Hoppa yfir valmynd

Nr. 290/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 6. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 290/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19050027 og KNU19050028

 

Kæra […],

[…],

og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 14. maí 2019 kærðu […], fd. […], ríkisborgari Moldóvu (hér eftir M) og […], fd. […], ríkisborgari Moldóvu (hér eftir K) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 23. og 30. apríl 2019, um að synja kærendum og börnum þeirra, […], fd. […], […], fd. […], […], fd. […], […], fd. […], og […], fd. […], öll ríkisborgarar Moldóvu (hér eftir A, B, C, D og E) um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærendur krefjast þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og þeim verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kærendum verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að þeim verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málin til meðferðar á ný.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi þann 6. nóvember 2018 ásamt börnum sínum. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 4. apríl 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 23. og 30. apríl 2019, synjaði Útlendingastofnun kærendum og börnum þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála þann 14. maí 2019. Kærunefnd barst greinargerð kærenda þann 17. maí 2019.

III.       Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna atviks sem hafi átt sér stað á milli barns þeirra og annars barns við leik á leikvelli. Þá beri kærendur því við að vera í hættu í heimaríki vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur séu ekki flóttamenn og þeim skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli A kom fram að kærendum hafi verið boðið að hún færi í viðtal hjá Útlendingastofnun en að M hafi talið það óráðlegt. Kvað hann atburði tengda flótta fjölskyldunnar vega þungt á A. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum B, C, D og E kom fram að þau væru svo ung að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtöl við þau. Fram kom að umsóknir barna kærenda væru grundvallaðar á framburði foreldra þeirra og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum foreldra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, útlendingalaga og barnaverndarlaga, að börnum kærenda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis. Börnum kærenda var vísað frá landi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Kærendum var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.       Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að þau hafi verið búsett í borginni […] í heimaríki sínu og að þau tilheyri minnihlutahópi af þjóðabroti Rómafólks. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærendur vísað til atviks þar sem elsta dóttir þeirra, A, hafi verið á leik við stúlku af téténskum ættum á svipuðum aldri og hún, en sú stúlka hafi verið barnabarn nágrannakonu kærenda. A og stúlkan hafi verið að leika sér í rólu, en A hafi reynt að ýta rólunni í heilan hring sem hafi endað með því að téténska stúlkan hafi dottið úr rólunni, meiðst á höfði og misst meðvitund. Hafi enginn fullorðinn orðið vitni að atvikinu, en stúlkan hafi í kjölfarið verið flutt á spítala þar sem hún hafi látið lífið. Í kjölfarið hafi kærendur fengið símtal frá Rómafólki, sem hafi verið statt á spítalanum, sem hafi ráðlagt kærendum að flýja land. Kærendum hafi verið tjáð að þegar faðir téténsku stúlkunnar hafi fengið fregnir af andláti hennar hafi hann brotið rúður á spítalanum og öskrað að hann myndi drepa barn kærenda til að hefna sín. Þá hafi lögreglumaður, sem þekki til föður látnu stúlkunnar, tjáð kærendum að eini möguleikinn í stöðunni væri að flýja land.

Fram kemur að kærendur hafi lagt á flótta um leið og þau hafi fengið fregnir af andláti stúlkunnar. Þegar þau hafi komið til Búdapest í Ungverjalandi hafi M opnað samfélagsmiðla og séð hús þeirra í Otaci brenna. Þótt kærendur viti ekki nákvæmlega hver hafi kveikt í húsinu komi enginn annar til greina en téténska fjölskyldan. Kærendur telji sig ekki geta búið annars staðar í heimaríki enda hafi allir Téténar í heimaríki þeirra heyrt af atvikinu auk þess sem faðir stúlkunnar sé þjóðþekktur. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi M þó ekki viljað nefna faðir stúlkunnar á nafn af ótta við hann. Þá hafi M greint frá því að aðrir fjölskyldumeðlimir hans hafi sætt aðkasti vegna málsins. Hafi faðir stúlkunnar haft upp á bróður M, mætt heim til hans og sýnt ógnandi tilburði, en bróðir M hafi í kjölfarið flúið land. Foreldrar M hafi jafnframt reynt að miðla málum og haft upp á föður stúlkunnar, en hann hafi þá gengið í skrokk á föður M. Hafi faðir M einnig lagt á flótta til Þýskalands, en þar hafi hann hitt Rómafólk sem hafi tjáð honum að verið væri að leita að honum, börnum hans og barnabörnum.

Í greinargerð kemur fram að kærendur hafi einnig orðið fyrir mikilli mismunun, áreiti og fordómum vegna þess að þau tilheyri þjóðarbroti Rómafólks. Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi K greint frá því að Rómafólk þurfi að greiða fyrir hvers lags þjónustu, jafnvel þótt hún eigi að vera gjaldfrjáls, og þrátt fyrir að þau greiði fái þau ekki fullnægjandi þjónustu. Þá hafi kærendur lýst mikilli niðurlægingu og mismunun gagnvart Rómafólki innan menntakerfisins í Moldóvu, en börn Rómafólks séu t.a.m. beitt líkamlegu ofbeldi í skólunum en ekki börn af moldóvskum uppruna. Að sögn M hafi hann þurft að greiða skólastjóra 20 þúsund bandaríska dollara svo börn þeirra gætu gengið í skóla, en þegar nýr skólastjóri hafi tekið við hafi börnunum verið vísað úr skóla. Kveður M að ekki sé óalgengt að Rómafólk þurfi að greiða fyrir skólagöngu barna sinna meðan börn af moldóvskum uppruna gangi í skóla endurgjaldslaust. Þá leiði erfitt aðgengi Rómafólks að skólakerfinu til skertra atvinnumöguleika. Byggja kærendur á því að í ljósi stöðu þeirra sem Rómafólks sé vonlaust að leita til lögreglu eða yfirvalda vegna fyrrnefnds atviks, en slíkt hafi aldrei borið árangur fyrr.

Í umfjöllun um aðstæður í heimaríki kærenda kemur m.a. fram að ríkið sé eitt það fátækasta í Evrópu og að spilling sé mikil. Að því er varðar aðstæður Rómafólks segir að hópurinn verði fyrir útskúfun úr samfélaginu og glími við alvarlega mismunun og annað mótlæti á öllum stigum þjóðfélagsins. Heimildir hermi að Rómafólk flosni fyrr upp úr námi, hafi takmarkaðan aðgang að heilbrigðiskerfinu og að atvinnuleysi sé langt yfir meðaltali. Stjórnvöld í heimaríki kærenda búi ekki yfir skilvirku kerfi eða ferlum til að auka skólagöngu Rómabarna né styðji við viðkvæmar fjölskyldur sem sendi börnin ekki í skóla. Samkvæmt skýrslum sæki um 43% Rómabarna á aldrinum 7-15 ára ekki skóla og að þau börn sem sæki skóla verði fyrir mismunun og einangrist félagslega. Þá búi meirihluti Rómafjölskyldna í dreifbýli og á sérgreindum svæðum og stór hluti þeirra búi jafnframt við lélegan húsakost og hafi ekki aðgang að neysluvatni eða rafmagni. Beri heimildum einnig saman um að lagalegar breytingar og umbótaverkefni sem hafi verið ætlað að rétta stöðu Rómafólks í heimaríki kærenda hafi ekki skilað árangri. Hafi nefnd Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi t.d. lýst aðgerðaáætlunum stjórnvalda í málaflokknum sem misheppnuðum á öllum sviðum og miklu áhyggjuefni.

Aðalkrafa kærenda er byggð á því að þau séu flóttamenn í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga en þau óttist ofsóknir vegna þjóðernis síns, sbr. c-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, n.t.t. vegna stöðu þeirra sem Rómafólks. Byggja kærendur á því að frásagnir þeirra við meðferð málsins hafi í einu og öllu verið í samræmi við heimildir um stöðu Rómafólks í Moldóvu. Með vísan til þess um hve mikla og útbreidda mismunun sé að ræða sem og hversu alvarlegar hinar endurteknu athafnir séu telja kærendur að aðstæður þeirra nái því alvarleikastigi að teljast ofsóknir. Í ljósi framangreindra heimilda og vegna þess ofbeldis og alvarlegu mismununar sem kærendur hafi þegar orðið fyrir sé ótti þeirra við ofsóknir jafnframt ástæðuríkur. Þá beri, með vísan til framangreinds, að leggja til grundvallar að yfirvöld hafi hvorki getu né vilja til að veita kærendum þá vernd sem þau þarfnast. Í umfjöllun um varakröfu er ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga rakið, sem og skilgreining á hugtakinu viðbótarvernd í tilskipun 2004/38/EB. Byggja kærendur á því, með hliðsjón af framangreindum atriðum, að þau uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem raunhæf ástæða sé til að ætla að þau eigi á hættu að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Vísa kærendur til hættu á að þau verði fyrir illri meðferð af hálfu téténsku fjölskyldunnar, auk þess sem þau hljóti ekki nauðsynlega vernd lögreglu og yfirvalda vegna stöðu sinnar sem Rómafólks. Þá telja kærendur að flutningur innan heimaríkis sé hvorki raunhæfur eða sanngjarn kostur í ljósi aðstæðna þeirra, m.a. með vísan til þess að viðhorf til Rómafólks sé sambærilegt allsstaðar í heimaríki þeirra.

Kærendur byggja þrautavarakröfu á því að þau tilheyri einum viðkvæmasta minnihlutahópinum í heimaríki og verði fyrir alvarlegum fordómum og mismunun á öllum stigum samfélagsins. Kærendur muni standa frammi fyrir afar erfiðum félagslegum aðstæðum verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis, bæði hvað varði almennar aðstæður þeirra sem Rómafólks sem og vegna aðstæðna í máli þeirra. Vísa kærendur einnig til athugasemda við 74. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga, en þar komi m.a. fram að til greina komi að gera minni kröfur til að börn nytu verndar og fengju dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins ef þau eiga ekki rétt á vernd eða dvalarleyfi á öðrum grundvelli.

Í umfjöllun um þrautaþrautavarakröfu er vísað til ákvæða laga og alþjóðasáttmála um réttindi barna og meginreglunnar um að það sem sé barni fyrir bestu skuli haft að leiðarljósi við töku ákvörðunar sem varðar hagsmuni þess. Fram kemur að kærendur eigi fimm börn, fædd á árunum 2007-2018. Telja kærendur sýnt að öryggi barnanna geti ekki talist tryggt í heimaríki, m.a. vegna þeirra hættu sem beinist að þeim vegna fyrrnefnds slyss, skorts á vernd yfirvalda í því sambandi sem og hættu á að líða alvarlega útskúfun og ofbeldi af hálfu skólayfirvalda í heimaríki. Þá hafi kærendur sjálf lýst fordómum, mismunun og áreiti sem þau verði sjálf fyrir í heimaríki og séu börn þeirra með sama hætti berskjölduð fyrir slíkri hættu. Í ljósi framangreinds verði að telja börnum kærenda fyrir bestu að vera veitt vernd hér á landi. Þá byggja kærendur á því að Útlendingastofnun hafi ekki lagt neitt mat á hvað börnum kærenda sé fyrir bestu, hver þörf þeirra sé fyrir vernd eða afleiðingar frávísunar á þau. Telja kærendur að gera verði þá kröfu á Útlendingastofnun að hún rannsaki afleiðingar frávísunar á börnin og rökstyðji ákvarðanir sínar með fullnægjandi hætti. Vegna framangreinds séu hinar kærðu ákvarðanir haldnar annmörkum.

V.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað moldóvskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og börn þeirra séu moldóvskir ríkisborgarar.

Réttarstaða barna kærenda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd með foreldrum sínum og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Moldóvu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

·         Moldova 2018 Human Rights Report (U.S. Department of state, 13. mars 2019);

·         Moldova 2017 Human Rights Report (U.S. Department of state, 25. apríl 2018);

·         From Words to Deeds: Addressing Discrimination and Inequality in Moldova (Equal Rights Trust, júní 2016);

·         Amnesty International Report 2017/18 Moldova (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

·         Nations in Transit – 2018 – Moldova (Freedom House, 11. apríl 2018);

·         Human Rights in Moldova (Civil Rights Defenders, 17. janúar 2017);

·         Freedom in the World 2018 – Moldova (Freedom House, 1. ágúst 2018);

·         World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Moldova (Minority Rights Group International, janúar 2018);

·         World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Moldova: Russians and Russian-speakers (Minority Rights Group International, janúar 2018);

·         World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Moldova: Roma (Minority Rights Group International, janúar 2018);

·         Concluding observations to the third periodic report of the Republic of Moldova. E/C.12/MDA/CO/3. (UN Economic and Social Council, 6. október 2017);

·         ECRI Report on the Republic of Moldova (fifth monitoring cycle) (Council of Europe, 2. október 2018);

·         Report of the Special Rapporteur on minority issues on her mission to the Republic of Moldova. A/HRC/34/53/Add.2 (Commission on Human Rights, 11. janúar 2017);

·         Upplýsingar af vefsíðu bandaríska velferðarráðuneytisins, https://www.ssa.gov/.

