Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 57/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 16. febrúar 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 57/2016

Í stjórnsýslumáli nr. KNU15080006

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 13. ágúst 2015 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir nefnd kærandi) þá ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. júlí 2015, um að synja henni um hæli og endursenda hana til Ítalíu.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka hælisbeiðni hennar til efnislegrar meðferðar eins og kærandi sé að sækja um hæli frá [...] með vísan til 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002. Til vara krefst kærandi þess að henni verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests skv. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Í gögnum frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu greinir að kærandi hafi komið á lögreglustöðina við Hverfisgötu þann 3. mars 2015 ásamt unnusta sínum og óskað eftir hæli. Þann 27. júlí 2015 tók Útlendingastofnun ákvörðun um að synja kæranda um hæli hér á landi. Kærandi kærði þá ákvörðun þann 13. ágúst 2015. Kærunefnd útlendingamála barst greinargerð kæranda þann 11. september 2015. Þann 1. febrúar sl. kom kærandi fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b útlendingalaga. Þann 4. febrúar sl. skilaði talsmaður kæranda inn viðbótargögnum.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að í 1. mgr. 46. gr. útlendingalaga segir að flóttamaður skv. 44. gr. sem er hér á landi eða kemur hér að landi á samkvæmt umsókn rétt á að fá hér hæli. Þá segir í a-lið 1. mgr. 46. gr. a að með fyrirvara um ákvæði 45. gr. geti stjórnvöld synjað því að taka til efnismeðferðar umsókn skv. 1. mgr. 46. gr. ef umsækjanda hefur verið veitt hæli í öðru ríki.

Jafnframt segir í b-lið ákvæðisins að stjórnvöld geti synjað því að taka umsókn til efnismeðferðar ef umsækjandi hefur komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið vernd í öðru ríki eða eftir að hafa dvalist í ríki eða á svæði þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum og hafði ekki ástæðu til að óttast að verða sendur aftur til heimalands síns.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að í máli þessu liggi fyrir að kæranda hafi verið veitt réttarstaða flóttamanns og dvalarleyfi á Ítalíu. Kæranda hafi því verið veitt vernd skv. A. lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, sbr. viðauka við samninginn frá 1967, í öðru ríki.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er einnig vísað til úrlausnar Mannréttindadómstóls Evrópu í máli nr. 27725/10 Samsam Mohammed Hussein og fl. gegn Hollandi og Ítalíu, frá 2. apríl 2013. Í úrlausn dómsins hafi komið fram að 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu legði ekki skyldu á aðildarríki að sjá öllum sem dveldu innan lögsögu þeirra fyrir heimili. Jafnframt legði sáttmálinn ekki almenna skyldu á aðildarríki til að veita viðurkenndum flóttamönnum fjárhagsaðstoð í því skyni að gera þeim kleift að viðhalda tilteknum lífskjörum.

Að lokum er tekið fram að þó straumur hælisleitenda til Ítalíu á síðustu misserum hafi síst minnkað er ekkert sem bendir til að aðstæður séu með þeim hætti að jafnist á við kerfisbundinn galla. Auk þess hafi Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ekki mælst til þess að aðildarríki Evrópuráðsins stöðvi flutninga hælisleitenda og viðurkenndra flóttamanna til Ítalíu. Komst stofnunin því að þeirri niðurstöðu að endursending kæranda til Ítalíu fæli ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. útlendingalaga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá var kæranda einnig synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f útlendingalaga, vegna aðstæðna sinna á Ítalíu.

Kæranda var vísað frá landi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga og var réttaráhrifum ekki frestað með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr sömu laga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir mál sitt á því að þrátt fyrir að hún hafi stöðu flóttamanns á Ítalíu séu aðstæður og aðbúnaður fyrir hana þar í landi svo slæmar að þær teljist sem ómannúðleg og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sterkar vísbendingar séu um að endursending kæranda í þann aðbúnað og þær aðstæður sem hún hafi þurft að búa við og bíði hennar á Ítalíu jafnist á við brot gegn 45. gr. útlendingalaga, sbr. 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Kærandi vísar til þess í greinargerð sinni að gistirými fyrir viðurkennda flóttamenn séu af mjög skornum skammti á Ítalíu og því búi margir í yfirgefnum húsum eða á götunni. Jafnframt greinir kærandi frá því að erfitt sé fyrir flóttamenn að fá vinnu á Ítalíu vegna mikils atvinnuleysis og að félagslega kerfið þar í landi sé veikburða. Á Ítalíu byggi kerfið í raun á því að fólk geti leitað til og notið aðstoðar frá fjölskyldu sinni og ættingjum. Það geti flóttamenn ekki og því séu þeir í raun verr settir. Kærandi vísar til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Í greinargerð sinni byggir kærandi á því að ljóst sé að ítölsk stjórnvöld geti ekki tryggt kæranda þau réttindi sem henni séu nauðsynleg og ítölskum stjórnvöldum beri skylda til að tryggja að hún geti lifað mannsæmandi lífi, sbr. 29. gr. tilskipunar nr. 2011/95/EB.

Jafnframt greinir talsmaður kæranda frá tveimur nýlegum úrskurðum belgískra stjórnvalda frá 27. og 28. apríl 2015 þar sem hætt hafi verið við endursendingu á tveimur hælisleitendum til Ítalíu vegna aðstæðna hælisleitenda þar í landi. Kærandi telji að þrátt fyrir að hann sé ekki í hælismeðferð á Ítalíu að þá hafi ofangreindir úrskurðir belgískra stjórnvalda áhrif þar sem aðstæður viðurkenndra flóttamanna séu að mörgu leyti sambærilegar aðstæðum hælisleitenda þar í landi.

Að lokum byggir talsmaður kæranda á því að sambýlismaður hennar hafi orðið fyrir [...] og teljist því vera viðkvæmur einstaklingur. Slíka einstaklinga megi ekki endursenda til Ítalíu. Verði niðurstaðan sú að kærunefndin fallist á að taka mál sambýlismanns kæranda til efnismeðferðar hér á landi geri talsmaður kæranda þá kröfu að slíkt verði einnig gert í máli hennar.

Fyrir kærunefndinni greindi kærandi frá því að hún væri barnshafandi og ætti von á barni í [...]. Jafnframt var talsmanni hennar þá gefinn vikufrestur til að skila inn viðbótargögnum. Þann 4. febrúar sl. skilaði talsmaður kæranda inn viðbótargögnum. Í þeim kom fram að dvalarleyfi kæranda sé í gildi til 1. september 2016 en dvalarleyfi sambýlismanns hennar hafi fallið úr gildi þann 26. maí 2015. Samkvæmt heimildum talsmanns kæranda geti hann sótt um endurnýjun leyfisins hjá ítölskum stjórnvöldum en við endursendingu muni hann ekki njóta aðstoðar við að finna húsnæði né eiga rétt á húsnæði á vegum stjórnvalda sökum þess að hann hafi þegar nýtt alla þá þjónustu sem hafi verið í boði er hann var hælisleitandi. Því sé líklegt að sambýlismaður kæranda þurfi að hafast við á götunni eða neyðarskýlum fyrir heimilislausa. Er dvalarleyfi kæranda renni út í haust muni hún lenda í sömu stöðu og sambýlismaður hennar þar sem hún eigi ekki rétt á frekari fyrirgreiðslum frá þarlendum stjórnvöldum. Jafnframt vísar talsmaður kæranda til niðurstöðu Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna í máli Warda Osman Jasin o.fl. gegn Danmörku, nr. 2360/2014.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Afmörkun úrlausnarefnis

Útlendingastofnun lagði þann skilning í hælisumsókn kæranda að hún væri að sækja um hæli frá Ítalíu, því ríki sem þegar hafði veitt henni vernd. Í greinargerð kæranda til kærunefndar telur kærandi hins vegar að endursending hennar til Ítalíu brjóti gegn 45. gr. útlendingalaga og því sé óheimilt að beita a-lið 1. mgr. 46. gr. laganna og synja kæranda um efnismeðferð á hælisumsókn sinni frá heimaríki sínu. Því skuli taka umsókn hennar til efnismeðferðar líkt og kærandi sé að sækja um hæli frá heimaríki sínu, [...].

Kærunefnd telur að kærandi sé fyrst og fremst að sækja um hæli frá heimaríki sínu [...]. Málsástæður hennar gefa þó einnig til kynna að hún sé að sækja um hæli frá Ítalíu, því ríki sem þegar hefur veitt henni vernd. Tekur neðangreind umfjöllun mið af því.

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, með síðari breytingum, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951 ásamt viðauka við samninginn frá 1967 og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að við komu kæranda til landsins hafi hún framvísað ferðaskilríkjum útgefnum af ítölskum stjórnvöldum ásamt ítölsku dvalarleyfiskorti. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi hafi sannað hver hún sé með fullnægjandi hætti.

Mat á því hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Við meðferð máls er litið til þess hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem geti haft áhrif á niðurstöðu máls hennar. Með því getur verið átt við hvort kærandi hafi mátt þola pyndingar, hvort kærandi sé barn eða hvort umsókn hennar varði börn hans, hvort kynhneigð eða kynferði kæranda geti haft áhrif eða hvort kærandi geti verið ríkisfangslaus. Mat á stöðu kæranda fer ávallt fram og eru þau atriði sem koma til skoðunar ekki tæmandi.

Kærandi hefur greint frá því að hún sé barnshafandi og eigi von á barni sínu í [...]. Með vísan til þess lítur kærunefndin svo á að hún teljist einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

a. Aðalkrafa kæranda

Kærandi telur að endursending hennar til Ítalíu brjóti gegn 45. gr. útlendingalaga og því sé óheimilt að beita a-lið 1. mgr. 46. gr. laganna og synja kæranda um efnismeðferð á hælisumsókn sinni frá heimaríki. Því skuli taka umsókn hennar um hæli frá heimaríki hennar til efnismeðferðar.

1. Umsókn um hæli frá heimaríki. Ákvæði 45. og 46. gr. a útlendingalaga

Í 1. mgr. 46. gr. útlendingalaga kemur fram að flóttamaður skv. 44. gr. laganna, sem er hér á landi eða kemur hér að landi, á samkvæmt umsókn rétt á að fá hér hæli frá heimalandi sínu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Stjórnvöld geta þó, á grundvelli a-liðar 1. mgr. 46. gr. a, og með fyrirvara um ákvæði 45. gr., synjað því að taka til efnismeðferðar umsókn á grundvelli 46. gr. laganna ef umsækjanda hefur verið veitt hæli í öðru ríki.

Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má einnig ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð.

Þann 2. apríl 2013 lýsti Mannréttindadómstóll Evrópu kæru í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) ótæka á þeim grundvelli að sú meðferð sem kærandi, sem var einstæð móðir með börn, hlaut bæði sem hælisleitandi og einstaklingur sem hlotið hefur vernd gæti ekki talist brot gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá væri ekkert sem benti til þess að kærandi þess máls myndi ekki njóta tiltækra úrræða á Ítalíu eða, ef þörf væri á, að ítölsk stjórnvöld myndu ekki bregðast við frekari beiðnum hennar um aðstoð. Taldi dómstóllinn að ekki sé hægt að gera þá kröfu til aðildarríkja að veita öllum flóttamönnum húsaskjól eða fjárhagslega aðstoð til þess að viðhalda ákveðnum lífsskilyrðum. Kæranda hafi staðið til boða ýmis þjónusta við komuna til landsins og eftir að vernd hafi verið veitt myndi hún enn standa henni til boða. Jafnframt ætti kærandi rétt á ýmsum réttindum samkvæmt ítölskum lögum líkt og ítalskir ríkisborgarar. Dómstóllinn tók fram að ýmis vandamál hafi risið í tengslum við aðstæður flóttamanna á Ítalíu. Hins vegar væru þau ekki kerfislæg og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi fjallað um ýmsar framfarir í þeim tilgangi að laga galla í kerfinu. Í ljósi þess var kæran lýst ótæk til meðferðar og vísað frá.

Kærunefnd útlendingamála hefur farið yfir skýrslur um Ítalíu, sbr. m.a. 2014 – Country Reports on Human Rights Practices – Italy (United States Department of State, 25. júní 2015), Health Systems in Transition Vol. 16 No. 4: Italy Health System Review (European Observatory on Health Systems and Policies, 2014), UNHCR Recommendations on Important aspects of refugee protection in Italy (UNHCR, júlí 2012), UNHCR Recommendations on Important aspects of refugee protection in Italy (UNHCR, júlí 2013), Asylum Information Database National Country Report: Italy (European Council on Refugees and Exiles, desember 2015), Reception conditions in Italy: Report on the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, október 2013) og Endursendingar hælisleitenda til Ítalíu (Innanríkisráðuneytið, desember 2015).

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk yfirvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar hælisleitenda og flóttamanna þar í landi. Samkvæmt ofangreindum skýrslum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hefur stofnunin meðal annars gagnrýnt skipulag og bolmagn ítalsks hæliskerfis til að taka við skyndilegu og verulegu flæði flóttamanna til landsins. Þá hefur stofnunin einnig gert athugasemdir við brotakennd móttökuskilyrði og aðbúnað hælisleitenda og flóttamanna. Jafnframt hefur Flóttamannastofnun gagnrýnt að aðstoð við sérstaklega viðkvæma hælisleitendur sé oft ófullnægjandi vegna skorts á samhæfingu þjónustuaðila og eftirfylgni. Verður af framangreindu ráðið að ítölsk yfirvöld hafa átt við margvíslegan vanda að etja. Hins vegar hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna ekki lagst gegn flutningi flóttamanna til Ítalíu.

Kærunefndin hefur einnig tekið mið af dómi Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015 þar sem fjallað var um málsmeðferð og skilyrði til móttöku hælisleitanda á Ítalíu og komist að þeirri niðurstöðu að ekki væri fyrir hendi kerfislægur galli sem leiddi til þess að hælisleitandi standi frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta þar ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, sbr. 45. gr. útlendingalaga. Því ber þó að halda til haga að ofangreindur dómur fjallaði um hælisleitanda sem endursenda átti á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar en ekki einstakling með alþjóðlega vernd.

Að virtum gögnum málsins og að teknu tilliti til aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ágallar á aðbúnaði og móttökuskilyrðum hælisleitenda og þeirra sem hafa þegar hlotið alþjóðlega vernd á Ítalíu verði ekki taldir svo alvarlegir að þeir gefi ástæðu til að ætla að kærandi muni standa frammi fyrir raunverulegri hættu á að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð á Ítalíu verði hún send þangað. Þá benda gögn til þess að kærandi hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu til jafns við ítalska ríkisborgara. Jafnframt er ljóst af ofangreindum skýrslum að kæranda eru tryggð úrræði til að leita réttar síns á Ítalíu, bæði fyrir landsrétti og Mannréttindadómstól Evrópu. Endursending kæranda til Ítalíu felur því ekki í sér brot á 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga, 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu eða 13. gr. hans.

Kærandi er með réttarstöðu flóttamanns á Ítalíu og gilt dvalarleyfi þar í landi. Kæranda hefur því verið veitt vernd í öðru ríki en heimaríki sínu sbr. A. lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, og viðauka við samninginn frá 1967. Með hliðsjón af 45. gr. útlendingalaga og í ljósi ofangreindra upplýsinga telur kærunefndin að Útlendingastofnun hafi verið heimilt að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um hæli frá heimaríki sínu, [...], með vísan til a-liðar 1. mgr. 46. gr. a útlendingalaga.

2. Umsókn um hæli frá dvalarríki. Ákvæði 44. gr. útlendingalaga

Útlendingastofnun lagði þann skilning í hælisumsókn kæranda að hún væri að sækja um hæli frá Ítalíu, því ríki sem þegar hafði veitt henni vernd. Í ljósi þess að kærandi ber fyrir sig aðstæður á Ítalíu telur kærunefndin rétt að fjalla einnig um umsókn kæranda eins og hún væri að sækja um hæli þaðan.

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Kærandi byggir kröfu sína á að hún þurfi vernd hér á landi á grundvelli þess að þær aðstæður sem bíði hennar á Ítalíu séu ómannúðlegar og vanvirðandi.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Í lögskýringargögnum með þessari skilgreiningu kemur fram að heimaland sé það land sem viðkomandi eigi ríkisfang. Í máli kæranda er ljóst að hún er með réttarstöðu flóttamanns á Ítalíu. Kærandi, sem er ríkisborgari [...], getur ekki átt rétt á hæli sem flóttamaður hér á landi vegna aðstæðna sinna á Ítalíu, því ríki sem veitt hefur henni vernd. Verður henni synjað um stöðu flóttamanns hér á landi á þeim grundvelli. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar þá telur kærunefndin heldur ekki að endursending kæranda til Ítalíu brjóti gegn 45. gr. útlendingalaga.

b. Varakrafa kæranda

Til vara krefst kærandi að sér verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga á grundvelli aðstæðna á Ítalíu. Kærandi hefur greint frá því að hún sé barnshafandi og þurfi á aukinni heilbrigðisþjónustu að halda. Kærunefndin vill taka fram að þrátt fyrir að kærandi verði að teljast viðkvæmur einstaklingur við endursendingu til Ítalíu að þá er hún með réttarstöðu flóttamanns þar í landi og gilt dvalarleyfi. Ekki verði annað séð af heimildum en að kærandi hafi aðgang að ítölsku heilbrigðiskerfi sem geti aðstoðað kæranda vegna væntanlegrar barnsfæðingar hennar. Þá hafi kærandi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til félagslegrar aðstoðar og þjónustu. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd eins og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Er því fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda á Ítalíu séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga.

Þá tekur kærunefndin jafnframt undir niðurstöðu Útlendingastofnunar um að kærandi uppfylli ekki skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á landinu í tengslum við umsókn sína um hæli og aðeins í skamman tíma.

Í ljósi aðstæðna kæranda beinir kærunefndin því til Útlendingastofnunar, að fengnu samþykki kæranda, að tryggja að fyrir endursendingu hennar verði ítölsk stjórnvöld upplýst um heilsufar kæranda. Ennfremur beinir kærunefndin því til Útlendingastofnunar að áður en til flutnings kemur verði aflað staðfestingar frá ítölskum stjórnvöldum um að kærandi fái viðeigandi aðstoð og meðferð vegna væntanlegrar barnsfæðingar.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.

Úrskurðarorð


Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Pétur Dam Leifsson Vigdís Þóra Sigfúsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta