Mál nr. 114/2020 Úrskurður 22. desember 2020
Mál nr. 114/2020 Eiginnafn: Zebastian (kk.)
Hinn 22. desember 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 114/2020 en erindið barst nefndinni 8. desember.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Um almennar ritreglur íslensks máls er vísað til auglýsingar mennta- og menningarmálaráðuneytisins, nr. 695/2016 og 800/2018, með leiðréttingum.
Í þessu máli reynir á skilyrði nr. þrjú hér að ofan. Ritháttur nafnsins Zebastian er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem z er ekki hluti íslenska stafrófsins og auk þess er ekki ritað a á eftir i í ósamsettum orðum í íslensku. Er því aðeins unnt að samþykkja ritháttinn Zebastian að hefð sé fyrir honum.
Við túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 19. janúar 2015 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:
1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910 eða 1920;
Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1920.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
Tekið skal fram að vinnulagsreglurnar eru mannafnanefnd til stuðnings við mat sitt, en ekki ráðandi um niðurstöðuna bendi önnur atriði engu að síður til þess að ritháttur nafns hafi hefðast.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá ber enginn nafnið Zebastian í þjóðskrá. Nafnið kemur ekki fyrir manntölum frá 1703–1920. Telst því ekki hefð fyrir rithættinum.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Zebastian (kk.) er hafnað.