Mál nr. 1/2014
Úrskurður
Á fundi úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða 16. september 2014 var kveðinn upp svohljóðandi úrskurður í máli A, nr. 1/2014.
1. Málsatvik og kæruefni
Málsatvik eru þau að með bréfi, dags. 17. desember 2013, tilkynnti Vinnumálastofnun kæranda, A, að stofnunin hefði á fundi sínum sama dag fjallað um rétt hennar til atvinnuleysisbóta. Tekin hafi verið sú ákvörðun að fella niður bótarétt kæranda frá og með 12. desember 2013 í þrjá mánuði sem ella hefðu verið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir sökum þess að hún tilkynnti Vinnumálastofnun ekki fyrirfram um dvöl sína erlendis. Ákvörðunin var tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Samkvæmt upplýsingum stofnunarinnar var kærandi stödd erlendis á tímabilinu 14. til 26. nóvember 2013 og uppfyllti því ekki skilyrði þess að fá greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili, sbr. c-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi vildi ekki una ákvörðun Vinnumálastofnunar og kærði hana til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með erindi, dags. 3. janúar 2014. Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi. Vinnumálastofnun telur að staðfesta beri hina kærðu ákvörðun.
Kærandi sótti síðast um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. september 2013.
Vinnumálastofnun bárust upplýsingar um að kærandi hafi farið til útlanda í nóvember 2013 samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Með bréfi, dags. 5. desember 2013, var kæranda boðið að skila inn skýringum á ótilkynntri dvöl erlendis innan sjö daga. Í bréfinu var kæranda bent á að skv. c-lið 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar væri skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta að viðkomandi væri búsettur og staddur hér á landi. Kærandi skilaði inn skýringum í bréfi, dags. 9. desember 2013, ásamt afriti af flugfarseðlum. Samkvæmt þeim var kærandi erlendis á tímabilinu 14. til 26. nóvember 2013. Fram kom að aðalástæða fyrir ferð kæranda hafi verið sú að athuga með vinnu í Noregi.
Samkvæmt gögnum málsins sætti kærandi niðurfellingu bótaréttar vegna starfsloka hjá B skv. 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þann 30. október 2013. Er því um að ræða niðurfellingu bótaréttar öðru sinni.
Í kæru, dags. 3. janúar 2014, kemur fram að kæranda finnist það fullhart að refsa fólki fyrir að gleyma því að láta vita áður en farið er til útlanda, en hún hafi látið vita um leið og hún hafi komið aftur til landsins. Hún hafi verið á bið vegna þess að hún hafi sagt upp starfi og hafi hún ekki fengið eina einustu krónu frá Vinnumálastofnun og það sé ætlast til þess af henni að hún sé á bið í sex mánuði samtals. Hún sé samviskusöm manneskja og hafi lagt sitt til þjóðfélagsins og eigi hún og maður hennar átta börn og hafi þetta lagst mjög þungt á þau fjárhagslega. Hún sé í virkri atvinnuleit sem gangi vonandi fljótlega. Hún vilji leita réttar síns og telji hún sig eiga fullan rétt á bótum frá Vinnumálastofnun. Óþarfi hafi verið að bæta þessum þremur mánuðum til viðbótar á hana vegna mistaka og hún viðurkenni heiðarlega að hafa gleymt að tilkynna um ferð sína en henni hafi verið boðið með stuttum fyrirvara til að skoða aðstæður í Noregi og hafi hún látið vita um leið og hún hafi komið heim. Henni líði eins og hún sé einhver glæpamaður og óskar endurskoðunar og leiðréttingar á máli þessu.
Í greinargerð Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, dags. 28. febrúar 2014, vísar Vinnumálastofnun til c-liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysisbóta þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Vinnumálastofnun vísar einnig til 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem mælt er fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar, en atvinnuleitanda ber skylda til þess að upplýsa Vinnumálstofnun um allar þær breytingar sem kunna að verða á högum hans eða annað sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar. Stofnunin bendir á að í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum nr. 37/2009, til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar, komi meðal annars fram að láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálstofnun nauðsynlegar upplýsingar eða veiti rangar upplýsingar, komi til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun áréttar að einnig sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistrygginga. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum.
Vinnumálastofnun vísar til 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem kveðið sé á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Fyrir liggi í máli þessu að kærandi hafi verið stödd erlendis á tímabilinu 14. til 26. nóvember 2013. Í 13. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé skýrt kveðið á um þá skyldu umsækjenda um greiðslur atvinnuleysisbóta að vera í virkri atvinnuleit. Sé það jafnframt gert að skilyrði að umsækjandi sé staddur hér á landi, sbr. c-lið 1. mgr. 13. gr. laganna. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrirfram um utanlandsferð sína, líkt og henni hafi borið skv. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Í skýringarbréfi til Vinnumálastofnunar segi kærandi að hún hafi farið til Noregs til að athuga með vinnu. Fram komi af hálfu stofnunarinnar að á kynningarfundum Vinnumálastofnunar sé vakin athygli á því að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi og að ótilkynntar ferðir til útlanda séu óheimilar meðfram töku atvinnuleysisbóta. Þessar upplýsingar sé einnig að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar. Þá vekur Vinnumálastofnun athygli á því að í þeim tilvikum sem stofnuninni sé tilkynnt um slíkar ferðir fyrirfram sé atvinnuleitanda gerð grein fyrir því að nema fyrir liggi U-2 vottorð hjá stofnuninni fái hann ekki greiddar atvinnuleysisbætur á meðan hann dveljist erlendis. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi í umrætt sinn látið hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar um atvik er haft hafi bein áhrif á rétt hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þar sem um hafi verið að ræða viðurlagaákvörðun í annað skipti á sama bótatímabili hafi hin seinni viðurlagaákvörðun komið til ítrekunar hinni fyrri, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi tekið þá ákvörðun 30. október 2013 að kærandi skyldi sæta viðurlögum á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysisbætur vegna starfsloka hennar hjá B. Hafi kæranda því verið gert að sæta biðtíma í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi, sbr. 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Kæranda var með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 11. mars 2014, sent afrit af greinargerð Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á að koma á framfæri frekari athugasemdum fyrir 25. mars 2014. Engar frekari athugasemdir bárust frá kæranda.
2. Niðurstaða
Mál þetta lýtur að túlkun á 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 22. gr. laga nr. 134/2009, 3. gr. laga nr. 153/2010 og 14. gr. laga nr. 142/2012, en hún er svohljóðandi:
„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“
Þetta ákvæði þarf meðal annars að túlka með hliðsjón af því að skv. c-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. gr. laga nr. 134/2009, er eitt af skilyrðum þess að geta haldið rétti sínum í atvinnuleysistryggingakerfinu að vera búsettur og staddur hér á landi.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi stödd erlendis á tímabilinu frá 14. til 26. nóvember 2013, en tilkynnti ekki Vinnumálastofnun fyrirfram að hún yrði ekki stödd á landinu á umræddu tímabili. Af hálfu kæranda kemur meðal annars fram að henni hafi láðst að láta vita og að hún hafi gert það um leið og hún kom aftur til landsins. Hún telji ákvörðun Vinnumálastofnunar vera fullharkalega.
Fram hefur komið í máli Vinnumálastofnunar að á kynningarfundum stofnunarinnar séu veittar upplýsingar um að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi sé búsettur og staddur hér á landi. Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða bendir einnig á að til þess verði að líta að tíðkanlegt er að launþegar upplýsi vinnuveitendur sína um fjarvistir vegna dvalar erlendis en réttarsamband atvinnuleitanda og Vinnumálastofnunar er um sumt eðlislíkt því sem er á milli launþega og vinnuveitanda. Þessu til viðbótar hafa um allnokkurt skeið verið veittar upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitenda á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Í ljósi þeirrar upplýsingaskyldu atvinnuleitenda sem kveðið er á um í 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. gr. laga nr. 134/2009, verður fallist á að kærandi hafi brotið gegn trúnaðarskyldum sínum gagnvart Vinnumálastofnun í umrætt sinn, er hún hélt af landi brott án þess að láta vita af því fyrirfram. Því bar Vinnumálastofnun að láta hana sæta viðurlögum skv. 1. mgr., sbr. 4. mgr. 59. gr. laganna. Ákvæði 1. mgr., sbr. 4. mgr., 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er fortakslaust en í því felst að hvorki Vinnumálastofnun né úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða getur tekið ákvörðun um vægari viðurlög í máli kæranda en ákvæðið felur í sér.
Þar sem um er að ræða aðra viðurlagaákvörðun á sama bótatímabili kemur seinni viðurlagaákvörðunin til ítrekunar hinni fyrri skv. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda ber því að sæta biðtíma í þrjá mánuði frá ákvörðunardegi skv. 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til framangreinds og þeirra raka sem Vinnumálastofnun hefur fært fram fyrir hinni kærðu ákvörðun, verður hún staðfest.
Úrskurðarorð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 17. desember 2013 í máli A um að hún skuli ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum í þrjá mánuði frá og með 17. desember 2013 er staðfest.
Brynhildur Georgsdóttir, formaður
Hulda Rós Rúriksdóttir
Helgi Áss Grétarsson