Hoppa yfir valmynd

Nr. 383/2018

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 27. september 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 383/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18060033

 

Kæra [..]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 18. júní 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Alsír (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. maí 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Frakklands.

Þess er krafist að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og málið sent til nýrrar meðferðar með vísan til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 18. desember 2017. Þar sem kærandi hafði fengið útgefna vegabréfsáritun til Frakklands, með gildistíma frá 20. desember 2016 til 19. desember 2017, var þann 20. desember 2017 beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Frakklandi, sbr. 4. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 9. febrúar 2018 barst svar frá frönskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 30. maí 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Frakklands. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 5. júní 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 18. júní 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 26. júní 2018 ásamt fylgigögnum.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Frakklands. Flutningur kæranda til Frakklands fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun mat aðstæður kæranda slíkar að hann væri í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Það var hins vegar mat stofnunarinnar, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, að sérstakar ástæður væru ekki til staðar í málinu, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Frakklands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæra frestaði réttaráhrifum, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann mótmæli því að verða sendur til Frakklands. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi flúið heimaríki sitt eftir að hafa verið ranglega ásakaður um þjófnað og ákveðinn lögreglumaður þar í landi ofsæki hann. Kærandi hafi m.a. verið laminn af lögreglumönnum með byssu í andlitið með þeim afleiðingum að hann hafi nefbrotnað og talað hafi verið niður til hans. Kærandi hafi kært lögreglumanninn sem hafi veitt honum áverkana en um sé að ræða valdamikinn mann og hann hafi verið sýknaður. Í kjölfarið hafi lögreglumaðurinn hótað kæranda og ásakað hann um afbrot af ýmsu tagi. Þá hafi kærandi verið dæmdur í 10 ára fangelsi að sér fjarstöddum og hann búi við ótta um að verða handtekinn. Kærandi kveður líf sitt vera í hættu verði hann sendur til Frakklands. Kærandi hafi ekki verið nema þrjá daga í Frakklandi þegar hann hafi frétt að áðurnefndur lögreglumaður væri enn á eftir honum. Kærandi hafi ekki leitað til franskra yfirvalda eða lögreglu þar sem tengslin milli Frakklands og heimaríkis hans séu mjög sterk. Þá óttist hann að frönsk yfirvöld muni senda hann til heimaríkis verði honum gert að óska eftir alþjóðlegri vernd í Frakklandi. Kærandi greini frá því að einstaklingar njóti ekki öryggis í Frakklandi, þar séu glæpaklíkur og einstaklingar frá heimaríki hans hafi verið drepnir fyrir greiðslu þar í landi. Kæranda hafi borist hótanir úr frönskum símanúmerum þar sem fram komi að hans sé leitað. Þá telji kærandi að þrýstingur frá utanríkisráðherra heimaríkis hans gæti leitt til þess að hann verði framseldur til heimaríkis vegna sakfellingar hans þar í landi og umsókn hans um alþjóðlega vernd komi því ekki til með að fá fullnægjandi meðferð.

Kærandi greinir frá því í greinargerð að hann sé blindur á öðru auga, þjáist af sykursýki og hafi átt við ristilvandamál að stríða. Kærandi kveður andlegt ástand sitt vera óstöðugt, hann þjáist af kvíða og óttist um líf sitt. Ofbeldið sem hann hafi orðið fyrir í heimaríki hafi haft veruleg áhrif á andlega líðan hans, hann endurupplifi í sífellu þá atburði sem hafi komið fyrir hann, hann treysti engum og sé sífellt hræddur um að einhver komi aftan að sér. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi hann verið metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu en stofnunin hafi komist að þeirri niðurstöðu að kærandi muni ekki eiga erfitt uppdráttar í Frakklandi m.t.t. stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi bendi hins vegar á að þó svo að heilbrigðisþjónusta standi umsækjendum um alþjóðlega vernd til boða í orði kveðnu sé þeim ekki tryggð slík þjónusta í raun. Þá tryggi frönsk lög ekki aðgengi fólks að geðheilbrigðisþjónustu og sé aðgengi umsækjenda að slíkri þjónustu því takmarkað. Í greinargerð kæranda er vísað í ítarlega umfjöllun um franska hæliskerfið í greinargerð til Útlendingastofnunar.

Kærandi byggir kröfu sína á því að taka skuli umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli þess að sérstakar ástæður standi til þess, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvæðið komi fram að einstaklingar sem séu í viðkvæmri stöðu falli undir ákvæðið. Þessi vilji löggjafans sé enn frekar staðfestur í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, þar sem fram komi að ávallt skuli taka til efnislegrar meðferðar umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi er í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Þá bendir kærandi á að hann hafi lagt fram umsókn sína um alþjóðlega vernd fyrir gildistöku reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, sem birt hafi verið á vef stjórnartíðinda þann 14. mars sl. Vegna sjónarmiða um bann við afturvirkni íþyngjandi laga og reglna sé íslenskum stjórnvöldum því óheimilt að beita reglugerðinni í máli kæranda. Þá telur kærandi að megináhersla í framangreindri reglugerð, um mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins og skilvirkni umsóknarferlisins, gangi þvert á markmið laga um útlendinga og vilja löggjafans sem komi fram í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum nr. 80/2016 og 81/2017. Jafnframt vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 199/2018 frá 24. apríl 2018 máli sínu til stuðnings. Kærandi bendi á að kærunefndin hafi staðfest með áðurnefndum úrskurði að reglugerðin feli ekki í sér þrengri skilyrði en áður hafi verið sett fyrir því að mál sérstaklega viðkvæmra einstaklinga fái hér efnislega meðferð.

Til stuðnings varakröfu sinni vísar kærandi til 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi byggi á því að rannsókn málsins og rökstuðningi fyrir niðurstöðu þess sé að mörgu leyti áfátt.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að frönsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Frakklands er byggt á því að kærandi hafi verið með gilda vegabréfsáritun til Frakklands. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæður getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi […] ára, giftur og á fimm börn. Í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun, dags. 20. mars 2018, kvaðst kærandi aðspurður um líkamlegt heilsufar sitt vera með sykursýki, vöðvabólgu, ristilvandamál, hann sé blindur á öðru auganu og þjáist af gigt. Þá kvað kærandi andlegt heilsufar sitt vera óstöðugt, hann þjáist af kvíða, óttist um líf sitt og hann endurupplifi hluti sem hafi komið fyrir hann. Þá kvaðst kærandi hafa orðið fyrir pyndingum í heimaríki sem áhrif hefðu á andlega og líkamlega heilsu hans. Kærandi hefur lagt fram máli sínu til stuðnings komunótur Göngudeildar sóttvarna, dags. frá 8. janúar til 29. maí 2018, þar sem fram kemur m.a. að kærandi hafi verið greindur með sykursýki, gigt, svefnleysi og kvíða. Hann þurfi lyfjameðferð við sykursýkinni auk þess sem hann hafi fengið lyf vegna kvíða, verkjalyf og lyf vegna aukaverkana annarra lyfja. Í gögnum málsins kemur fram að kærandi hafi hitt sálfræðing Göngudeildar í þrígang og að honum hafi verið ávísað viðeigandi lyfjum. Segir í komunótu sálfræðings Göngudeildar sóttvarna, dags. 14. maí 2018, að kærandi sé mjög langt niðri og óttist um líf sitt.

Samkvæmt framansögðu liggur fyrir að kærandi er m.a. haldinn kvíða, sykursýki og gigt og þarf á lyfjameðferð að halda. Með vísan til gagna málsins er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu slíkar að hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Frakklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Frakklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 Country Reports on Human Rights Practices – France (United States Department of State, 20. apríl 2018),

  • 4th quarterly activity report 2016 by Nils Muižnieks, Council of Europe Commissioner for Human Rights (1 October to 31 December 2016) (Council of Europe, 22. febrúar 2017),
  • Amnesty International Report 2017/18 – France (22. febrúar 2018),
  • Annual Report 2017 – Paris (International Committee of the Red Cross (ICRC), 13. júní 2018),

  • Asylum Information Database, Country Report – France (European Council on Refugees and Exiles, 13. febrúar 2018),
  • Dublin II Regulation & Asylum in France – Guide for Asylum Seekers – 2012 (Forum réfugiés, European Refugee Fund, 2012),
  • First Steps for Demanding Asylum (Dom‘Asile, nóvember 2015),
  • Freedom in the World 2018 – France (Freedom House, 28. maí 2018),

  • Guide for Asylum Seekers in France (Ministry of the Interior, General Directorate for Foreign Nationals in France, 1. nóvember 2015),
  • Stjórnarskrá Frakklands (aðgengileg á ensku á vefsíðu stjórnlagaráðs Frakklands, http://www.conseil-constitutionnel.fr/),
  • Universal Periodic Review. National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 – France (United Nations Human Rights Council, 13. nóvember 2017),

  • Vefsíða innanríkisráðuneytis Frakklands (https://www.police-nationale.interieur.gouv.fr) og
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fær umsókn þeirra hefðbundna meðferð í hæliskerfi landsins. Umsækjendur geta sótt um alþjóðlega vernd hjá stjórnsýslustofnun (f. Préfecture) eða þar til bærum undirstofnunum. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á viðtali hjá sérstakri stofnun (f. Office français de l’immigration et de l’intégration (OFII)) þar sem fram fer greining á því hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir. Önnur stjórnsýslustofnun, OFPRA (f. Office français de protection des réfugiés et des apatrides), tekur svo efnisákvörðun í málinu. Umsækjendur sem greindir hafa verið í sérstaklega viðkvæmri stöðu af OFII eiga rétt á sérstökum ráðstöfunum varðandi málsmeðferð sína og móttökuaðstæður. Til að mynda eiga þolendur pyndinga eða ofbeldis rétt á sérstökum ráðstöfunum varðandi viðtalið sitt og starfsmenn OFPRA eru sérstaklega þjálfaðir til að vinna með umsækjendum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Jafnframt getur OFPRA forgangsraðað málsmeðferð umsókna frá viðkvæmum einstaklingum. Þá eru læknisfræðileg gögn notuð til stuðnings málsástæðum umsækjenda og gögnin notuð til að sannreyna frásögn umsækjanda.

Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga almennt ekki rétt á lögfræðiaðstoð við að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd. Þegar umsókn hefur verið lögð fram eiga umsækjendur rétt á gistiplássi í móttökumiðstöð en í framangreindum skýrslum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Frakklandi eiga möguleika á því að fá annaðhvort húsaskjól í hefðbundnum móttökumiðstöðvum eða í tímabundnum gistiskýlum á vegum stjórnvalda á meðan þeir eru á biðlista eftir plássi í móttökumiðstöð. Þeir sem endursendir eru til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta leitað til CAO (f. Centre d’accueil et d’orientation) eða PRAHDA (f. d’accueil et d’hébergement des demandeurs d’asile) móttökumiðstöðvanna. Auk þess standa þeim til boða önnur tímabundin neyðarúrræði á meðan beðið er eftir plássi í móttökumiðstöðvum. Í CAO móttökumiðstöðvunum fá umsækjendur aðstoð félagsráðgjafa í tengslum við umsókn sína um alþjóðlega vernd. Fái þeir ekki pláss í slíkum miðstöðvum geta umsækjendur leitað til frjálsra félagasamtaka sem bjóða meðal annars upp á lögfræðiaðstoð í tengslum við umsóknir um alþjóðlega vernd. Þá mega umsækjendur hafa lögfræðing eða annan fulltrúa frá frjálsum félagasamtökum með sér í viðtölum hjá OFII og OFPRA. Þegar umsækjendur kæra neikvæða niðurstöðu til stjórnsýsludómstóls (f. Cour nationale du droit d‘asile (CNDA)) eiga þeir rétt á lögfræðiaðstoð sem í mörgum tilvikum er gjaldfrjáls.

Í fyrrgreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Frakklandi kemur fram að umsækjendum um alþjóðlega vernd þar í landi er tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu samkvæmt frönskum lögum. Umsækjendur sem sæta hefðbundinni málsmeðferð hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu á grundvelli sjúkratryggingakerfisins þar í landi (f. Protection Universelle Maladie (PUMA)) en þeir þurfa þó að sækja um aðgang að kerfinu. Jafnvel þótt umsækjendur séu ekki komnir með aðgang að sjúkratryggingakerfinu geta þeir engu að síður leitað til opinberra heilsugæslustöðva (f. Permanence d’accès aux soins de santé (PASS)) sem eru til staðar á öllum opinberum spítölum og fengið þar aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

Þá benda framangreind gögn jafnframt til þess að löggæsluyfirvöld í Frakklandi veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd aðstoð og vernd gegn einstaklingum sem þeir óttist.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Frakklandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Frakklandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Frakklands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda, en kærandi kveður m.a. að hann glími við líkamleg og andleg vandamál og að hann hafi orðið fyrir líkamlegu ofbeldi í heimaríki. Það er þó mat kærunefndar, á grundvelli gagna málsins, að aðstæður kæranda teljist ekki til mikilla og alvarlegra veikinda sem meðferð sé aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Frakklandi eiga umsækjendur um alþjóðleg vernd rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu samkvæmt frönskum lögum. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í landinu, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna þar í landi. Í því sambandi lítur kærunefnd til þess að skimað er sérstaklega eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd séu í viðkvæmri stöðu eða hafi sérstakar þarfir við meðferð þessara mála í Frakklandi auk þess sem komið er til móts við þær þarfir bæði varðandi málsmeðferð og móttökuaðstæður.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af framangreindum gögnum um aðstæður í Frakklandi verður ráðið að verði kærandi fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar geti hann leitað ásjár franskra yfirvalda vegna þess. Þá hefur kærandi greint frá því að hann óttist um öryggi sitt í Frakklandi, hann hafi fengið hótanir úr frönskum símanúmerum frá aðilum í Frakklandi sem hann óttist. Af framangreindum gögnum um aðstæður í Frakklandi verður jafnframt ráðið að verði kærandi fyrir ofbeldi eða hótunum um ofbeldi þar í landi geti hann leitað ásjár franskra yfirvalda vegna þeirra.

Kærandi ber fyrir sig að frönsk yfirvöld muni framselja hann til heimaríkis verði honum gert að óska eftir alþjóðlegri vernd í Frakklandi og umsókn hans komi því ekki til með að fá fullnægjandi málsmeðferð. Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Frakklandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement). Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð franskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Þrátt fyrir að ákveðin söguleg tengsl séu milli Frakklands og heimaríkis kæranda benda gögn sem kærunefnd eindregið til þess að þau tengsl hafi ekki áhrif á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd frá ríkisborgurum Alsír.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. 

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 20. mars 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 18. desember 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda er gerð athugasemd við rannsókn Útlendingastofnunar með vísan til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi hvorki rannsakað né rökstutt mál kæranda með fullnægjandi hætti. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Kærunefnd hefur endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars sl. voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Að mati kærunefndar fól gildistaka reglugerðarinnar ekki í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kæranda. Þá koma sjónarmið um afturvirkni laga, að því marki sem þau kynnu að vera sambærileg varðandi setningu stjórnvaldsfyrirmæla, ekki til skoðunar í þessu máli.

Þá verður ekki litið svo á að setning reglugerðarinnar gangi gegn almennri túlkun og skýringu á lögum um útlendinga að því er varðar áherslu á mikilvægi samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins. Í því sambandi bendir kærunefnd á að í athugasemdum sem fylgdu 36. gr. frumvarps þess er varð að lögum um útlendinga nr. 80/2016 er sérstaklega vísað til þess að efni greinarinnar „grundvall[ist] á alþjóðasamstarfi, sem Ísland tekur þátt í um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd einkum og sér í lagi þátttöku í Schengen-samstarfinu og í samstarfi ríkja á grundvelli Dyflinnarsamningsins.“ Þá er í íslenskum rétti í gildi sú almenna regla að eftir því sem unnt er beri að skýra íslensk lög til samræmis við þá alþjóðasamninga sem Ísland er aðili. Því er það afstaða nefndarinnar að áhersla á samvinnu aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins, sbr. jafnframt 1. mgr. 32. gr. reglugerðar um útlendinga, sé málefnalegt sjónarmið við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Frávísun

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands þann 17. desember 2017. Hann sótti um alþjóðlega vernd þann 18. desember 2017. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Frakklands eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa frönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Frakklands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

 

Erna Kristín Blöndal                                                                       Árni Helgason

                                              


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta