Mannanafnanefnd, úrskurður 28. janúar 2009
FUNDARGERÐ
Ár 2009, miðvikudaginn 28. janúar var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Kolbrún Linda Ísleifsdóttir, Ágústa Þorbergsdóttir og Veturliði S. Óskarsson. Neðangreint mál var tekið fyrir:
1. Mál nr. 10/2009 Eiginnafn: Tjaldur (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Tjaldur (kk.) tekur beygingu í eignarfalli og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Nafnið fallbeygist þannig: Tjaldur (nf.) – Tjald (þf.) – Tjaldi (þgf.) – Tjalds (ef.).
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Tjaldur (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá ásamt eignarfallsendingu þess, Tjalds, en þó ekki fyrr en skráning þess hefur verið framkvæmd hjá Þjóðskrá.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.