Moldóva er lýðræðisríki með þingbundinni stjórn með u.þ.b. 3,5 milljónir íbúa. Moldóva er aðili að ýmsum alþjóðlegum mannréttindasamningum m.a. samningi Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og valkvæðri bókun við samninginn, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu ásamt flóttamannasamningnum. Moldóva er jafnframt aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Moldóva er á lista Útlendingastofnunar yfir örugg upprunaríki.

Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2018 séu helstu vandamál tengd mannréttindum í Moldóvu, pyndingar og slæmar aðstæður í fangelsum og geðsjúkrahúsum ríkisins, handahófskenndar handtökur og varðhald, spilling hjá háttsettum embættismönnum, takmarkað frelsi fjölmiðla og ofbeldi gegn einstaklingum með fötlun á vistheimilum. Moldóvsk stjórnvöld hafi rannsakað tilkynningar um brot á mannréttindum en hafi í fáum tilfellum tekist að saksækja og refsa opinberum starfsmönnum vegna slíkra brota. Þá hafi færst í aukana að embættismenn séu sóttir til saka með valkvæðum hætti og refsileysi sé enn vandamál. Stjórnarandstaðan hafi haldið því fram að hún verði fyrir auknum þrýstingi af hálfu yfirvalda og dæmi séu um að einstaklingar séu settir í varðhald af pólitískum ástæðum. Árið 2018 hafi saksóknari hafið 71 sakamál gegn starfsmönnum löggæslustofnana ríkisins og hafi verið ákært í 27 málum gegn 46 lögreglumönnum. Samkvæmt moldóvskum lögum geti almennir borgarar sótt um skaðabætur vegna mannréttindabrota. Stjórnarskrá landsins kveði á um ábyrgð ríkisins þegar stjórnvöld brjóti á réttindum einstaklinga m.a. með þeim hætti að svara ekki umsóknum tímanlega eða vegna misferlis ríkisins í sakamálum. Dómar í slíkum málum séu oft vægir jafnframt sem þeim sé ekki framfylgt. Þá séu starfandi bæði umboðsmaður mannréttinda og barna í ríkinu.

Í skýrslu alþjóðasamtaka um minnihlutahópa (Minority Rights Group International) kemur fram að u.þ.b. 22% þjóðarinnar tilheyri minnihlutahópum, þar af séu 7% Rúmenar, 6,6% Úkraínumenn, 4,1% af Gagauz uppruna, 4,1% Rússar, 1,9% Búlgarar, 0,5% Rómafólk og 0,3% tilheyri öðrum hópum. Þar kemur fram að Rómafólk sé einn viðkvæmasti minnihlutahópurinn í Moldóvu. Fjöldi Rómafólks í ríkinu sé opinberlega talinn vera um 9.000 en leiðtogar rómasamfélaga telji að rauntölur séu nær 250.000. Rómafólk verði fyrir mismunun á mörgum sviðum daglegs lífs, m.a. varðandi atvinnu, heilbrigðisþjónustu og menntun. Þá sé mansal, heimilisofbeldi, barnaþrælkun og barnahjónabönd algengari hjá þessum hópi en öðrum. Í ofangreindum gögnum kemur fram að Moldóva hafi tekið mikilvæg skref í baráttunni gegn mismunun á grundvelli þjóðernis með innleiðingu laga um bann við mismunun og setningu aðgerðaráætlunar um mannréttindi þjóðernishópa. Samkvæmt skýrslu Freedom House frá árinu 2018 sé minnihlutahópum ekki mismunað í moldóvskri löggjöf en sumir hópanna eigi þó fáa fulltrúa í stjórnmálum. Mikilvægum áfanga hafi verið náð í kosningum í júní 2015 þar sem tvær Rómakonur hafi verið kosnar í sveitastjórn sem hafi verið mikilvægt skref í ljósi þeirrar mismununar sem Rómafólk, sérstaklega konur, standi frammi fyrir í stjórnkerfi ríkisins.

Samkvæmt skýrslu nefndar Sameinuðu þjóðanna um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi frá árinu 2017 hafi Moldóva tekið upp aðgerðaráætlun til að styðja réttindi Rómafólks fyrir árin 2016 til 2020. Í skýrslunni kemur þó fram að nefndin harmi takmarkaðan árangur af fyrri aðgerðaráætlun fyrir árin 2011 til 2015 þar sem fjárveiting til verkefnisins hafi verið ófullnægjandi. Þá lýsi nefndin yfir áhyggjum af því að Rómafólk verði enn fyrir mismunun í daglegu lífi. Árangur hafi þó náðst með tilkomu fulltrúa rómasamfélagsins (e. Roma Community Mediators) á sviði félagsmála, heilbrigðis og menntunar. Þó hafi ekki allar stöður verið fylltar sökum skorts á fjármagni og takmörkuðum pólitískum vilja svæðisbundinna stjórnvalda. Þá hvetji nefndin moldóvsk stjórnvöld til að styðja betur við Rómafólk með því að bæta aðgengi þeirra sem búi á dreifbýlum svæðum að félagslegum bótum og útgáfu nauðsynlegra persónuskilríkja. Skortur á skilríkjum leiði einnig til takmarkaðs aðgengis Rómafólks að heilbrigðiskerfinu. Að lokum hafi nefndin gert athugasemd við lágt skráningarhlutfall og hátt brottfall nemenda af rómauppruna úr skólakerfinu og hvatt moldóvsk stjórnvöld til að bregðast við. Í skýrslu Evrópuráðsins frá 2018 kemur fram að of snemmt sé að meta árangur nýrrar aðgerðaráætlunar en 37% aðgerðanna úr áætlun áranna 2011-2015 hafi verið framfylgt. Það sé þó vandkvæðum bundið að fylgjast með árangri aðgerðanna þar sem tölur um fjölda Rómafólks séu á reiki auk þess sem skortur sé á tölfræði frá moldóvskum stjórnvöldum.

Í skýrslu alþjóðasamtaka um minnihlutahópa kemur fram að mismunandi tungumál íbúa Moldóvu hafi valdið aðgreiningu hópa í ríkinu en algengustu tungumálin séu moldóvska og rússneska. Einstaklingar í framangreindum tungumálahópum tilheyri sitthvoru samfélaginu og séu sérstakir fjölmiðlar og menntakerfi fyrir hvorn tungumálahóp um sig. Þá fari tungumálakennsla fyrir minnihlutahópa einungis fram í skólum þar sem rússneska sé aðaltungumálið. Afleiðing þessarar skiptingu menntakerfisins sé sú að einstaklingar sem tilheyri þjóðernisminnihluta læri opinbera tungumál ríkisins sem þriðja mál og tali málið því ekki reiprennandi. Þá sé menntun á rússnesku í boði í Moldóvu allt frá leikskólastigi til menntaskólastigs og séu fleiri nemendur í rússneskum skólum heldur en tilheyri rússneska þjóðernisminnihlutanum. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að grunnmenntun sé endurgjaldslaus og skólaskylda sé út níunda bekk. Menntun barna af rómauppruna hafi verið vandamál og aðeins helmingur Rómabarna gangi í skóla og eitt af hverju fimm börnum fari í leikskóla. Samkvæmt fulltrúum rómasamfélagsins sé fjarvera Rómabarna frá skóla og brottfall þeirra vegna fátæktar og ótta við mismunun. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að stjórnvöld hafi skort fullnægjandi kerfi til að takast á við vanda fjölskyldna í viðkvæmri stöðu þar sem börnin fari ekki í skóla. Í skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um Moldóvu frá sérstökum skýrslugjafa um minnihlutahópa frá 2016 kemur þó fram að gripið hafi verið til mikilvægra aðgerða til að berjast gegn mismunun Rómabarna og bæta aðgengi þeirra að menntakerfinu. Sérstaklega hafi tekist vel verkefni um aðlögun Rómabarna og þátttöku þeirra í skólakerfinu með nemendum af öðrum uppruna á jafnræðisgrundvelli sem hafi verið unnið af svæðisbundnum stjórnvöldum, fulltrúum rómasamfélagins og fulltrúum Sameinuðu þjóðanna. Skýrslugjafinn hafi heimsótt bæinn Otaci (r. Ataki) þar sem aðgerðirnar hafi verið árangursríkar í að auka skólasókn Rómabarna, berjast gegn staðalímyndum og stuðla að gagnkvæmri virðingu. Þá hafi í nokkrum sveitafélögum verið komið á aðgerðum til að bæta stöðu barna í viðkvæmri stöðu, þ.m.t. Rómabarna, á borð við niðurfellingu leikskólagjalda og endurgjaldslausan morgunmat. Þessar aðgerðir hafi m.a. verið innleiddar í Otaci með jákvæðum áhrifum.

Samkvæmt upplýsingum frá bandaríska velferðarráðuneytinu (e. Social Security Administration) sé til staðar almannatryggingakerfi í Moldóvu. Þá eigi allir íbúar ríkisins rétt á atvinnuleysisbótum séu þeir á skrá hjá vinnumálastofnun ríkisins og hafi verið starfandi í samtals níu mánuði á síðastliðnum tveimur árum fyrir skráningu. Þá verði einstaklingar að hafa getu og vilja til að vinna auk þess að vera ekki með skattskyldar tekjur. Jafnframt sé til staðar sjúkratryggingakerfi í ríkinu fyrir fjölskyldur með börn sem búi í Moldóvu. Fjölskyldur sem séu sjúkratryggðar eigi m.a. rétt á barnabótum og fæðingastyrk.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a.   ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c.   aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Aðalkrafa kærenda er reist á því að þau óttist ofsóknir í heimaríki vegna þjóðernis, nánar tiltekið vegna stöðu þeirra sem Rómafólks, bæði af hálfu stjórnvalda og almennings. Þá byggja kærendur á því að þau og börn þeirra eigi á hættu að sæta ofbeldi af hálfu téténskrar fjölskyldu vegna banaslyss sem hafi átt sér stað í heimaríki þeirra. Kveða kærendur að A hafi verið á leik við nágrannastúlku af téténskum uppruna þegar stúlkan hafi fallið úr rólu á höfuðið, misst meðvitund og í kjölfarið látið lífið á spítala. Kærendum hafi borist fregnir af því að á spítalanum hafi faðir stúlkunnar hótað því að drepa eitt barna kærenda í hefndarskyni. Í framhaldinu hafi lögreglumaður, sem þekki til kærenda og föður stúlkunnar, ráðlagt kærendum að leggja á flótta vegna slyssins. Í máli kærenda hefur einnig komið fram að eftir að þau hafi lagt á flótta hafi hús þeirra í heimaríki verið brennt, en kærendur telji að brunann sé að rekja til fyrrnefnds atviks. Þá kveður M að faðir stúlkunnar hafi áreitt bróður hans og föður í heimaríki vegna slyssins. Byggja kærendur á því að vegna stöðu þeirra sé útilokað að þau geti notið verndar yfirvalda í heimaríki vegna þeirrar hættu sem steðji að þeim.

Að því er varðar stöðu kærenda sem Rómafólks benda þau gögn, sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar, til þess að einstaklingar af rómauppruna hafi staðið frammi fyrir mismunun í heimaríki kærenda. Í samstarfi við alþjóðastofnanir séu stjórnvöld hins vegar að reyna að sporna gegn slíkri mismunun. Í lögum ríkisins sé fólki sem tilheyri minnihlutahópum ekki mismunað og hafi aðgerðaráætlun verið innleidd sem miði að því að draga úr mismunun gegn einstaklingum sem tilheyri þjóðernisminnihluta. Þá hafi ríkið gripið til aðgerða til að bæta stöðu Rómafólks og þrátt fyrir að aðgerðaráætlunum hafi ekki verið framfylgt að fullu hafi einhver árangur náðst og sé slík vinna enn í gangi. Af framangreindum gögnum má jafnframt ráða að sum þau vandamál Rómafólks sem tengjast menntun og heilbrigðisþjónustu stafi af skorti á persónuskilríkjum sem hamli aðgengi þeirra að ýmissi opinberri þjónustu. Kærendur hafa hins vegar lagt fram moldóvsk vegabréf. Að mati kærunefndar bera gögn málsins með sér að þótt Rómafólk verði fyrir einhvers konar mismunun í heimaríki kærenda nái hún almennt ekki því alvarleikastigi að teljast ofsóknir, sbr. b-lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá bendi einstaklingsbundnar aðstæður kærenda ekki til þess að þau séu sérstaklega útsett fyrir slíkri mismunun.

Að því er varðar ofsóknir sem kærendur halda því fram að þau eigi á hættu af hálfu tiltekinnar téténskrar fjölskyldu og mismunun af hálfu almennings í heimaríki tekur kærunefnd fram að af framangreindum gögnum má ráða að Rómafólk í Moldóvu verði fyrir mismunun og sú mismunun nái einnig að einhverju leyti til þeirrar verndar sem lögregla veitir. Gögnin benda þó jafnframt til þess að þeir ríkisborgarar Moldóvu sem telji að á réttindum sínum sé brotið geti leitað aðstoðar og verndar yfirvalda þar í landi og fengið lausn sinna mála. Þá sé til staðar kerfi í Moldóvu sem þeir geti leitað til sem telji sig hafa verið beitta órétti af lögreglu. Hægt sé m.a. að leita til stofnunar sem heyri undir innanríkisráðuneyti landsins sem og embættis umboðsmanns í ríkinu. Af þeim gögnum sem kærunefndin hefur tekið til skoðunar má ráða að þessi úrræði séu almennt raunhæf og árangursrík en þó má ráða af þeim að Rómafólk verði fyrir einhverri mismunun. Engu að síður er það mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að aðstæður kærenda séu með þeim hætti að stjórnvöld í heimaríki þeirra skorti vilja eða getu til að veita kærendum viðeigandi vernd gegn athöfnum sem feli í sér hótanir, áreiti eða ofbeldi, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir, sbr. 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga segir að við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn skuli það sem er barninu fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni er fyrir bestu skuli m.a. líta til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Eins og að framan greinir liggja ekki fyrir viðtöl við börn kærenda en samkvæmt gögnum málsins falaðist Útlendingastofnun eftir því að elsta barnið, A, færi í viðtal en forráðamenn hennar töldu það ekki rétt m.a. vegna þess að atburðir sem tengjast flótta fjölskyldunnar vegi þungt á A. Kærunefnd telur að leiða megi líkur að því í ljósi gagna málsins að skólaganga barna kærenda sé meiri erfiðleikum háð en börn í Moldóvu megi almennt búast við, m.a. vegna mismununar og neikvæðrar afstöðu almennings gegn Rómafólki. Börn kærenda hafa engu að síður, eins og ráða má af skýrslum og framburði kærenda, rétt til menntunar og raunhæfan möguleika á að sækja sér sér menntun. Þá hefur kærunefnd litið til þess að aðgerðir yfirvalda hafa sérstaklega beinst að því að draga úr brottfalli Rómabarna úr skóla og að þær hafi borið árangur í heimabæ kærenda. Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kvaðst M jafnframt hafa stundað viðskipti í heimaríki og þá kvaðst K hafa unnið heiman frá við snyrtimeðferðir. Af viðtölunum verður ekki annað ráðið en að framfærsla barna kærenda hafi verið tryggð í heimaríki.

Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að sú mismunun sem framangreindar skýrslur benda til þess að kærendur geti orðið fyrir í heimaríki sé hvorki þess eðlis að hún feli í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum kærenda né að hún hafi eða geti haft sömu eða sambærileg áhrif á kærendur og slík brot, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 4. mgr. 38. gr. laganna. Við þetta mat hefur kærunefnd, í samræmi við 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, litið sérstaklega til hagsmuna barna kærenda, öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska.

Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefndin að aðstæður kærenda og barna þeirra þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Kærendur byggja á því að sem Rómafólk muni þau búa við afar erfiðar félagslegar aðstæður verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Að því er varðar stöðu kærenda að þessu leyti er vísað til fyrri umfjöllunar um aðstæður Rómafólks í Moldóvu en kærunefnd hefur metið það svo, á grundvelli fyrirliggjandi gagna, að yfirvöld í heimaríki kærenda vinni að bættri stöðu Rómafólks í ríkinu og eigi kærendur þess kost að leita aðstoðar yfirvalda í Moldóvu vegna stöðu sinnar og þeirrar hættu sem þau telja sig vera í.

Þá vísa kærendur til athugasemda við 74. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga, en þar komi fram að til greina komi að gera minni kröfur til að börn njóti verndar samkvæmt ákvæðinu. Samkvæmt gögnum um heimaríki kærenda er lögbundin skólaskylda fram í níunda bekk og er sú menntun fólki að kostnaðarlausu. Þá hafi verið í gangi verkefni m.a. í heimabæ kærenda sem hafi miðað að aðlögun Rómabarna að skólakerfinu og aukinni virðingu í þeirra garð sem hafi reynst árangursríkt. Moldóva er aðili að barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og sé umboðsmaður barna starfandi í ríkinu. Auk framangreindra aðgerða hafi ríkið innleitt aðgerðaráætlanir þar sem sérstök áhersla sé lögð á að bregðast við brottfalli Rómabarna úr skólum. Það er því mat kærunefndar að þó að börn kærenda kunni að verða fyrir mismunun í menntakerfinu hafi þau engu að síður aðgang að menntun. Þá hefur kærunefnd litið til þess að stjórnvöld í heimaríki kærenda hafi gripið til aðgerða til að bregðast við þeirri mismunun sem Rómabörn hafi staðið frammi fyrir í menntakerfinu og að þær aðgerðir hafi náð nokkrum árangri í heimabæ kærenda. Eins og fram er komið verður jafnframt ekki annað ráðið af gögnum málsins en að framfærsla barna kærenda hafi verið tryggð og að þau njóti stuðnings fjölskyldu sinnar í heimaríki.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun kom fram hjá kærendum að þau og börn þeirra væru við góða heilsu. Samkvæmt gögnum málsins fór K þó í læknisskoðun hjá krabbameinsfélaginu þann 11. mars 2019 vegna verks í brjósti. Bera gögnin m.a. með sér að brjóst K hafi verið ósamhverf og að einhver munur hafi verið á vinstra og hægra brjósti, sem geti þó átt sér eðlilegar skýringar. Hafi verið lagt til að K fari í segulómun innan sex til átta vikna og síðan frekari rannsóknir komi eitthvað óeðlilegt í ljós. Kærunefnd hafa ekki borist frekari gögn vegna heilsufars K. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er öllum ríkisborgurum Moldóvu tryggður réttur til sjúkratrygginga. Eins og áður er rakið benda gögn um aðstæður Rómafólks í heimaríki kærenda til þess skortur á persónuskilríkjum og fátækt sé meðal þess sem takmarki aðgang þessa hóps að heilbrigðisþjónustu. Kærendur hafa lagt fram moldóvsk vegabréf og þá kvaðst M í viðtali hjá Útlendingastofnun ekki hafa átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Verður því lagt til grundvallar að kærendur hafi aðgang að heilbrigðiskerfinu þar í landi.

Þegar upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau og börn þeirra hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kærenda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kærenda og barna þeirra í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barna þeirra. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barna þeirra þangað.

Athugasemdir kærenda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Af hálfu kærenda er byggt á því að Útlendingastofnun hafi ekki lagt mat á hvað sé börnum þeirra fyrir bestu eða hverjar afleiðingar frávísunar yrðu á þau, sbr. t.d. 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga, og hafi Útlendingastofnun þannig brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Byggja kærendur á því að ákvarðanir í málum barna þeirra séu haldnar annmörkum og að fella beri ákvarðanirnar úr gildi.

Kærunefnd hefur farið yfir ákvarðanir og málsmeðferð Útlendingastofnunar í málum barna kærenda telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við ákvarðanirnar. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærendur komu hingað til lands 6. nóvember 2018 og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag ásamt börnum sínum. Eins og að framan greinir hefur umsókn þeirra og barna þeirra um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kærendum og börnum þeirra því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur og börn þeirra koma frá öruggu upprunaríki og eru við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kærenda er vakin á því að ef þau yfirgefa ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa þeim. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra.

Athygli er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

 

 


 

 

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra eru staðfestar. Lagt er fyrir kærendur og börn þeirra að hverfa af landi brott. Kærendum og börnum þeirra er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljug.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants and their children are affirmed. The appellants and their children are requested to leave the country. The appellants and their children have 15 days to leave the country voluntarily.

 

Anna Tryggvadóttir

 

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                Laufey Helga Guðmundsdóttir

 



Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta