Hoppa yfir valmynd

Nr. 107/2021 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 29. apríl 2021 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 107/2021

í stjórnsýslumáli nr. KNU20120060

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 29. desember 2020 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Íran (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. desember 2020, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi gerir kröfu um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.            Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 22. júní 2020. Þar sem kærandi hafði fengið útgefið dvalarleyfi hjá dönskum stjórnvöldum var þann 24. júlí 2020 send beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd til yfirvalda í Danmörku, sbr. 1. eða 3. mgr. 12. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá dönskum yfirvöldum, dags. 21. september 2020, samþykktu þau viðtöku kæranda á grundvelli 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 14. desember 2020 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 15. desember 2020 og kærði kærandi ákvörðunina þann 29. desember 2020 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd þann 11. janúar 2021. Þá bárust frekari gögn dagana 13. janúar, 8. febrúar og 3. mars 2021.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kom fram að dönsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Danmerkur ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Danmerkur.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar og annarra gagna málsins er varðar málavexti. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að hann hafi verið handhafi dvalarleyfis í Danmörku sem hafi grundvallast á hjúskap. Þá kemur fram að í viðtölum hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að hann hafi glímt við andlega erfiðleika þegar hann hafi komið til landsins en hann sé nú í meðferð hjá sálfræðingi sem hafi gefið góða raun. Kærandi hafi jafnframt greint frá því að hann hafi orðið fyrir árás á olíuflutningaskipi sem hann hafi starfað á þegar hann hafi neitað að fara eftir skipunum yfirmanns sem fólu í sér glæpsamlegt athæfi. Þá hafi eiginkona hans og vinahópur hennar beitt hann andlegu ofbeldi. Kærandi hafi gert athugasemdir við að vera fluttur til Danmerkur og sagst ekki vilja fara þangað. Hann hafi dvalið í landinu í 10 mánuði ásamt eiginkonu sinni en þau gangi nú í gegnum skilnað. Eiginkona hans hafi komið afar illa fram við hann og hann óttist hana og vinahóp hennar en þau hafi hótað honum.

Í greinargerð kæranda til kærunefndar eru gerðar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir m.a. athugasemd við mat Útlendingastofnunar á aðstæðum í Danmörku og mótmælir þeirri niðurstöðu stofnunarinnar að þar í landi eigi hann rétt á heilbrigðisþjónustu og að honum standi til boða húsnæði og mataraðstoð og vísar í því samhengi til umfjöllunar sinnar í greinargerð sinni til Útlendingastofnunar. Þá gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu hans, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi glímt við talsverða andlega erfiðleika en það hafi verið staðfest hjá sálfræðingi á Göngudeild sóttvarna. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar hafi kærandi farið fram á að stofnunin myndi leggja ítarlegt mat á það hvort kærandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu en sú skylda leiði af 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Að mati kæranda hafi það ekki verið gert í máli hans en stofnunin virðist ekki hafa tekið til greina þá vanlíðan og vanmátt sem kærandi hafi upplifað gagnvart hælisumsókn sinni og væntanlegri endursendingu til Danmerkur. Þá sé ljóst að stuðnings- og tengslaneti kæranda hafi verið kippt undan honum í Danmörku og því sé ekkert sem bíði hans þar auk þess sem að kærandi virðist óttast um eigið öryggi í Danmörku. Kærandi sé nýfarinn að sýna framfarir hvað varðar andlega heilsu sína með aðstoð sálfræðings hér á landi og því væri óvarlegt að rjúfa þá vinnu og senda hann til Danmerkur. Að lokum gerir kærandi athugasemd við þá ályktun Útlendingastofnunar að ekkert bendi til þess að dönsk yfirvöld muni ekki veita kæranda þá vernd sem sé áskilin í alþjóðlegum skuldbindingum Danmerkur, þ. á m. reglunni um non-refoulement, sem sé lögfest í 42. gr. laga um útlendinga. Rannsóknarskylda stjórnvalda gangi lengra en svo að þau geti leyft sér að slá fram slíkum fullyrðingum án tilvísunar til nokkurra heimilda. Í því samhengi bendir kærandi á að hlutfall þeirra sem fái jákvæða niðurstöðu á umsókn sinni um alþjóðlega vernd frá heimaríki kæranda í Danmörku sé mun lægra en sambærilegra mála hér á landi.

Kærandi byggir á því að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar hér á landi vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í framlögðum heilsufarsgögnum komi ítrekað fram að kæranda líði illa, hann sé andlega bugaður og niðurbrotinn, auk þess sem að hann óttist um líf sitt. Við mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu kæranda sé mikilvægt að taka mið af frásögn hans í heild sinni. Í ljósi framangreinds um líðan kæranda vill hann árétta þá skyldu Útlendingastofnunar að leggja ítarlegt mat á það hvort hann teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi fjallar í greinargerð sinni almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum og tilteknum úrskuðum kærunefndar. Kærandi gerir athugasemd við beitingu reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, en hann telji að reglugerðina skorti lagastoð. Auk þess bendir kærandi á að þau viðmið sem sett séu fram í ákvæði 32. gr. a reglugerðarinnar séu nefnd í dæmaskyni og því sé þar ekki að finna tæmandi talningu á þeim þáttum sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður séu til staðar. Stjórnvöldum beri að framkvæma heildarmat á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda sem og þeim aðstæðum sem hann muni standa frammi fyrir í Danmörku komi til endursendingar. Þá hafi verið gripið til hertra aðgerða í Danmörku vegna Covid-19 faraldursins og fjölgunar smita þar í landi. Að mati kæranda sé veruleg óvissa um áhrif faraldursins á innviði og heilbrigðiskerfi Danmerkur en af rannsóknarskyldu stjórnvalda leiði skylda til þess að leggja ítarlegt mat á stöðuna þar í landi og hvort að áhrif á aðstæður kæranda geti talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Danmerkur á umsókn kæranda er byggð á 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærandi hafi fengið útgefið dvalarleyfi hjá dönskum stjórnvöldum. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja dönsk stjórnvöld um að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Danmörku

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Danmörku, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

·         Amnesty International Report 2017/18 - Denmark (Amnesty International, 22. febrúar 2018);

·         EASO Asylum Report 2020: Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union (European Asylum Support Office, júlí 2020);

·         Asyl – Status 2018 (Institut for Menneskerettigheder, 22. júní 2018);

·         Country Profile – Denmark (European Database of Asylum Law, 1. febrúar 2018);

·         Country Report – Immigration Detention in Denmark: Where Officials Cheer the Deprivation of Liberty of „Rejected Asylum Seekers“ (Global Detention Project, maí 2018);

·         Denmark 2020 Human Rights Report (United States Department of State, 30. mars 2021);

·         Denmark 2019 Human Rights Report (United States Department of State, 11. mars 2020);

·         ECRI Report on Denmark (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 16. maí 2017);

·         Freedom in the World 2020 – Denmark (Freedom House, 11. mars 2020);

·         Human Rights in Denmark – Status 2016-17 (Institut for Menneskerettigheder, 2017);

·         The Asylum Procedure in Denmark (Danish Refugee Council, desember 2015);

·         Upplýsingar af vefsíðu danska umboðsmannsins (www.ombudsmanden.dk);

·         Upplýsingar af vefsíðu kærunefndar útlendingamála (fln.dk);

·         Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Dansk Flygtningehjælp (drc.ngo);

·         Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Refugees Welcome (refugees.dk og refugeeswelcome.dk);

·         Upplýsingasíða Johns Hopkins háskólans (http://coronavirus.jhu.edu/map.html, sótt 29. apríl mars 2021) og

·         Upplýsingasíða Sóttvarnarstofnunar Evrópu (https://www.ecdc.europa.eu/en/cases-2019-ncov-euee, sótt 29. apríl 2021).

Í ofangreindum gögnum, s.s. vefsíðum dönsku útlendingastofnunarinnar og kærunefndar útlendingamála, kemur fram að hægt sé að leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá lögreglunni í Danmörku eða móttökumiðstöðinni í Sandholm. Það er danska útlendingastofnunin (d. Udlændingestyrelsen) sem tekur ákvarðanir varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd í Danmörku. Sé umsókn synjað eiga umsækjendur þess kost að bera synjunina undir sérstaka kærunefnd útlendingamála (d. Flygtningenævnet). Hafi umsækjandi um alþjóðlega vernd fengið lokaniðurstöðu í máli sínu getur hann lagt fram nýja umsókn, telji hann nýjar ástæður eða breyttar aðstæður vera fyrir hendi í máli hans, sem ekki voru fyrir hendi þegar mál hans var áður til meðferðar. Þá eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun, skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem muni brjóta í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu dönsku útlendingastofnunarinnar  njóta umsækjendur túlkaþjónustu við málsmeðferðina og er endurgjaldslaus lögfræðiaðstoð veitt á kærustigi. Þá veita frjáls félagasamtök umsækjendum lögfræðiaðstoð, þeim að kostnaðarlausu.

Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu dönsku útlendingastofnunarinnar eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd rétt á að dvelja í Danmörku meðan á málsmeðferð stendur. Dönsku útlendingastofnuninni ber að sjá umsækjendum fyrir húsnæði, alla jafna í þar til gerðum móttökumiðstöðvum, og samgöngum vegna funda á vegum hins opinbera, s.s. málsmeðferðar fyrir stjórnvöldum eða heilbrigðisþjónustu. Þá er greiddur vasapeningur, fyrir mat og hreinlætisvörum, til umsækjenda sem ekki fá fæði í búsetuúrræðinu sínu. Sé umsækjandi ekki samvinnuþýður, s.s. við tilfærslu milli búsetuúrræða eða brottflutning, getur það þó orðið til þess að framangreind þjónusta sé skert að einhverju leyti. Af ofangreindum gögnum verður ráðið að umsækjendur sem fengið hafa lokasynjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd og fara ekki sjálfviljugir frá landinu eru að jafnaði fluttir í brottflutningsmiðstöðvar, þ. á m. Kærshovedgård, þar til af flutningi til heimaríkis verður. Þar er einstaklingum tryggður aðgangur að heilbrigðisþjónustu auk þess sem í boði eru þrjár máltíðir á dag. Þá sé rafræn aðgangsstýring notuð í brottflutningsmiðstöðvum til að hafa eftirlit með ferðum þeirra er þar dvelja.

Sem fyrr segir ber danska útlendingastofnunin kostnað af dvöl umsækjenda um alþjóðlega vernd í Danmörku en heilbrigðisþjónusta við umsækjendur og aðra erlenda ríkisborgara er ekki hluti af danska sjúkratryggingakerfinu. Á ofangreindri vefsíðu stofnunarinnar kemur fram að hún standi undir kostnaði við brýna heilbrigðisþjónustu, sem ekki þoli bið, svo og verkjadeyfandi þjónustu. Meðferð sé talin brýn ef frestun gæti leitt til lífshættulegra áverka, hrörnunar, alvarlegrar hnignunar á heilsufari eða langvinns ástands. Heilbrigðisstarfsmenn sem starfa í móttökumiðstöðvum geta átt frumkvæði að því að umsækjandi um alþjóðlega vernd fái aðgang að tiltekinni meðferð, s.s. ráðgjöf hjá sálfræðingi eða geðlækni.

Samkvæmt framangreindum skýrslum samtakanna Global Detention Project og European Database of Asylum Law eru ákvarðanir um varðhald umsækjenda um alþjóðlega vernd almennt endurskoðaðar af dómstólum og við meðferð slíkra mála hjá dómstólum eiga einstaklingar rétt á lögfræðiaðstoð. Þá er hægt að kæra ákvörðun dómstóla til æðra dómstigs. Í 35. og 36. gr. dönsku útlendingalaganna (d. udlændingeloven) eru talin upp skilyrði þess að setja megi einstaklinga í varðhald, þ.m.t. þá sem hafa verið umsækjendur um alþjóðlega vernd. Meðal annars má setja umsækjendur í varðhald ef þeim hefur verið vísað brott frá landinu á tilteknum grundvelli eða ef umsækjandi aðstoðar ekki stjórnvöld við meðferð umsóknar, s.s. með því að mæta ekki í viðtöl eða leyna upplýsingum.

Í ofangreindri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar frá árinu 2020 kemur m.a. fram að í Danmörku viðgangist ekki viðvarandi mannréttindabrot. Þá sé löggæslumálum stýrt með árangursríkum hætti, þ. á m. séu skilvirkar aðferðir til staðar til að rannsaka og refsa fyrir lögbrot í landinu. Íbúar landsins geti því leitað á náðir þarlendra yfirvalda, telji þeir brotið á sér.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beita] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni. Ákvæðinu verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra upplýsinga, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.

Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Þar kemur fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja á til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.

Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og kærandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst kærandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að kærandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og kærandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Þá skuli líta til þess, í tilviki þungunar, hvort umsækjanda standi til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til gagna frá heilbrigðisstarfsfólki sem sýna fram á slíkt og, telji kærunefnd að umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, hlutlægra og trúverðugra gagna sem sýna fram á að sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandi þarfnast sé honum ekki aðgengileg í viðtökuríki.

Af 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar má jafnframt ráða að heilsufar umsækjanda hafi takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun að neðan.

Kærandi [...] árs karlmaður. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi m.a. frá því að líkamlegt heilsufar hans væri í lagi en að andlegt ástand hans væri slæmt. Í framlögðum heilsufarsgögnum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 8. júlí 2020 til 1. mars 2021, kemur m.a. fram að kærandi sé almennt hraustur en að hann hafi lýst mikilli andlegri vanlíðan. Kærandi eigi erfitt með svefn, finni fyrir kvíða og framtaks- og áhugaleysi auk þess sem að hann sé lystarlaus. Af framlögðum heilsufarsgögnum má sjá að kærandi hefur hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna í nokkur skipti og fengið aðstoð og ráðleggingar.

Kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, þann 28. október 2020, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns á vegum Rauða krossins, jafnframt leiðbeint með tölvupósti kærunefndar, dagana 29. janúar og 1. mars  2021, um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari gögn bárust kærunefnd dagana 8. febrúar og 3. mars 2021. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Kærunefnd telur ljóst að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Telur kærunefnd ekki forsendur til annars, í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Danmörku, en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið nauðsynlega heilbrigðisþjónustu þar í landi. Það er mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann muni ekki geta sótt sér þá heilbrigðisþjónustu eða aðra þá þjónustu sem hann þarf á að halda í Danmörku. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar.

Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur við meðferð málsins greint frá því að hann óttist fyrrverandi eiginkonu sína og vini hennar. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hann um öryggi sitt að einhverju leyti geti hann leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda hljóti efnismeðferð hér á landi hefur kærunefnd litið til þeirra aðstæðna sem nú eru uppi vegna Covid-19 faraldursins. Fjölmörg ríki hafa gripið til umfangsmikilla aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar. Hafa aðgerðirnar m.a. falist í ferðatakmörkunum og ferðabönnum. Í því sambandi hafa mörg aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins á einhverjum tímapunkti lokað fyrir endursendingar einstaklinga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Var það m.a. gert hér á landi yfir ákveðið tímabil en óvissa ríkir um það hvenær framkvæmd endursendinga verði komin í sama horf og áður en Covid-19 faraldurinn skall á. Yfirvöld í Danmörku hafa jafnframt gripið til aðgerða til þess að sporna gegn útbreiðslu veirunnar, m.a. með takmörkunum á ferðum til landsins og takmörkunum á fjöldasamkomum. Kærunefnd ekki forsendur til annars en að líta svo á að þær takmarkanir sem við lýði eru vegna Covid-19 faraldursins séu tímabundnar. Í því sambandi lítur kærunefnd einnig til þess að Lyfjastofnun Evrópu hefur samþykkt notkun á fjórum tegundum bóluefna gegn veirunni sem veldur Covid-19 og að vænta megi að notkun fleiri bóluefna verði samþykkt á næstunni. Þá lítur kærunefnd til þess að bólusetning er hafin í aðildarríkjum Evrópusambandsins, þ.m.t. í viðtökuríkinu.

Af skýrslum er ljóst að viðtökuríkið býr við stöðuga stjórnarhætti og sterka innviði. Að mati kærunefndar er því ekkert sem bendir til þess að það tímabundna ástand sem nú ríki komi til með að hafa teljandi áhrif á getu eða vilja viðtökuríkisins til að taka á móti og afgreiða mál kæranda þar í landi þegar takmörkunum verður aflétt og veita honum nauðsynlegan stuðning og viðeigandi aðbúnað á meðan mál hans er þar til meðferðar.

Í því sambandi er rétt að árétta að Dyflinnarreglugerðin gerir ráð fyrir því að samstarfsríkin hafi almennt sex mánuði frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru umsækjanda um alþjóðlega vernd til að flytja umsækjanda til viðtökuríkis, sbr. 1. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar.

Þá lítur kærunefnd einnig til þess að skv. 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga er Útlendingastofnun heimilt að fresta flutningi á umsækjanda ef það telst nauðsynlegt vegna sérstakra aðstæðna hans eða ómögulegt er að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.

Er það mat kærunefndar að tímabundnar takmarkanir á endursendingum til Danmerkur á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti ekki, eins og hér stendur á, leitt til þess að sérstakar ástæður mæli með því að umsókn kæranda verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í því sambandi hefur kærunefnd sérstaklega litið til sterkra innviða viðtökuríkisins og þess frests sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins hafa til að endursenda umsækjendur til viðtökuríkis og fjallað var um hér að framan.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og á grundvelli heildarmats á áhrifum Covid-19 faraldursins á aðstæður hans er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvað í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 28. október 2020 að barnabarn frænku hans byggi hér á landi. Af gögnum málsins má sjá að Útlendingastofnun sendi tölvupóst, dags. 8. desember 2020, til kæranda þar sem óskað var eftir nánari upplýsingum um tengsl kæranda en ekkert svar barst. Þá er hvorki minnst á umrædd tengsl í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar né kærunefndar. Að mati kærunefndar er ekkert sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 22. júní 2020.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar þeirra hafa ríki rétt til stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða er til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná háu alvarleikastigi til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er af yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort raunverulegu líkamlegum skaða eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstól Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Dómstóllinn vísar til þess að lög Evrópusambandsins séu byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki deila með öðrum aðildarríkum þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að því gagnkvæma trausti á að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmálinn mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli ESB um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 78-80. mgr. Það er hins vegar ekki óhugsandi að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi, verði hann fluttur til þess ríkis, sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmálanum, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Í ljósi þess, ef byggt yrði á því að sú forsenda að reglum sáttmálans sé fylgt af aðildarríkum samstarfsins sé óhrekjanleg yrði það ekki samrýmanlegt þeirri skyldu að túlka og beita Dyflinnarreglugerðinni til samræmis við grundvallarmannréttindi svo sem 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála ESB um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr. Af þeim sökum hefur Evrópudómstóllinn talið að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök sýna fram á að raunveruleg hætta sé á að hann verði þar eða við flutninginn fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála ESB um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar opinbert afskiptaleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna þeirrar sérstaklega viðkvæmu aðstöðu sem hann kann að vera í, lendir, án tillits til óska hans eða persónulegra ákvarðana, í slíkri stöðu efnislegrar sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, t.d. varðandi fæði, hreinlæti og þak yfir höfuðið, sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema ofangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af ofangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná mjög háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra, trúverðugra, nægilega nákvæmra og uppfærðra gagna, að kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. þau viðmið sem rakin voru hér að framan. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. til hliðsjónar Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 11. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Danmörku, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í viðtökuríkinu og til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd og flutningur hans til viðtökuríkis leiði því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu kemur 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga ekki í veg fyrir að umsókn kæranda verði synjað um efnismeðferð.

Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun

Í greinargerð sinni gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, þ. á m. við mat Útlendingastofnunar á viðkvæmri stöðu kæranda og við beitingu og lagastoð reglugerðar um útlendinga með áorðnum breytingum.

Kærandi gerir m.a. athugasemd við mat á sérstaklega viðkvæmri stöðu kæranda, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Af þessu tilefni vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga snýst um það hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu skv. 1. mgr. Skilgreining á stöðu skv. 1. mgr. hafi ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga fari fram hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Jafnframt er ljóst að fyrir utan tilvísun til sérstaklega viðkvæmrar stöðu fylgdarlausra barna í 6. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga er hvergi vikið að réttaráhrifum þess fyrir efnislega niðurstöðu máls að einstaklingur teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu á grundvelli 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.  Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali hans var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem áhrif gætu haft á mat á því hvort rétt sé að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna athugasemdar kæranda í greinargerð varðandi lagastoð reglugerðar nr. 540/2017 um útlendinga með síðari breytingum og beitingu 32. gr. a reglugerðar um útlendinga tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæti af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Af því leiðir að aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu eða hærra alvarleikastigi, geta haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skorti ekki lagastoð. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun að öðru leyti og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir við hana. Hefur kærunefnd skoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Frávísun

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd þann 22. júní 2020. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda bendir allt til þess að hann hafi verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi skal fluttur til Danmerkur eins fljótt og unnt er, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

 

Samantekt

Í máli þessu hafa dönsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Danmerkur með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

f.h. kærunefndar útlendingamála

 

 

 

Hjörtur Bragi Sverrisson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta