Mál nr. 79/2024 Úrskurður 23. ágúst 2024
Mál nr. 79/2024 Eiginnafn: Amira (kvk.)
Hinn 23. ágúst 2024 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 79/2024 en erindið barst nefndinni 5. júlí.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Amira uppfyllir skilyrði nr. eitt, tvö og fjögur hér að framan. Það tekur íslenskri eignarfallsendingu, Amiru, brýtur ekki í bág við íslenskt málkerfi og er ekki þannig að það geti orðið nafnbera til ama. Nafnið er aftur á móti ekki ritað í samræmi við ritreglur íslensks máls ef gert er ráð fyrir því að það sé borið fram með í-hljóði í seinna atkvæði, þ.e. Amíra, sbr. samnöfn með ír í áhersluléttu atkvæði eins og pappír. Þannig ritað (Amíra) er nafnið þegar á mannanafnaskrá. Þannig er aðeins hægt að samþykkja nafnið að hefð sé fyrir þessum rithætti þess.
Við túlkun mannanafnanefndar á hefð í 5. og 6. gr. laga um mannanöfn er nú stuðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 22. mars 2022 og eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum, eldri vinnulagsreglum, dómaframkvæmd og sjónarmiðum sem fjallað er um í fundargerð:
- Nafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr);
Það er nú ekki borið af neinum Íslendingi en kemur þegar fyrir í manntalinu 1920 (eða fyrr) og hefð þess hefur ekki rofnað. Hefð nafns telst rofin ef það hefur ekki verið borið af Íslendingi undanfarin 70 ár.
- Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
- Nafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningarhelgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
- Þrátt fyrir að ekki sé hefð fyrir tökunafni á grundvelli framanritaðs telst ritháttur þess hefðbundinn sé hann gjaldgengur í veitimáli og nafnið ekki ritháttarafbrigði rótgróins nafns. Þó er áskilið að nöfn skulu rituð með bókstöfum íslenska nútímastafrófsins eða bókstöfunum c, q, w og z.Heimilt er að laga tökunafnið að almennum íslenskum ritreglum.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands bera fjórir einstaklingur nafnið Amira í þjóðskrá sem uppfylla skilyrði vinnulagsreglna mannanafnanefndar varðandi hefð, sbr. 2. gr. þeirra. Sú elsta er fædd 2007. Nafnið kemur ekki fyrir í manntölum frá 1703‒1920. Telst því ekki hefð fyrir rithætti nafnsins á grundvelli 1. gr. vinnulagsreglnanna.
Aftur á móti er um arabískt tökunafn að ræða og ritháttur þess gjaldgengur í umritun veitimáls (sjá einnig mál nr. 155/2022 (Amir)). Telur mannanafnanefnd því rétt að leggja til grundvallar að hefð sé fyrir nafninu á grundvelli 4. gr. vinnulagsreglnanna og það samþykkt.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Amira (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.