Nr. 492/2023 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 14. september 2023 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 492/2023
í stjórnsýslumáli nr. KNU23050088
Kæra [...] og barns hennar
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. maí 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðunum Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsóknir einstaklings er kveðast heita [...], vera fædd [...], og vera ríkisborgari Sómalíu, (hér eftir kærandi) og barns hennar hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara Sómalíu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd og brottvísa þeim frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár.
Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir kæranda og A um alþjóðlega vernd á Íslandi til efnismeðferðar.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 30. janúar 2023. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 31. janúar 2023 kom í ljós að fingraför hennar höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Kýpur og að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd þar í landi 21. júlí 2017. Með umsókn framvísaði kærandi dvalarleyfisskírteini frá Kýpur og f.h. A með gildistíma til 11. júní 2024. Þá framvísaði kærandi kýpversku flóttamannavegabréfi sínu og A með gildistíma til 14. desember 2027. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 14. apríl 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 11. maí 2023 að taka umsóknir kæranda og barns hennar um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi brottvísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda 12. maí 2023 og barst kærunefnd greinargerð kæranda 16. maí 2023.
III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd á Kýpur. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Kýpur ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Kæranda var ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Var skorað á kæranda að yfirgefa landið án tafar og athygli hennar vakin á því að yfirgæfi hún landið sjálfviljug yrði endurkomubannið fellt niður.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli móður hans, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, laga um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum hans væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til Kýpur.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og viðtals síns hjá stofnuninni hvað málavexti varðar. Í greinargerðinni segir m.a. að helsta ástæða þess að hún hafi farið frá Kýpur hafi verið að þrátt fyrir að hún hafi hlotið alþjóðlega vernd þar í landi hafi kýpversk yfirvöld hvorki veitt henni framfærslu né viðeigandi þjónustu fyrir A, sem sé á einhverfurófi og þurfi félagslega örvun og læknisþjónustu. Aðstæður kæranda og A á Kýpur hafi verið það slæmar að hún hafi flúið til Svíþjóðar en hafi verið synjað um alþjóðlega vernd þar í landi.
Í greinargerð kæranda til kærunefndar vísar hún til þess að í ákvörðunum Útlendingastofnunar sé Kýpur lýst sem velferðarríki og fullyrt að kærandi eigi rétt á sömu þjónustu og kýpverskir ríkisborgarar. Kærandi telur að lýsingarnar sem komi fram í ákvörðun Útlendingastofnunar um aðstæður einstaklinga með alþjóðlega vernd á Kýpur séu ekki í samræmi við þær aðstæður sem kærandi og barn hennar hafi búið við.
Kærandi vísar til skýrslu The European Commission against Racism and Intolerance (ECRI), frá 7. mars 2023, þar sem fram komi að kynþáttahyggja sé vandamál á Kýpur og þrátt fyrir að réttarstaða flóttafólks samkvæmt lögum sé góð sé framkvæmdinni ábótavant. Útlendingastofnun hafi sniðgengið framangreinda skýrslu í ákvörðun sinni.
Kærandi fer fram á að mál hennar og A verði skoðað í ljósi frásagna kæranda en ekki þeirra ályktana sem Útlendingastofnun dragi af þeim réttindum sem flóttafólki á Kýpur séu tryggð í orði. Það hafi ekki þýðingu að njóta réttinda sem ekki sé framfylgt.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Aðstæður kæranda og barns hennar
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á [...] sem er stödd hér á landi ásamt [...] syni sínum. Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að hún væri fráskilin en ekki samkvæmt lögum. Kærandi hafi flúið til Kýpur árið 2016 og hlotið alþjóðlega vernd þar í landi í júlí 2017. Kærandi hafi jafnframt lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd í Svíþjóð í október 2019 en verið synjað. Kærandi hafi snúið aftur til Kýpur og dvalið þar í landi þar til hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi í janúar 2023. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að henni hafi ekki verið úthlutað húsnæði á Kýpur en hún hafi deilt húsnæði með öðrum konum. Kærandi hafi starfað á hóteli, við þrif og á veitingastað á Kýpur en hún hafi aðeins fengið vinnu á sumrin. Kærandi greindi frá því að hún hafi tímabundið fengið framfærslu frá yfirvöldum á Kýpur. Þá greindi kærandi frá því að hún og A hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu en hún hafi þurft að greiða fyrir hana. Kærandi hafi mátt þola mismunun og fordóma á Kýpur og erfitt hafi verið að fá atvinnu og leigja húsnæði. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera við góða líkamlega heilsu en að henni liði illa andlega. Kærandi hafi glímt við streitu, þunglyndi, svefnleysi, hjartsláttartruflanir og höfuðverk. Kærandi hafi mátt þola ofbeldi í heimaríki sem hafi haft áhrif á hana og hún hafi áhyggjur af syni sínum. Kærandi greindi frá því að A væri einhverfur, með hjartavandamál og sé lystarlaus.
Réttarstaða barns kæranda
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.
Kærunefnd hefur farið yfir gögn málanna þ. á m. viðtal við kæranda hjá Útlendingastofnun. Gögn málsins bera ekki annað með sér en að A sé við góða heilsu og hafi góð tengsl við móður sína. Það er því mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála þeirra í einum úrskurði.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b-, c- og d-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd í öðru ríki.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd á Kýpur 21. júlí 2017 og er með gilt dvalarleyfi þar í landi til 11. júní 2024. Þá er A jafnframt með gilt dvalarleyfi á Kýpur til 11. júní 2024. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi og A njóta á Kýpur virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Aðstæður á Kýpur
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Kýpur, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd jafnframt kynnt sér þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.
- 2022 Country Report on Human Rights Practices – Cyprus (United States Department of State, 20. mars 2022);
- Asylum Information Database. Country Report: Cyprus (European Council on Refugees and Exiles, 11. apríl 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 Cyprus (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Freedom in the World 2023 – Cyprus (Freedom House, 2023);
- Trafficking in persons report (United States Department of State, júní 2021);
- Upplýsingar af vefsíðu European Commission - Cyprus Overview (https://eacea.ec.europa.eu/national-policies/eurydice/content/cyprus_en);
- Upplýsingar af vefsíðu European Commission – Cyprus - Guaranteed minimum income benefit (https://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=1105&intPageId=5009&langId=en);
- Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðiskerfis Kýpur (e. National Health System, (GESY)) (https://www.gesy.org.cy/launchpad.html);
- Upplýsingar af vefsíðu mennta- og menningarmálaráðuneytisins á Kýpur (http://www.moec.gov.cy/) og
- Upplýsingar af vefsíðu UNHCR (https://help.unhcr.org/cyprus/refugees-rights-and-duties/refugee-rights/).
Samkvæmt skýrslu European Council on Refugees and Exciles (ECRE) frá apríl 2023 fá einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns útgefið dvalarleyfi á Kýpur með gildistíma til þriggja ára sem sé endurnýjanlegt. Einstaklingar með viðbótarvernd fái útgefið dvalarleyfi sem gildi í eitt ár og sé endurnýjanlegt til tveggja ára. Í reynd geti tekið allt að sex mánuði að fá bókaðan tíma til að fá útgefið dvalarleyfi og tafir við útgáfu dvalarleyfa hafi aukist á árinu 2022. Frá því umsókn sé lögð fram geti liðið allt að fjórir til fimm mánuðir þar til leyfið sé gefið út. Umsækjendur um endurnýjun viðhaldi tilteknum réttindum sínum, s.s. fjárhagsaðstoð, á meðan málsmeðferð standi með því að framvísa staðfestingu á að þeir hafi umsókn um endurnýjun dvalarleyfis til meðferðar. Aftur á móti geti verið erfitt að nálgast tiltekin réttindi, svo sem fullnægjandi heilbrigðisþjónustu eða að opna bankareikning á meðan á málsmeðferð standi. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns og handhafar viðbótarverndar geti sótt um langtímadvalarleyfi eftir fimm ára löglega búsetu í landinu. Umsækjendur um langtímadvalarleyfi þurfi að uppfylla tiltekin skilyrði, s.s. sýna fram á fastar tekjur sem nægi til framfærslu, ráðningarsamning með gildistíma til a.m.k. 18 mánaða og vera með heilbrigðistryggingu. Handhafar alþjóðlegrar verndar hafi mætt hindrunum við að fá útgefið langtímadvalarleyfi þar sem þeim hafi reynst erfitt að uppfylla framangreind skilyrði.
Í skýrslu ECRE kemur fram að einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geti sótt um fjölskyldusameiningu en aftur á móti eigi handhafar viðbótarverndar ekki þann rétt. Þá sé enginn sérstakur biðtími vegna umsóknar um fjölskyldusameiningu. Umsækjandi þurfi að sýna fram á fjölskyldutengsl en í vissum tilvikum, þegar umsókn um fjölskyldusameiningu berst að liðnum þremur mánuðum eftir að viðkomandi fékk réttarstöðu flóttamanns, þurfi að sýna fram á staðfestingu á framfærslu, heimilisfangi og heilbrigðistryggingu fyrir fjölskyldumeðlimi. Áður fyrr hafi fjölskyldumeðlimir fengið sömu réttindi og handhafar alþjóðlegrar verndar en á árinu 2019 hafi orðið breytingar á því með nýju verklagi þar sem nú sé metið sérstaklega hvort viðkomandi fjölskyldumeðlimur hafi þörf fyrir alþjóðlega vernd. Í reynd hafi slíkar ákvarðanir einungis verið teknar í málum ólögráða barna, sem hafi leitt til þess að fjölskyldumeðlimir dvelji í landinu án dvalarleyfis og réttinda. Þá hafi málsmeðferðartími fjölskyldusameiningar verið langur og hafi tekið að meðaltali tvö ár. Gerðar hafi verið tilraunir til að stytta málsmeðferðartímann.
Í skýrslu ECRE og á vef GESY kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar hafi sama aðgang að heilbrigðiskerfinu á Kýpur og ríkisborgarar landsins. Frá 1. júní 2019 hafi orðið breytingar á heilbrigðiskerfinu en nú sé fyrsti viðkomustaður sjúklinga hjá heimilislæknum, án endurgjalds, sem geti vísað einstaklingum til sérfræðinga. Aðgengi að sérfræðilæknum, sálfræðingum o.fl. og lyfjum sé háð hóflegu gjaldi. Einkastofur, apótek og greiningarstöðvar hafi verið settar upp í því skyni að veita heilbrigðisþjónustu. Helstu hindranir á aðgengi handahafa alþjóðlegrar verndar að heilbrigðisþjónustu á Kýpur hafi verið þegar einstaklingar sem hafi fengið alþjóðlega vernd bíði eftir útgáfu eða endurnýjun dvalarleyfis. Þá eigi einstaklingar með alþjóðlega vernd á Kýpur rétt á bólusetningu á næstu heilsugæslu en ekki sé þörf á að bóka tíma fyrirfram.
Samkvæmt skýrslu ECRE eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd á Kýpur rétt á að dvelja í móttökumiðstöðvum ótímabundið en séu þó hvattir til að aðlagast samfélaginu sem allra fyrst eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd. Þá séu engin sérstök húsnæðisúrræði fyrir handhafa alþjóðlegrar verndar. Handhafar alþjóðlegrar verndar geti sótt um fjárhagsaðstoð í velferðarkerfi Kýpur (e. the national Guaranteed Minimum Income, GMI) en á árinu 2020 hafi yfirvöld veitt einstaklingum tímabundna fjárhagsaðstoð, s.s. við leigu á húsnæði, til að auðvelda þeim aðgengi að samfélaginu. Einstaklingar með alþjóðlega vernd á Kýpur hafi aðgang að atvinnumarkaðnum þar í landi undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Þá sé ekki gerður greinarmunur á einstaklingum með réttarstöðu flóttamanns eða handhöfum viðbótarverndar. Handhafar alþjóðlegrar verndar geti leitað aðstoðar við atvinnuleit á skrifstofu atvinnumiðlunar (e. Public Employment Service, PES). Þá eigi handhafar alþjóðlegrar verndar rétt á að fá starfsþjálfun á vegum viðeigandi félagsþjónustu. Aftur á móti geti handhafar alþjóðlegrar verndar mætt hindrunum á aðgengi að slíkum námskeiðum, m.a. vegna tungumálakunnáttu. Í fyrrgreindri skýrslu og á vef UNHCR kemur fram að börn með alþjóðlega vernd á Kýpur hafi sama rétt til þess að ganga í skóla á öllum menntastigum þar í landi og ríkisborgarar þess. Menntunin sé endurgjaldslaus fyrir öll börn á aldrinum 5 til 18 ára. Þá kemur fram að hægt sé að sækja um pláss á leikskóla fyrir barn þegar það hefur náð tilteknum aldri.
Í skýrslu ECRE kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar eigi rétt á að sækja um aðstoð frá velferðarkerfinu á Kýpur (GMI) undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Undir aðstoðina falli m.a. fjárhagsaðstoð til grunnframfærslu og húsaleigubætur að vissum skilyrðum uppfylltum en afgreiðsla umsóknar geti tafist í allt að tólf mánuði. Þó sé hægt að leggja fram umsókn um bráðabirgðabætur meðan beðið sé eftir afgreiðslu umsóknar en þær bætur séu þó töluvert lægri og afgreiðsla þeirra geti tekið um eina til tvær vikur. Umsóknina þurfi að endurnýja í hverjum mánuði þar til ákvörðun um endanlegar bætur liggi fyrir. Þá hafi handhafar alþjóðlegrar verndar staðið frammi fyrir vissum hindrunum á möguleikum þeirra til að nálgast grunnréttindi sín og að uppfylla skilyrði fyrir fyrrgreindri aðstoð.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk hafi orðið fyrir kynþáttafordómum og ofbeldi á Kýpur, þ. á m. af hálfu opinberra starfsmanna. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Jafnframt hafi verið sett lög til að vernda meðlimi þjóðfélagshópa gegn hvers kyns ofbeldi eða mismunun á grundvelli kynþáttar, þjóðernis, tungumáls, kyns, trúarbragða o.fl. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af kýpversku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Í skýrslunni kemur fram að sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Í skýrslu Freedom house fyrir árið 2022 kemur fram að mismunun á grundvelli kyns hafi verið vandamál á atvinnumarkaði í tengslum við ráðningar í störf, laun og kynferðislega áreitni. Þá kemur fram að lögum sem varði framangreint hafi ekki verið framfylgt með fullnægjandi hætti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur jafnframt fram að menntamálaráðuneytið hafi sett siðareglur til að sporna gegn kynþáttafordómum í skólum og áætlun fyrir kennara til að koma í veg fyrir og tilkynna slík tilvik.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.
Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.
Kærandi er kona á [...] sem er stödd hér á landi ásamt [...] syni sínum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún væri við góða líkamlega heilsu en henni liði illa andlega og glími við streitu, þunglyndi og svefnleysi. Þá fái hún hraðan hjartslátt og höfuðverk. Kærandi hafi mátt þola ofbeldi, þ. á m. kynferðisofbeldi í heimaríki sem hafi haft áhrif á hana andlega. Kærandi hafi jafnframt áhyggjur af syni sínum. Kærandi greindi frá því að A hafi fæðst fyrir tímann og henni hafi verið tjáð af lækni á Kýpur að hann væri einhverfur og með hjartavandamál. Auk þess sé A lystarlaus. Kærandi greindi frá því að A hafi ekki fengið nauðsynlegar bólusetningar á Kýpur, að hluta til vegna þess að þau voru stödd í Svíþjóð þegar bólusetning átti að fara fram og að hluta til vegna þess að greiða þurfti fyrir hana. Í máli kæranda og A liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 13. og 14. apríl 2023, þar sem kemur fram að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnarlaga. Þá hefur kærandi lagt fram ljósmyndir af áverkum á fæti. Fram kemur í viðtali við kæranda að við komuna til Kýpur hafi hún haft áverka á fæti og undirgengist aðgerð. Eftir þetta hafi fóturinn verið í lagi en núna hafi hún verk í fætinum.
Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 14. apríl 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 12. maí 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn hafa borist. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og A og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda og A sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda og A ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af frásögn kæranda og þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Kýpur verður ráðið að kærandi og A hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi, en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Kýpur að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og ríkisborgarar Kýpur þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Handhafar alþjóðlegrar verndar hafa aðgang að heimilislækni, án endurgjalds, sem getur vísað þeim áfram til sérfræðilækna. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda og A tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda og A geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að hún og A hafi haft aðgang að heilbrigðisþjónustu á Kýpur en hún hafi í ákveðnum tilvikum þurft að greiða fyrir þá þjónustu.
Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að henni hafi ekki verið úthlutað húsnæði af yfirvöldum á Kýpur og hún hafi aðeins fengið fjárhagsstuðning í ákveðinn tíma. Jafnframt hafi verið erfiðleikum bundið að fá atvinnu á Kýpur vegna fordóma þar í landi. A hafi verið í leikskóla en það hafi verið kostnaðarsamt. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Kýpur kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi aðgang að atvinnumarkaðinum, velferðarkerfinu og menntun undir sömu skilyrðum og ríkisborgarar landsins. Þá geti handhafar alþjóðlegrar verndar leitað aðstoðar við atvinnuleit á skrifstofu atvinnumiðlunar. Börn á Kýpur hafi rétt til þess að ganga í skóla á öllum menntunarstigum og menntun sé endurgjaldslaus frá fimm til átján ára aldurs. Þá sé hægt að sækja um pláss á leikskóla fyrir barn þegar það hefur náð tilteknum aldri. Líkt og komið hefur fram hafa handhafar alþjóðlegar verndar einnig rétt á fjárhagsaðstoð til grunnframfærslu og húsaleigubótum að vissum skilyrðum uppfylltum. Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hún geti vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þótt skýrslur um aðstæður á Kýpur bendi til þess að aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar þar séu um margt lakari en aðstæður þeirra hér á landi, m.a. m.t.t. inntaks félagslegrar aðstoðar og aðgangs að félagslegum húsnæðisúrræðum, er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Kýpur séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hún geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hún og A eigi að lögum rétt á og þurfi á að halda á Kýpur.
Kærandi hefur jafnframt greint frá því að hún mátt þola fordóma og mismunun á Kýpur, m.a. við atvinnu- og húsnæðisleit. Af framangreindum gögnum verður ráðið að löggæslan sé virk á Kýpur og kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hún um öryggi sitt eða telji sér ógnað. Þá rannsaki embætti umboðsmanns meint brot lögreglu. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða geti vænst þess að staða þeirra, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir þeirra til efnismeðferðar hér á landi. Þá hefur kærandi greint frá því að hafa haft atvinnu og leigt húsnæði í viðtökuríki.
Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Líkt og að framan er rakið er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar á Kýpur og hefur dvalið ásamt syni sínum á Kýpur um árabil. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreindra upplýsinga um aðstæður á Kýpur og gagna málsins að flutningur kæranda og A til Kýpur muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Með hliðsjón af athugasemdum kæranda um aðstæður A vísar kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu, m.a. í máli M.T. og aðrir gegn Svíþjóð nr. 22105/18 frá 20. október 2022. Í dómnum er vísað til þeirrar meginreglu að þrátt fyrir að barni muni vegna betur í einu aðildarríki mannréttindasáttmálans en öðru teljist það ekki falla undir hugtakið bestu hagsmunir barnsins.
Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd á Kýpur er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Kýpur samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja beiðni um að taka til efnismeðferðar umsókn barns kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi með vísan til a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kæranda að umsókn þess verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 14. apríl 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hún eða A hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að hún sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn hennar og A 30. janúar 2023. Samkvæmt 32. gr. c reglugerðar um útlendinga, eins og henni var breytt með reglugerð nr. 638/2019, er Útlendingastofnun heimilt að taka til efnismeðferðar umsókn barns sem hefur fengið vernd í öðru ríki, séu meira en 10 mánuðir liðnir frá því umsókn barst íslenskum stjórnvöldum.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.
Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eða barn hennar eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kæranda og A um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi og A njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt framansögðu verða mál kæranda og A ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Athugasemdir kæranda við hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar
Í greinargerð vísar kærandi til þess að Útlendingastofnun hafi ekki litið til skýrslu frá The European Commission against Racism and Intolerance (ECRI), frá 7. mars 2023, þar sem fram komi að kynþáttahyggja sé vandamál á Kýpur og að þrátt fyrir að réttarstaða flóttafólks samkvæmt lögum sé góð sé framkvæmdinni ábótavant. Kærunefnd hefur kynnt sér framangreinda skýrslu en þar kemur m.a. fram að framfarir hafi átt sér stað á Kýpur frá síðustu úttekt ECRI. Áætlanir og aðgerðir til að koma í veg fyrir ofbeldi og einelti í skólum hafi verið gerðar, í febrúar 2021 hafi verið innleiddar reglur stjórnmálamanna um bann gegn hatursorðræðu, kyn- og kynþáttafordómum og hvatningu til ofbeldis. Þrátt fyrir framfarir valdi sum atriði áhyggjum, s.s. varðandi hatursorðræðu og ofbeldi og ECRI leggi til að yfirvöld grípi til aðgerða á ýmsum sviðum. Líkt og kærunefnd hefur fjallað um eru dæmi um að flóttafólk hafi orðið fyrir kynþáttafordómum og ofbeldi á Kýpur en lög og stjórnarskrá leggja bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá hafa hafi verið sett lög til að vernda meðlimi þjóðfélagshópa gegn hvers kyns ofbeldi eða mismunun á grundvelli kynþáttar, þjóðernis, tungumáls, kyns, trúarbragða o.fl. Það er jafnframt mat kærunefndar, með vísan til framangreindra gagna, að löggæslan sé virk á Kýpur og kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hún um öryggi sitt eða telji sér ógnað. Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi eða A muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða geti vænst þess að staða þeirra, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærunefnd vísar til þess að þrátt fyrir að Útlendingastofnun hafi ekki litið til framangreindrar skýrslu hafi rannsókn stofnunarinnar verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga og fullnægjandi mat hafi verið lagt á aðstæður kæranda og barns hennar í viðtökuríki með hliðsjón af alþjóðlegum skýrslum.
Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við þær.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Kærandi lagði fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi 30. janúar 2023. Eins og að framan greinir hefur umsóknum hennar og A um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun var kæranda gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun og endurkomubanni frá Íslandi. Kærandi greindi frá því að það væri lífshættulegt að snúa aftur til Kýpur þar sem ekkert líf eða stuðningur væri þar í landi fyrir A. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og umfjöllunar kærunefndar um aðstæður kæranda og A á Kýpur telst brottvísun kæranda frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal kærandi og A yfirgefa landið án tafar. Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laganna skal að jafnaði veita frest í 7-30 daga til sjálfviljugrar heimfarar. Með vísan til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga verður að skilja orðalagið án tafar þegar veittur er frestur til sjálfviljugrar heimfarar svo að miða verði við lágmarksfrest í 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar er því 7 dagar og tekur ákvörðun um brottvísun og endurkomubann ekki gildi yfirgefi kærandi landið sjálfviljug án tafar. Ákvarðanir Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann eru staðfestar.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir Gunnar Páll Baldvinsson