Mál nr. 18/2012. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála:
Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 18. júlí 2012
í máli nr. 18/2012:
VB Landbúnaður ehf.
gegn
Reykjavíkurborg
Með bréfi, dags. 4. júlí 2012, kærði VB Landbúnaður ehf. útboð Reykjavíkurborgar nr. 12760 „Dráttavélar og fylgibúnaður“. Kröfur kæranda eru orðaðar með eftirfarandi hætti:
„1. Að gerð samnings við Vélfang ehf. verði stöðvuð þar til niðurstaða kærunefndar útboðsmála liggur fyrir í máli þessu skv. 1. mgr. 96. gr. laga nr. 84/2007.
2. Að kærunefnd útboðsmála ógildi ákvörðun kærða um að samþykkja tilboð Vélfangs ehf., sbr. 1. mgr. 97. gr. laga nr. 84/2007, og að kærða verði gert skylt að auglýsa og bjóða út verkið að nýju að viðlögðum dagsektum, sbr. 4. og 5. mgr. 97. gr. laga nr. 84/2007.
3. Að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu kaupanda gagnvart kæranda vegna þeirrar ákvörðunar að semja ekki við kæranda, sbr. 2. mgr. 97. gr. laga nr. 84/2007.
4. Að kaupanda veðri gert skylt að greiða kæranda þann kostnað sem kærandi hefur þurft að bera vegna kæru þessarar.“
Kærða var kynnt kæran og gefinn kostur á að gera athugasemdir og koma að frekari rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni. Sérstaklega var óskað eftir athugasemdum kærða vegna kröfu kæranda um stöðvun á samningsgerð. Með bréfi, dags. 10. júlí 2012, krafðist kærði þess að kröfu um stöðvun samningsgerðar yrði hafnað.
Í þessum hluta málsins tekur kærunefnd útboðsmála til skoðunar hvort rétt þyki að stöðva samningsgerð í kjölfar hins kærða útboðs.Endanlega verður leyst úr öðrum kröfum kærunnar síðar.
I.
Í mars 2012 auglýsti kærði útboð nr. 12760 „Dráttarvélar og fylgibúnaður“. Samkvæmt kafla 1.2.1. í útboðinu var leitað eftir tilboðum í sjö dráttarvélar, níu snjóruðningstennur, níu sanddreifara, sjö sláttuvagna og tvö snjóblásara. Útboðið skiptist í þrjá hluta en bjóðendur áttu að bjóða í alla hluta. Í kafla 1.2.3. sem bar heitið „Val á samningsaðila“ sagði orðrétt:
„Kaupandi mun taka hagkvæmustu fléttu tilboða sbr. eftirfarandi matslíkan eða hafna öllum tilboðum.
Útboðinu er skipt í þrjá hluta og hverjum hluta í þrjú magnstig A, B og C en ástæða þess er að komi til að fjármagn sem kaupandi ætlar til kaupanna dugar ekki fyrir öllum þeim dráttavélum og tækjum sem þörf er fyrir verður notast við magnstigin til þess að velja hagstæðustu innkaup miðað við þá fjármuni sem til staðar eru. Magnskiptingin kemur fram í tilboðsskrá.
Einungis verður tekið við tilboðum frá einum bjóðanda í alla hluta. Bjóðendur athuga að ef þeir ætla að bjóða mismunandi búnað og dráttavélar þá verða þeir að leggja fram sérstakt tilboð fyrir hverja valda samsetningu.
Sérstakir matsþættir vegna hluta 1.
Við mat á tilboðum í hluta 1 verður notast við eftirfarandi matslíkan.
· Dráttavél búin búnaði sem vinnur gegn þvingun á milli fram og afturdrifs þegar dráttarvélinni er beygt á ferð með læstum drifum í fjórhjóladrifi (verð *0,85).
· Vélar sem ekki eru búnar ofnagreindum búnaði (verð *1)“
Við mat á hagstæðustu fléttu verður miðað við þann fjölda í magnskiptingu sem gefur kaupanda, sem mestan fjölda dráttarvéla og búnaðar miðað við kostnaðaráætlun. Við mat á fléttum verður því notað boðið verð sbr. tilboðsskrá. Eftirfarandi fléttur magnskiptingar verða notaðar við val á tilboðum.
Hluti 1 Hluti 2 Hluti 3
1. flétta C C C
2. flétta B B C
3. flétta B B B
4. flétta A A B
5. flétta A A A
Kaupandi áskilur sér rétt til þess að hafna öllum tilboðum reynist heildarverð samkvæmt 1. fléttu, án frádráttar sbr. sérstaka mastþætti vegna hluta 1, vera hærra en kostnaðaráætlun kaupanda. Að sama skapi mun kaupandi ekki taka tilboðum í aðrar fléttur reynist heildarverð í fléttuna án frádráttar sbr. sérstaka matsþætti vegna hluta 1. vera hærri en kostnaðaráætlun.
Í kafla 2.2.3. var að finna lýsingu á þeim búnaði sem snjóblásarar áttu að hafa og þar sagði:
„Óskað er eftir tveimur snjóblásurum framan á dráttarvélarnar, þeir skulu vera drifnir af drifskafti sem kemur fram úr vélunum. Snjóblásararnir skulu hafa sem næst 140 cm vinnslubreidd.“
Kærandi var meðal þeirra sem gerðu tilboð í hinu kærða útboði og tilboð voru opnuð hinn 30. apríl 2012. Með bréfi, dags. 8. júní 2012, tilkynnti kærði að tilboð Vélfangs ehf. hefði verið valið. Með bréfi, dags. 22. júní 2012, tilkynnti kærði bjóðendum að tilboð Vélfangs ehf. hefði verið endanlega samþykkt.
Kærandi óskaði eftir rökstuðningi fyrir vali á tilboðum og með tölvupósti, dags. 18. júní 2012, sagði kærði að í tilboði kæranda hefði ekki verið sýnt fram á að boðnar vélar væru með búnaði sem vinni gegn þvingun á milli fram og afturdrifs þegar vélinni er beygt á ferð með læstum drifum í fjórhjóladrifi. Þá kom þar einnig fram að tilboð kæranda í hluta 2. hefði verið metið ógilt þar sem snjóblásarinn hefði verið of breiður og þannig ekki uppfyllt kröfur útboðslýsingar.
II.
Kærandi segist hafa skilað inn gildu tilboði og hafa átt hagkvæmustu fléttuna samkvæmt valforsendum sem fram komu í kafla 1.2.3. í útboðslýsingu. Því hafi kærða borið að ganga til samninga við kæranda. Kærandi telur að kærða hafi borið að meta tilboð kæranda í hluta 1. á sömu forsendum og tilboð Vélfangs ehf. sem hefði leitt til hagstæðari niðurstöðu fyrir kæranda. Kærandi segir ólögmæta þá valforsendu sem kveði á um að dráttarvél eigi að vera búin búnaði sem vinni gegn þvingun fram og afturdrifs þegar dráttarvélinni er beygt á ferð með læstum fjórhjóladrifi. Kærandi telur matsforsenduna fela í sér ólögmæta samkeppnishrindrun í skilningi 2. mgr. 40. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup. Kærandi segir að kærði hafi ekki sýnt fram á hver þörf hans sé fyrir þá tæknilegu eiginleika sem þarna sé lýst. Engu að síður telur kærandi að dráttavélar í hans tilboði fullnægi skilyrðum tæknilýsingarinnar og því hafi borið að meta tilboð kæranda með sama hætti og tilboð Vélfangs ehf.
Kærandi segir útilokað að tilboð hans í 2. hluta útboðsins hafi verið ógilt enda hafi það verið í fullu samræmi við útboðsgögn. Óskað hafi verið eftir að snjóblásarar hefðu sem næst 140 cm vinnslubreidd. Kærandi hafi boðið tæki með 150 cm vinnslubreidd og það sé nálægt 140 cm. Kærandi telur að kærði verði að bera hallan af því ef orðalagið var ónákvæmt.
III.
Kærði segir að kominn sé á endanlegur samningur í samræmi við 76. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, og því sé ekki hægt að stöðva samningsgerð.
IV.
Í 1. mgr. 100. gr. laga nr. 84/2007, um opinber innkaup, segir að þegar bindandi samningur skv. 76. gr. laganna er kominn á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt.
Tilboð í kjölfar hins kærða útboðs var valið 8. júní 2012 og 22. júní 2012 tilkynnti kærði bjóðendum að tilboðið hefði verið endanlega samþykkt. Bindandi samningur er þannig kominn á í samræmi við ákvæði 76. gr. laga nr. 84/2007. Þegar af þeirri ástæðu telur kærunefnd útboðsmála ekki skilyrði til að stöðva samningsgerð þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru, sbr. 1. mgr. 96. gr. laga nr. 84/2007.
Ákvörðunarorð:
Kröfu kæranda, VB Landbúnaðar ehf., um að gerð samnings kærða, Reykjavíkurborgar, við Vélfang ehf. verði stöðvuð þar til niðurstaða kærunefndar útboðsmála liggur fyrir í málinu, er hafnað.
Reykjavík, 18. júlí 2012.
Páll Sigurðsson
Stanley Pálsson
Rétt endurrit staðfestir,
Reykjavík, júlí 2012.