Hoppa yfir valmynd

Nr. 34/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 23. janúar 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 34/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18010007

Beiðni [...]og barna hennar um endurupptöku

 

I.            Málsatvik

Þann 12. desember 2017 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 4. júlí 2017, um að taka umsókn [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir nefnd kærandi), og barna hennar, [...], fd. [...], [...], fd. [...] og [...], fd. [...], um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og endursenda þau til Tékklands. Niðurstaða kærunefndar var birt kæranda þann 18. desember 2017. Kærandi óskaði eftir frestun réttaráhrifa á úrskurði kærunefndar þann 25. desember 2017. Beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa var synjað af kærunefnd þann 8. janúar 2018. Þann 10. janúar sl. barst kærunefnd endurupptökubeiðni kæranda og barna hennar. Þann 11. janúar sl. bárust kærunefnd auk þess upplýsingar frá Útlendingastofnun um málsmeðferð í máli kæranda.

II.           Málsástæður og rök kæranda

Í beiðni kæranda um endurupptöku er byggt á því að börn kæranda uppfylli skilyrði ákvæðis I til bráðabirgða í lögum nr. 81/2017, um breytingu á lögum um útlendinga, og því beri að taka umsókn kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, með síðari breytingum.

III.          Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Um endurupptöku stjórnsýslumáls

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið upp á ný ef ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin. Í athugasemdum við 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga í frumvarpi því sem varð að stjórnsýslulögum segir:

Samkvæmt 2. tölul. 1. mgr. á aðili rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef íþyngjandi ákvörðun um viðvarandi boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því ákvörðun var tekin. Ef atvik þau, sem talin voru réttlæta slíka ákvörðun, hafa breyst verulega er eðlilegt að aðili eigi rétt á því að málið sé tekið til meðferðar á ný og athugað hvort skilyrði séu fyrir því að fella ákvörðunina niður eða milda hana. Ákvæði þetta hefur náin tengsl við meðalhófsregluna í 12. gr.

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir m.a. að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórmvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Þann 29. september 2017 tóku gildi lög nr. 81/2017 sem bættu tveimur ákvæðum til bráðabirgða við lög um útlendinga nr. 80/2016. Í 1. málsl. ákvæðis I til bráðabirgða segir að þrátt fyrir 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli miða við níu mánuði í stað 12 mánaða ef um barn sé að ræða og umsókn þess um alþjóðlega vernd hafi fyrst borist íslenskum stjórnvöldum fyrir gildistöku laga þessara, enda hafi umsækjandi ekki þegar yfirgefið landið.

Í ljósi framangreindra reglna og þess að kærandi og börn hennar lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd þann 10. apríl 2017 og hafa dvalið samfellt hér á landi síðan er það mat kærunefndar að tilefni sé til þess að skoða mál kæranda og barna hennar aftur í ljósi breyttra aðstæðna sem uppi eru í málinu. Kærunefnd fellst því á að mál barna kæranda verði endurupptekið hjá nefndinni á grundvelli 2. tölul. 1. mgr. 24. gr. laga um útlendinga. Með vísan til meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar verður mál kæranda jafnframt endurupptekið.

Umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema heimilt sé að krefja annað ríki, sem taki þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hafi gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð sé fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar. Af 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga leiðir að umrætt 12 mánaða tímabil hefst þegar umsækjandi leggur fyrst fram umsókn um alþjóðlega vernd hjá stjórnvöldum. Þá hefur kærunefnd útlendingamála túlkað ákvæðið með þeim hætti að tímabilinu ljúki þegar endanleg niðurstaða stjórnvalda er framkvæmd með flutningi umsækjanda til viðtökuríkis enda sé flutningurinn á ábyrgð stjórnvalda.

Í 1. málsl. ákvæðis I til bráðabirgða, sbr. lög nr. 81/2017, segir að þrátt fyrir 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skuli miða við níu mánuði í stað 12 mánaða ef um barn sé að ræða og umsókn þess um alþjóðlega vernd hafi fyrst borist íslenskum stjórnvöldum fyrir gildistöku laga þessara, enda hafi umsækjandi ekki þegar yfirgefið landið.

Kærandi og börn hennar lögðu fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 10. apríl 2017 og eru þau enn hér á landi. Kærandi og börn hennar hafa því verið hér á landi í rúmlega níu mánuði og hafa ekki yfirgefið landið. Kærunefnd hefur farið yfir meðferð málsins fyrir stjórnvöldum, m.a. upplýsingar frá Útlendingastofnun, og verða kærandi og börn hennar ekki talin bera ábyrgð á töfum á afgreiðslu umsóknarinnar, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Skilyrði 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016, sbr. ákvæði I til bráðabirgða við lögin, í málum barna kæranda eru því uppfyllt.

Það er niðurstaða kærunefndar að endurupptaka mál kæranda og barna hennar. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál þeirra til efnismeðferðar.


 

Úrskurðarorð

 

Fallist er á beiðni kæranda og barna hennar um endurupptöku á máli þeirra.

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda og barna hennar til efnismeðferðar.

                                                                                                          

The appellant‘s and her children’s request for re-examination of their case is granted.

The Directorate of Immigration shall examine the merits of the applicant’s and her children’s application for international protection in Iceland.

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta