Hoppa yfir valmynd

Nr. 126/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 9. apríl 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 126/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19020034

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. febrúar 2019 kærði einstaklingur sem kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Afganistan (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 28. janúar 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 1.-3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Til vara er þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og stofnuninni verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.            Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 31. ágúst 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Svíþjóð. Þann 8. október 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Svíþjóð, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá sænskum yfirvöldum, dags. 12. október 2018, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Við meðferð málsins óskaði Útlendingastofnun í tvö skipti eftir upplýsingum frá sænskum stjórnvöldum samkvæmt 34. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, sbr. beiðnir dags. 7. september og 27. nóvember 2018. Svör frá sænskum stjórnvöldum bárust dagana 2. október og 17. desember 2018.

Þann 19. september 2018 boðaði Útlendingastofnun kæranda í líkamsrannsókn til að ákvarða aldur hans, sbr. 113. gr. laga um útlendinga, sem kærandi samþykkti. Þann sama dag óskaði stofnunin eftir rannsókn tannfræðilegra gagna vegna aldursgreiningar hjá Tannlæknadeild Háskóla Íslands. Kærandi gekkst undir umrædda rannsókn þann 21. september 2018 og voru niðurstöður hennar kynntar kæranda í viðtali hjá stofnuninni þann 22. nóvember 2018. Útlendingastofnun ákvað þann 28. janúar 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 29. janúar 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 12. febrúar 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum barst kærunefnd 21. febrúar 2019. Þann 11. mars 2019 óskaði kærunefnd eftir frekari gögnum frá kæranda og bárust þau samdægurs. Þá óskaði nefndin eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun þann sama dag, þ.e. 11. mars 2019, og bárust svör degi síðar.

Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins, auk þess sem lögð var fram beiðni um öflun álits sérfræðings á andlegu ástandi kæranda. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III.           Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að sænsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Svíþjóðar ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Svíþjóðar.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom m.a. fram að kærandi hafi kvaðst vera fæddur þann […]. Við meðferð málsins hefði kærandi þó ekki lagt fram nein skilríki og þá lægju ekki fyrir önnur haldbær gögn er varpað gætu ljósi á aldur kæranda með fullnægjandi hætti. Stofnunin hefði boðað kæranda til aldursgreiningar, í formi tanngreiningar, sem fram hefði farið þann 21. september 2018. Niðurstöður hennar hefðu gefið til kynna að kærandi væri eldri en 18 ára. Var það mat stofnunarinnar að kærandi hefði náð þeim aldri í síðasta lagi þann 21. september sl. Því væri ekki fallist á með kæranda að hann hefði náð 18 ára aldri þann […].

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Kærandi skiptir aðalkröfu sinni í tvo hluta. Í fyrsta lagi vísar kærandi til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.e. að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hans og því beri að taka umsókn hans til efnismeðferðar. Í því samhengi fjallar kærandi almennt um túlkun á 1. og 2. mgr. 36. gr. laganna, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum, fyrri úrskurðum kærunefndar, lögum nr. 81/2017 um breytingar á lögum um útlendinga, og hugtakinu sérstaklega viðkvæm staða, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Ólíkt mati Útlendingastofnunar bendi margt til þess að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, þ.e. m.a. vegna andlegs ofbeldis, vanlíðunar, svefnleysis, andlegra erfiðleika og að hann hafi verið á flótta síðan 2009. Hann hafi engin tengsl við heimaríki sitt og við komuna til Íslands hafi hann verið fylgdarlaust barn. Þá vísar kærandi til komunótna frá Göngudeild sóttvarna frá því í janúar sl. en þar hafi hann sótt þjónustu sálfræðings.

Hvað varðar sérstakar ástæður í málinu vísar kærandi til þess að hann sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, að hann sé rétt um 18 ára gamall, hafi verið á flótta frá barnsaldri, að hann hafi verið fylgdarlaust barn er hann yfirgaf heimaríki og ferðaðist til Svíþjóðar og þá hafi hann notið þjónustu sem slíkur þar í landi sem og á Íslandi. Gögn málsins beri með sér að kærandi hafi verið barn við komuna til Íslands þann 31. ágúst 2018. Kærandi sé nú ungur að árum þótt hann hafi náð 18 ára aldri en verið fylgdarlaust barn við komuna til Íslands. Þá vísar kærandi til 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, og fjallar um sérviðmið sem þar sé að finna varðandi börn og ungmenni. Með hliðsjón af því sem þar komi fram hvetji kærandi kærunefnd til að taka tillit til þess að kærandi hafi verið fylgdarlaust barn þegar hann kom til Íslands. Til stuðnings sjónarmiðum kæranda vísar hann til úrskurða kærunefndar nr. 553/2017 og nr. 523/2018 en þeir kunni að eiga við um mál hans. T.d. séu möguleikar hans á að fá mál sitt endurupptekið í Svíþjóð takmarkaðir.

Í öðru lagi vísar kærandi til þess, hvað varðar aðalkröfu hans, að ótækt sé að senda sig frá Íslandi til Svíþjóðar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi njóti m.a. verndar 42. gr. laga um útlendinga og sambærilegrar grundvallarreglu þjóðaréttar sem leggi bann við beinni endursendingu einstaklings til ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu (e. direct refoulement) og jafnframt endursendingu til ríkis ef fyrirsjáanlegt er að það muni senda hann áfram í slíka hættu (e. indirect refoulement). Kærandi tekur fram að umsókn hans hafi hlotið lokasynjun í Svíþjóð og þá gerir hann grein fyrir aðstæðum í heimaríki með hliðsjón af alþjóðlegum skýrslum ásamt því að fjalla um dómaframkvæmd erlendra dómstóla. Þá vísar kærandi til 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Varakrafa kæranda byggir á því að ákvörðun Útlendingastofnunar sé haldin verulegum annmörkum. Í því samhengi vísar kærandi til og fjallar um inntak 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga um málshraða. Rekur kærandi að fimm mánuðir hafi liðið frá komu hans hingað til lands þar til Útlendingastofnun hafi birt ákvörðun sína og vísar til samanburðar í tölfræði um málsmeðferðartími sem fram komi í skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis frá 2018. Þá hafi niðurstöður rannsóknar tannfræðilegra gagna legið fyrir í september 2018 en þær ekki kynntar kæranda fyrr en 22. nóvember, tveimur mánuðum síðar. Hafi það því verið þremur mánuðum eftir að kærandi hafi lagt fram umsókn um vernd og rúmum mánuði eftir að sænsk stjórnvöld hafi samþykkt viðtöku á honum. Kærandi gerir athugasemd málsmeðferðartíma Útlendingastofnunar, sér í lagi þar sem kærandi hafi verið fylgdarlaust barn við komuna til Íslands og því haft brýna hagsmuni af skjótri afgreiðslu málsins. Ennfremur vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 494/2016. Af þeim ályktunum sem draga megi af þeim úrskurði, aðstæðum kæranda og meðferð málsins hjá Útlendingastofnun sem tekið hafi fimm mánuði, sé ljóst að stofnunin hafi brotið gegn málshraðareglunni. Þá áréttar kærandi annmarka á ákvörðun stofnunarinnar sem hann hafi áður gert greint fyrir, þ.e. að Útlendingastofnun hafi ekki farið með umsókn hans líkt og hann væri fylgdarlaust barn og ekki tekið afstöðu til þess hvað teldist barni fyrir bestu. Jafnframt sé mat stofnunarinnar á viðkvæmri stöðu kæranda rangt.

Framangreindu til viðbótar gerir kærandi einnig athugasemdir við það að stofnunin hafi ekki framkvæmt heildarmat á aldri kæranda, sbr. 113. gr. laga um útlendinga og 39. gr. reglugerðar um útlendinga, með síðari breytingum, og þá komi ekki skýrt fram í ákvörðuninni á hvaða tímapunkti stofnunin hafi talið að kærandi hafi náð 18 ára aldri. Þá hafi Útlendingastofnun látið undir höfuð leggjast að taka afstöðu til uppgefins fæðingardags kæranda en frásögn hans um það atriði hefði átt að koma til skoðunar við mat á aldri hans. Ennfremur mótmælir kærandi þeirri staðhæfingu stofnunarinnar að engra annarra gagna hafi notið við um aldur hans en kærandi tekur fram að gögn frá sænskum stjórnvöldum sem staðfesti frásögn hans hafi legið fyrir. Kærandi undrist þetta mat Útlendingastofnunar sem hafi farið gegn skýrum tilmælum laga, reglugerðar um útlendinga og úrskurðar kærunefndar, sbr. úrskurður nr. 548/2018 frá 12. desember sl. Af síðastnefndum úrskurði sé m.a. ljóst að heildstætt mati þurfi að fara fram á aldri umsækjenda og þá beri að skýra vafa um aldur þeim í hag. Aðstæður kæranda séu sambærilegar aðstæðum kæranda í síðastnefndum úrskurði og byggt sé á því að vafi leiki á um hver aldur kæranda sé. Í málinu liggi t.d. fyrir gögn frá sænskum stjórnvöldum þar sem fram komi aldur kæranda og þá liggi frásögn kæranda einnig fyrir. Þá hafi framburður kæranda um aldur sinn verið stöðugur og trúverðugur, en hann hafi þó óskað eftir leiðréttingu á skráðum fæðingardegi sínum hér á landi. Sú leiðrétting hafi það þó í för með sér að aldur kæranda sé hærri en ella. Jafnframt hafi kærandi lagt fram skírteini um bólusetningu sem styðji frásögn hans varðandi aldur.  Útlendingastofnun hafi litið framhjá framangreindum gögnum við mat á aldri kæranda og látið nægja að taka tillit til niðurstöðu tanngreiningar. Því hafi heildstætt mat ekki farið fram og stofnunin því farið gegn fyrirmælum 113. gr. laga um útlendinga og 39. gr. áðurnefndrar reglugerðar, eins og þau ákvæði hafi verið túlkuð af kærunefnd. Þá hefur kærandi jafnframt haft uppi athugasemdir um ónákvæmni röntgenrannsókna á tönnum til ákvörðunar um aldur og vísar í því samhengi til framlagðra andmæla og greinargerðar til Útlendingastofnunar.

Að lokum gerir kærandi athugasemd við reglugerð nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, sem hafi falið í sér breytingar er varðað hafi framkvæmd 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Tekur kærandi m.a. fram að reglugerðina skorti lagastoð vegna skilyrða í henni sem gangi lengra en ákvæði laga um útlendinga og vilji löggjafans. Þá séu þau viðmið er komi fram í 32. gr. a umræddrar reglugerðar eingöngu nefnd í dæmaskyni og ekki sé um tæmandi talningu að ræða á þeim þáttum sem líta beri til við mat á því hvort um sérstakar ástæður sé að ræða. Við mat á sérstökum ástæðum í máli kæranda hafi Útlendingastofnun einblínt á afmörkuð skilyrði reglugerðarinnar og því hafi heildarmat á aðstæðum hans ekki farið fram. Tekur kærandi m.a. fram í þessu samhengi að Útlendingastofnun hafi ekki tekið afstöðu til þess hvort kærandi hafi verið fylgdarlaust barn við komuna til Íslands og óljóst sé hvenær kærandi hafi talist fullorðinn einstaklingur að mati stofnunarinnar. Þá sé í ákvörðuninni hvergi minnst á 7. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga þar sem fram komi að við mat á sérstökum ástæðum sé heimilt að horfa til ungs aldurs viðkomandi sem náð hafi 18 ára aldri en sannanlega verið fylgdarlaust barn við komu til landsins. Það sé vandséð að stofnunin hafi haft hliðsjón af þessu ákvæði við töku ákvörðunar í máli kæranda. Með því hafi Útlendingastofnun látið hjá líða að fjalla um þau meginsjónarmið sem skuli vera ráðandi við mat á því hvort sérstakar ástæður hafi verið fyrir hendi sem og vægi þeirra, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V.            Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Svíþjóðar á umsókn kæranda er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja sænsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Mat á aldri, sbr. 113. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 26. gr. laga um útlendinga segir m.a. að ef vaknar grunur um að umsækjandi sem segist vera fylgdarlaust barn sé lögráða, og ekki er hægt að staðfesta það á óyggjandi hátt, skuli gerð, eins fljótt og kostur er, aldursgreining skv. 113. gr. laganna. Í 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ef grunur leiki á að umsækjandi um alþjóðlega vernd eða umsækjandi um dvalarleyfi vegna fjölskyldusameiningar villi á sér heimildir við meðferð máls eða segi rangt til um aldur við meðferð máls geti viðkomandi stjórnvald lagt fyrir útlending að hann gangist undir líkamsrannsókn til þess að ákvarða aldur hans. Niðurstaða úr slíkri líkamsrannsókn skuli metin í samhengi við önnur atriði málsins og vafi metinn umsækjanda í hag. Í 1. mgr. 40. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, sbr. 3. mgr. 113. gr. laga um útlendinga, kemur jafnframt fram að við ákvörðun á aldri skuli fara fram heildstætt mat á aðstæðum einstaklings og frásagnar af ævi hans en auk þess megi beita líkamsrannsókn til greiningar á aldri. Leiki grunur á að umsækjandi segi rangt til um aldur skuli framkvæma líkamsrannsókn til greiningar.

