Hoppa yfir valmynd

Nr.274/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 14. júní 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr.274/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18050003

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 2. maí 2018 kærði [...], fd. [...] ríkisborgari [...], (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 9. apríl 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Spánar.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er gerð krafa um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju, með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 27. janúar 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Spáni. Þann 5. febrúar 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Spáni, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 9. febrúar 2018 barst svar frá spænskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 9. apríl 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Spánar. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 17. apríl 2018 og kærði hann ákvörðunina þann 2. maí 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 14. maí 2018 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn með tölvupósti þann 5. júní 2018.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Spánar. Lagt var til grundvallar að Spánn virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Spánar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar ástæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Spánar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun greint frá því að hann hafi yfirgefið [...] þann 14. desember 2017 og farið með smyglurum til [...], í kjölfarið til Tyrklands og loks notað falsað vegabréf til að komast til Spánar. Aðspurður um líkamlegt heilsufar kvaðst kærandi hafa farið fjórum sinnum í aðgerð vegna [...] sín væru langvarandi og enn til staðar. Aðspurður um andlegt heilsufar kvaðst kærandi vera þreyttur, vera í lífshættu í heimaríki og hafa lent vandamálum á leið sinni hingað til lands. Kvaðst kærandi nokkrum sinnum hafa orðið fyrir árásum og hótunum í heimaríki og kvað fjölskyldu sína glíma við félagsleg vandamál þar í landi. Faðir hans sé heittrúaður [...] en kærandi hefði aðrar hugsjónir sem faðir hans væri mjög mótfallinn. Vegna þess ágreinings sé kærandi stöðugt með kvíða, neikvæðar hugsanir, fái martraðir og sé auk þess [...]. Hann hafi lent í vandamálum af þessum sökum í heimaríki og stórfjölskylda hans þyldi ekki vandamál af þessu tagi.

Þá kvaðst kærandi hafa lent í vandræðum á Spáni vegna þess að smyglarinn sem hafi komið honum til Spánar hafi selt fjölskyldu kæranda upplýsingar um ferðir hans. Kærandi hafi jafnframt verið handtekinn á flugvellinum á Spáni og sætt illri meðferð, m.a. hafi verið gengið í skrokk á honum og hann pyntaður í því skyni að ná fingraförum hans. Kærandi hafi verið í fjóra daga í sal á flugvellinum undir miklu álagi, hann hafi ekki sótt um alþjóðlega vernd og hafi verið hótað að verða sendur til Tyrklands ef hann gæfi ekki fingraför. Kærandi kvaðst í kjölfarið hafa gert samkomulag við annan smyglara um að koma sér til Íslands og að hann myndi greiða honum 4.500 bandaríkjadali. Kærandi hafi ekki getað greitt honum og sætir því hótunum þar sem smyglarinn hafi krafist þess að hann greiði upphæðina eða færi til Spánar til þess að vinna upp skuldina. Kærandi sé því ekki öruggur á Spáni, þá telur fjölskylda hans að hann búi á Spáni þar sem þau gætu náð til hans. Kærandi hafi jafnframt á þeim stutta tíma sem hann hafi verið á Spáni einungis fengið húsaskjól í þrjár nætur og enga dagpeninga, fæði eða aðstoð við veikindum sem hann glími við.

Kærandi bendir á að við mat á viðkvæmri stöðu í skilningi í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sé mikilvægt að taka til greina alla frásögn kæranda um þau andlegu og líkamlegu veikindi sem hann glími við ásamt þeirri meðferð sem hann hafi hlotið á Spáni og í heimaríki. Þá hafi hjúkrunarfræðingur mælt með því að kærandi fengi tíma hjá sálfræðingi í kjölfar prófs sem hann hafi tekið til að meta stöðu andlegrar heilsu hans. Útlendingastofnun hafi hins vegar ekki gefið honum tíma sem kærandi bendir á að sé í andstöðu við skýrt orðalag 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Kærandi bendir jafnframt á að 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kveði einungis á um heimild til handa stjórnvöldum til að synja kæranda um efnismeðferð umsóknar sinnar en ekki skyldu. Í athugasemdum við 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga komi fram að einstaklingar sem séu í viðkvæmri stöðu falli undir ákvæðið. Þessi vilji löggjafans sé enn frekar staðfestur í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, þar sem fram komi að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar jafnframt máli sínu til stuðnings m.a. til úrskurðar kærunefndar útlendingamála, nr. 553/2017, dags. 10. október 2017. Af framangreindu leiði að stjórnvöld þurfi einkum að hafa tvennt í huga við mat á sérstöku ástæðum í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, annars vegar hvort um sé að ræða sérstaklega viðkvæman einstakling í skilningi 6. tölul. 3. gr. laganna og hins vegar hvort kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki. Ljóst sé að miðað við framangreinda umfjöllun um aðstæður kæranda að fyrir hendi séu slíkar sérstakar ástæður og taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.

Í greinargerð kæranda er jafnframt fjallað ítarlega um aðbúnað og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Spáni. Kemur þar m.a. fram að mikið álag sé á spænska hæliskerfinu og að með löggjöf frá árinu 2015 hafi landamæravörðum verið veitt vald til að hafna umsóknum um alþjóðlega vernd við landamærin reyni umsækjendur að komast ólöglega inn í landið. Spánn sé því á meðal þeirra Evrópulanda sem hafni hvað flestum inngöngu inn í landið. Þá sé spænska móttökukerfið að hruni komið í nokkrum borgum vegna fjölda óafgreiddra umsókna sem hafi hlaðist upp vegna óvenjulega langs biðtíma eftir viðtölum. Þá sé aðgengi að lögfræðiaðstoð takmarkað og fari margir á mis við slíka þjónustu. Í greinargerð kæranda er jafnframt fjallað um varðhaldsmiðstöðvar sem umsækjendur um alþjóðlega vernd á Spáni geti þurft að dvelja í. Kemur m.a. fram að mikil aukning hafi verið á notkun varðhalds á fyrstu stigum málsmeðferðarinnar og að aðbúnaður í mörgum miðstöðvum sé með versta móti. Þá hafi Spánn ekki gert ráðstafanir til þess að sporna við fordómum og umburðarleysi í garð innflytjenda og sé þar aftarlega í samanburði við önnur Evrópuríki.

Varakröfu sína byggi kærandi á því að Útlendingastofnun hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni skv. 10. gr. stjórnsýslulaga, 2. mgr. 23. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að rökstuðningi stofnunarinnar, sbr. framangreinda umfjöllun um viðkvæma stöðu hans, hafi verið áfátt. Kærandi vísar jafnframt til úrskurða kærunefndar útlendingamála þar sem efni rannsóknarreglunnar er reifað máli sínu til stuðnings. Kærandi bendir á að í málinu vanti alfarið mat á því hvort viðkvæm staða hans hafi verið talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki og hafi Útlendingastofnun því borið að skoða einstaklingsbundnar aðstæður hans, sérstaklega í ljósi frásagnar hans um dvöl í gæsluvarðhaldi á Spáni. Þá liggur fyrir að starfsmenn Göngudeildar sóttvarna töldu nauðsynlegt að kærandi færi í ítarlegri meðferð hjá sálfræðing vegna andlegra veikinda hans. Þrátt fyrir það hafi Útlendingastofnun tekið ákvörðun í máli hans án þess að hafa allar upplýsingar fyrir hendi og þar með útilokað að fjallað verði um mál hans á tveimur stjórnsýslustigum.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að spænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli b-liðar 1. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Spánar er byggt á því að kærandi sé með umsókn um alþjóðlega vernd til meðferðar þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi var ekki metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans hjá Útlendingastofnun. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 27. febrúar 2018 greindi kærandi m.a. frá því að hann væri hafi farið í þrjár aðgerðir vegna nýrnavandamála og að hann hafi ekki verið góður andlega síðustu viku eða 10 daga vegna vandamála sem hafi komið upp. Þá kvaðst kærandi vera þreyttur, með stöðugan kvíða, fá martraðir og vera einhverfur. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. frá 9. mars 2018 til 9. maí 2018, kemur m.a. fram að kærandi eigi við svefnvandamál að stríða, að hann hafi fyllt út skema sem bendi til þunglyndis eða áfallastreitu og farið í nokkrar aðgerðir vegna nýrnavandamála. Kærandi lagði einnig fram skimunarlista, dags. 27. febrúar 2018, þar sem fram kemur að hann skori hátt í spurningarlista sem bendi til streitu. Þá liggur fyrir að kærandi fór í viðtal hjá sálfræðingi þann 9. maí 2018, þrátt fyrir að í greinargerð gefi talsmaður hans annað til kynna. Í komunótu vegna viðtalsins er vísað í fjölskylduaðstæður kæranda og hann sagður frekar ósveigjanlegur í umræðuefnum og virki þrjóskur. Í þeirri komunótu eru engar upplýsingar um andlegt ástand kæranda.

Af gögnum málsins verður lagt til grundvallar að kærandi þjáist að ákveðnum andlegum kvillum og sé m.a. með einkenni þunglyndis og áfallastreitu. Í ljósi alls framangreinds metur kærunefnd andlegt ástand kæranda hins vegar ekki svo alvarlegt að hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi. Kærunefnd telur að persónulegir eiginleikar hans og aðstæður hans séu ekki þess eðlis að hann teljist hafa sérþarfir sem taka þurfi tillit til við meðferð máls hans hér auk þess sem ekki verður talið að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð á Spáni

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð á Spáni, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Asylum Information Database, Country Report: Spain (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018),
  • 2017 Country Reports on Human Rights Practices – Spain (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Asylum Information Database, The detention of asylum seekers in Europe: Constructed on shaky ground? (European Council on Refugees and Exiles, júní 2017),
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report Universal Periodic Review: Spain (UNHCR, júní 2014),
  • Handbook on European law relating to asylum, borders and immigration (European Union Agency for Fundamental Rights, Council of Europe 2014),
  • Freedom in the World 2017 – Spain (Freedom House, 12. júlí 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Spain (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Concluding observations on the sixth periodic report of Spain (UN Committee against Torture, 29. maí 2015),
  • Immigration Detention in Spain (Global Detention Project, nóvember 2016),
  • Report to the Spanish Government on the visit to Spain carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment from 14 to 18 july 2014 (Council of Europe: Committee for the Prevention of Torture, 9. apríl 2015) og
  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Spain from 3 to 7 June 2013 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 9. október 2013).

Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Spáni eiga rétt á viðtali áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra og fá aðstoð túlks ef þess þarf. Auk þess eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á lögfræðiþjónustu við að leggja fram umsókn og eftir atvikum við kærumeðferð máls. Spánn er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Þegar umsækjendur hafa lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Spáni leitast spænsk stjórnvöld við að úthluta þeim gistingu í þeirri móttökumiðstöð sem hentar sem best hverjum umsækjanda. Þá er umsækjendum tryggður endurgjaldslaus aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu til jafns við spænska ríkisborgara og aðra einstaklinga sem hafa dvalarleyfi á Spáni. Jafnframt geta umsækjendur, þ.m.t. þeir sem hafa orðið fyrir líkamlegu eða andlegu ofbeldi eða misnotkun, fengið aðgang að sérhæfðari heilbrigðisþjónustu.

Hvað varðar varðhald og önnur sambærileg úrræði á Spáni þá er í ofangreindum skýrslum m.a. tekið fram að á spænskum flugvöllum sé haldið úti rýmum og aðstöðu sem útlendingum geti verið gert að dvelja tímabundið í sé þeim meinuð innganga á spænskt yfirráðasvæði, svo sem ef einstaklingar framvísa fölsuðum eða ófullnægjandi ferðaskilríkjum. Einstaklingar sem sæki um alþjóðlega vernd á flugvöllum geti verið gert að dvelja í slíkum úrræðum á flugvöllum og njóti þeir takmarkaðs ferðafrelsis þar til umsókn þeirra hafi verið tekin til meðferðar. Að hámarki geti einstaklingar dvalið í slíkum rýmum í átta daga. Almennt séu einstaklingar í viðkvæmri stöðu ekki settir í varðhald en slíkt hafi þó gerst í undantekningartilfellum. Umboðsmaður á Spáni (e. Ombudsman) hafi nýverið heimsótt og haft eftirlit með aðstæðum og aðbúnaði umsækjenda um alþjóðlega vernd sem dvelji í varðhaldi, m.a. á flugvöllum. Kemur fram að aðstæður og aðbúnaður umsækjenda sé fábrotinn og skortur á dagsljósi hafi verið meðal þess sem hafi verið gagnrýnt. Umboðsmaður hafi þó ekki gert alvarlegar athugasemdir. Þá kemur fram að umsækjendur sem dvelji í varðhaldi hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu sem sé ekki takmörkuð við neyðartilvik.

Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem falli undir gildissvið Dyflinnarreglugerðarinnar séu ekki settir í varðhald. Hvað síðastnefnt atriði varðar bendir kærunefnd til hliðsjónar á að nefndin hefur áður aflað upplýsinga frá Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð á Spáni. Í þeim upplýsingum kom m.a. fram að á Spáni væru tvær mismunandi málsmeðferðir vegna umsókna um alþjóðlega vernd, annars vegar málsmeðferð við landamæri (e. border procedure) og hins vegar málsmeðferð innanlands (e. inland procedure). Var tekið fram að umsóknir einstaklinga sem endursendir séu til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar séu settar í málsmeðferð innanlands.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd á Spáni hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Spáni bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Aðstæðum kæranda hefur þegar verið lýst. Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Ekki sé þá fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað um heilbrigðiskerfið á Spáni er það mat nefndarinnar að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar í málinu að kæranda bíði fullnægjandi og aðgengileg heilbrigðisþjónusta, m.a. hvað varðar þjónustu geðlækna og sálfræðinga þar í landi. Þá kemur fram að samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað eru umsækjendur sem sendir eru til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar almennt ekki settir í varðhald. Fyrir liggur að spænska ríkið hefur samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar og telur kærunefnd því ekki forsendur til annars, með hliðsjón af þeim upplýsingum sem liggja fyrir um aðstæður þar í landi, en að miða við að verði kærandi sendur til baka til Spánar fari um umsókn hans um alþjóðlega vernd samkvæmt málsmeðferð innanlands og kærandi hljóti þá móttöku og njóti þeirra úrræða og þjónustu sem almennt gildir um einstaklinga sem Spánn tekur við á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Af framangreindum gögnum verður jafnframt ráðið að fordómar og mismunun gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd sé nokkuð vandamál á Spáni. Spænska ríkið hafi þó gripið til ýmissa aðgerða til að stemma stigu við fordómum og mismunun og m.a. komið á fót sérstökum deildum (e. Hate Crimes and Discrimination Departments) innan staðbundinna saksóknaraembætta á Spáni sem sérhæfir sig í málum tengdum hatursglæpum og mismunun. Að mati kærunefndar getur kærandi leitað sér aðstoðar spænskra yfirvalda óttist hann mismunun eða fordóma á grundvelli kynþáttar. Því er það mat kærunefndar að kærandi komi ekki til með að eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki, m.a. vegna alvarlegrar mismununar.

Þá hefur kærandi greint frá því að hann óttist smyglara á Spáni ásamt því að fjölskylda hans viti af honum þar í landi og gæti náð til hans. Þau gögn sem kærunefndin hefur kynnt sér benda til þess að kærandi geti leitað aðstoðar yfirvalda á Spáni óttist hann tiltekna aðila eða að á honum verði brotið.

Í ljósi aðstæðna á Spáni og að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 27. febrúar 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 27. janúar 2018.

Reglur stjórnsýsluréttar

Til stuðnings varakröfu kæranda vísar kærandi m.a. til þess að rannsókn málsins hafi ekki verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Bendir kærandi m.a. á annmarka við rannsókn máls á viðkvæmri stöðu hans þar sem honum hafi ekki verið gefinn tími hjá sálfræðing og hvort viðkvæm staða hans muni leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Kærunefnd óskaði eftir frekari heilsufarsupplýsingum í máli kæranda með tölvupóst þann 5. júní 2018. Kom þá í ljós að kærandi hafi líkt og að framan greinir farið í viðtal hjá sálfræðing þann 9. maí 2018 þar sem engar frekari upplýsingar komu fram um andlegt ástand hans. Kærunefnd hefur því farið yfir öll gögn í máli kæranda, þ. á m. frekari læknisfræðileg gögn sem kærandi hefur lagt fram við meðferð málsins á kærustigi og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Er það því afstaða kærunefndar að ekkert bendi til þess að slíkur ágalli hafi verið á rannsókn Útlendingastofnunar þannig að fella beri ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands 27. janúar 2018 og sótti hann um alþjóðlega vernd þann sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Spánar eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa spænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Spánar með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Erna Kristín Blöndal                                                                   Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta