Hoppa yfir valmynd

Nr. 324/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 27. júní 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 324/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19040093

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. apríl 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisborgari Íraks (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. mars 2019, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að honum verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að honum verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 8. maí 2018. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 7. mars 2019 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 27. mars 2019, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála þann 16. apríl 2019. Kærunefnd barst greinargerð kæranda þann 3. maí 2019. Kærandi kom til viðtals hjá kærunefnd útlendingamála þann 6. júní 2019 ásamt talsmanni sínum og túlki.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna aðildar sinnar að tilteknum þjóðfélagshópi.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi sé ekki flóttamaður og honum skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi kveðst vera fæddur og uppalinn í […] í sjálfstjórnarhéraði Kúrda (Kurdistan Region of Iraq, KRI). Þá kveðst kærandi vera Kúrdi sem aðhyllist íslam. Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi átt í sambandi við stúlku, að nafni […], í heimaríki frá 3. júní 2017. Kærandi og stúlkan hafi haldið sambandi sínu sem mestu leyndu þar til kærandi hafi beðið um hönd hennar í þrígang í ágúst og september 2017. Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi greint móður sinni frá sambandi sínu við stúlkuna viku eftir að það hafi hafist en hann hafi sagt föður sínum frá því viku áður en hann hafi beðið um hönd stúlkunnar í fyrsta skipti sem hafi verið þann 8. ágúst 2017. Að öðru leyti hafi þau haldið sambandinu leyndu en þau hafi hist á leið í og úr vinnu og skóla, en þau hafi jafnframt verið nágrannar. Fjölskylda stúlkunnar sé valdamikil og efnuð en faðir hennar, […], sé háttsettur herforingi innan Peshmerga sveitar PUK flokksins. Faðir stúlkunnar sé þekktur og virtur í samfélaginu. Fjölskylda stúlkunnar hafi hafnað bónorði kæranda og í fyrstu hafi þau sagt hana vera of unga jafnframt sem hún yrði að klára skólann. Í þriðja skiptið hafi fjölskylda stúlkunnar sagt kæranda að það kæmi ekki til greina að þau myndu giftast auk þess sem vilji fjölskyldunnar stæði til þess að stúlkan giftist innan ættarinnar. Eftir þriðja bónorðið hafi fjölskylda stúlkunnar hótað kæranda lífláti ef hann léti stúlkuna ekki í friði. Í framhaldinu hafi stúlkan verið undir stöðugu eftirliti fjölskyldu sinnar í um tvær vikur, en eftir það hafi fjölskylda stúlkunnar talið að kærandi væri orðinn hræddur og hefði gefið samband þeirra upp á bátinn.

Kærandi og stúlkan hafi haldið áfram að hittast og verið í tíðum samskiptum í gegnum síma. Þau hafi stundum keyrt út úr bænum enda hættulegt að láta sjá sig saman í […]. Þann 27. nóvember 2017 hafi stúlkan sagt kæranda að hana grunaði að hún væri barnshafandi. Hafi kærandi og stúlkan í kjölfarið ákveðið að flýja til Tyrklands enda hafi það verið eina leiðin fyrir þau til að vera saman auk þess sem vernda þurfti ófætt barn þeirra. Af þeirri ástæðu hafi þau yfirgefið KRI þann 22. mars 2018 og hafi þau komið til Tyrklands þann 4. apríl sá. Skömmu síðar, þann 15. apríl, hafi þrír bræður stúlkunnar og frændi haft uppi á þeim í […] í Istanbúl. Daginn áður hafi kærandi beðið föður sinn um að senda sér fjármuni í gegnum þar til gerða þjónustu sem sendi fé á milli landa. Daginn eftir, er kærandi og stúlkan hafi komið í útibúið í Tyrklandi til að sækja fjármunina, hafi ættingjar stúlkunnar setið fyrir þeim. Kærandi hafi náð að flýja en þeir hafi náð stúlkunni og farið með hana aftur til KRI. Nokkru síðar hafi fjölskylda stúlkunnar farið í útilegu og við heimkomu hafi þau sagt fólki að stúlkan hafi drukknað. Kveðst kærandi þó vita fyrir víst að fjölskyldan hafi drekkt henni enda hafi gjörðir hennar og ástand kallað mikla skömm yfir fjölskylduna. Í greinargerð kæranda kemur fram að fjölskylda stúlkunnar hafi sagt fjölskyldu kæranda að þau muni taka kæranda af lífi komi hann aftur til KRI. Í framhaldinu hafi faðir kæranda haft samband við hann og ráðið honum frá því að snúa aftur til KRI. Þá hafi fjölskylda kæranda flúið til lítils þorps skammt frá […] og kveður kærandi þau vera í lífshættu.

Kærandi óttist föður stúlkunnar og bræður enda sé lítið mál fyrir þá að taka kæranda af lífi. Kærandi geti ekki leitað til lögreglu þar sem fjölskylda stúlkunnar sé vel efnuð, valdamikil og með sterk tengsl við PUK flokkinn, en fjölskylda kæranda hafi engin tengsl við stjórnmálaflokk. Kærandi geti hvergi búið innan KRI enda geti fjölskylda stúlkunnar haft uppi á honum.

Í greinargerð er fjallað almennt um stöðu mannréttindamála í Írak. Þá er fjallað um aðstæður á yfirráðasvæði Kúrda í Írak og heldur kærandi því fram að heimildir beri með sér að kúrdísk yfirvöld hafi möguleika á því að veita skilvirkt öryggi á þeim svæðum sem þau stjórni en að sama skapi geti yfirvöld einnig gengið mjög hart fram um að neita fólki um vernd. Hvort yfirvöld Kúrda veiti vernd fari eftir því hver það sé sem standi að ofsóknum en yfirvöld veiti t.a.m. ekki vernd hafi einstaklingur átt í deilum við kúrdískan stjórnmálamann. Þá er einnig fjallað um heiðursmorð á yfirráðasvæði Kúrda og heldur kærandi því fram að heiðurstengt ofbeldi hafi aukist töluvert á meðal Kúrda á undanförnum árum. Heiðurstengt ofbeldi gegn karlmönnum sé viðkvæmt og því sé sérstaklega erfitt að finna heimildir um það, en karlmenn eigi jafnt á við konur hættu á að vera þolendur heiðurstengds ofbeldis. Kærandi bendir á að karlmenn séu oft beittir ofbeldi í því skyni að endurvekja heiður fjölskyldu og litla eða enga aðstoð sé að finna í KRI fyrir karlkyns þolendur heiðurstengds ofbeldis. Kærandi vísar til skýrslna sem hann telur styðja mál sitt. Þá vísar kærandi til þess að í nýlegum ákvörðunum hafi Útlendingastofnun veitt karlmönnum frá KRI alþjóðlega vernd vegna ástæðuríks ótta við heiðursmorð.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og 1. mgr. 40. gr. sömu laga. Kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir þar sem hann tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, þ.e. hópi fólks sem séu hugsanleg þolendur heiðursglæpa. Kærandi óttist heiðurstengt ofbeldi vegna ástarsambands sem hann hafi átt við stúlku utan hjúskapar, en kærandi kveðst hafa barnað stúlkuna. Með tilliti til þess að faðir stúlkunnar sé háttsettur herforingi innan Peshmerga sveitar PUK flokksins í KRI séu miklar líkur á því að kærandi eigi á hættu slíkt ofbeldi og að lögreglan muni ekki veita honum vernd. Kærandi hafi greint frá því að honum hafi verið hótað lífláti af fjölskyldu stúlkunnar jafnframt sem fjölskylda hans hafi þurft að flýja […]. Um þá sem séu valdir að ofsóknunum vísar kærandi til a- og c-liða 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga og þess að einstaklingurinn sem hann óttist tengist valdamiklum einstaklingum í KRI. Þá séu engin úrræði í boði fyrir karlkyns þolendur heiðurtengds ofbeldis. Kærandi vísar jafnframt til þess að hann hafi lagt fram ljósmyndir af honum og stúlku sem hann kveður vera fyrrnefnda […]. Þá hafi hann verið skýr nákvæmur í frásögn sinni sem komi að öllu leyti heim og saman við fyrirliggjandi landaupplýsingar. Telur kærandi að í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem hann sé í, og hversu erfitt geti reynst að leggja fram sannanir, að gera beri minni kröfur til sönnunarfærslu en ella.

Til vara heldur kærandi því fram í greinargerð að hann uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið taki mið af tilskipun Evrópusambandsins nr. 2004/83/EB um lágmarksskilyrði til að ríkisborgarar þriðju landa eða ríkisfangslausir einstaklingar teljist flóttamenn eða menn sem að öðru leyti þarfnist alþjóðlegrar verndar og um inntak slíkrar verndar. Með vísan til framangreinds telji kærandi ljóst að raunhæf ástæða sé til að ætlast að hann eigi á hættu pyndingar eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Kæranda og fjölskyldu hans hafi verið ítrekað hótað lífláti af hálfu fjölskyldu stúlkunnar. Stúlkan hafi verið myrt af fjölskyldu sinni og óttist kærandi að þau hyggist gera það sama við hann. Kærandi hefur lagt fram ýmis gögn máli sínu til stuðnings. Þá er tekið fram í greinargerð kæranda að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi lagst gegn endursendingum til Íraks vegna vopnaðra átaka sem hafi átt sér stað þar. Með tilliti til þess hversu óstöðugt ástandið sé telji kærandi ótímabært að líta svo á að stríðsástandi í landinu sé lokið. Með vísan til þess byggir kærandi á því að hann jafnframt sé raunhæf ástæða til að ætla að hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum, sbr. síðari málslið 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá telji kærandi að með endursendingu hans til Íraks yrði brotið gegn meginreglunni um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Til stuðnings þrautavarakröfu sinni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, vísar kærandi til lögskýringargagna að baki ákvæðinu þar sem m.a. komi fram að grundvöllur mannúðardvalarleyfis geti verið alvarlegar aðstæður í heimaríki, s.s. viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða sú aðstaða að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Þá geti útlendingur einnig þurft á vernd að halda vegna erfiðra félagslegra aðstæðna í heimaríki. Vísar kærandi í þessu sambandi til aðstæðna í heimaríki sínu svo og persónulegra aðstæðna sinna, en kærandi standi frammi fyrir útskúfun vegna ágreinings síns og heiðursdeilu við einstaklinga sem hafi sterk tengsl við háttsetta einstaklinga innan PUK. Kærandi hafi ekki möguleika á vernd stjórnvalda gegn þeim.

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar sem og hvernig skýrslur séu túlkaðar.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt til að sanna á sér deili. Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði ekki sannað með fullnægjandi hætti hver hann væri. Yrði leyst úr auðkenni hans á grundvelli trúverðugleikamats. Verður ekki annað séð af ákvörðun Útlendingastofnunar en að stofnunin hafi lagt til grundvallar að kærandi sé ríkisborgari Íraks. Kærunefnd telur ekkert hafa komið fram í málinu sem gefur tilefni til að draga í efa mat Útlendingastofnunar á þjóðerni kæranda og verður því lagt til grundvallar að hann sé írakskur ríkisborgari. Að öðru leyti er auðkenni kæranda óljóst.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Írak m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Country Report on Human Rights Practices 2018 - Iraq (U.S. Department of State, 13. mars 2019);
  • Iraq - Targeting of Individuals. EASO Country of Origin Information report (EASO, 7. mars 2019);
  • Iraq - Security situation. EASO Country of Origin Information report (EASO, 1. mars 2019);
  • Irak: Lovregulering og lovanvendelse i familievoldssaker i Kurdistanregionen (Landinfo, 5. febrúar 2019);
  • Rättsligt ställningstagande angående situationen i Irak (Migrationsverket, 19. janúar 2018);
  • Kurdistan Region of Iraq (KRI): Women and Men in Honour-Related Conflicts (Danish Immi-gration Service, 9. nóvember 2018);
  • Northern Iraq – Security situation and the situation for internally displaced persons (IDPs) in the disputed areas, incl. possibility to enter and access the Kurdistan Region of Iraq (KRI) (Danish Immigration Service, 5. nóvember 2018);
  • Kurdistan Region of Iraq (KRI) - Women and men in honour-related conflicts (Udlænding-estyrelsen, 1. nóvember 2018);
  • Country Policy and Information Note Iraq: Internal relocation, civil documentation and re-turns (UK Home Office, 9. október 2018);
  • Irak: Apostasi og ateisme (Landinfo, 29. ágúst 2018);
  • Iraq Flash Update (UNHCR, 31. maí 2018);
  • Iraq 2017 Human Rights Report (U.S. Department of State, 20. apríl 2018);
  • Freedom in the World 2018 - Iraq (Freedom House, 5. apríl 2018);
  • Iraq 2018 Crime & Safety Report: Erbil (U.S. Department of State, Bureau of Diplomatic Se-curity, 7. mars 2018);
  • Country Information and Guidance Iraq: Return/Internal relocation (UK Home Office, sep-tember 2017);
  • Country Policy and Information Note – Iraq: Political opinion in the Kurdistan Region of Iraq (KRI) (UK Home Office, ágúst 2017);
  • Iraq: Relevant COI for Assessments on the Availability of an Internal Flight or Relocation Al-ternative (IFA/IRA): Ability of Persons Originating from (Previously or Currently) ISIS-Held or Conflict Areas to Legally Access and Remain in Proposed Areas of Relocation (UNHCR, 12. apríl 2017);
  • Iraq: Relevant COI for Assessments on the Availability of an Internal Flight or Relocation Al-ternative (IFA/IRA) (UNHCR, 12. apríl 2017);
  • Country Policy and Information Note Iraq: Security and humanitarian situation (UK Home Office, 14. mars 2017);
  • UNHCR position on returns to Iraq (UNHCR, 14. nóvember 2016);• Irak: Politi og rettsvesen i de tre kurdiskstyrte provinsene (KRI) (Landinfo, 27. október 2016);
  • The Kurdistan Region of Iraq (KRI) Access, Possibility of Protection, Security and Humanitar-ian Situation (Danish Immigration Service, 1. apríl 2016);
  • Iraq: Security situation in Sulaymaniyah; activities of Muslim fundamentalist groups, includ-ing ISIS, 2015-February 2016 (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. mars 2016);
  • Iraq: Honour-based violence in the Kurdistan region; state protection and support services available to victims (Immigration and Refugee Board of Canada, 15. febrúar 2016);
  • Irak: Basisinfo (Landinfo, 6. janúar 2016);
  • The Kurds: History – Religion – Language – Politics (Austrian Federal Ministry of the Interior, nóvember 2015);
  • All Change on Iraqi Kurdish Political Scene (Institute for War and Peace Reporting, 18. októ-ber 2013) og
  • Honour Crimes against Men in Kurdistan Region of Iraq (KRI) and the Availability of Protec-tion (Danish Immigration Service, 22. mars 2010).

Samkvæmt framangreindum gögnum er Írak lýðræðisríki með rúmlega 38 milljónir íbúa. Írak varð til eftir fyrri heimsstyrjöldina þegar Þjóðabandalagið ákvarðaði núverandi landamæri Íraks. Ríkið var breskt yfirráðasvæði fram til ársins 1932, þá tók við tímabil sem einkenndist af pólitískum óstöðugleika sem lauk árið 1958 þegar komið var á fót lýðveldi. Árið 1945 gerðist Írak aðili að Sameinuðu þjóðunum og fullgilti ríkið bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1971. Ríkið fullgilti samning um afnám allrar mismununar gagnvart konum árið 1986, alþjóðasamning um vernd allra gegn mannshvörfum árið 2010 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2011.

Í framangreindum gögnum kemur fram að frá árinu 1968 til 2003 hafi Írak verið alræðisríki sem hafi lotið stjórn Ba‘ath-flokksins. Stjórn flokksins hafi verið steypt af stóli í kjölfar innrásar bandaríska hersins og bandamanna þeirra í Írak árið 2003. Frá innrásinni hafi ástandið á mörgum svæðum í Írak verið óstöðugt. Hafi samtök sem kenna sig við íslamskt ríki (Daesh) hafið uppreisn árið 2014 og náð undir sig stórum landsvæðum. Frá þeim tíma hafi íröksk stjórnvöld, með aðstoð alþjóðasamfélagsins, náð miklum árangri í að ná aftur fullri stjórn yfir ríkinu þótt enn séu lítil svæði í vesturhluta landsins sem uppreisnarmenn hafi á valdi sínu. Þá hafi íröksk yfirvöld ekki fulla stjórn yfir hersveitum sínum og dæmi séu um að hersveitir á vegum yfirvalda fremji mannréttindabrot gegn almennum borgurum, þ. á m. ólögmætar aftökur og pyndingar í varðhaldi. Alvarleg mannréttindabrot og brot á mannúðarlögum hafi haft mikil áhrif á almenna borgara á þeim svæðum í Írak sem átökin hafi náð til. Af þeim sökum hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna lagst gegn endursendingum Íraka frá þeim svæðum þar sem átök geisi og þar sem ástandið sé óöruggt eftir að hafa verið undir stjórn Daesh. Þá sé það mat stofnunarinnar að vegna almenns ástands í Írak, þ.m.t. vegna fjölda þeirra sem hafi þurft að flýja innanlands, sé í miklum meirihluta mála ekki grundvöllur til að líta svo á að Írakar frá þessum svæðum geti notið verndar í öðrum hlutum landsins.

Ráða má af framangreindum gögnum að spilling sé mikið vandamál í Írak, þar á meðal í stjórnmálum, löggæslu- og réttarkerfinu. Á undanförnum árum hafi talsvert verið unnið að því að uppræta spillingu af hálfu embættismanna í landinu og eitthvað hafi miðað áfram í þeim málum. Á tímabilinu 2005 til 2014 hafi íröksk stjórnvöld unnið í samstarfi við Evrópusambandið að umbótum á stofnunum ríkisins svo sem lögreglu, dómstólum og fangelsum landsins. Áætlunin nefnist The European Union Integrated Rule of Law Mission for Iraq (EUJUST-LEX-Iraq) og hafi m.a. 1800 lögreglumenn og 900 dómarar undirgengist þjálfun í því skyni að koma á skilvirkri laga- og mannréttindavernd.

Í framangreindum gögnum kemur fram að flestir Kúrdar í Írak búi í norðurhluta landsins. Áður en ráðist hafi verið inn í Írak árið 2003 hafi héruð í norðurhluta landsins lotið stjórn pólitískra yfirvalda Kúrda. Árið 2005 hafi Kúrdum verið tryggð svæðisbundin sjálfstjórn í stjórnarskrá Íraks og sé norðausturhluti landsins skilgreindur sem sjálfsstjórnarhérað Kúrda (e. Kurdish Region of Iraq (KRI)). Löggæsla sé mun markvissari í KRI, sé það landsvæði borið saman við suður og mið-Írak. Stofnanir eins og lögregla, saksóknari, dómstólar og fangelsi séu til staðar á svæðinu og heyri þær undir svæðisstjórn Kúrda en ekki ríkisstjórn Íraks. Fyrir utan hefðbundna lögreglu sé KRI einnig með öryggissveitir sem nefnist Asayish. Hersveitir kúrdíska hersins, Peshmerga, tryggi að sjálfsstjórnarhéruð Kúrda séu tiltölulega örugg miðað við önnur svæði í Írak. Her Kúrda og öryggissveitir þeirra hafi unnið hörðum höndum við að verja svæðið gegn uppreisnarmönnum Daesh og annarra tengdra samtaka.

Af framangreindum gögnum má ráða að á undanförnum árum og áratugum hafi verið spenna milli Kúrda og stjórnvalda í Írak. Meðal annars hafi verið deilt um stærð þess svæðis sem lúti sjálfsstjórn Kúrda. Þann 25. september 2017 hafi farið fram atkvæðagreiðsla meðal íbúa KRI að tilstuðlan forseta KRI þar sem kosið hafi verið um stofnun sjálfstæðs ríkis KRI. Íröksk stjórnvöld hafi mótmælt atkvæðagreiðslunni og hafi ekki viðurkennt niðurstöður kosninganna. Tæplega 93 % kjósenda hafi kosið með sjálfstæði en fréttir hafi borist af því að minnihlutahópar á deilusvæðum hafi verið beittir miklum þrýstingi til að kjósa annaðhvort með eða á móti. Í kjölfar kosninganna hafi írakski stjórnarherinn tekið aftur stjórn yfir ytri landamærum Írak innan KRI og landsvæðum sem hafi verið undir stjórn kúrdískra yfirvalda frá árinu 2014, þ. á m. borgina Kirkuk. Þá hafi forseti KRI sagt af sér í nóvember 2017. Áratugum saman hafi tveir stjórnmálaflokkar verið ráðandi í KRI en það séu PUK flokkurinn (e. The Patriotic Union of Kurdistan) og KDP flokkurinn (e. The Kurdistan Democratic Party). Í september 2013 hafi orðið talsverðar breytingar þegar PUK flokkurinn hafi misst stöðu sína sem næststærsti flokkurinn til klofningsframboðsins Gorran (e. The Movement for Change). Í nýafstöðnum kosningum sem hafi farið fram þann 30. september 2018 hafi PUK flokkurinn endurheimt stöðu sína sem annar stærsti flokkurinn og KDP flokkurinn haldið stöðu sinni sem stærsti flokkurinn í KRI. Samband PUK flokksins og KDP hafi jafnan verið stirt og einkennst af vantrausti sem og vopnuðum átökum.

Í skýrslu dönsku útlendingastofnunar frá árinu 2018 kemur fram að samskipti á milli ógiftra einstaklinga af gagnstæðu kyni sé almennt óviðunandi í kúrdískri menningu. Þá sé það á allra vitorði þ. á m. á vitorði unga fólksins í KRI að mikil áhætta felist í því að fara á stefnumót á almannafæri. Þær fjölskyldur sem samanstanda af menntuðum einstaklingum séu þó frjálslyndari og séu dæmi um að meðlimir slíkra fjölskyldna fái sjálfir að velja tilvonandi maka sinn. Dæmi séu um að ung pör sem hafi umgengist utan hjónabands hafi komist upp með það svo lengi sem hjónaband sé í vændum. Einstaklingar sem búa á þéttbýlum svæðum í KRI séu mun umburðarlyndari fyrir evrópskum áhrifum hvað samskipti kynjanna varðar heldur en fólk af dreifbýlissvæðum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að þrátt fyrir að heiðurstengt ofbeldi sé refsivert samkvæmt landslögum þá sé það nokkuð útbreitt í menningu KRI. Heiðursmorð sé yfirleitt morð á kvenkyns ættingja sem framið sé í því skyni að endurheimta heiður fjölskyldunnar þar sem þolandinn hafi á einhvern hátt vanvirt fjölskylduna. Írakar tilheyri mismunandi ættbálkum og lifi eftir fornum ættbálkasiðum, venjum og lögum, en hefðbundin fjölskyldugildi séu rótgróin í menningunni. Séu konur í miklum meirihluta þeirra sem verði þolendur heiðursglæpa og þá yfirleitt fyrir að hafa, að mati fjölskyldna þeirra, fært skömm yfir fjölskylduna með einhverjum hætti. Einnig séu heimildir um að karlmenn eigi á hættu að verða þolendur heiðursglæpa en ástæður fyrir því séu einkum þegar karlmenn neiti að ganga í skipulagðan hjúskap, séu opinberlega samkynhneigðir eða tvíkynhneigðir eða neiti að taka þátt í heiðurstengdu ofbeldi gegn öðrum. Í skýrslu dönsku útlendingastofnunarinnar frá nóvember 2018 segir m.a. að karlmenn sem eigi í samböndum utan hjúskapar séu ekki taldir smána heiður fjölskyldunnar og að karlmenn í slíkum aðstæðum eigi oft auðvelt með að komast hjá deilum. Hins vegar séu karlmenn undir þrýstingi um að giftast og dæmi séu um að menn hafi verið drepnir. Þá segir að þegar karlmaður sé myrtur í heiðursdeilu eigi það frekar rætur að rekja til hefndar eða blóðhefndar en heiðurs fjölskyldunnar. Í slíkum málum séu báðar fjölskyldurnar vanalega samþykkar morðinu. Í gögnunum kemur fram að heiðursglæpir séu algengari á dreifbýlli svæðum en í stærri borgum í KRI. Árið 2002 hafi kúrdísk yfirvöld breytt írökskum hegningarlögum á þann veg að heiðursmorð séu skilgreind sem manndráp og gerendur því saksóttir á þeim grundvelli. Þá hafi verið samþykkt lög árið 2004 sem banni mildun refsinga fyrir heiðursglæpi. Hins vegar séu heimildir um að kúrdísk stjórnvöld hafi látið hjá líða að saksækja gerendur ofbeldisglæpa gegn konum, þar á meðal heiðursglæpa.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann óttist heiðurstengt ofbeldi vegna ástarsambands sem hann hafi átt við stúlku að nafni […] utan hjúskapar. Kærandi hafi ætlað að giftast stúlkunni og beðið hennar í þrígang en fjölskylda stúlkunnar hafi ekki verið samþykk hjúskapnum og meinað kæranda að nálgast stúlkuna. Kærandi hafi ekki orðið við óskum fjölskyldu stúlkunnar um að láta hana í friði heldur hafi kærandi haldið áfram að hitta hana og í lok nóvember 2017 hafi stúlkan tjáð kæranda að hún væri barnshafandi. Í kjölfarið hafi kærandi og stúlkan flúið til Tyrklands, n.t.t. í mars 2018, en bræður stúlkunnar hafi fundið þau um miðjan apríl þar í landi og tekið stúlkuna með sér heim til KRI og myrt hana. Kveður kærandi að hann geti ekki leitað til lögreglu þar sem fjölskylda stúlkunnar sé vel efnuð, valdamikil og með sterk tengsl við PUK flokkinn, en fjölskylda kæranda hafi engin tengsl við stjórnmálaflokk.Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á viðtali við kæranda hjá kærunefnd, endurritum af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda. Til stuðnings frásögn sinni lagði kærandi m.a. fram ljósmyndir af sér og stúlku sem hann kveður vera umrædda […]. Það er mat kærunefndar að ljósmyndirnar einar og sér leiði ekki grunn að staðhæfingum kæranda um að hann hafi átt í ástarsambandi við […], að stúlkan á myndunum sé […], eða að meint samband hans við stúlkuna hafi haft framangreindar afleiðingar. Í viðtali hjá kærunefnd, þann 6. júní 2019, var kærandi spurður hvenær hann og […] hafi hist fyrst og þá hvar. Kærandi kvað hann og stúlkuna hafa verið nágranna og að þann 6. mars hafi samband þeirra hafist. Aðspurður hvort þau hafi byrjað saman sama dag og þau hafi fyrst hist svaraði kærandi neitandi, en þau hafi séð hvort annað fyrst nokkrum mánuðum áður. Aðspurður hvort kærandi gæti sagt kærunefndinni frá fyrsta skiptinu sem þau sáu hvort annað svaraði kærandi að þann 3. júní 2017 hafi þau fyrst sagst elska hvort annað. Kærandi var aftur spurður aftur um fyrsta skiptið sem hann hafi hitt stúlkuna og kvaðst kærandi ekki muna nákvæma dagsetningu eða dag, en að það hafi verið um mánuði fyrir þann dag í júní sem hann hafi áður gefið upp. Aðspurður út í hvernig samband þeirra hafi þróast eftir að þau hafi fyrst séð hvort annað og hvenær þau hafi hist í annað sinn svaraði kærandi að í fyrsta skiptið sem hann sá stúlkuna hafi þau horft á hvort annað og honum hafi fundist hún falleg. Aðspurður hvenær kærandi hafi hitt stelpuna í annað skiptið og því svaraði kærandi að þau hafi hist og spjallað saman um þrisvar til fjórum sinnum í viku. Að mati kærunefndar færðist kærandi undan spurningum kærunefndar er sneru að því hvernig hann og stúlkan hafi fyrst kynnst og hvernig samband þeirra hafi þróast í ástarsamband. Svör kæranda og háttarlag þegar hann var spurður út í upphaf sambands þeirra dregur að mati kærunefndar verulega úr trúverðugleika frásagnar hans um ástarsamband hans og stúlkunnar.

Aðspurður hversu gömul stúlkan hafi verið þegar kærandi og hún hafi byrjað samband sitt svaraði kærandi að hún hafi verið [...] ára gömul. Kærunefnd benti kæranda á að samkvæmt gögnum sem hann hafi lagt fram hjá kærunefndinni hafi stúlkan verið [...] að verða [...] ára gömul um haustið 2017. Aðspurður hvort kærandi gæti útskýrt af hverju hann hafi sagt að stúlkan hefði verið [...] ára svaraði kærandi að hann hafi talið nefndina verið að spyrja hvað hún hefði verið gömul þegar hann hafi átt í ástarsambandi við hana. Næst staðfesti kærandi að samband hans við stúlkuna hafi varað í tæpt ár, frá júní 2017 til apríl 2018. Til stuðnings framburði sínum lagði kærandi fram ýmis gögn, m.a. myndir af stúlku sem hann kveður vera […], læknisvottorð frá heilsugæslu í […], dánarvottorð stúlku að nafni […] og ljósrit af persónuskilríki umræddrar stúlku. Á persónuskilríki því, dags. 16. janúar 2018, sem kærandi hefur lagt fram hjá kærunefnd kemur fram að stúlkan hafi verið fædd þann [...]. Þá kemur einnig fram í dánarvottorði stúlkunnar, dags. 23. apríl, að hún hafi fæðst þann [...]. Ekki kemur fram á læknisvottorði vegna stúlkunnar, dags. 22. apríl 2019, hvenær hún hafi fæðst. Í viðtali við Útlendingastofnun þann 7. mars 2019 kvað kærandi stúlkuna hafa verið [...] ára þegar þau hafi orðið ástfangin. Af framangreindu er ljóst að misræmi er í frásögn kæranda og þeim gögnum sem hann hefur skilað inn til kærunefndarinnar, þ.e. dánarvottorði og persónuskilríki, varðandi aldur stúlkunnar þegar ástarsamband þeirra á að hafa hafist.

Í umræddu dánarvottorði, dags. 23. apríl 2018, kemur fram að hún hafi verið í hjúskap þegar hún hafi látist. Á persónuskilríki stúlkunnar, dags. 16. janúar 2018, kemur einnig fram hjúskaparstaða hennar og þar er hún skráð einhleyp. Aðspurður í viðtali hvort kærandi og stúlkan hafi verið í hjúskap svaraði kærandi því neitandi. Þá benti kærunefnd kæranda á að í dánarvottorði stúlkunnar kemur fram að hún hafi verið gift. Þessu mótmælti kærandi og kvaðst aldrei hafa haldið því fram að þau hafi gengið í hjónaband. Bætti kærandi svo við að þau gögn sem hann hafi skilað inn hafi eingöngu greint frá því að stúlkan hafi verið barnshafandi. Með tölvupósti þann 7. júní 2018 bauð kærunefnd kæranda að koma á framfæri athugasemdum varðandi það sem fram kemur á framangreindu dánarvottorði varðandi hjúskaparstöðu stúlkunnar. Þann 11. júní s.á. barst kærunefnd svar kæranda þar sem kærandi kveður reitinn, sem hakað er við í dánarvottorðinu, vera fyrir orð sem sé notað bæði yfir kvænta einstaklinga (e. married) sem og einstaklinga sem búa hjá fjölskyldu sinni (e. living with family). Hið síðara tilvik eigi við um stúlkuna, en hún hafi búið með fjölskyldu sinni og því hafi verið hakað í umræddan reit. Hefði stúlkan búið ein, þ.e. ekki gift og ekki með fjölskyldu sinni, þá hefði verið hakað við einhleyp (e. single). Í umræddum dálki í þýðingunni á dánarvottorði stúlkunnar er merkt við hjúskaparstöðu viðkomandi og er hægt að velja um fjórar stöður þ.e. einhleyp/ur, gift/ur, ekkja/ekkill eða skilin/n. Ekki sé spurt um fjölskyldustöðu eða hvort viðkomandi búi með fjölskyldu sinni. Þá er hjúskaparstaða stúlkunnar einnig tekin fram á fyrrgreindu persónuskilríki hennar, dags. 16. janúar 2018, og þar kemur fram að hún sé einhleyp. Af þessu er ljóst að misræmi er í þeim gögnum sem kærandi hefur skilað inn til kærunefndar og í frásögn hans hjá kærunefndinni. Að mati kærunefndar dregur misræmi í frásögn kæranda varðandi bæði aldur stúlkunnar og hjúskaparstöðu hennar enn frekar úr trúverðugleika kæranda.

Til stuðnings framburði sínum lagði kærandi einnig fram handtökuskipan á hendur sér, dags. 15. mars 2018, þar sem kemur fram að hann sé grunaður um mannrán. Aðspurður hvort fjölskyldu kæranda hafi verið hótað af fjölskyldu stúlkunnar svaraði kærandi því játandi. Kærandi greindi frá því að fjölskyldu hans hafi verið hótað með skotvopnum eftir að kærandi hafi beðið stúlkunnar. Þá kvaðst kærandi hafa varað fjölskyldu sína við fjölskyldu stúlkunnar áður en hann og stúlkan hafi stungið af til Tyrklands. Í kjölfarið hafi fjölskylda kæranda flúið heimabæ þeirra þar sem fjölskylda stúlkunnar myndi drepa þau. Aðspurður af hverju kærandi haldi að fjölskylda hans sé í hættu svaraði kærandi að um blóðhefnd sé að ræða, stúlkan sé dáin og nú þurfi kærandi að borga fjölskyldu stúlkunnar með blóði.

Eins og að framan hefur verið rakið benda skýrslur til þess að samskipti á milli ógiftra einstaklinga af gagnstæðu kyni séu almennt óviðunandi í kúrdískri menningu. Að þessu leyti er frásögn kæranda af því að hann hafi verið í sambandi með umræddri stúlku, að þau hafi gengið saman í skólann og að hún hafi stundum skrópað til þess að keyra með kæranda út úr bænum ekki í samræmi við skýrslur um aðstæður hans í heimaríki.

Þá byggir frásögn kæranda á því að hann sem og fjölskylda hans séu í hættu í KRI og eigi á hættu heiðurstengt ofbeldi. Sú frásögn kæranda fær ekki stoð í þeim skýrslum um heiðurstengt ofbeldi í KRI sem kærunefnd hefur skoðað. Þrátt fyrir að fallist yrði á með kæranda að hann hafi átt í framangreindu ástarsambandi þá sé ekkert í gögnunum sem bendir til þess að fjölskylda kæranda eigi hættu á heiðurstengdu ofbeldi. Líkt og komið hefur fram séu karlmenn sem eigi í samböndum utan hjúskapar ekki taldir smána heiður fjölskyldunnar og eigi þeir almennt auðvelt með að komast hjá deilum. Þá séu dæmi um að karlmenn í þessari stöðu hafi verið myrtir en þá sé það almennt gert með samþykki beggja fjölskyldna.

Samkvæmt framansögðu er það því mat kærunefndar að misræmi í framburði kæranda auk gagna um aðstæður í heimaríki hans dragi nokkuð úr trúverðugleika frásagnar kæranda og leiði til þess að framburður hans einn og sér verður ekki lagður til grundvallar við úrlausn málsins. Þá hefur kærandi ekki lagt fram trúverðug gögn sem styðja við frásögn hans að öðru leyti, þ.m.t. trúverðugar skýringar á misræmi framlagðra gagna og frásagnar hans um aldur og hjúskaparstöðu stúlku þeirrar er hann kvaðst hafa verið í sambandi með. Það er því mat kærunefndar í ljósi framangreinds, að teknu tilliti til trúverðugleika framburðar hans, að kærandi hafi ekki leitt að því líkur að hann eigi á hættu ofsóknir af þeim toga eða alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að leggja ekki til grundvallar framburð kæranda af hótunum í hans garð vegna sambands við fyrrnefnda stúlku utan hjónabands. Verður því ekki talið að raunhæf ástæða sé til að ætla að hann eigi á hættu að sæta pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki af þeim sökum. Að því er varðar málsástæðu kæranda um að öryggisástand í Kúrdistan sé ótryggt benda skýrslur og gögn sem kærunefnd hefur farið yfir eindregið til þess að svæði Kúrdistan sé talið öruggt og að lögregla og öryggissveitir Kúrda séu öflugar og vel búnar. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, á heimasvæði sínu í Kúrdistan, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur þangað eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Jafnframt er það mat kærunefndar, með vísan til skýrslna um aðstæður í heimaríki kæranda, að honum standi til boða vernd og aðstoð lögreglu í Kúrdistan telji hann sig þurfa á slíkri aðstoð að halda.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefndin að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga nr. 80/2016 kemur fram að erfiðar almennar aðstæður geta tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástands í heimaríki. Byggir kærandi á því að langvarandi stríðstástand hafi ríkt í heimaríki hans og heldur kærandi því fram að yfirvöld í Írak geti ekki veitt honum þá vernd sem hann þarfnist. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má draga þá ályktun að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljist svæðið þar sem kærandi hafði búsetu öruggt svæði. KRI sé jafnframt með virkt refsivörslukerfi sem geti veitt kæranda viðeigandi vernd.

Af gögnum málsins verður ekki annað séð en að kærandi sé heilsuhraustur. Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Frávísun og frestur til að yfirgefa landið

Kærandi kom hingað til lands 8. maí 2018 og sótti um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um vernd og dvalarleyfi hér á landi verið synjað og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi er við ágæta heilsu. Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur til að yfirgefa landið.

Athygli kæranda er vakin á því að ef hann yfirgefur ekki landið innan frests er heimilt að brottvísa honum. Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og skal endurkomubann að jafnaði ekki gilda skemur en tvö ár, sbr. a-lið 2. mgr. 98. gr. og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.  

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Lagt er fyrir kæranda að hverfa af landi brott. Kæranda er veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið sjálfviljugur.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. The appellant is requested to leave the country. The appellant has 15 days to leave the country voluntarily.

Hjörtur Bragi Sverrisson

Þorbjörg Inga Jónsdóttir                                                                                                 Hilmar Magnússon


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta