Hoppa yfir valmynd

Nr. 92/2024 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 25. janúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 92/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23120088

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 20. desember 2023 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. desember 2023, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 22. nóvember 2023, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 11 daga dvöl frá 7. til 17. febrúar 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. desember 2023. Hinn 20. desember 2023 barst kærunefnd kæra ásamt fylgigögnum frá kæranda. Frekari gögn voru lögð fram með tölvubréfi, dags. 22. desember 2023.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð vísar kærandi til umsóknar sinnar og þeirrar synjunarástæðu sem ákvörðun Útlendingastofnunar byggist á. Vísað er til ferðaáætlunar og ferðagagna kæranda á borð við flugmiða, hótelbókanir og bílaleigubíls en kærandi kveður unnusta sinn skráðan fyrir umræddum hótelbókunum og vin þeirra skráðan fyrir bílnum. Kærandi kveðst nýlega hafa lokið námi en hafi enn ekki hafið störf sem gæti vakið grunsemdir um ólögmæta dvöl. Því næst vísar kærandi til uppeldis síns og fjölskyldu að öðru leyti. Hvað synjunarástæðu Útlendingastofnunar varðar bendir kærandi á að hún hafi lagt fram bankayfirlit þar sem finna má [...] kínversk júan, sem unnusti kæranda hafi millifært á hana til sönnunar um að hún gæti staðið straum af kostnaði við ferðina. Vegna námsloka kæranda vísar hún til þess að hún stefni á framhaldsnám í náinni framtíð.

Meðal fylgigagna sem lögð voru fram á kærustigi eru bankayfirlit og afrit af vegabréfsáritun unnusta kæranda.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun kæranda er merkt í reit 2 vegna synjunar á umsókn, þ.e. að ekki voru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Í ákvörðun kæranda má líka finna frekari athugasemdir, þar sem vísað er til þess að ekki hafi verið sýnt fram á stöðuga innkomu eða ábyrgð þriðja manns á framfærslu kæranda. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í Peking, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Við meðferð málsins lagði kærandi fram ný gögn til stuðnings yfirlýsinga í greinargerð. Þeirra á meðal var nýtt bankayfirlit, afrit af vegabréfsáritun unnusta síns, og afrit af búsetuskráningarvottorði. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki sýnt fram á stöðuga innkomu né ábyrgð þriðja manns á framfærslu sinni. Í greinargerð vísar kærandi til þess að hún hafi nýlokið námi, sé án atvinnu, en stefni á framhaldsnám í náinni framtíð. Af gögnum málsins má ráða að kærandi sé ekki í hjúskap. Fram kemur í reit 8 á gátlista vegna umsóknar kæranda um vegabréfsáritun að almennt beri að leggja fram gögn til staðfestingar um atvinnu. Í tilviki fullorðinna einstaklinga sem eru án atvinnu og ekki í hjúskap ber þeim að leggja fram einhvers konar sönnun um stöðuga innkomu. Einnig geta einstaklingar í þeirri stöðu lagt fram gögn um ábyrgð þriðja manns, þ.m.t. ráðningarsamning, bankayfirlit og ábyrgðarbréf þriðja manns. Um hið síðastnefnda vísast til 3. mgr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki lagt fram gögn eða skýringar sem hnekkja mati Útlendingastofnunar á umsókn hennar um vegabréfsáritun.

Að öllu framangreindu virtu tekur kærunefnd undir það mat Útlendingastofnunar að ekki væru færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sbr. ii-lið a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.

Loks bendir kærunefnd á að kærandi geti sótt um vegabréfsáritun að nýju, telji hún sig uppfylla skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar.

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta