Úrskurður nr. 236/2016
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Þann 28. júní 2016 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður
nr. 236/2016
í stjórnsýslumáli nr. KNU16040037
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Með stjórnsýslukæru, dags. 28. apríl 2016, kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. apríl 2016, að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002 um útlendinga.
Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Verði ekki fallist á aðalkröfu kæranda, er gerð sú krafa til vara að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann hátt að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi kom hingað til lands og sótti um hæli þann 10. apríl 2016 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi mætti í viðtal hjá Útlendingastofnun þann 22. apríl s.á. ásamt talsmanni sínum. Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 25. apríl 2016, um að synja kæranda um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla við landið, var birt honum þann 28. apríl 2016 og kærði kærandi ákvörðunina til kærunefndar útlendingamála við birtingu. Þá óskaði kærandi eftir frestun réttaráhrifa þann 29. apríl s.á. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, þann sama dag. Greinargerð vegna kæru barst kærunefnd útlendingamála þann 18. maí s.á. Þann 14. júní 2016 kom kærandi fyrir kærunefndina og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru talsmaður kæranda og túlkur. Kæranda var gefinn frestur til 22. júní sl. til að skila frekari gögnum en engin frekari gögn bárust kærunefnd útlendingamála.
Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um hæli á því að hann sé í lífshættu í heimaríki sínu vegna tengsla við [...]og aðildar hans að [...] uppreisn gegn [...]. Þá sé honum mismunað vegna [...]uppruna síns.
Í ákvörðun stofnunarinnar kemur fram að ekki verði séð að í [...]sæti fólk kerfisbundnum ofsóknum, ofbeldi eða mismunun. Þá séu borgaraleg og stjórnmálaleg mannréttindi í megindráttum virt og að staða annarra mannréttinda fari batnandi í [...]. [...]yfirvöld hafi undanfarin ár innleitt umfangsmikla mannréttindavernd í landslög og sett á fót landsáætlun til styrktar jafnræði borgara og útrýmingu mismununar á grundvelli uppruna, kyns, aldurs og líkamlegrar eða andlegrar fötlunar. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi ætti ekki á hættu mismunun vegna [...]uppruna síns og frásögn hans hvað það varðaði var því ekki talin trúverðug.
Útlendingastofnun taldi að fyrirliggjandi landaupplýsingar um heimaland kæranda bendi ekki til þess að einstaklingar tengdir [...]eigi á hættu ofbeldi og áreiti af hálfu [...]yfirvalda vegna aðildar að átökunum árið [...]. Stofnunin benti á að samkvæmt landslögum og framkvæmd séu [...]ríkisborgarar jafnir fyrir lögum og [...]. Að mati Útlendingastofnunar var því ekki talið trúverðugt að kærandi ætti á hættu að sæta ofbeldi eða ofsóknum af hálfu [...]yfirvalda. Þá hafi kærandi hvorki framvísað læknisvottorði né öðrum gögnum til stuðnings fullyrðingum um illa meðferð þegar hann sinnti herskyldu fyrir [...]. Við úrlausn málsins var byggt á því að kærandi hafi tekið þátt í [...] átökum fyrir [...]gegn [...]ríkinu [...]og að hann hafi sætt [...]vegna flótta [...]. Ekki var talið að kærandi væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem gæti haft áhrif á niðurstöðu í máli hans.
Það var niðurstaða Útlendingastofnunar að kærandi ætti ekki á hættu ofsóknir eða meðferð sem jafnað yrði til ofsókna í heimalandi hans, skv. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Þá var ekki talið að hann ætti á hættu illa meðferð, skv. 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun skoðaði í samræmi við 8. mgr. 46. gr. útlendingalaga hvort aðstæður kæranda féllu undir ákvæði 12. gr. f laganna. Það var mat stofnunarinnar að kærandi ætti ekki rétt á dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þá hafi kærandi ekki borið fyrir sig að hann hefði sérstök tengsl við Ísland og ekkert í málinu benti til þeirra. Honum var því synjað um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga. Ekki var talið að endursending kæranda til [...]bryti gegn 45. gr. útlendingalaga.
Með tilliti til atvika málsins var það niðurstaða Útlendingastofnunar að kæranda skyldi vísað frá landi í samræmi við 3. mgr. 90. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga. Með vísan til 2. mgr. 56. gr. reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga þótti rétt að beita frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Þá var niðurstaða stofnunarinnar að kæra skyldi ekki fresta réttaráhrifum með vísan til c-liðs 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að aðalástæða fyrir flótta hans sé sú að hann hafi verið meðlimur í [...]og nú færu [...]lögregluyfirvöld fram með ofbeldi gegn fyrrum meðlimum [...]. Lögreglan hafi nú þegar yfirheyrt kæranda og honum stafi hætta af stjórnvöldum í landinu. Þá hafi kærandi verið kallaður í [...]herinn [...] og beittur þar ítrekuðu og alvarlegu ofbeldi í þann tíma sem hann starfaði sem hermaður og ýti það enn fremur undir vantraust kæranda á yfirvöldum í landinu. Ennfremur kveður kærandi sér mismunað í [...]vegna [...]uppruna síns.
Kærandi bendir á að samkvæmt nýjustu ársskýrslu Amnesty International um stöðu mannréttinda í
heiminum árið 2014 komi fram að mannréttindi séu sniðgengin í [...]í miklum mæli. Stjórnvöld landsins hafi mikil ítök í löggæslu- og dómskerfinu þar sem mikil spilling ríki. Samtökin hafi lýst yfir alvarlegum áhyggjum af ástandinu í landinu og sagt að [...]stjórnvöld hafi fullkomlega brugðist skyldum sínum til að virða mannréttindi. Kærandi bendir á að þó svo að ríki sé skuldbundið að þjóðarétti til að virða mannréttindi endurspegli það ekki endilega raunverulega stöðu mannréttindamála í landinu. Skýrslur bendi til þess að mikil spilling ríki hjá stjórnvöldum í [...]og að aðgerðir stjórnvalda gegn spillingu hafi skilað takmörkuðum árangri. Þá sé auðvelt að komast til áhrifa með peningum og að mikil spilling ríki í tengslum við fjármögnun kosninga og að lagaramminn í kringum það skili sér ekki í framkvæmd.
Kærandi óttist framgöngu lögregluyfirvalda í [...]. Auk þess beri að líta til þess að kærandi tilheyri minnihlutahópi [...]í [...]sem telji rétt rúm 25% af íbúum landsins og togstreita ríki milli [...]og [...]í landinu. Gögn sýni að minnihlutahópar, ekki síst [...]og [...], verði fyrir mismunun og aðkasti. Kristnir telji 65% af [...]þjóðinni og múslimar 33% en greinileg samsvörun sé á milli uppruna og trúarbragða almennings þar sem flestir kristnir í landinu séu af [...]uppruna og flestir múslimar af [...]uppruna. [...]. Með vísan til þessa ótrygga ástands í landinu, viðvarandi spillingar í löggæslu- og dómskerfinu í [...]og viðhorfs þeirra í garð minnihlutahóps [...]sé ljóst að stjórnvöld þar í landi hafi hvorki getu né vilja til að vernda kæranda. Því sé ljóst að skilyrði 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga eigi við um kæranda.
Í greinargerð kæranda kemur fram varðandi varakröfu hans að í frumvarpi til laga nr. 115/2010, um breytingu á útlendingalögum, að ekki sé um tæmandi talningu að ræða í 12. gr. f laganna, þar sem veita verði stjórnvöldum svigrúm við mat á því hvenær rétt sé að veita dvalarleyfi samkvæmt greininni. Þá komi fram að taka verði mið af svipuðum sjónarmiðum og gert sé í málum skv. VII. kafla laganna, s.s. almennra aðstæðna í heimalandi hælisleitanda, þ. á m. hvort grundvallarmannréttindi séu nægilega tryggð. Miðað sé við að heildarmat fari fram á öllum þáttum máls áður en leyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé veitt. Þá sé vikið að félagslegum aðstæðum og vísað til þess hvort útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimalandi og fari verndarþörf þjóðfélagshópa eftir aðstæðum í hverju máli. Ennfremur segi í frumvarpinu að með mjög íþyngjandi félagslegum aðstæðum að öðru leyti sé átt við alvarlegar aðstæður í heimaríki, t.d. viðvarandi mannréttindabrot eða þá aðstöðu að stjórnvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.
Með hliðsjón af þessu sem rakið hafi verið varðandi yfirvöld, lögreglu og réttarkerfið í [...], ásamt þeirri mismunun sem minnihluti [...]í [...]verði fyrir í landinu séu skilyrði 12. gr. f útlendingalaga uppfyllt. Þá er bent á að ekki verði séð að aðstæður kæranda myndu breytast, ef hann myndi flytja innanlands í [...], enda sé spilling og mismunun gegn [...]landlægt vandamál í [...]. Þá sé [...]að flatarmáli og mikilvægt að hafa það atriði í huga þegar aðstæður kæranda séu metnar í tengslum við möguleika á flutningi innalands.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagarammi
Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað [...]vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé [...]ríkisborgari.
Landaupplýsingar
[...]Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. skoðað eftirfarandi skýrslur um aðstæður í [...]:
[...]Í ofangreindum gögnum kemur m.a. fram að spilling sé þó nokkur í [...]stjórnkerfinu. [...]ríkið hafi hins vegar gripið til ýmissa aðgerða til að sporna við spillingu með misgóðum árangri. Auk þess kemur fram að dómskerfið sé óskilvirkt og meðferð mála taki langan tíma. Þá er jafnframt greint frá því að spenna ríki í samskiptum milli [...]og [...]og að hlutfall [...]sem starfi í dómskerfinu sé lágt. Hlutfall [...]af [...]uppruna á þjóðþingi [...]fari vaxandi auk þess sem stærsti flokkur [...]minnihlutans eigi nú sæti í ríkisstjórn landsins.
Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga
Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir á því að hann eigi á hættu ofsóknir af hendi stjórnvalda í heimaríki sínu.
Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.
Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.
Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn
athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:
Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008)).
Kærandi hefur borið fyrir sig að [...]lögregluyfirvöld hafi farið og fari fram með ofbeldi gegn fyrrum meðlimum [...], sem kærandi sé meðlimur í. Skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur skoðað benda hins vegar ekki til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ofbeldi eða ofsóknum af hálfu [...]yfirvalda vegna aðildar að ofangreindum [...]og þátttöku í átökunum [...]. Kærandi hefur einnig borið fyrir sig að hann sæti mismunun vegna [...]uppruna síns. Gögn og skýrslur sem kærunefnd hefur skoðað benda til þess að spenna sé á milli [...]meirihlutans og [...]minnihlutans í landinu. Hins vegar benda gögn ekki til þess að yfirvöld í landinu mismuni kerfisbundið einstaklingum af [...]uppruna eða beiti þá ofbeldi eða ofsóknum. Telja verður að [...]yfirvöld hafi bæði vilja og getu til að aðstoða kæranda vegna þeirra vandamála sem hann hafi nefnt, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir.
Þá er það mat kærunefndar, með vísan til gagna um aðstæður í [...]sem kærunefnd hefur skoðað og frásagnar kæranda, að þær aðstæður sem kærandi lýsi teljist ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 44. gr. a útlendingalaga, sbr. 1. mgr. 44. gr. a s.l.
Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga
Kærandi krefst þess að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann veg að kæranda verði veitt viðbótarvernd hér á landi skv. 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.
Í 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum
eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.
Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendi til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. gr. og 1. mgr. 45 gr. laganna.
Ákvæði 12. gr. f útlendingalaga
Til vara krefst kærandi þess að hinni kærðu ákvörðun verði breytt á þann veg að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.
Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar upplýsingar um heimaland kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í [...]séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.
Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisumsókn sína og aðeins í skamman tíma.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The Directorate of Immigration‘s decision is affirmed.
Pétur Dam Leifsson Vigdís Þóra Sigfúsdóttir