Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 69/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 24. júní 2015 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 69/2015

Í stjórnsýslumáli nr. KNU15020008

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 4. febrúar 2015, kærði […], fd. […], ríkisborgari […] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. janúar 2015, um að synja honum um hæli á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að honum verði veitt staða flóttamanns skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga. Til vara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.


II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um hæli hér á landi þann 28. október 2014 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi var boðaður í viðtal hjá Útlendingastofnun 26. nóvember 2014 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 12. janúar 2015, synjaði Útlendingastofnun umsókn kæranda um hæli og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði þá ákvörðun við birtingu, þann 4. febrúar 2015, ásamt því að hann óskaði eftir frestun réttaráhrifa ákvörðunarinnar. Þann 13. febrúar 2015 barst kærunefnd útlendingamála tilkynning Útlendingastofnunar um kæru á ákvörðun stofnunarinnar í máli kæranda. Með bréfi, dags. 12. febrúar s.á., féllst kærunefndin á kröfu kæranda um frestun réttaráhrifa.

Með tölvupósti, dags. 13. febrúar 2015, var löglærðum talsmanni veittur frestur til að leggja fram greinargerð í tilefni kærumálsins. Þann 27. febrúar 2015 barst kærunefnd útlendingamála greinargerð kæranda. Þann 18. mars s.á. bárust viðbótargögn við greinargerð kæranda.

Þann 29. apríl 2015 kom kærandi fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b útlendingalaga.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

 

III.       Ákvörðun Útlendingastofnunar

Hjá Útlendingastofnun byggði kærandi kröfu sína um hæli hér á landi á því að árið 2004 hafi bróðir hans […]. Útlendingastofnun taldi frásögn kæranda um flest trúverðuga en þótti það draga úr trúverðugleika hennar að kærandi lagði ekki fram nein gögn sem stutt gátu frásögn hans, s.s. lögregluskýrslur eða önnur gögn um deilurnar.

Útlendingastofnun fjallaði um tilurð, skilyrði og aðgerðir stjórnvalda í […]. Þótti sýnt að kærandi hafi ekki reynt til hlítar að leita sér þeirrar aðstoðar sem í boði sé í […]og ekkert í gögnum málsins sýndi fram á vanhæfi […] yfirvalda til að vernda kæranda gegn meintum ofsóknum í […]. Var það mat Útlendingastofnunar að frásögn kæranda gæfi ekki tilefni til þess að ætla að aðstæður hans væru með þeim hætti sem greinir í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga né að um ofsóknir í skilningi 1. mgr. 44. gr. a sömu laga væri að ræða enda aðeins um að ræða eitt tilvik þar […]. Taldi Útlendingastofnun ástæður hinna meintu ofsókna er kærandi nefndi ekki verða raktar til þeirra atriða er greinir í 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga. Stofnunin taldi jafnframt aðstæður umsækjanda ekki slíkar sem greinir í 2. mgr. 44. gr. sömu laga þar sem ljóst væri að kærandi gæti fengið viðhlítandi aðstoð yfirvalda í heimalandi sínu.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f taldi Útlendingastofnun að ekki yrði talið að kærandi væri í þeirri aðstöðu í […] að hann eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð, eða að aðstæður í heimalandi hans séu að öðru leyti slíkar að þær réttlæti veitingu dvalarleyfis með vísan til mannúðarsjónarmiða eða sérstakra tengsla hans við Ísland.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Útlendingastofnun ákvað að kæra myndi ekki fresta framkvæmd ákvörðunar sinnar með vísan til c-liðar 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.


IV.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að bróðir kæranda hafi árið […]. Kærandi kveðst hafa verið 16 ára þegar atburðirnir áttu sér stað og því hafi hann ekki persónulega leitað til lögreglu en faðir hans hafi gert það. Þar sem […] hafi lögreglan þó ekkert aðhafst. Kvaðst kærandi hafa yfirgefið […].

Í greinargerð er staðhæfing Útlendingastofnunar um að […]. Því ætti að fara varlega í að staðhæfa nokkuð í þessum málum.

Í greinargerð er byggt á því að kærandi og fjölskylda hans teljist vera aðilar tiltekins þjóðfélagshóps skv. flóttamannasamningnum og er vísað í leiðbeiningar Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna […] því til stuðnings. Ennfremur segir að skv. 33. gr. flóttamannasamningsins þá teljist það ávallt ofsóknir sé lífi eða frelsi ógnað vegna kynþáttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða fyrir að tilheyra ákveðnum þjóðfélagshópi. Með hliðsjón af ofangreindu sé enginn vafi á því að um ofsóknir í skilningi 1. mgr. 44. gr. a útlendingalaga sé að ræða, þar sem lífi og frelsi kæranda var ógnað með þeim hótunum sem kærandi hefur lýst

Þá greinir að Útlendingastofnun hafi gert mikið úr því að […]. Gerð er athugasemd við þá staðhæfingu Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn sem styðji við frásögn hans. Kærandi hafi lagt fram frétt úr […] fjölmiðli um ákvörðun dómstóla […] sem að mati kæranda renni stoðum undir frásögn hans.

Í greinargerð greinir ennfremur að þrátt fyrir viðleitni stjórnvalda í […] til framfara á síðustu árum þá sé […] fátækt land þar sem ríki mikil spilling, m.a. í veikburða réttarkerfi landsins. Kærandi kveður helstu ástæðu þess að hann flúði frá […] vera vantraust á vilja og getu stjórnvalda til þess að veita honum vernd gagnvart þeim sem ofsækja hann. Ekki sé hægt að ætlast til þess að kærandi geti leitað ásjár […] yfirvalda og hlotið þar fullnægjandi vernd eingöngu á grundvelli þess að refsirammi brota […] hafi verið hækkaður sem og að gefnar hafi verið út nýjar leiðbeiningarreglur til lögreglu og saksóknara þegar enn ríki mikil spilling í réttarkerfinu sjálfu. Þá sé spilling innan […] lögreglunnar viðvarandi vandamál og mörg dæmi þess að réttindi […] borgara séu brotin í samskiptum þeirra við lögreglu. Þar sem […].

Varðandi varakröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga segir að skilyrði þess ákvæðis séu uppfyllt þar sem ljóst sé að stjórnvöld í […], fyrst og fremst lögreglan, vilji ekki eða geti ekki veitt þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.

Varðandi flutning innanlands segir kærandi að […] sé lítið land og því sé afar erfitt að ætlast til þess af sanngirni að hann geti verið óhultur fyrir þeim sem hóta honum flytji hann sig um set. […]. Af þessum sökum kveður kærandi flutning hans til annarra svæða innan […] ekki koma til greina.

Í viðbótargögnum sem bárust kærunefndinni var meðal annars fjölskylduvottorð sem sýndi fram á tengsl kæranda og bróður hans, fréttir þar sem fjallað var um […].

 

VI.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hann framvísað […] vegabréfi. Telur kærunefndin því ljóst að kærandi sé […] ríkisborgari.

Landaupplýsingar […]

[…] er lýðræðisríki með um […] milljónir íbúa og eru mannréttindi almennt virt af stjórnvöldum þar í landi. […] gerðist aðili að Evrópuráðinu árið 1995 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1996. Þá fékk landið stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu […] 2014. Landið gerðist aðili að sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2006, flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna […] 1992, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi […] 1991 og samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu […] 1994.

Kærunefnd útlendingamála hefur m.a. skoðað skýrslu […] skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mannréttindi í […] ([…] 2013 Human Rights Report. United States Department of State, 27. febrúar 2014), […].

Í ofangreindum gögnum kemur fram […].

a. Aðalkrafa kæranda

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og breytt á þann veg að kærandi fái réttarstöðu flóttamanns skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 1. og 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga.

Ákvæði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, eða 2. mgr. 44. gr. sömu laga. Kærandi byggir kröfu sína á að hann þurfi vernd hér á landi á grundvelli þess að annars verði lífi hans stefnt í hættu […] í heimalandi sínu. Kærandi segir […] yfirvöld hvorki vilja né geta veitt honum fullnægjandi vernd.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á hæfilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að einhverjar líkur séu á að hans bíði ofsóknir í […]. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi að sýna fram á að góðar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum (Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Kærandi hefur borið fyrir sig að hann sé […]. Kærandi kvaðst einnig hafa farið til […] til að leita að vinnu en ekki talið óhætt að dvelja þar vegna þess fjölda […] sem þar búa.

Kærunefndin telur frásögn kæranda um flest trúverðuga og gögn þau sem hann hefur lagt fram styðja að einhverju leyti við frásögn hans um […]. Aftur á móti hefur kærandi ekki lagt fram nein gögn sem styðja við frásögn hans um […].

Kærandi hefur staðhæft að enga aðstoð sé að fá frá lögreglu og yfirvöldum í […] þegar kemur að […] og sérstaklega sé það óraunhæft í tilviki hans. Ljóst er að […] áttu sér stað fyrir um 11 árum síðan og ýmsar breytingar hafa átt sér stað í […] á þeim tíma. Í þeim gögnum sem kærunefndin hefur yfirfarið má sjá að stjórnvöld hafa, líkt og að ofan greinir, unnið að því að vinna […]. Í fyrrnefndum skýrslum sem kærunefndin hefur farið yfir kemur fram að mikil spilling hafi verið ríkjandi í réttarkerfi […], innan lögreglu, ákæruvalds og dómstóla. Stjórnvöld hafi þó leitað ýmissa leiða til þess að uppræta þessu spillingu og hafi þó nokkuð áunnist í þeim málum.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi […] yfirvalda. Almennt ferðafrelsi gildir að […] lögum og hafa stjórnvöld almennt virt þann rétt fólks. Þá hefur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna átt samstarf við […] stjórnvöld að málefnum flóttamanna og einstaklinga sem snúa aftur til landsins ([…] 2013 Human Rights Report. U.S. Department of State, […]). Í ljósi ofangreinds er það mat kærunefndar að kærandi hafi raunhæfan möguleika á að leita sér ásjár stjórnvalda í […] sem og möguleika til þess að flytja sig til innanlands telji hann þess þörf. Styðja heimildir ekki þá staðhæfingu kæranda að […] stjórnvöld skorti vilja eða getu til að veita kæranda fullnægjandi vernd óski hann eftir henni við þau.

Að öllu framangreindu virtu telur kærunefndin því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Ákvæði 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga

Í ákvæðinu er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands. Er hér um að ræða svokallaða viðbótarvernd sem kom inn í útlendingalögin með lögum nr. 115/2010 um breytingar á útlendingalögum. Þeir sem teljast falla undir þessa málsgrein fá stöðu sína viðurkennda eftir málsmeðferðarreglum sem eru sambærilegar að öllu leyti við ákvörðun á því hvort um flóttamann skv. 1. mgr. 44. gr. laganna er að ræða.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hans séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

Að öllu framangreindu virtu er kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og honum verði veitt hæli hér á landi hafnað.

b. Varakrafa kæranda

Samkvæmt 12. gr. f er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita má dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga og að engin sérstök mannúðarsjónarmið standi til þess að honum verði veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í […] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna skv. 12. gr. f útlendingalaga.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisbeiðni sína og aðeins í skamman tíma.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar frá 12. janúar 2015.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin

 

 Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. janúar 2015, í máli […] er staðfest.

The Directorate of Immigration‘s decision, of 12 January 2015, in the case of […], is affirmed.

 

 Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

 

  Anna Valbjörg Ólafsdóttir                                                                                               Oddný Mjöll Arnardóttir

 

 


 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta