Nr. 87/2018 - Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Þann 20. febrúar 2018 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 87/2018
í stjórnsýslumáli nr. KNU18010030
Kæra […]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Þann 30. janúar 2018 kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) og f.h. sonar hans […], fd. […], ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 9. janúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda þá til Þýskalands.
Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og umsókn kæranda og sonar hans um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 1. september 2017 ásamt syni sínum. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 13. september 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans og sonar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Þann 19. september 2017 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 1. og 2. nóvember 2017 að taka ekki umsókn kæranda og sonar hans um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeir skyldu endursendir til Þýskalands. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 693/2017, dags. 12. desember 2017 var ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og stofnuninni gert að taka mál kæranda og sonar hans til meðferðar á ný. Útlendingastofnun ákvað þann 9. janúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda og sonar hans um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeir skyldu endursendir til Þýskalands. Kæranda voru birtar ákvarðanir Útlendingastofnunar þann 16. janúar 2018 og kærði hann ákvarðanirnar þann 30. janúar 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 8. febrúar 2018.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsóknir kæranda og sonar hans um alþjóðlega vernd yrðu ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi og þeir skyldu endursendir til Þýskalands. Lagt var til grundvallar að Þýskaland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Þýskalands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Í ákvörðun sonar kæranda kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og að gættum ákvæðum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, barnaverndarlaga og útlendingalaga, sbr. m.a. 2. mgr. 10. gr. laganna, að hagsmunum hans sé ekki stefnt í hættu með því að hann fylgi föður sínum til Þýskalands. Kærandi væri barn að aldri í fylgd með foreldri sínu og tæki ákvörðunin mið af því.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að aðstæður hans og sonar hans í Þýskalandi hafi verið mjög slæmar. Þeir hafi búið í álgámi sem hafi verið skítugur og hafi þeir þurft að deila einu salerni með tíu öðrum fjölskyldum. Þá hafi aðgengi að lögfræði- og læknisaðstoð verið mjög takmarkað. Kærandi kveður að hann hafi leitað eftir tannlæknaþjónustu fyrir sig og son sinn en verið neitað um hana þar sem hún væri of dýr. Þá kemur fram að kærandi hafi leitað eftir sálfræðiþjónustu en ekki fengið hana. Einnig kemur fram í greinargerð kæranda að sonur hans kveðji sig vera óöruggan í Þýskalandi og telji sig utanvelta. Einelti hafi viðgengist í búsetuúrræðinu, hann hafi ekki fengið að ganga í skóla auk þess sem hann og faðir hans hafi ekki fengið nægilega mikinn mat til þess að seðja hungrið. Í greinargerð kæranda kemur auk þess fram að hann búi við slæmar heilsufarsaðstæður, […]. Þá segir að andlegt heilsufar hans hafi verið slæmt en sé nú mun betra. Um upplifun sonar kæranda á aðstæðum í Þýskalandi segir í greinargerðinni að hann telji sig utanvelta í Þýskalandi og að einelti hafi viðgengist í búsetuúrræðinu. Kemur fram að hann og faðir hans hafi ekki fengið nóg að borða og að aðstæður hafi almennt verið lélegar. Varðandi heilsufar sonar kæranda segir í greinargerð að hún sé mismunandi. […].
Krafa kæranda er m.a. byggð á því að uppi séu sérstakar ástæður í máli hans og sonar hans í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til lögskýringargagna með ákvæðinu og lýsir þeirri afstöðu sinni að allir umsækjendur um alþjóðlega vernd sem teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu skuli fá efnismeðferð hér á landi. Þá vísar kærandi til nýlegra úrskurða kærunefndar þar sem fjallað sé um vægi þeirra sjónarmiða sem skipti máli við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi skv. ákvæðinu. Kærandi telur að stjórnvöld verði að hafa tvennt í huga við mat á því hvort sérstakar ástæður séu uppi í máli umsækjenda um alþjóðlega vernd. Annars vegar hvort um sé að ræða sérstaklega viðkvæman einstakling í skilningi 6. tölul. 3. gr. laganna og hvort einstaklingsbundnar ástæður muni leiða til þess að hann teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki og hins vegar hvort umsækjandi sem ekki fellur undir 6. tölul. 3. gr. laganna muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna annarra þátta.
Kærandi kveður að hann og sonur hans hafi búið við mjög bágar aðstæður í Þýskalandi og hafi upplifað erfiðan tíma þar í landi. Þá bendir kærandi á að börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau eru í fylgd umönnunaraðila eða ekki. Vísar kærandi að þessu leyti til barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, íslenskra laga og annarra reglna þjóðaréttar. Kærandi bendir á að verði hann og sonur hans endursendir til Þýskalands, þar sem umsókn þeirra um alþjóðlega vernd hefur verið hafnað, verði þeim vísað brott til heimaríkis en þar muni þeir eiga erfitt uppdráttar […].
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.
Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda og sonar hans á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að kærandi og sonur hans hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.
Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.
Nánar um túlkun á 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 veitir stjórnvöldum ríkt svigrúm til mats á því hvað felist í sérstökum ástæðum í skilningi ákvæðisins, á hvaða sjónarmiðum skuli byggt við þetta mat og hvert skuli vera vægi þeirra. Stjórnvöld eru þó ávallt bundin af réttmætisreglu stjórnsýsluréttar en af henni leiðir að sjónarmiðin skulu vera málefnaleg. Þá gerir jafnræðisreglan þá kröfu að við úrlausn mála skuli stjórnvöld gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti.
Þegar afmarka skal nánar á hvaða málefnalegu sjónarmiðum skuli byggt og vægi þeirra við framangreint mat verður að líta til lagagrundvallar málsins, en í því sambandi er áréttað að heimild ráðherra í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hefur ekki verið nýtt til að setja í reglugerð ákvæði um framkvæmd 2. mgr. 36. gr. laganna.
Að mati kærunefndar bendir forsaga ákvæðisins til þess að 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli að mestu leyti framkvæma með sambærilegum hætti og 2. mgr. 46. gr. a eldri laga um útlendinga nr. 96/2002 enda var orðalag niðurlags 1. málsl. óbreytt frá eldri lögum. Samkvæmt framkvæmd á grundvelli eldri laga fengu sjónarmið sem varða skilvirkni við meðferð umsókna og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins nokkuð mikið vægi. Við mat sjónarmiða sem tengdust stöðu einstakra umsækjenda var gengið út frá því að ástand og aðstæður í viðtökuríki og fyrri reynsla kæranda þyrftu að vera bæði sérstakar og af ákveðnu alvarleikastigi sem segja má að hafi verið talsvert hátt svo til greina kæmi að beita þágildandi 2. mgr. 46. gr. a eldri laga um útlendinga.
Tilteknar breytingar á framsetningu 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 hafa þó leitt til þess að nefndin hefur talið að veita bæri sjónarmiðum sem tengjast stöðu einstakra umsækjenda aukið vægi í þessu heildarmati. Frá gildistöku laga um útlendinga nr. 80/2016 hefur kærunefnd litið til innra samræmis 36. gr. laga um útlendinga og þeirra breytinga sem voru gerðar á framsetningu 1. mgr. 36. gr. laganna, með hliðsjón af áðurgildandi 1. mgr. 46. gr. a eldri laga um útlendinga svo og þeirra breytinga sem fólust í framsetningu þeirrar reglu sem nú er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá hefur kærunefnd litið til þeirra lögskýringargagna sem tengdust breytingu á ákvæðinu í meðförum þingsins, n.t.t. nefndaráliti meirihluta þingnefndar og ræðu framsögumanns meirihlutans, en í því sambandi er áréttað að kærunefnd hefur hvorki litið til orðalags ákvæðis 2. mgr. 36. gr. eins og það hljóðaði í upphaflegri mynd frumvarps til laga um útlendinga né athugasemda sem fylgdu ákvæðinu í ljósi þeirra breytinga sem urðu á því ákvæði frumvarpsins í meðförum þingsins. Með vísan til lögskýringargagna hefur kærunefnd litið svo á að það hvort einstaklingur teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu sé eitt af þeim sjónarmiðum sem líta verður til við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu. Við það mat skuli jafnframt bæði litið til aðstæðna einstaklings og aðstæðna og ástands í viðtökuríki. Kærunefnd hefur þó jafnframt lagt nokkra áherslu á forsögu ákvæðisins og litið til þess að ekki hafi verið um að ræða grundvallarbreytingu frá framkvæmd á grundvelli eldri laga um útlendinga að því er varðar vægi hinna kerfislægu sjónarmiða. Í framkvæmd nefndarinnar frá gildistöku laga nr. 80/2016 hefur þetta leitt til þess að málum sem tekin hafa verið til meðferðar á grundvelli sérstakra ástæðna hefur fjölgað lítillega. Þó má segja að skilvirkni umsóknarferlisins og mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins hafi áfram vegið þungt í mati nefndarinnar.
Frá gildistöku laga nr. 81/2017 telur kærunefnd rétt að líta til þeirra gagna sem urðu til við meðferð laganna á Alþingi er varða túlkun á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Hér er um að ræða athugasemdir við frumvarpið, álit meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar og framsöguræðu nefndarmanns sem kynnti álitið við 2. umræðu frumvarpsins. Þrátt fyrir að þau lögskýringargögn tengist ekki beint setningu laga um útlendinga nr. 80/2016 eru þau samt sem áður sett fram í tilefni breytinga á inntaki 2. mgr. 36. gr. laganna og því nægilega tengd efni málsgreinarinnar til að hafa áhrif á túlkun hennar.
Í athugasemdum við frumvarpið sem varð að lögum nr. 81/2017 var áréttaður „sá vilji löggjafans að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, líkt og fram kom í athugasemdum við 2. mgr. 36. gr. frumvarps þess sem varð að gildandi lögum um útlendinga.“
Kærunefnd telur að líta verði til þess að álit meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar gefur skýrlega til kynna vægi tiltekinna sjónarmiða sem líta eigi til við beitingu ákvæðis 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því áliti kemur eftirfarandi fram:
Fyrir nefndinni var rætt um texta í greinargerð með frumvarpinu þar sem áréttaður er sá vilji löggjafans að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Bent var á að lögskýringargögn væru ekki skýr um þetta atriði og varhugavert geti verið að nýtt þing árétti vilja fyrri þinga án þess að því fylgi breytingar á lögum. Meirihlutinn bendir á að með þessu er áréttað, líkt og fram kom í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga, nr. 80/2016, að taka skuli til efnislegrar meðferðar umsóknir um alþjóðlega vernd ef umsækjandi hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækt sé að hann fái vernd hér á landi eða ef sérstakar ástæður mæla með því að taka skuli mál til efnismeðferðar. Getur þetta átt við í tilfellum útlendinga sem eiga ættingja á Íslandi en ekki í því landi sem þeir yrðu sendir aftur til. Þetta getur einnig átt við í öðrum tilfellum þar sem tengsl eru ríkari en við viðtökuland, svo sem vegna fyrri dvalar. Með sérstökum aðstæðum er vísað til þess að einstaklingar geta verið í viðkvæmri stöðu sem leiði til þess að þeir muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökulandi svo sem vegna heilsufars, aldurs, þungunar eða mismununar sem viðkomandi einstaklingur verður fyrir sökum kynhneigðar, kynþáttar eða kyns, eða fyrri reynslu einstaklinga, t.d. fórnarlömb mansals, ofbeldis og pyndinga.
Í framsöguræðu við 2. umræðu voru þessi sjónarmið árréttuð og hnykkt á með þeim ummælum að ekki ætti „að vera neinn vafi á því hvað átt sé við með sérstakri stöðu.“
Að mati kærunefndar lýsa þessi lögskýringargögn því með nægilega skýrum hætti bæði þeim sjónarmiðum sem löggjafinn telur að stjórnvöldum beri að beita við mat samkvæmt ákvæðinu og að nokkru leyti vægi sjónarmiðanna. Nefndin telur sjónarmiðin málefnaleg og að þau rúmist innan þess mats sem texti ákvæðisins felur stjórnvöldum, sérstaklega í ljósi þess að reglugerðarheimild skv. 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga hefur ekki verið nýtt. Að mati kærunefndar gefa ummæli í þessum lögskýringargögnum með nægilega skýrum hætti til kynna að viðkvæm staða umsækjanda skuli hafa aukið vægi andspænis sjónarmiðum sem tengjast m.a. skilvirkni við meðferð umsókna og mikilvægis samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins. Í ljósi mismunar á orðalagi og inntaki athugasemda í frumvarpi því er varð að lögum nr. 81/2017 og umfjöllun meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar um þetta atriði er það þó mat kærunefndar að ekki sé skýrt af lögskýringargögnum að ávallt beri að taka umsóknir frá einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu til efnismeðferðar, þótt ótvírætt sé að það sjónarmið skuli hafa aukið vægi andspænis öðrum sjónarmiðum, sé miðað við þá framkvæmd sem tíðkast hefur fram að þessu. Aftur á móti telur kærunefnd að þegar viðkvæm staða umsækjenda verður að mati stjórnvalda talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökulandi svo sem vegna heilsufars, aldurs, þungunar eða mismununar sem viðkomandi einstaklingur verður fyrir sökum kynhneigðar, kynþáttar eða kyns, eða fyrri reynslu einstaklinga, t.d. fórnarlömb mansals, ofbeldis og pyndinga, skuli það sjónarmið hafa mikið vægi við matið. Í þeim tilvikum beri að líta svo á að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu og að það skuli almennt tekið til efnismeðferðar.
Réttarstaða barns kæranda
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að ákvarða réttarstöðu barnsins í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að það barn sem hér um ræðir er í fylgd föður síns og haldast úrskurðir þeirra því í hendur.
Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga
Kærandi er staddur hér á landi ásamt syni sínum sem hann kveður að sé við góða líkamlega heilsu, […]. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 12. september 2017 að hann ætti í vandræðum með […] en kvað þó að þetta væri ekki alvarlegt. Þá greindi kærandi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 2. október 2017 að […]. Kærandi lýsti því yfir að hann myndi leggja fram gögn varðandi andlega heilsu sína fengi hann aðstoð sérfræðings í þeim efnum en taldi að andleg heilsa sín væri nú miklu betri en hún var. Í sama viðtali var kæranda leiðbeint um að öll læknisfræðileg gögn gætu haft þýðingu við ákvörðun í máli hans. Var kæranda bent á að leggja fram upplýsingaskýrslu frá Göngudeild sóttvarna auk þess að fá skriflegar upplýsingar um heilsufar sitt leitaði hann til sérfræðings. Kærandi veitti Útlendingastofnun ekki umboð til öflunar heilsufarsupplýsinga. Sonur kæranda mætti í viðtali til Útlendingastofnunar þann sama dag. Aðspurður um heilsufar sitt kvað hann sér líða vel en að hann fengi stundum illt í hnéð. Hann hafi farið til læknis sem hafi tjáð sér að þetta fylgdi aldrinum. Engum gögnum varðandi heilsu kæranda eða sonar hans hefur verið skilað inn í málinu.
Þrátt fyrir að sonur kæranda sé barn að liggur fyrir hann er hér í fylgd föður síns. Þrátt fyrir að kæranda hefði verið gerð grein fyrir mikilvægi framlagningar gagna um heilsufar hafa engin slík gögn borist til kærunefndar. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki annað með sér en að kærandi og sonur hans séu ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls þeirra hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð af þeim upplýsingum sem liggja fyrir í málinu að aðstæður þeirra séu þess eðlis að þeir hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að þeir geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga. Þó er tekið tillit til þess við meðferð málsins að kærandi sé staddur ásamt syni sínum hér á landi.
Aðstæður og málsmeðferð Þýskalandi
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:
- Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, mars 2017),
- Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015),
- Germany 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017),
- Amnesty International Report 2016/17 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2017),
- Freedom in the world 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018),
- From host country to deportation country – latest asylum reform in Germany (European Council on Refugees and Exciles (ECRE), 26. maí 2017),
- Upplýsingar af heimasíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de).
Í málinu liggur fyrir að kærandi og sonur hans hafi fengið synjun á umsókn þeirra um alþjóðlega vernd í Þýskalandi. Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge) geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá Útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá Útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.
[...] er á lista þýskra stjórnvalda yfir örugg upprunaríki (e. safe country of origin). Mál umsækjenda um alþjóðlega vernd sem eru ríkisborgarar öruggra upprunaríkja kunna að sæta flýtimeðferð í Þýskalandi. Í flýtimeðferð felst að málsmeðferðin má einungis taka sjö daga og umsækjendur dvelja í sérstökum móttökumiðstöðvum. Hafi umsækjandi ekki fengið niðurstöðu í mál sitt innan sjö daga hlýtur málið hefðbundna málsmeðferð. Reglur varðandi einstaklingsviðtöl, kærurétt og lögfræðiaðstoð eru áþekkar þeim sem gilda í hefðbundinni málsmeðferð.
Kærunefnd telur ljóst af þeim gögnum sem nefndin hefur kynnt sér að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þá benda gögnin til þess að úr málum umsækjenda um alþjóðlega vernd sé leyst á einstaklingsgrundvelli.
Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi má ráða að umsækjendur eiga rétt á húsnæði og mataraðstoð. Þá hafi flestar móttökumiðstöðvar þá stefnu að aðgreina einstæðar konur og fjölskyldur frá öðrum umsækjendum um alþjóðlega vernd. Að sama skapi er umsækjendum um alþjóðlega vernd tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu í þýskum lögum. Í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Þýskalandi telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi og sonur hans geti leitað sér heilbrigðisþjónustu við hæfi þar í landi. Frjáls félagasamtök stóðu fyrir herferð árið 2016 til að vekja athygli á að börn í móttökumiðstöðvum fengju aðeins grundvallarmenntun en hefðu ekki aðgang að hefðbundna skólakerfinu á meðan þau dveldu í miðstöðvunum. Sérstaklega ætti þetta við börn frá ríkjum sem teldust örugg upprunaríki. Í maí sl. hafi þýsk yfirvöld samþykkt umbætur í útlendingalöggjöf landsins. Samkvæmt breytingunum geti þýsk stjórnvöld vistað umsækjendur um alþjóðlega vernd í svokölluðum upphafsmiðstöðvum (e. initial reception centers) á meðan málsmeðferð þeirra standi yfir og þar til brottflutningur úr landinu eigi sér stað. Hafi umrædd framkvæmd þýskra stjórnvalda verið gagnrýnd m.a. af UNICEF fyrir að gæta ekki nægilega að hagsmunum barna, en aðstæðurnar í upphafsmiðstöðvunum séu ekki taldar hæfa börnum auk þess sem öryggi barna sé ekki nægilega tryggt. Jafnframt hafi börnum í umræddum upphafsmiðstöðvum ekki verið veittur aðgangur að þýska skólakerfinu.
Samkvæmt framansögðu hafa ákveðnir þættir í móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi verið gagnrýndir. Aftur á móti hefur athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda og sonar hans þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda og syni hans séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.
Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda
Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi borið fyrir sig […]. Sonur kæranda hefur tjáð að hann sé með verk í hné en að það sé ekki alvarlegt og líklegast aldurstengt. […]. Þrátt fyrir frásögn kæranda og sonar hans um heilsu þeirra hefur kærunefnd engin gögn borist sem tengjast heilsufari þeirra en kæranda var gerð grein fyrir mikilvægi slíkra gagna í viðtali hans hjá Útlendingastofnun. Kærandi hefur kvartað yfir aðstæðum í móttökumiðstöðinni sem þeir bjuggu við í Þýskalandi. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í móttökumiðstöðvum í Þýskalandi er það mat nefndarinnar að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar í málinu að húsnæðisaðstæður sem bíða kæranda í Þýskalandi séu fullnægjandi miðað við þau búsetuúrræði sem kæranda standa til boða hér á landi. Þá séu aðstæður í móttökumiðstöðvum í Þýskalandi í samræmi við móttökutilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2013/33. Það er mat kærunefndar að fyrirliggjandi gögn beri ekki með sér að kærandi og sonur hans muni eiga erfitt uppdráttar í Þýskalandi vegna aðstæðna þeirra. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og sonar hans er það jafnframt mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 2. október 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. ákvæði I til bráðabirgða við lögin, eigi ekki við í máli kæranda og sonar hans en þeir lögðu fram umsókn sína þann 1. september 2017.
Mál sonar kæranda hefur verið skoðað í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi er það mat kærunefndar að öryggi, velferð og félagslegum þroska sonar kæranda verði ekki stefnt í hættu með flutningi þeirra til Þýskalands, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn sonar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda hann til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kæranda að umsókn hans verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.
Kærandi vísar í greinargerð sinni til úrskurða kærunefndar nr. 550/2017 og 552/2017 máli sínu til stuðnings en með úrskurðunum felldi kærunefnd úr gildi ákvarðanir Útlendingastofnunar þar sem aðstæður í viðtökuríki voru ekki taldar viðunandi með tilliti til sérstakra aðstæðna umsækjenda í málunum. Er það mat kærunefndar að sérstakar aðstæður kæranda og sonar hans verða ekki lagðar að jöfnu við aðstæður einstaklinganna í framangreindum úrskurðum kærunefndar. Þar sem málin séu í öllum grundvallaratriðum ósambærileg máli kæranda og sonar hans geti umræddir úrskurðir ekki haft fordæmisgildi í máli kæranda.
Samantekt
Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda, syni hans og umsókn þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda og barns hans um alþjóðlega vernd hér á landi og senda þá til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decision‘s of the Directorate of Immigration are affirmed.
Anna Tryggvadóttir
Erna Kristín Blöndal Þorbjörg Inga Jónsdóttir