Samkvæmt framansögðu hefur löggjafinn ákveðið að stjórnvöld á sviði útlendingamála skuli beita tilteknum rannsóknaraðferðum þegar upplýsa þarf um aldur umsækjanda um alþjóðlega vernd. Þá hefur löggjafinn jafnframt ákveðið að mat á aldri skuli vera heildstætt og vera byggt, eftir atvikum, á fleiri gögnum en líkamsrannsókn.

Við meðferð málsins hefur kærandi kveðið fæðingardag sinn vera […] en í því sambandi áréttar kærunefnd að gögn málsins benda ekki til annars en að fyrsta skráning Útlendingastofnunar á fæðingardegi kæranda, þ.e. […], hafi verið röng. Í málinu liggja fyrir gögn frá sænskum stjórnvöldum þar sem fram kemur að skráður fæðingardagur kæranda í Svíþjóð sé sami dagur, þ.e. […]. Kærandi hefur jafnframt greint frá því að í Svíþjóð hafi hann notið þjónustu sem ólögráða einstaklingur, t.d. dvalið hjá fósturfjölskyldu, gengið í skóla og verið skipaður umsjónarmaður. Engin önnur gögn liggja fyrir í málinu sem gefa tilefni til að draga þá frásögn kæranda í efa. Þá liggur fyrir niðurstaða tannlækna um að líkamsrannsókn á tönnum hans bendi til þess að kærandi sé eldri en 18 ára.

Þegar litið er með heildstæðum hætti til gagna málsins, þ.m.t. líkamsrannsóknar á tönnum kæranda og gagna frá sænskum stjórnvöldum sem eru í samræmi við stöðugan framburð kæranda, er það mat kærunefndar að fyrir hendi sé vafi um að kærandi hafi náð átján ára aldri við komu hans til Íslands þann 31. ágúst 2018. Skýra ber slíkan vafa kæranda í hag, sbr. 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga, og telur nefndin að leggja beri til grundvallar framburð kæranda um aldur að fæðingardagur kæranda sé sá sami og skráður er hjá sænskum yfirvöldum, þ.e. […]. Telur nefndin því ekki unnt að leggja annað til grundvallar við úrlausn málsins en að kærandi hafi verið undir lögaldri er hann kom til Íslands. Gögn málsins benda þó til þess að ótvírætt sé að kærandi sé nú 18 ára og telst því lögráða.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi ungur karlmaður sem náð hefur 18 ára aldri. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna kemur m.a. fram að kærandi sé almennt heilbrigður. Hann hafi þó sagst vera kvíðinn, m.a. yfir framtíðinni. Í lýsingu sálfræðings á kæranda er greint frá miklu vonleysi og hafi kæranda verið veitt ráðgjöf, m.a. varðandi kvíða og þunglyndi. Í lýsingum sálfræðings á kæranda í síðari heimsóknum kemur fram að líðan hans virðist betri og að lyfjagjöf vegna þunglyndis verði frestað.

Í greinargerð kæranda er farið þess á leit við nefndina að hún hlutist til um að framkvæmt verði sálfræðilegt mat á kæranda. Í ljósi framangreindra gagna taldi nefndin hvorki tilefni til að leiðbeina kæranda um framlagningu gagna varðandi heilsufar hans né að ráðast í gagnaöflun að eigin frumkvæði varðandi andlega heilsu kæranda.

Í ljósi gagna málsins er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til. Að mati kærunefndar er kærandi ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Svíþjóð

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

·         Amnesty International Report 2017/18 (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

  • Annual Report on the situation of Asylum in the European Union 2017 (European Asylum Support Office, 18. júní 2018);

·         Asylum Information Database, National Country Report: Sweden (European Council on Refugees and Exiles, 28. mars 2018);

·         Freedom in the World 2018 – Sweden (Freedom House, 28. maí 2018);

·         Good Advice for Asylum Seekers in Sweden (The Swedish Network of Refugee Support Group, janúar 2018);

·         Observations by the United Nations High Commissioner for Refugees Regional Representation for Northern Europe on the draft law proposal on restrictions of the possibility to obtain a residence permit in Sweden (The UN High Commissioner for Refugees, 10. mars 2016);

·         Sweden 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019);

·         Upplýsingar af vefsíðu sænsku útlendingastofnunarinnar (www.migrationsverket.se).

Í framangreindum gögnum kemur fram að sænska útlendingastofnunin (s. Migrationsverket) tekur ákvarðanir er varða umsóknir um alþjóðlega vernd. Umsækjandi um alþjóðlega vernd á þess kost að bera synjun útlendingastofnunarinnar á umsókn sinni undir stjórnsýsludómstól (s. Migrationsdomstolen) og þeim dómi er unnt að áfrýja til áfrýjunardómstóls (s. Migrationsöverdomstolen). Umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem hafa fengið endanlega synjun á umsókn sinni hjá sænsku útlendingastofnuninni og framangreindum dómstólum, eiga þess kost að leggja fram viðbótarumsókn hjá sænsku útlendingastofnuninni, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Ef nýjar upplýsingar eða ný gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst verulega eða verulegir annmarkar hafa verið á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði fyrir viðbótarumsókn verið uppfyllt. Synjun sænsku útlendingastofnunarinnar um að taka viðbótarumsókn til skoðunar má kæra og engin takmörk eru á því hversu oft umsækjandi getur lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Umsækjendur eiga rétt á takmarkaðri félagslegri aðstoð á meðan viðbótarumsókn er til meðferðar. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Svíþjóð er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Samkvæmt framangreindum skýrslum um aðstæður og aðbúnað umsækjenda í Svíþjóð eiga þeir rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá kemur fram á heimasíðu sænsku útlendingastofnunarinnar og í gagnagrunni Evrópuráðsins um flóttamenn og landflótta einstaklinga, Asylum Information Database, að umsækjendum um alþjóðlega vernd í Svíþjóð er tryggður aðgangur að grunnheilbrigðisþjónustu. Sveitarfélagið sem umsækjandi um alþjóðlega vernd dvelst í hefur milligöngu um að útvega umsækjanda lækni og aðra heilbrigðisþjónustu við hæfi. Þá er tekið tillit til þarfa einstaklinga sem teljast vera í viðkvæmri stöðu, þ. á m. að því er varðar sérfræðiaðstoð. Greiða þarf vægt komugjald vegna heimsóknar á heilsugæslu en innlögn á spítala er umsækjanda að kostnaðarlausu. Fari kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu fram úr ákveðinni upphæð er hægt að óska eftir fjárhagsaðstoð frá ríkinu. Umsækjandi um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, sem fengið hefur neikvæða niðurstöðu í máli sínu hefur aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu fram að brottför en nýtur hins vegar ekki fjárhagsstuðnings til að greiða fyrir slíka þjónustu eða lyf.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að sænsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd leggja fram umsókn um vernd í Svíþjóð í fyrsta skipti eiga þeir rétt á lögfræði- og túlkaþjónustu án endurgjalds þegar umsókn er til meðferðar hjá sænsku útlendingastofnuninni og á kærustigum málsins. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga hins vegar ekki rétt á lögfræðiþjónustu án endurgjalds við að leggja fram viðbótarumsókn en þeir geta átt rétt á að fá tilnefndan lögmann ef sænska útlendingastofnunin samþykkir að taka viðbótarumsóknina til skoðunar. Endurgjaldslaus túlkaþjónusta er ekki í boði við framangreinda málsmeðferð. Umsækjendur um alþjóðlega vernd geta einnig leitað til frjálsra félagasamtaka, t.d. ráðgjafarmiðstöðvar (s. Rådgivningsbyrån) sem veitir lögfræðiaðstoð og ráðgjöf.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstólinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstólinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Svíþjóð er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Svíþjóð, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar hjá sænskum yfirvöldum. Sænsk yfirvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað (non-refoulement), sbr. IV. kafli sænskra laga um útlendinga (s. Utlänningslagen 2005:716). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð sænskra yfirvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans og frelsi er í hættu. Þá hefur kærandi ekki lagt fram gögn sem benda til þess að meðferð á umsókn hans í Svíþjóð hafi verið óforsvaranleg. Samkvæmt framansögðu benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Svíþjóð, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er jafnframt að finna sérviðmið sem varða börn og ungmenni. Í ákvæðinu er m.a. kveðið á um að við mat á sérstökum ástæðum sé heimilt að horfa til ungs aldurs viðkomandi sem náð hefur 18 ára aldri en sannanlega verið fylgdarlaust barn við komu til landsins.

Í máli kæranda liggur fyrir að hann kom hingað til lands og sótti um alþjóðlega vernd þann 31. ágúst 2018 áður en hann náði 18 ára aldri. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að hann hafi komið hingað til lands í fylgd fullorðins einstaklings sem bar ábyrgð á honum skv. lögræðislögum. Þá var kærandi, skv. því sem kemur fram í ákvörðun Útlendingastofnunar, tekinn í umsjá barnaverndaryfirvalda hér á landi stuttu eftir komu hans til landsins. Samkvæmt framangreindu telur kærunefnd ljóst að kærandi hafi verið fylgdarlaust barn við komuna til landsins, sbr. 11. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Telur nefndin því að rétt sé að taka tillit til þess við mat á sérstökum ástæðum í máli kæranda, sbr. 2. mgr. 36. gr. laganna og áðurnefnt sérviðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Í málinu liggur fyrir að um er að ræða kæranda sem fór frá heimaríki ungur að árum og fluttist til Íran ásamt fjölskyldu, en sótti síðar um alþjóðlega vernd í Svíþjóð. Umsókn kæranda hefur hlotið lokasynjun þar í landi. Kærandi dvaldi í um þrjú ár í Svíþjóð, gekk þar í skóla og náði t.d. ágætum tökum á sænsku tungumáli. Kærandi hefur þó greint frá því að sér hafi ekki liðið vel í Svíþjóð. Gögn málsins gefa til kynna að líkamleg og andleg líðan kæranda sé almennt ágæt, þrátt fyrir að kærandi hafi m.a. glímt við kvíða, svefnvandamál og nokkurt þunglyndi. Kærandi hefur sótt þjónustu sálfræðings vegna þessa. Þá liggur fyrir að kærandi er samkvæmt fyrirliggjandi gögnum rétt um 18 ára gamall og kom til landsins sem fylgdarlaust barn.

Í ljósi þess sem rakið hefur verið er það mat kærunefndar að í máli kæranda séu uppi sérstakar ástæður og því beri að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Hefur kærunefnd þá við túlkun á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga haft hliðsjón af áðurnefndu sérviðmiði 32. gr. a reglugerðar um útlendinga og þess að með setningu ákvæðisins hefur verið lögð áhersla á að sérsjónarmiða geti gætt varðandi umsækjendur sem teljast ungir að árum en hafa þó náð 18 ára aldri eftir að hafa komið til landsins sem fylgdarlaus börn. Þá liggur m.a. fyrir að kærandi hefur glímt við nokkra andlega erfiðleika og haft þörf fyrir sálfræðiþjónustu hér á landi.

Þrátt fyrir að staðfesting sænskra stjórnvalda á ábyrgð þess ríkis á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd liggi fyrir þá beri eins og hér háttar sérstaklega til að flytja ábyrgð á efnislegri meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd yfir á íslensk stjórnvöld á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Niðurstaða kærunefndar er byggð á heildstæðu mati á þeim sjónarmiðum og gögnum sem liggja fyrir í máli kæranda.

Með vísan til þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella beri hina kærðu ákvörðun úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar.

Athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar

Í greinargerð kæranda eru gerðar margvíslegar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar að því er varðar mat á aldri kæranda. Þar er m.a. vísað til ummæla í ákvörðun um að niðurstöður aldursgreiningar byggi að meginstefnu á greiningu tannþroska umsækjenda og að Útlendingastofnun telji „ekki stætt á að leggja til grundvallar önnur viðmið, enda um að ræða viðurkennda læknisfræði og í raun þá einu aðferð sem unnt er að svo stöddu að leggja til grundvallar við ákvörðun aldurs byggt [á] læknisfræðilegum niðurstöðum.“

Eins og að framan hefur verið lýst leiðir af ákvæðum laga um útlendinga að löggjafinn hefur falið stjórnvöldum að framkvæma líkamsrannsókn á umsækjendum um alþjóðlega vernd ef grunur leikur á um að hann segi rangt til um aldur, sbr. 1. mgr. 113. gr. laga um útlendinga. Aftur á móti er ljóst af skýru orðalagi ákvæðisins að niðurstöðu úr slíkri líkamsrannsókn skuli meta í samhengi við önnur atriði málsins og vafi metinn umsækjanda í hag. Þá hefur ráðherra útfært mat á aldri nánar í reglugerð, sbr. 1. mgr. 40. gr. reglugerðar um útlendinga, en þar er m.a. vísað til þess að fara skuli fram heildstætt mat á aðstæðum einstaklings og frásagnar af ævi hans við mat á aldri. Kærunefnd gerir því alvarlegar athugasemdir við orðalag í ákvörðun Útlendingastofnunar um að stofnunin telji „ekki stætt á að leggja til grundvallar önnur viðmið“ við mat á aldri en greiningu lækna á tannþroska umsækjenda, enda er skýrt af lögum og stjórnvaldsfyrirmælum að þótt líkamsrannsókn sé ávallt þáttur í slíku mati ber stofnuninni að leggja heildstætt mat á önnur gögn málsins, þ.m.t. aðstæður einstaklings og frásögn hans. Í því sambandi gerir kærunefnd jafnframt athugasemd við að í rökstuðningi ákvörðunar Útlendingastofnunar er hvergi vísað til ákvæða þeirra réttarreglna sem fjalla um aldursgreiningar eins og skylt er skv. 1. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga.

Þá gerir kærunefnd athugasemd við að í rökstuðningi ákvörðunar Útlendingastofnunar hvað varðar mat á sérstökum ástæðum er ekki tekin afstaða til þess hvort sérviðmið 32. gr. a reglugerðar um útlendinga, um börn og ungmenni, gæti átt við í máli kæranda þrátt fyrir að þau atvik, sem Útlendingastofnun byggði á, hafi gefið til kynna að fullt tilefni væri til að taka slíkt til skoðunar. Í því sambandi leggur kærunefnd jafnframt ríka áherslu á jafnræðissjónarmið og fordæmisgildi úrskurða nefndarinnar fyrir Útlendingastofnun, sbr. einkum úrskurð nr. 548/2018 frá 12. desember 2018, sem kærandi byggði mál sitt m.a. á í greinargerð til stofnunarinnar.

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til efnismeðferðar.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellants application for international protection in Iceland.

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                         Þorbjörg Inga Jónsdóttir

                                                                                               

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta