og barns hennar á Ítalíu.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja henni og barni hennar um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Samkvæmt gögnum máls kom kærandi hingað til lands þann 27. janúar 2019 og sótti um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og A um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þær því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda og barni hennar því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þær verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta túlkun sinni á því hvenær sá frestur sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga telst vera liðinn. Kom þar fram að miðað yrði við lok þess stjórnsýslumáls sem hefst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd en ekki við flutning kæranda úr landi. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að töf á flutningi kæranda úr landi eftir að úrskurður kærunefndar hefur verið birtur hefur ekki lengur sjálfstæða þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                                                                 Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta