Hoppa yfir valmynd

Nr. 112/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 1. mars 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 112/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU22120026 og KNU22120027

 

Kæra [...],

[...]

og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. desember 2022 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir M), [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir K), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 23. nóvember 2022, um að synja þeim og börnum þeirra, [...], fd. [...] (hér eftir A), [...], fd. [...] (hér eftir B), [...], fd. [...] (hér eftir C), [...], fd. [...] (hér eftir D) og [...], fd. [...] (hér eftir E), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Þess er aðallega krafist að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kærendum og börnum þeirra fimm verði veitt alþjóðleg vernd hér á landi með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kærendum ásamt börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og þeim ásamt börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kærendum og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá er þess krafist til þrautaþrautaþrautavara að kærendum og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. gr. reglugerðar nr. 122/2020, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. 

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi, fyrir sig og börn sín, hinn 29. júní 2021. Þar sem kærendur höfðu fengið útgefin dvalarleyfi hjá ítölskum stjórnvöldum var hinn 20. júlí 2021 send beiðni um viðtöku kærenda barna þeirra og umsókna þeirra um alþjóðlega vernd til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 1. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Þar sem ekki barst svar frá ítölskum stjórnvöldum innan þeirra tímamarka sem kveðið er á um í 1. mgr. 22. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar sendu íslensk stjórnvöld tilkynningu til ítalskra stjórnvalda, dags. 24. september 2021, þess efnis að íslensk stjórnvöld litu svo á að ítölsk stjórnvöld hefðu samþykkt endurviðtöku á kærendum og börnum þeirra, sbr. 7. mgr. 22. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Hinn 21. september 2021 ákvað Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum 28. september 2021 og kærðu þau ákvarðanirnar til kærunefndar útlendingamála 13. október 2021. Með úrskurði kærunefndar nr. 612/2021, dags. 2. desember 2021, staðfesti nefndin ákvarðanir Útlendingastofnunar í máli kærenda og barna þeirra. Hinn 13. desember 2021 lögðu kærendur og börn þeirra fram beiðni um frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar. Með úrskurði kærunefndar nr. 4/2022, dags. 4. janúar 2022, var þeirri beiðni kærenda hafnað. Hinn 22. júní 2022 var mál kærenda og barna þeirra endurupptekið hjá Útlendingastofnun þar sem ekki var lengur fyrir hendi heimild til að krefja ítölsk stjórnvöld um viðtöku þeirra, sbr. c-liður 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, og var málið tekið til efnislegrar meðferðar.

Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. 11. ágúst 2022, ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 23. nóvember 2022, synjaði Útlendingastofnun kærendum og börnum þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 6. desember 2022. Kærunefnd barst greinargerð kærenda og barna þeirra 20. desember 2022 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn 31. janúar 2023.

III.    Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að M byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki sínu vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi, vegna þess að hann hafi neitað að gangast við því að hafa barnað stúlku og hann hafi ekki viljað ganga til liðs við glæpasamtök í Nígeríu. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að K byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna óréttlætis og óöryggis. Hún hafi flúið vegna ótta við frænda sinn, vegna þess að faðir hennar hafi reynt að þvinga hana í hjónaband og vegna þess að konur í Nígeríu hafi enga rödd. Hún vilji ekki snúa til baka til Nígeríu af ótta við þvinguð hjónabönd og kynfæralimlestingar.

Niðurstaða ákvarðana Útlendingastofnunar var sú að kærendur væru ekki flóttamenn og þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kærenda, kom fram að ekki hafi verið tilefni til að taka sjálfstætt viðtal við þau enda væru þau ung að árum og hafi aldrei búið í heimaríki. Fram kom að umsóknir barna kærenda væru grundvallaðar á framburði foreldra þeirra og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum í málum foreldra þeirra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, útlendingalaga og barnaverndarlaga, að börnum kærenda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis.

Kærendum og börnum þeirra var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga og veittur 30 daga frestur til að yfirgefa landið. Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra myndi fresta réttaráhrifum ákvarðananna, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð vísa kærendur til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar hvað málavexti varðar. Í greinargerð er vísað til annmarka á viðtali við M hjá Útlendingastofnun. Frásögn hans hafi verið metin ótrúverðug og hafi m.a. verið litið til innra misræmis í viðtalinu þegar M hafi neitað um stund að hafa farið til heimaríkis árið 2013. Viðtalið hafi verið leitt af fulltrúa stofnunarinnar í starfsþjálfun undir leiðsögn reyndari fulltrúa sem einnig hafi verið viðstaddur viðtalið. Í viðtalinu þegar M hafi greint frá því að hafa leitað til lögreglu í heimaríki árið 2013 hafi báðir fulltrúar farið að spyrja M á víxl með nokkuð áköfum hætti sem leitt hafi til þess að M hafi farið í tilfinningalegt uppnám. M telji að framkvæmd viðtalsins hafi því ekki verið í samræmi við réttláta málsmeðferð. Eftir atvikið hafi M orðið óöruggari og átt erfiðara með að skilja spurningarnar og svara þeim skilmerkilega.

Kærendur vísa til umfjöllunar um landaupplýsingar og stöðu mannréttindamála í Nígeríu í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar. Kærendur telji þó að hlutlægum og aðgengilegum heimildum um háa tíðni kynferðisofbeldis gegn konum og stúlkum í heimahéraði kærenda hafi ekki verið gert nægilega hátt undir höfði í hinum kærðu ákvörðunum og vísa til þess að börn þeirra séu stúlkur. Kærendur vísa til þess að grunnskólastefnu í Nígeríu hafi nýlega verið breytt með þeim hætti að námið fari nú alfarið fram á staðartungumálum landsins fyrstu sex ár skólagöngunnar en áður hafi kennslan farið fram á ensku. Vegna þessara breytinga telji kærendur ljóst að matið á því hvað sé börnunum fyrir bestu sé grundvallað á úreltum og röngum upplýsingum. Börn kærenda séu á aldrinum [...] og tali ekki stakt orð í staðartungumálum landsins enda hafi þau aldrei komið til Nígeríu. Gögn málsins vísi hins vegar til þess að börnin tali íslensku og hafi náð ótrúlega góðum árangri í íslensku.

Kærendur gera athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar. Verulegir annmarkar séu á trúverðugleikamati stofnunarinnar. Í ákvörðun í máli M hnýti stofnunin í það að í hælisbeiðni kæranda komi fram að hann hafi dvalið á Ítalíu í 17 ár. Mánuði síðar, í viðtali hjá Útlendingastofnun, hafi hann sagst hafa dvalið þar í 18 ár. Þá hafi M greint frá því í viðtali hjá stofnuninni að hann vissi ekki nákvæmlega hvenær hann hafi farið frá heimaríki, það hafi líklega verið árið 2000 eða 2002. Gögn bendi til þess að M sé talnablindur og þá hafi hann greint frá því í viðtalinu að hann væri ekki góður í tölum og víxli þeim oft. M hafi verið hreinskilinn í efnisviðtali hjá Útlendingastofnun þegar hann hafi greint frá því að samkvæmt minni sínu hafi hann farið frá heimaríki árið 2000 eða mögulega 2002. M og K hafi sett upp nákvæma tímalínu þar sem fram komi að M hafi flúið heimaríki árið 2001, verið í Líbíu árið 2002 og komið til Ítalíu 2003. Framangreind atriði geti ekki leitt til þess að framburður M varðandi tímasetningu flótta hans frá heimaríki sé talinn ótrúverðugur. Því til viðbótar hafi framkvæmd viðtalsins gert M stressaðari en ella líkt og áður hafi verið fjallað um. Sú staðreynd að M hafi farið stuttlega til heimaríkis árið 2013 og hafi í skamma stund dregið staðreyndina til baka geti ekki leitt til þess ein og sér að framburður hans í heildina sé ótrúverðugur. Hann hefði að öllum líkindum ekki dregið staðreyndina til baka ef hann hefði ekki verið spurður út í atvikið af tveimur fulltrúum á nánast sama tíma sem hafi gert hann ringlaðan. Í því samhengi vísar M til skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat. Þá gerir M athugasemdir við umfjöllun stofnunarinnar um aldur barns hans í heimaríki. Hann hafi ruglað saman árinu sem hún fæddist og árinu sem hann hafi gengist við því að eiga hana. M gerir einnig athugasemd við meint ósamræmi í frásögn hans af ástæðum flótta hans frá heimaríki. Að lokum gerir M athugasemd við mat Útlendingastofnunar á því að hann eigi nákomna ættingja í heimaríki sem hann og börn hans geti notið stuðnings hjá. M sé ekki í sambandi við föður sinn og þá sé móður hans staðföst þeirrar skoðunar að það verði að kynfæralimlesta stúlkur sem tilheyri ættbálki þeirra. Dóttir M í heimaríki hafi sætt kynfæralimlestingu fyrir tilstilli móður hans og hún vilji gera það sama við hin börnin hans. Það standi því ekki til boða að fjölskyldan búi hjá móður M. Framburður M hvað þetta varðar eigi sér stoð í hlutlægum og áreiðanlegum heimildum sem staðfesti að kynfæralimlestingar séu enn algengar og samþykktar í nígerísku samfélagi, sérstaklega í suðurhluta landsins og sér í lagi meðal Edo eða Benin ættbálksins sem M og móðir hans tilheyri. Dæmi séu um að stúlkubörn hafi látið lífið vegna kynfæralimlestinga.

Kærendur byggja á því að forsendur hinna kærðu ákvarðana séu háðar þeim annmarka að byggja á því að ef foreldrar séu mótfallnir kynfæralimlestingum séu börnin ekki í hættu að vera fyrir slíku ofbeldi. Þrátt fyrir að tvær heimildir geti til um að það sé sjaldgæft að slíkt fari fram gegn vilja foreldra sé ekki hægt að útiloka að sú verði staðan hjá kærendum snúi þau aftur til foreldra sinna í heimaríki. Sömu heimildir gefi skýrt til kynna að foreldrar kunni að verða fyrir þrýstingi að framkvæma aðgerðina frá foreldrum sínum og öðrum áhrifameiri ættingjum fjölskyldunnar. Ótti kærenda sé því vafalaust ástæðuríkur í ljósi þess að K hafi sjálf verið kynfæralimlest, dóttir M í heimaríki hafi verið kynfæralimlest og vegna þess að M tilheyri Edo ættbálknum. Kærendur vísa til alþjóðlegrar skýrslu því til stuðnings.

Til stuðnings aðalkröfu sinni vísa kærendur til 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga þar sem fram kemur að undir ofsóknir geti fallið samansafn athafna. Rökrétt sé að álykta að börnin séu í verri stöðu en önnur börn í heimaríki þeirra þar sem þau njóti ekki stuðnings ættbálka sinna vegna andstöðu þeirra við kynfæralimlestingar og vegna þess að þau tali ekki staðartungumálið. Börnin séu því sérstakt skotmark mannræningja og eigi á hættu að verða fyrir mannráni og manndrápi, sbr. 1. mgr. 38. gr. og a-liður 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Til stuðnings varakröfu sinni vísa kærendur til hættunnar á ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í Nígeríu, einkum fyrir konur og stúlkur og til öryggisástandsins þar í landi. Kærendur hafi ekkert bakland í Nígeríu, þau muni neyðast til að gista á götunni eða í gistiskýlum sem auki hættuna á að börnin verði fyrir kynferðisofbeldi. Þær aðstæður sem bíði þeirra í Nígeríu jafnist á við ómannúðlega og/eða vanvirðandi meðferð, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.  

Til stuðnings þrautavarakröfu sinni byggja kærendur á ríkri þörf þeirra á vernd með tilliti til skorts á stuðningi fjölskyldu þeirra og ættbálks í Nígeríu. Jafnframt hafi þau ríka þörf á vernd vegna almennra aðstæðna og erfiðra félagslegra aðstæðna sem þau muni þ.a.l. glíma við snúi þau til Nígeríu. Þá glími E við lífshættulegan sjúkdóm sem þau hafi ekki efni á að kaupa lyf við, verði þeim gert að snúa til baka. E sé flogaveik og þurfi að taka inn lyf og vera í strangri og reglulegri eftirfylgni. Kærendur gera athugasemd við umfjöllun Útlendingastofnunar þar sem þau hafi ekkert bakland né félagslegt tengslanet í Nígeríu, séu eigna- og fjármagnslaus og muni ekki takast að útvega E nauðsynleg lyf þar í landi. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni sé lyfjakostnaður í Nígeríu gríðarlega hár og stór hluti almennings hafi því ekki greiðan aðgang að lyfjum þar í landi.

Börn kærenda hafi búið á Íslandi í 18 mánuði og séu byrjuð að tala íslensku. Þau hafi aldrei komið til heimaríkis. Í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga komi fram að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Börn kærenda eigi sjálfstæðan rétt til verndar samkvæmt lögum um útlendinga, mannréttindasáttmála Evrópu og alþjóðasamningi um stöðu flóttamanna og 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 18/1992. Því verði að meta aðstæður barnanna í heimaríki sjálfstætt. Í nýlegri skýrslu Alþjóðabankans (e. World bank) komi fram að flogaveik börn eigi á hættu að vera álitin göldrótt. Trú á barnagaldra sé alvarlegt vandamál í Nígeríu, sérstaklega á svæðunum Akwalbom og Cross River. Börn sem þjáist af flogaveiki séu í sérstökum áhættuhópi að því hvað varðar ásakanir um galdra.

Til stuðnings þrautaþrautavarakröfu kærenda byggja þau á því að þau hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 29. júní 2021. Þau hafi því ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða. Þá séu öll skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga uppfyllt í máli kærenda og barna þeirra. Þau hafi öll lagt fram nígerísk vegabréf og Útlendingastofnun hafi metið að kærendur og börn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti.

Til stuðnings þrautaþrautaþrautavarakröfu kærenda vísa þau til þess að meira en 16 mánuðir séu liðnir síðan þau lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 122/2020 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Umrætt ákvæði taki ekki á stöðu forsjárforeldra en kærendur telji eðlilegt að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga til að tryggja einingu fjölskyldunnar í samræmi við meginregluna þar um, sbr. úrskurð kærunefndar nr. 54/2021 frá 11. febrúar 2021.

Í hinum kærðu ákvörðunum hafi það verið mat Útlendingastofnunar að endursending kærenda og barna þeirra til Nígeríu brjóti ekki gegn 42. gr. laga um útlendinga, grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Kærendur geri athugasemdir við það mat og telji að endursending þeirra til heimaríkis myndi jafngilda því að þau hefðu ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr. laga um útlendinga, og vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu séu þau í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Að auki myndi slík ákvörðun brjóta gegn 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað nígerískum vegabréfum fyrir sig og börn sín, auk ítalskra dvalarleyfiskorta. Telur kærunefnd því ljóst að kærendur og börn þeirra séu nígerískir ríkisborgarar.

Réttarstaða barna kærenda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2021 Report on International Religious Freedom: Nigeria (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
  • Actors of Protection - Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
  • Amnesty International Report 2021/22 – Nigeria (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Black Axe: Leaked documents shine spotlight on secretive Nigerian gang (https://www.bbc.com/news/world-africa-59630424, 13. desember 2021);
  • Country Information Note – Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
  • Country of Origin report – Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, 22. júní 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);

  • Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
  • DFAT Country Information Report – Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
  • EASO COI Meeting Report: Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 22. ágúst 2017);
  • Country Guidance: Nigeria; Common analysis and guidance note (EUAA, 19. október 2021);
  • Freedom in the World 2022 – Nigeria (Freedom House, 24. febrúar 2022);

  • Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (https://socialprotection.org/discover/blog/health-care-nigeria-challenges-and-recommendations, 7. febrúar 2019);
  • Information on trafficking including situation for returness of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • International crackdown on West-African financial crime rings (https://www.interpol.int/en/News-and-Events/News/2022/International-crackdown-on-West-African-financial-crime-rings, 14. október 2022);
  • Italian police arrest alleged Black Axe Nigerian mafia members over trafficking (https://www.theguardian.com/global-development/2022/jan/19/italian-police-arrest-alleged-black-axe-nigerian-mafia-members-over-trafficking);
  • Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
  • Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
  • Nigeria: Children and Young People with Disabilities (Asylos, Asylum Research Centre, október 2021);
  • Nigeria – Country Focus (EUAA, júní 2017);
  • Nigeria: Denials and cover up mark 100 days since Lekki shooting (https://www.amnesty.org/en/latest/news/2021/01/nigeria-denials-and-cover-up-mark-100-days-since-lekki-shooting/, 28. janúar 2021);

  • Nigeria: Delstaten Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
  • Nigeria Police Effectiveness (Ireland - Refugee Documentation Centre (RDC), 9. september 2019);
  • Nigeria: Prevalence of female genital mutilation (FGM), including ethnic groups in which FGM is prevalent, particularly in Lagos State and within the Edo ethnic group; consequences for refusal; availability of state protection; the ability of a family to refuse a ritual practice such as FGM (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. september 2016);
  • Nigeria – Security situation (EUAA, júní 2021);

  • Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentaion Centre (RDC)), 16. júní 2019);
  • Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
  • Nigeria. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
  • Nigeria: The Black Axe confraternity, also known as the Neo-Black Movement of Africa, including their rituals, oahts of secrecy, and use of symbols or particular signs; whether they use force to recruit individuals (2009-November 2012) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. desember 2012);
  • Prevalence and management of child sexual abuse cases presented at Nigerian hospitals: A systematic review (Journal of Health and Social Sciences, janúar 2018);

  • Stakeholders canvass support strategies for Autism Spectrum Disorder (https://guardian.ng/news/stakeholders-canvass-support-strategies-for-autism-spectrum-disorder/, 5. ágúst 2021);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014en.pdf);
  • Taking Action and Finding Safe Spaces: Supporting Child Survivors of Sexual Abuse (https://nigeriahealthwatch.com/taking-action-and-finding-safe-spaces-supporting-child-survivors-of-sexual-abuse/, 28. júlí 2021);
  • Targeting of individuals - Nigeria (EUAA, nóvember 2018);

  • The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
  • The ultra-violent cult that became a global mafia (https://www.bbc.com/news/world-africa-59614595, 13. desember 2021);
  • The World Factbook - Nigeria (CIA, uppfært 21. desember 2022) og
  • World Report 2023 – Nigeria (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).

Nígería er sambandslýðveldi með um 225 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2022 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun á lögreglumönnum sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmannsins í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérstakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2021 er öryggisástand landsins hvað verst í norðurhluta Nígeríu þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram ber ábyrgð á morðum mörg þúsund íbúa. Öryggisástand í norðurhluta og norðausturhluta Nígeríu hafi farið versnandi á árunum 2019 og 2020 og yfirvöld á viðkomandi svæðum geti einungis veitt takmarkaða vernd. Átök og árásir af hálfu hryðjuverkahópa hafi jafnframt farið að gera vart við sig í norðvesturhluta Nígeríu frá árinu 2019. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2021 hafa öryggissveitir Nígeríu sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að útrýma hættunni sem stafi af Boko Haram, en talið sé að til þess þurfi öryggissveitir landsins meiri mannafla, vopn, þjálfun og fjármagn. Yfirvöld hafi þó gripið til ýmissa aðgerða í þeim tilgangi að útrýma hryðjuverkahópum, þ. á m. Boko Haram, en með takmökuðum árangri.

Fram kemur í framangreindum gögnum að ofbeldi gegn börnum sé útbreitt í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Þá hafi yfirvöld samþykkt aðgerðaráætlun, National Strategy to End Child Marriage in Nigeria (2016 2021) með það að markmiði að útrýma barnahjónaböndum fyrir árið 2030. Jafnframt vinni yfirvöld hörðum höndum að aðgerðaráætlun sem feli m.a. í sér forvarnarstarf meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Í framangreindum gögnum kemur fram að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Árið 2003 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt lög um réttindi barnsins (e. The Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið lögfesti reglurnar heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis einnig að færa regluverkið í fylkislöggjöf svo löggjöfin taki gildi í hverju fylki. Árið 2016 hafi 24 af 36 fylkjum tekið lögin í gildi og séu flest þeirra í suðurhluta Nígeríu, m.a. Edo fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu. Í ársskýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að í september 2022 hafi Nígería fullgilt samning Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) gegn ofbeldi og áreitni á vinnustað. Nígería er fyrsta ríki Vestur-Afríku til að fullgilda samninginn og áttunda í heiminum.

Samkvæmt framangreindum gögnum, þ. á m. skýrslum breska innanríkisráðuneytisins og EASO frá 2019, er umskurður á konum og stúlkubörnum útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengast sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-25%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurða. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærendur höfðu búsetu. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega 8 þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmir umskurð á konum eða stúlkum. Fram kemur að í sumum tilvikum álíti lögreglan í Nígeríu umskurð kvenna vera einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við umskurði kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar í Nígeríu hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moska, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þá sé afnám umskurðar kvenna eitt af markmiðum 2030 Agenda for Sustainable Development sem samþykkt var árið 2015. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema umskurð kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að verknaðurinn sé enn löglegur í sumum fylkjum, skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.

Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2022 sætir ein af hverjum fjórum stúlkum í Nígeríu kynferðisofbeldi. Talið sé að tæplega eitt prósent gerenda kynferðisbrota, sem tilkynntir séu til lögreglu, endi á að verða leiddir fyrir dóm og nánast engin mál endi með sakfellingu þeirra. Þolendur treysti margir hverjir ekki réttarkerfinu í Nígeríu og tilkynni því ekki brotin. Algengara sé að málin séu leyst utan réttarkerfisins. Ástæðu þess megi m.a. rekja til þekkingarskorts þolenda á lögunum og réttindum sínum, auk þess sem samfélagsleg viðhorf réttlæti misnotkun, ofbeldi og skömm þolenda. Slíkt leiði til refsileysis gerenda. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Nigeria Health Watch skorti sálfræðinga og annað fagfólk til að styðja við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis í Nígeríu.

Í skýrslu EASO frá árinu 2022 kemur fram að Nígería hafi gerst aðili að Maputo viðaukanum við mannréttindasáttmála Afríkuríkja árið 2003. Þar með hafi ríkið gengist undir skyldu til þess að tryggja þolendum kynbundins ofbeldis aðgengi að innlendum og svæðisbundnum dómstólum til þess að leita réttar síns. Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars 2022 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.

Í skýrslu flóttamannastofnunar Kanada kemur fram að mikið sé um leynileg glæpasamtök og bræðralög í Nígeríu. Algengt sé að slík samtök starfi innan háskóla en þau stundi einnig umfangsmikla glæpastarfsemi fyrir utan háskólasvæðin. Samtökin séu þekktust fyrir ógnandi hegðun og ofbeldi gagnvart nemendum, kennurum, lögreglu og öðrum samtökum. Dæmi séu jafnvel um að stjórnmálamenn ráði slík samtök til þess að beita andstæðinga sína ofbeldi. Eitt alræmdasta bræðralagið séu samtökin Black Axe og sé meginmarkmið samtakanna skipulögð glæpastarfsemi. Bera heimildir með sér að starfsemi þeirra nái til Ítalíu og víðar um Evrópu. Fram kemur að samtök og bræðralög sem þessi séu bönnuð samkvæmt stjórnarskránni. Þá hafi þau einnig verið bönnuð með lögum sem samþykkt hafi verið árið 2004, Secret Cult and Cult Related Activities (Prohibition) Bill. Talið sé að ef aðilar neiti að ganga í slík samtök eða reyni að ganga úr þeim þá geti þeir orðið fyrir ofbeldi. Heimildir bera þá með sér að lögregla ákæri fyrir glæpi sem framdir séu af hópum og samtökum líkt og fyrir hvern annan glæp. Lögregluyfirvöld hafi í fjölda tilfella handtekið einstaklinga sem séu tengdir slíkum samtökum. Samkvæmt fréttagrein BBC hafa samtökin þó eflst undanfarin ár og bendi tveggja ára rannsókn fréttamiðilsins til þess að Black Axe séu orðin ein af dreifðustu og hættulegustu skipulögðu glæpasamtökum heims í dag. Rannsóknin hafi m.a. leitt í ljós að samtökin hafi tengsl við aðila innan stjórnvalda í Nígeríu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2020 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stig sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu, m.a. mæðra- og ungbarnavernd, fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skiplögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningastofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningastofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærendur byggja umsóknir sínar á því að þau eigi á hættu ofsóknir vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópum. M tilheyri minnihluta í Nígeríu því hann tilheyri góðu hliðinni (e. good side), þ.e. hann vilji ekki ganga til liðs við glæpahópa í landinu. Samband hans við fjölskyldu hans sé ekki gott og þá hafi hann barnað stúlku þegar hann hafi verið 16 ára gamall. K tilheyri minnihluta í Nígeríu sem kona. Hún hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í Nígeríu og hafi átt að vera þvinguð í hjónaband. Þá óttist kærendur að börn þeirra verði kynfæralimlestar í Nígeríu.

Mat á trúverðugleika frásagna kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum frá heimaríki kærenda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að vera uppalinn í Benín borg í Edo fylki í Nígeríu. Hann hafi búið þar alveg þar til hann hafi flúið heimaríki árið 2000. K greindi frá því að hafa búið í [...] í [...] fylki til níu ára aldurs en þá hafi hún flutt til Benín borgar. Hún hafi svo flutt til Lagos í desember árið 2004 og flúið Nígeríu í júní árið 2005. Þau greindu bæði frá því að vera kristinnar trúar og þá kemur fram í greinargerð kærenda til kærunefndar að M tilheyri ættbálknum Benin eða Edo.

Kærendur hafa ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að þau óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda eða annarra aðila í Nígeríu sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærendur og börn þeirra eigi þær á hættu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hafa flúið heimaríki vegna þess að lögregla væri að leita að honum. Hann hafi barnað stúlku aðeins 16 ára gamall. Hann hafi ekki gengist við því að eiga barnið vegna trúar föður síns. Foreldrar stúlkunnar hafi þá haft samband við lögreglu sem hafi í kjölfarið leitað hans og hafi hann því ákveðið að flýja land. Samkvæmt gögnum málsins og framburði M gekkst hann við því árið 2004 að eiga barnið, og þá hafi móðir hans annast barnið í fjölda ára en það sé nú hjá móður sinni. Auk þess kvaðst kærandi hafa farið til Nígeríu árið 2013 og dvalið þar í tvo mánuði m.a. til þess að heimsækja barn sitt. Er það mat kærunefndar að M sé því ekki í hættu á að verða handtekinn í heimaríki af þeirri ástæðu.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að samkvæmt siðum í Nígeríu hafi hann átt að ganga í glæpahóp og sverja blóðeið. Þeir sem tilheyri ekki glæpahópi hafi ekki aðgang að fæði eða atvinnu og geti ekki gengið óhultir á götum úti. M greindi frá því að vilja ekki ganga til liðs við glæpahópa í Nígeríu og því tilheyri hann góðu hliðinni. Hann hafi átt að ganga til liðs við glæpahópinn Black Axe en vegna kristinnar trúar sinnar gæti hann ekki tilheyrt slíkum hópi. Þá kvaðst M ekki getað leitað til lögreglu því lögreglan starfi með glæpahópum landsins og þeir sem neiti að ganga til liðs við slíkan hóp endi í fangelsi. Í skýrslu flóttamannastofnunar Kanada kemur fram að mikið sé um leynileg glæpasamtök og bræðralög í Nígeríu. Eitt alræmdasta bræðralagið séu samtökin Black Axe. Talið sé að ef aðilar neiti að ganga í slík samtök eða reyni að ganga úr þeim þá geti þeir orðið fyrir ofbeldi. Í framangreindri skýrslu kemur fram að samtök og bræðralög líkt og glæpahópurinn Black Axe séu bönnuð samkvæmt stjórnarskrá landsins. Þá hafi þau einnig verið bönnuð með lögum sem samþykkt hafi verið árið 2004, Secret Cult and Cult Related Activities (Prohibition) Bill. Heimildir bera þá með sér að lögregla ákæri fyrir glæpi sem framdir séu af hópum og samtökum líkt og fyrir hvern annan glæp. Lögregluyfirvöld hafi í fjölda tilfella handtekið einstaklinga sem séu tengdir slíkum samtökum. M hefur engin gögn lagt fram sem benda til þess að hann hafi einhver tengsl við glæpahópa í Nígeríu eða hafi neitað að ganga til liðs við slíkan hóp. Kærunefnd telur þó ekki hægt að útiloka að M hafi átt í einhverjum samskiptum við glæpasamtök í heimaríki í gegnum tíðina en ekki á þann hátt að það teljist til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er það mat kærunefndar að ferð M til heimaríkis árið 2013 og lengd dvalar hans þar í landi á þeim tíma bendi ennfremur til þess að hann hafi ekki ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum í heimaríki.

Í svokölluðu efnisviðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 11. ágúst 2022, greindi K frá því að faðir hennar hafi yfirgefið hana og móður hennar þegar hún fæddist. Hún hafi búið hjá móðurafa sínum sem hafi hugsað um hana og móður hennar. Hún hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu vina afa síns. K hafi farið til Benín borgar níu ára gömul til að leita að föður sínum. Hún hafi fundið föður sinn og í kjölfarið búið hjá honum. Hún hafi ekki mátt tjá sig, hún væri kona og ætti því að elda og þrífa og hafi ekki mátt ganga í skóla. Hún hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu frænda síns og þá hafi faðir hennar ætlað að þvinga hana í hjónaband. Hún hafi hitt konu sem hafi hjálpað henni að fara frá Benín borg til Lagos og þaðan til Ítalíu. Þrátt fyrir að konur sæti almennt mismunun í Nígeríu og geti talist til sérstaks þjóðfélagshóps í skilningi 38. gr. laga um útlendinga er það mat kærunefndar að sú mismunun nái ekki því alvarleikastigi að geta talist ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá kemur fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2021 að þvinguð hjónabönd séu ólögleg í Nígeríu. Verður því ekki fallist á að K hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki sínu á grundvelli kyns síns eða hættu á að verða þvinguð í hjónaband.

K greindi frá því í efnisviðtali hjá Útlendingastofnun að hafa verið flutt frá Nígeríu til Ítalíu og hafi skuldað konunni sem flutti hana peninga en hún skuldi engum núna. Heimildir benda til þess að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu en gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að þeir sæti almennt ekki ofsóknum við endurkomu og að til staðar séu innviðir í heimaríki kæranda sem sérhæfi sig í þjónustu og aðstoð við þolendur mansals og að sækja gerendur til saka. Þá sé mansal refsivert í Nígeríu og hafa lögregluyfirvöld og stofnunin NAPTIP almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Það er mat kærunefndar að K eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, hjá stofnuninni NAPTIP, aðgerðarteyminu ETAHT og lögreglu, telji hún þörf á því. Að mati kærunefndar hefur því ekki verið sýnt fram á að K eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til þess að hún hafi verið þolandi mansals. Þá verður ekki ráðið að kærandi eigi á hættu að sæta ofsóknum af öðrum ástæðum er tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Kærendur hafa ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að þau og börn þeirra geti ekki notið verndar lögreglu eða sýnt fram á það með öðrum hætti. Er það því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kærendum og börnum þeirra vernd telji þau þörf á því, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærendur bera fyrir sig að óttast það að börn þeirra verði fyrir kynfæralimlestingum í Nígeríu. Börnin verði því í verri stöðu en önnur börn í þar í landi því þau njóti ekki stuðnings ættbálka sinna vegna andstöðu þeirra við kynfæralimlestingar. Líkt og framan greinir er umskurður á konum og stúlkum refsiverður verknaður samkvæmt nígerískum alríkislögum. Lögin gilda hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærendur höfðu búsetu. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-25%. Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra. Þrátt fyrir að aðrir ættingjar geti haft áhrif á þá ákvörðun sé það mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis. Bæði M og K hafa greint frá því að vera alfarið á móti því að börn þeirra verði kynfæralimlest. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að slíkt væri barna hans að ákveða sjálfar þegar þær væru orðnar 18 ára gamlar. Því til viðbótar vísar kærunefnd til þess að í skýrslu flóttamannastofnunar Kanada frá árinu 2016 kemur fram að stór hluti þeirra sem aðhyllist kynfæralimlestingar horfi á það sem ákveðna leið til að börn þeirra geti sannað að þau tilheyri ættbálki móður sinnar eða föður og njóti þannig stuðnings ættbálksins. Í skýrslunni kemur fram að kynfæralimlestingar séu víðtæk venja meðal Edo ættbálksins en trúin á kynfæralimlestingar sé mismunandi eftir fjölskyldum. Þeir foreldrar sem séu fylgnir þeirri trú beri hana áfram til barna sinna en það sé þó engin krafa innan Edo ættbálksins að börn séu kynfæralimlest. Með vísan til alls framangreinds og þá sérstaklega með vísan til skoðana kærenda á kynfæralimlestingum, er það mat kærunefndar að börn kærenda hafi ekki ástæðuríkan ótta við að verða þolendur kynfæralimlestinga í heimaríki sínu.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi viðaldur þess og þroska. Útlendingastofnun taldi ekki ástæðu til þess að taka viðtöl við börn kæranda vegna aldurs þeirra og vegna þess að þau hefðu aldrei búið í Nígeríu.

Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna kærenda samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barnanna nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur, að teknu tilliti til ákvæða í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og barnaverndarlögum nr. 80/2002, að engin rök standi í vegi fyrir því að börn kærenda fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis eða Ítalíu þar sem þau hafa rétt til dvalar. Kærunefnd horfir m.a. til þess að börnin eru í fylgd foreldra sinna sem eru að mestu heilsuhraust og vinnufær og njóta stuðnings þeirra. Þá benda gögn ekki til annars en að fjölskyldan geti búið saman í heimaríki þeirra eða á Ítalíu þar sem kærendur hafa ótímabundið dvalarleyfi. Líkt og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki þeirra. Þá bera gögn með sér að börn kæranda muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður barna kæranda, þ. á m. að þau hafi ekki búið í Nígeríu, komi ekki í veg fyrir að þau fylgi foreldrum sínum til heimaríkis. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna, að það sé þeim fyrir bestu að þau fylgi foreldrum sínum til heimaríkis eða Ítalíu.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau eða börn þeirra hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kærenda og barna þeirra séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður kærenda og barna þeirra þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu, að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 38. gr. og 39. gr. laganna. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-lið 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi er, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls. Með reglugerð nr. 122/2020 var tímaviðmið ákvæðisins stytt úr 18 mánuðum í 16 mánuði ef um er að ræða umsóknir barna.

Kærendur og börn þeirra sóttu um alþjóðlega vernd 29. júní 2021. Kærendur hafa ekki enn fengið niðurstöðu í málum sínum hjá kærunefnd útlendingamála. Frá því að kærendur og börn þeirra sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi þar til úrskurður þessi er kveðinn upp, dags. 2. mars 2023, eru liðnir um 20 mánuðir. Kærendur teljast því ekki hafa fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga og 32. gr. d reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 122/2020. Er því heimilt að veita kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.

Líkt og að framan er rakið lögðu kærendur og börn þeirra fram nígerísk vegabréf við komuna hingað til lands. Telur kærunefnd því ljóst að kærendur og börn þeirra séu nígerískir ríkisborgarar.

Að mati kærunefndar uppfylla kærendur skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Að öllu framangreindu virtu er lagt fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um aðrar kröfur kærenda.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar hvað varðar umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Athugasemd kærunefndar við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Kærunefnd gerir athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra. Líkt og að framan greinir lögðu kærendur og börn þeirra fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 29. júní 2021. Þegar Útlendingastofnun tók ákvarðanir í málum kærenda og barna þeirra, dags. 23. nóvember 2022, liggur fyrir að meira en 16 mánuðir voru liðnir frá því börn kærenda sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna er þó ekkert fjallað um það hvort börn kærenda hafi átt rétt á dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, sbr. 32. gr. d reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 1. gr. reglugerðar nr. 122/2020. Kærunefnd telur að þrátt fyrir að um sé að ræða verulegan annmarka á ákvörðunum Útlendingastofnunar hafi með vísan til niðurstöðu málsins verið bætt úr þeim annmarka á æðra stjórnsýslustigi.

 

Úrskurðarorð:

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda varðandi umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd eru staðfestar.

The Directorate of Immigration is instructed to issue the appellants a residence permits based on article 74(2) of the Act on Foreigners. The decisions of the Directorate related to their applications for international protection are affirmed.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta