Hoppa yfir valmynd

Matsnefnd eignarnámsbóta, úrskurður 10. maí 1983

Árið 1983, þriðjudaginn 10. maí var í Matsnefnd eignarnámsbóta skv. lögum nr. 11/1973 tekið fyrir matsmálið:

                  Vegagerð ríkisins
                  gegn
                  Pétri Jónssyni
                  Egilsstöðum II
                  Suður-Múlasýslu

og í því kveðinn upp svohljóðandi

ú r s k u r ð u r :

I.

Með bréfi dags. 11. okt. 1982 hefur Vegagerð ríkisins með vísan til 10. kafla vegalaga nr. 6/1977 og laga nr. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms, farið þess á leit við Matsnefnd eignarnámsbóta, að metnar verði lögboðnar bætur vegna fyrirhugaðrar efnistöku Vegagerðar ríkisins úr námusvæði í svonefndu Þórsnesi, sem tilheyrir jörðinni Egilssstaðir II Suður-Múlasýslu. Þinglýstur eigandi jarðarinnar Egilsstaða II er Pétur Jónsson er þar býr.

Eignarnemi skýrir svo frá, að fyrirhugað sé á sumrinu 1983 að leggja slitlag á Austurlandsveg, 3.6 km. á svonefndum Völlum sunnan við Egilsstaðakauptún. Rétta þurfi af og styrkja núverandi veg, áður en slitlagið sé lagt og beri því nauðsyn til að fá heimild til þess að taka óunnið efni úr Þórsnesi og að vinna það efni í slitlagið. Áætlað efnismagn í nefnda framkvæmd sé um 10 þús. rúmm.

Eignarnemi kveður að ráðgert hafi verið að styrking umrædds vegarkafla færi fram haustið 1982 en samkomulag hafi ekki náðst um bætur fyrir efnistökuna og því sé ekki fyrir hendi heimild til hennar. Fer eignarnemi því þess á leit, að Matsnefnd eignarnámsbóta heimili eignarnema, með vísan til 14. gr. laga nr. 11/1973, að taka allt að 12000 rúmm. af jarðefni úr námusvæði í Þórsnesi og vinna þar hluta af því efnismagni, þ.e.a.s., þann hluta sem nota eigi í sjálft slitlagið og geyma það, þar til slitlagið verður lagt.

Í greinargerð eignarnema er þess krafist, að Matsnefndin heimili eignarnema að ráðast í þær framkvæmdir sem séu tilefni eignarnámsins, þ.e. umferðarrétt um námusvæðið og töku, vinnslu og geymslu efnis, þótt mati sé ekki lokið.

Eignarnemi segir nærtækast að taka efni til þeirra framkvæmda, sem hér um ræðir úr námu í Þórsnesi og því sé nauðsynlegt að fá heimild til þess að taka þar óunnið efni og að vinna þar efni í slitlag. Áætlað efnismagn í nefndar framkvæmdir sé um 10000 rúmm., en þar sem ekki hafi náðst samkomulag við eignarnámsþola um heimild til efnistöku á þessum stað, né greiðslu fyrir efnið, telji eignarnemi sér nauðsynlegt, með vísan til 14. gr. laga nr. 11/1973, að fá heimild Matsnefndar til töku á allt að 12000 rúmm. af jarðefni úr þessu námusvæði á Þórsnesi og að vinna það þar, þ.e. mala það og geyma þar til slitlagið verður lagt.

Í greinargerð sinni hefur lögmaður eignarnema vísað til 59. gr. vegalaga um skyldur landeigenda til að láta af hendi land, er þurfi undir vegi, eða til breytingar eða breikkunar eða viðhalds vegum svo og að leyfa að efni til vega sé tekið í landi hans, hvort heldur sé grjót, möl eða önnur jarðefni.

Þá vísar eignarnemi til 61. gr. vegalaga um hvaða sjónarmiða skuli gæta við mat.

Þá bendir eignarnemi á það ákvæði vegalaga, sem segir, að veghaldari skuli jafnan leitast við að valda sem minnstum spjöllum á gróðri við vegagerð og græða upp sár, sem myndist á grónu landi við vegaframkvæmdir.

Eignarnemi segir, að þar sem efnistaka á vegum Vegagerðarinnar fari fram sé það oftast svo, að Vegagerðin opni námur oft með ærnum tilkostnaði, t.d. vegna ofanafýtingar, slétti síðan landið þegar efnistöku sé lokið og sái í það og sé nú svo komið að Vegagerðin muni vera annar stærsti landgræðsluaðili á landinu. Telur eignarnemi að þessi vinna Vegagerðarinnar sé í lang flestum tilvikum umfram það, sem efnistökuaðilar geri, en samningar við þá séu yfirleitt við það miðaðir, að unnt sé að ganga í opið stálið, eða jafnvel í uppýtta hauga og þurfi þeir því hvorki að leggja í kostnað við opnun né lokun náma.

Með bréfi til Matsnefndar eignarnámsbóta dags. 8. mars 1983 hefur eignarnemi aukið við kröfur sínar í málinu með viðbót við framangreinda matsbeiðni. Skýrir hann þar svo frá, að til þess að takmarka ekki aðgang landeigenda að ákveðnum hlutum námusvæðisins hafi ekki verið beiðst eignarnáms á tilgreindum hluta þess heldur óskað eftir heimild til töku á allt að 12000 rúmm. af jarðefni ásamt nauðsynlegri aðstöðu til þess að sú jarðefnistaka gæti farið fram.

Nú hafi komið fram í málinu, að umboðsmaður eignarnámsþola hafi séð ástæðu til að nota þessa afstöðu eignarnema á þann veg, að um formgalla sé að ræða á matsbeiðni, þ.e., að ekki sé nægilega tilgreint hverjar væntanlegar eignarskerðingar verði.

Án þess að viðurkenna framangreint sjónarmið eignarnámsþola telur eignarnemi rétt að gera þá viðbót við matsbeiðni sína, dags. 11. okt. 1982, að krefjast óskertra afnota og umráða yfir 20000 m² lands úr námusvæðinu í Þórsnesi, sem nánar sé afmarkað og staðsett á korti sem fylgir matsbeiðni hans, ásamt umferðarrétti að því svæði. Sé fyrirhugað að efnistaka ásamt vinnslu og geymslu efnisins fari fram á þessu svæði.

II.

Mál þetta var fyrst tekið fyrir í Matsnefndinni 29. okt. 1982. Fyrir eignarnámsþola hefur flutt mál þetta Magnús Norðdahl cand. jur. vegna Atla Gíslasonar hdl. Hinn 23. nóv. 1982 lagði lögmaður eignarnámsþola fram greinargerð í málinu. Var þá reynd sátt með aðilum en án árangurs. Er að því loknu gerð svofelld bókun hjá nefndinni: "Aðilar eru sammála um og samþykkir því að fyrst verði úrskurðað um kröfu eignarnema skv. 14. gr. laga nr. 11/1973 og lögðu atriðið í úrskurð. Atriðið tekið til úrskurðar en eignarnámsþoli telur ástæðu til að gengið verði á vettvang áður en úrskurður gangi."

Hinn 5. maí 1983 var gengið á vettvang og landið og allar aðstæður skoðaðar. Viðstaddir vettvangsgöngu af hálfu eignarnema voru þeir Gunnar Gunnarsson hdl., Einar Þorvarðarson, umdæmisverkfræðingur, Hilmar Finnsson, umdæmisverkfræðingur og Magnús Sigurðsson, verkstjóri.

Af hálfu eignarnámsþola var viðstaddur Magnús Norðdahl cand. jur. vegna Atla Gíslasonar hdl.

Hinn 6. maí fór fram munnlegur málflutningur um ágreiningsefnið og lögðu aðilar það í úrskurð og atriðið tekið til úrskurðar hjá Matsnefndinni.

Lögmaður eignarnámsþola mótmælir matsbeiðni eignarnema og kröfu hans skv. 14. gr. laga nr. 11/1973 og krefst þess, aðallega að Matsnefndin vísi matsbeiðni eignarnema frá vegna formgalla. Til vara að kröfu eignarnema um töku efnis og hagnýtingu lands skv. 14. gr. verði hafnað og til þrautavara krefst hann tryggingar vegna væntanlegra bóta fyrir eignarnámið með vísan til 14. gr. laga nr. 11/1973.

Varðandi aðalkröfu sína vísar lögmaðurinn til 4. gr. laga nr. 11/1973 þar sem gerð sé sú krafa til eignarnema, að í matsbeiðni séu greindar ýtarlega þær eignaskerðingar, sem eignarnám hafi í för með sér. Samkvæmt matsbeiðni fari eignarnemi fram á mat á allt að 12000 rúmmetrum jarðefnis og jafnframt umráð á allt að 12000 rúmm. Telur eignarnámsþoli að gera þurfi þá kröfu til eignarnema að hann lýsi nákvæmlega því magni sem hann hyggist taka. Sú krafa sé ekki uppfyllt og eignarnámsþoli því skilinn eftir í óvissu um þær eignarskerðingar sem yfir vofi.

Þá er því haldið fram, að í matsbeiðni greini eignarnemi ekki hverjar aðrar eignarskerðingar eignarnámið hafi í för með sér. Samkvæmt beiðninni fari hann fram á afnot af landi eignarnámsþola til vinnslu jarðefna og geymslu þeirra. Sú náma sem taka eigi efnið úr sé í fullri notkun og úr henni sé selt til þeirra sem eftir því leiti. Eignarnemi geri enga grein fyrir því, hversu víðtæk not hann hyggist hafa af landi eignarnámsþola og að hvaða leyti afnot hans muni hefta eðlilegan aðgang eignarnámsþola að eign sinni.

Þá heldur lögmaður eignarnámsþola því fram, að skv. matsbeiðni sinni fari eignarnemi fram á sjálfdæmi um það magn, sem hann hyggist taka, þar sem í matsbeiðninni sé ekki gerð grein fyrir því með hvaða hætti hann hyggist tryggja eignarnámsþola að ekki sé tekið meira magn úr námunni en metið sé.

Eignarnámsþoli telur matsbeiðnina ekki uppfylla skilyrði 4. gr. laga 11/1973, þar sem beiðnin taki aðeins til töku á efni, en ekki vinnslu, geymslu og umferðarréttar.

Með viðbótarbeiðni sinni undir rekstri málsins hefur eignarnemi aukið við kröfur sínar, samkvæmt ábendingum eignarnámsþola, þótt hann telji það umfram nauðsyn, þannig að matsbeiðnin tekur nú til þeirra atriða sem eignarnámsþoli nefnir.
Þá hefur eignarnámsþoli haldið því fram, að efnistaka eignarnema takmarki efnissölu sína til annarra.

Þar sem eignarnemi hefur skv. uppdrætti, sem fyrir liggur í málinu, afmarkað athafnasvæði sitt, er ekki ástæða til að ætla að framkvæmdir eignarnema takmarki á nokkurn hátt sölu á efni til annarra.

Eignarnámsþoli telur, að eignarnemi hafi ekki beðið um mat á öllum þeim eignarskerðingum, sem eignarnáminu fylgi.

Við endanlegt mat á efni, jarðraski, o.fl. samkvæmt X. kafla vegalaga, mun nefndin meta allt það tjón, sem eignarnámsþoli hefur orðið fyrir við eignarnámið, m.a. með vettvangsskoðun, þannig að staðhæfingar aðila um það efni verða kannaðar og staðreyndar, svo eignarnámsþoli fái fullar bætur, eins og 67. grein stjórnarskrárinnar mælir fyrir um.

Um árabil hefir farið fram efnistaka á þessu svæði, bæði af hálfu eignarnema og annarra, og hefur nú þegar mikið efnismagn verið flutt burtu af staðnum. Með skoðun á landinu má allvel gera sér grein fyrir hvaða jarðrask efnistaka þessi hefur haft í för með sér.

Á þessum stað eru leirkenndir móar, lítt grasi grónir. Fletta þarf moldarlaginu, ca. 60 cm. þykku, þó eitthvað mismunandi, ofan af malarefninu, áður en næst til efnisins sem taka á.

Á þeim stað, sem eignarnemi í þessu máli óskar efnistöku á hefir fyrir alllöngu verið sléttað vegna notkunar landsins sem skeiðvallar, og er því nokkur hluti hins umbeðna svæðis nú vaxin valllendisgróðri, en um helmingur svæðisins eru gamlar gryfjur, sem Vegagerðin mun nota sem athafnasvæði.

Er matsbeiðni eignarnema ekki svo áfátt að ástæða sé til að vísa henni frá nefndinni, enda ber Matsnefndinni skylda til að kanna og kynna sér þau atriði, sem eignarnámsþoli hefur borið fyrir sig. Gildir það sama um óþægindi, óhagræði eða kostnað, sem eignarnámið kann að hafa í för með sér fyrir eignarnámsþola.

Eignarnámsþoli hefir krafist tryggingar verði umráðaréttur veittur yfir því svæði, sem eignarnemi fer fram á efnistöku á og umráðaréttar yfir. Í munnlegum flutningi málsins kvaðst lögmaður eignarnámsþola ekki fara fram á, að trygging yrði formlega innt af hendi heldur eingöngu, að ákveðin tryggingarupphæð yrði tiltekin í úrskurðinum.

Þar sem Vegagerðin framkvæmir samkvæmt vegalögum verk það sem hér um ræðir á ábyrgð ríkissjóðs Íslands, telur Matsnefndin ekki ástæðu til að úrskurða ákveðna tryggingu fyrir væntanlegum fébótum til eignarnámsþola í þessu máli og er það í samræmi við þá reglu, sem Matsnefnd eignarnámsbóta hefur beitt síðan 1973.

Matsnefndin getur ekki fallist á, að viðbótarmatsbeiðni eignarnema sé of seint fram komin og frávísa beri málinu af þeim sökum.
Í 59. gr. vegalaga nr. 6/1977 segir, að hver landeigandi sé skyldur til að láta af hendi land það, er þurfi undir vegi eða til breikkunar eða breytingar eða viðhalds vegum, svo og að leyfa að efni til vegar sé tekið í landi hans, hvort heldur sé grjót, möl eða önnur jarðefni, enda komi fullar bætur fyrir. Bætur fyrir jarðrask og eignarnám á óyrktu landi skuli því aðeins greiddar, að þeirra sé krafist og álitið verði að landeigandi hafi beðið skaða við það.

Eignarnámsþoli telur erfitt fyrir sig að hafa eftirlit með því efnismagni, sem eignarnemi flytur af staðnum. Eignarnemi skýrir svo frá, að allt efnismagn sem flutt sé úr námunni sé a.m.k. tvítalið, bæði séu taldar skóflurnar sem á bílana fara, svo og bílarnir sjálfir taldir. Þá sé stundum efnishaugurinn sjálfur mældur þ.e. rúmmál haugsins sem laust efni.

Matsnefndinni er kunnugt um það bókhald sem eignarnemi heldur um flutning á efni úr malarnámum og telur nefndin ekki ástæðu til að tortryggja þá starfsmenn ríkisins, sem verk þetta vinna, eða gruna þá um sviksemi við talningu efnisins.

Í 14. gr. laga nr. 11/1973, um framkvæmd eignarnáms segir, að þótt mati sé ekki lokið geti Matsnefnd heimilað eignarnema, að taka umráð verðmætis, sem taka eigi eignarnámi og ráðast í þær framkvæmdir, sem séu tilefni eignarnámsins.

Matsmenn telja að það muni ekki á neinn hátt torvelda framkvæmd efnismats á malarefni því, sem um ræðir og jarðraski, né spilla sönnunargögnum fyrir eignarnámsþola, þótt Vegagerðinni verði veitt leyfi til þess að fá umráð þeirra 20000 m², sem eignarnemi gerir kröfu um.

Að svo vöxnu máli samþykkti Matsnefndin með samhljóða atkvæðum og með vísan til 14. gr. l. nr. 11/1973, að leyfa eignarnema nú þegar óskert afnot og umráð yfir þeim 20000 m² sem sýnd er á framlögðum uppdrætti, svo og umferðarrétt að og frá svæðinu, og heimila eignarnema töku á allt að 12000 rúmmetra efnismagni, vinnslu þess og geymslu á svæðinu og brottflutning efnisins af staðnum.

Lögmaður eignarnámsþola hefur gert kröfu um málskostnað vegna þessa þáttar málsins að fjárhæð kr. 5.577.00.

Ekki þykir ástæða til að úrskurða eignarnámsþola kostnað nú vegna málflutnings um formhlið málsins, en tillit til þess kostnaðar alls, sem hann hefir af málinu verður tekið, þegar endanlega verður úrskurðað um fébætur til hans vegna eignarnámsins.

Úrskurð þenna hafa kveðið upp þeir Egill Sigurgeirsson, hrl., formaður nefndarinnar, Björn Bjarnarson, ráðunautur og Bárður Daníelsson, verkfræðingur, sem formaður hefur kvatt til meðferðar þessa máls skv. 2. gr. l. nr. 11/1973.

Þ v í   ú r s k u r ð a s t :

Frávísunarkrafa eignarnámsþola, Péturs Jónssonar, er ekki tekin til greina.

Eignarnema, Vegagerð ríkisins, er heimilt að taka nú þegar umráð þeirra 20000 m², sem sýndir eru á mskj. nr. 14, svo og að taka jarðefni allt að 12000 rúmm. á því svæði, og vinna það efnismagn á svæðinu og geyma það þar, meðan á framkvæmdum stendur og brottflutning þess.

Er eignarnema heimill umferðarréttur um námusvæðið til fullnægingar þessum framkvæmdum.


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta