Mál nr. 107/2019 Úrskurður 11. desember 2019
Mál nr. 107/2019 Millinafn: Kvist
Hinn 11. desember 2019 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 107/2019 en erindið barst nefndinni 6. nóvember 2019.
Til þess að hægt sé að samþykkja nýtt millinafn og færa það á mannanafnaskrá þurfa öll skilyrði 6. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru þessi:
- Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
- Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
- Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.
Millinafnið Kvist uppfyllir framangreind skilyrði laga um mannanöfn og er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laganna.