Hoppa yfir valmynd

Nr. 577/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 19. nóvember 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 577/2021

Í stjórnsýslumáli nr. KNU21100056

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

 

Þann 13. október 2021 barst kærunefnd útlendingamála kæra […], fd. […], ríkisborgara Albaníu (hér eftir nefndur kærandi), á ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. júlí 2021, um brottvísun og endurkomubanns til Íslands í tvö ár.

Fyrrgreind ákvörðun Útlendingastofnunar er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Í ákvæði 7. gr. kemur fram að ákvarðanir Útlendingastofnunar sé heimilt að kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá því að útlendingi var tilkynnt um ákvörðunina. Samkvæmt gögnum málsins var ákvörðun Útlendingastofnunar birt fyrir kæranda hinn 14. júlí 2021 að viðstöddum túlki og lögmanni kæranda, sem einnig er lögmaður kæranda í máli þessu. Þann 13. október 2021 barst kærunefnd tilkynning um kæru á ákvörðun Útlendingastofnunar. Er samkvæmt framansögðu ljóst að kærufresturinn, sem var til 29. júlí 2021, var liðinn þegar kæran barst.

Þar sem kæran barst að liðnum kærufresti var umboðsmanni kæranda, með tölvupósti kærunefndar dags. 1. nóvember 2021, veitt tækifæri til að gera grein fyrir ástæðum þess að kæran barst ekki fyrr, sbr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Athugasemdir bárust frá umboðsmanni kæranda hinn 15. nóvember 2021. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi ekki áttað sig á réttarstöðu sinni þar sem hann tali litla ensku og þekki ekki réttarfar í landinu. Þá hafi kærandi leitað seint til umboðsmanns kæranda í máli þessu. Loks er vísað til þess að umboðsmaður kæranda hafi undanfarið glímt við ákveðin veikindi sem hafi hamlað honum við störf sín.

Í 28. gr. stjórnsýslulaga, er kveðið á um réttaráhrif þess þegar kæra berst æðra stjórnvaldi að liðnum kærufresti. Þar segir í 1. mgr.:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá, nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.“

Í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga er því að finna tvær undantekningarreglur frá þeirri meginreglu laganna að kærumáli skuli vísað frá æðra stjórnvaldi ef kæra berst að liðnum kærufresti. Í athugasemdum við einstakar greinar í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir um ákvæðið að í fyrsta lagi sé gerð undantekning þegar afsakanlegt er að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Hér geti t.a.m. fallið undir ef stjórnvald lætur hjá líða að veita leiðbeiningar um kæruheimild skv. 20. gr. laganna eða hefur veitt rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Í öðru lagi má taka mál til meðferðar ef veigamiklar ástæður mæla með því. Við mat á því hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæra verði tekin til meðferðar er m.a. litið til hagsmuna aðila máls og hvort mál hafi fordæmisgildi.

Ákvörðun Útlendingastofnunar var birt fyrir kæranda hinn 14. júlí 2021. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var, í samræmi við 2. tl. 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga, gerð grein fyrir kæruheimild, kærufresti og hvert kærandi skyldi beina kæru. Gögn málsins bera jafnframt með sér að kæranda hafi verið tilkynnt um ákvörðun Útlendingastofnunar að viðstöddum lögreglumanni, túlki og lögmanni, sem jafnframt gætir hagsmuna hans í máli þessu.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að afsakanlegt hafi verið að kæra hafi borist of seint. Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki verði talið að taka beri kæruna til meðferðar á grundvelli 1. tl. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Þá hefur kærunefnd farið yfir gögn málsins, þ.m.t. ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda. Að mati nefndarinnar verður hvorki séð af gögnum málsins að um slíkt fordæmisgefandi mál sé að ræða né að hagsmunir kæranda eða almannahagsmunir krefjist þess að málið verði tekið til meðferðar, sbr. 2. tl. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að vísa beri kæru þessari frá nefndinni.

 

 

 

Úrskurðarorð

Kæru kæranda á ákvörðun Útlendingastofnunar er vísað frá kærunefnd útlendingamála.

 

The Immigration Appeals Board dismisses the appellant‘s appeal of the decision of the Directorate of Immigration.

 

Tómas Hrafn Sveinsson

 

 

 

                                                                                                                               Gunnar Páll Baldvinsson                                                                                             Sandra Hlíf Ocares


 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta