Nr. 157/2023 Úrskurður
KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA
Hinn 23. mars 2023 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 157/2023
í stjórnsýslumáli nr. KNU23010003
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 31. desember 2022 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...]og vera ríkisborgari Eritreu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 19. desember 2022, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.
Kærandi krefst þess að umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi verði tekin til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Til vara er þess krafist að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka málið til nýrrar meðferðar.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 12. september 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Lettlandi. Hinn 27. september 2022 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda í Lettlandi, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá lettneskum yfirvöldum, dags. 26. október 2022, kom fram að honum hefði verið veitt viðbótarvernd 14. október 2016 og að hann væri með gilt dvalarleyfi til 17. september 2023. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 29. september 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 19. desember 2022 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 19. desember 2022 og kærði kærandi ákvörðunina 31. desember 2022 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 16. janúar 2023 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn 17. febrúar 2023.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd í Lettlandi. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Lettlands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Lettlands.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að honum sé óbærilegt að dvelja í Lettlandi. Vegna andlegrar heilsu hans telur kærandi að forsendur séu til að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi. Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar hvað varðar málsatvik. Kærandi gerir athugasemd við samantekt Útlendingastofnunar á málsástæðum kæranda og telur þær ekki endurspegla þær málsástæður sem byggt sé á í málinu nema að litlu leyti.
Kærandi vísar til þess að hann hafi glímt við bága andlega heilsu og vísar til gagna frá Göngudeild sóttvarna og frásagnar sinnar af einkennum sínum. Kærandi gerir athugasemd við að hann sé ekki talinn vera einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Í ákvörðun Útlendingastofnunar sé vísað til 3. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. Því sé slegið föstu að þar sem andleg veikindi geti ekki talist skyndileg eða lífshættuleg og ekkert bendi til þess að meðferð við þeim sé ekki aðgengileg í viðtökuríki, þá sé ekki unnt að taka umsókn hans til efnismeðferðar. Kærandi telur að túlkun stofnunarinnar á ákvæðinu gangi gegn efni þess og vísar til þess að viðmiðin sem nefnd séu í reglugerðinni séu aðeins nefnd í dæmaskyni. Skilningur Útlendingastofnunar feli ekki í sér þrönga túlkun heldur breytt efnisinnihald með því að útiloka allt sem ekki felist nákvæmlega í þeim dæmum sem tekin séu, frekar en að skilja þau sem dæmi til viðmiðunar. Með vísan til þessa og gagna málsins, einkum gagna frá Göngudeild sóttvarna og viðauka við greinargerð, verði að telja að andleg veikindi kæranda séu þess eðlis að vera sambærileg því sem viðmið 32. gr. a reglugerðarinnar mæli fyrir um og því séu forsendur til að taka málið til efnismeðferðar. Hvað varði meðferð við andlegum veikindum kæranda í Lettlandi sé í fyrsta lagi til þess að líta að ekki sé skilyrði samkvæmt 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar að meðferð sé óaðgengileg í viðtökuríki. Kærandi vísar til þess að orðalag 4. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar sé ekki hægt að skilja svo að það takmarki áhrif heilsufars kæranda við þau atriði sem nefnd séu sem dæmi í 2. mgr. heldur aðeins svo að eingöngu atriði sem falli að þessum viðmiðum geti komið til greina.
Kærandi vísar til þess að andlegt ástand hans muni gera honum erfiðara fyrir að verða sér úti um þá aðstoð sem hann þarfnist. Ljóst sé að við þessar aðstæður og vegna stöðu hans sem flóttamanns í landi þar sem hann tali ekki málið, þekki ekki vel til og hafi ekki getað fótað sig sé aðgengi hans að heilbrigðisþjónustu skert. Kærandi telur að endursending hans til Lettlands og dvöl þar stefni velferð og mögulega lífi hans í hættu vegna þess hve veikur hann sé andlega, vegna fyrri reynslu sinnar í landinu og áfallasögu þar á undan. Kærandi telur að hann uppfylli skilyrði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 1.-3. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá verður að telja að aðstæðurnar séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 5. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Kærandi vísar til þess að hann hafi vakið máls á að rannsóknarreglu hafi ekki verið sinnt í tölvubréfi til fulltrúa Útlendingastofnunar 5. október 2022, um leið og honum hafi verið tilkynnt um að viðtal yrði ekki klárað og vísar kærandi til rangfærslna í ákvörðun Útlendingastofnunar hvað þetta atriði varðar. Þá telur kærandi að tvíþættur annmarki sé á málsmeðferð Útlendingastofnunar sem báðir varði rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar. Kærandi telur að ekki hafi verið tekið fullnægjandi viðtal við hann en viðtali hafi verið frestað þegar kærandi hóf frásögn sína af pyndingum sem hann hafi orðið fyrir í Líbíu. Fulltrúi Útlendingastofnunar hafi greint frá því að húsið væri að loka og viðtalið yrði klárað síðar. Síðar hafi kæranda verið tilkynnt að Útlendingastofnun teldi ekki ástæðu til að ljúka viðtalinu gegn mótmælum kæranda. Kærandi telur að þessi atriði gætu ráðið úrslitum í málinu. Kærandi telur að bætt hafi verið úr þessum annmarka að einhverju leyti með samtali hans við talsmann og reifun þess sem þar hafi komið fram í greinargerð. Það geti þó ekki komið í stað formlegs viðtals hjá Útlendingastofnun, einkum hvað varðar mat stofnunarinnar á trúverðugleika og hvað mikilvægt sé að komi fram. Útlendingastofnun hafni því í ákvörðuninni að kærandi glími við heilsufarsleg eftirköst pyndinga og segist ekki getað staðreynt frásögn af atburðum en hér sé um að ræða atriði sem stofnunin hafi ekki farið yfir í viðtali. Því sé um að ræða ófullnægjandi rannsókn Útlendingastofnunar sem aðeins stofnunin sjálf hefði haft möguleika á að bæta úr. Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun hafi hvorki óskað eftir að lagðar yrðu fram upplýsingar um lífshlaup kæranda né hafi stofnunin leiðbeint um hvað skyldi koma fram í þeim, yrðu þær lagðar fram. Kærandi telur það skjóta skökku við að Útlendingastofnun telji ekki ástæðu til að fjalla um áfallasögu og andlega líðan kæranda í viðtali, telji ekki þörf að bíða eftir gögnum sérfræðinga um geðheilsu hans, neiti kæranda um frest til að útvega greiningu á veikindum hans þegar fyrsta viðtal við sálfræðing renndi stoðum undir alvarleg veikindi og fullyrði svo að málið teljist nægilega upplýst hvað varði heilsufar hans. Kærandi telur að Útlendingastofnun hafi ekki nægar forsendur til að taka ákvörðun í málinu enda hafi stofnunin ekki rannsakað málið að fullu auk þess sem stofnunin hafi ekki veitt nauðsynlegan frest svo upplýsa megi einn af lykilþáttum þess. Útlendingastofnun hafi því brugðist rannsóknarskyldu sinni samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Þrátt fyrir eftirfylgni talsmanns kæranda með tölvubréfi og símleiðis hafi tekið um tíu vikur fyrir kæranda að fá fyrsta viðtal hjá sálfræðingi. Í fyrsta viðtali við sálfræðing hafi komið fram upplýsingar sem renni stoðum undir málatilbúnað kæranda um að hann eigi við alvarleg andleg veikindi að stríða og hann kunni að vera með áfallastreituröskun. Kærandi vísar til þess að hann hafi gert allt sem í sínu valdi stóð til að afla nauðsynlegra gagna eins fljótt og hægt hafi verið. Útlendingastofnun hafi ekki bent á aðra þjónustuaðila en Vinnumálastofnun og Göngudeild sóttvarna í þessu samhengi. Kærandi hafi greint frá þunglyndi og kvíða auk þess sem hann hafi greint frá ítrekuðum geðlægðum í Lettlandi sem hafi varað dögum saman. Líklegt sé að kærandi sé andlega veikur og það geti haft áhrif á úrlausn málsins. Verði ekki fallist á að fyrirliggjandi upplýsingar dugi til hljóti það að vera lágmarkskrafa á grundvelli rannsóknarreglu að þetta sé upplýst að fullu áður en leyst sé úr málinu. Fallist kærunefnd ekki á aðalkröfu í málinu er farið fram á að nefndin ógildi ákvörðun Útlendingastofnunar og leggi fyrir hana að taka málið til meðferðar að nýju.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á [...]sem staddur er einsamall hér á landi. Hefur kærandi greint frá því að unnusta hans sé búsett í Egyptalandi en hann hafi síðast hitt hana árið 2018. Kærandi greindi frá því að hafa yfirgefið heimaríki þegar hann hafi verið sex mánaða gamall og farið til Súdan þar sem hann hafi búið þar til hann var 22 ára. Þá hafi kærandi farið til Líbíu og þaðan til Ítalíu þar sem hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd árið 2016. Kærandi hafi svo farið til Lettlands í júlí árið 2016 og hlotið alþjóðlega vernd þar í landi sama ár. Kærandi hafi farið til Þýskalands í lok árs 2016 og lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærandi hafi dvalið í Þýskalandi í um eitt ár en farið aftur til Lettlands. Kærandi hafi dvalið í Lettlandi þar til hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi árið 2022. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hans væri góð en að hann hefði glímt við þunglyndi. Kærandi greindi frá því að hafa fengið fjárhagsaðstoð í þrjá mánuði eftir að hafa hlotið alþjóðlega vernd í Lettlandi. Þá greindi kærandi frá því að hafa ekki haft aðgang að félagslegum húsnæðisúrræðum. Kærandi hafi starfað hjá byggingarfyrirtæki í Lettlandi frá árinu 2018. Þá hafi kærandi komið á vegum þessa fyrirtækis til Íslands vegna vinnu. Kærandi greindi frá því að hafa orðið fyrir áreiti og ofbeldi í Lettlandi en hann hafi orðið fyrir árásum þar í landi í nokkur skipti. Kærandi hefur greint frá því að hann hafi verið þolandi pyndinga í Líbíu. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi hitt sálfræðing hér á landi í eitt skipti. Kærandi hefur þá greint frá því að líkamleg heilsa hans sé góð.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Lettlandi 14. október 2016 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 17. september 2023. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur í Lettlandi virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Aðstæður í Lettlandi
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Lettlandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd farið yfir þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni.
- 2022 – Country Reports on Human Rights Practices – Latvia (United States Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 - Country Reports on Human Rights Practices – Latvia (United States Department of State, 12. apríl 2022);
- Amnesty International Report 2021/22 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Employment, Social Affairs & Inclusion (European Commission, https://ec.europa.eu/social/main.jsp?catId=1117&intPageId=4633&langId=en);
- Freedom in the World 2022 – Latvia (Freedom House, febrúar 2022);
- Report on Migration and Asylum in Latvia 2021 (Office of Citizenship and Migration Affairs Republic of Latvia, maí 2022);
- Rights of refugees and persons who have been granted alternative status in Latvia (Office of Citizenship and Migration Affairs Republic of Latvia, 4. febrúar 2021);
- Upplýsingar af vefsíðu lettnesku útlendingastofnunarinnar (https://www.pmlp.gov.lv/en);
- Upplýsingar af vefsíðu heilbrigðismála í Lettlandi (https://www.vmnvd.gov.lv/en/mental-health) og
- Your Social security rights in Latvia (European Commission, júlí 2022).
Samkvæmt útlendingalöggjöf Lettlands er einstaklingum með stöðu flóttamanns veitt ótímabundið dvalarleyfi. Þá fái einstaklingar sem hlotið hafa viðbótarvernd dvalarleyfi til eins árs sem hægt sé að framlengja að þeim tíma loknum. Umsókn um framlengingu á dvalarleyfi skuli berast yfirvöldum mánuði áður en dvalarleyfi renni út en ákvörðun um framlengingu skuli tekin innan þess mánaðar. Dvalarleyfi á grundvelli viðbótarverndar tryggi rétt til atvinnuþátttöku í Lettlandi auk þess sem það tryggi rétt til fjölskyldusameiningar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Handhafar viðbótarverndar geti sótt um fjárhagsstuðning (e. single financial support) og framfærslubætur (e. benefit for covering subsistence costs) sem standi til boða í sjö mánuði innan tólf mánaða frá því þeir fengu viðbótarvernd. Hafi viðkomandi atvinnu séu bæturnar aðeins greiddar að hámarki í þrjá mánuði. Þá kemur fram í skýrslu um félagsleg réttindi í Lettlandi að sveitarfélögum sé skylt að veita lágtekjufólki og einstaklingum í fjárhagserfiðleikum stuðning til að mæta grunnþörfum þeirra s.s. fæði, fatnað, húsnæði o.fl.
Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu í Lettlandi eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd og handhafar alþjóðlegrar verndar rétt á heilbrigðisþjónustu frá hinu opinbera. Til að hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu þurfi að skrá sig hjá heimilislækni á heilsugæslustöð. Hægt sé að hafa samband við þá heilsugæslu sem næst sé heimili viðkomandi og fá tíma þar sem gerður sé samningur við heimilislækni. Þá sé einnig hægt að skrá sig rafrænt í gegnum heilsugátt. Til að fá aðgang að niðurgreiddri heilbrigðisþjónustu á vegum ríkisins þurfi tilvísun frá heimilislækni eða öðrum sérfræðingi. Án tilvísunar þurfi að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu úr eigin vasa eða greiða fyrir valfrjálsa sjúkratryggingu. Þeir sem ekki hafi skráð sig á heilsugæslustöð eigi þó alltaf rétt á neyðarþjónustu lækna. Á vefsíðu heilbrigðismála í Lettlandi (e. National Health Service Republic of Latvia) kemur fram að til að fá niðurgreidda geðheilbrigðisþjónustu þurfi tilvísun frá heimilislækni. Ákveðnar heilbrigðisstofnanir í hverju sveitarfélagi séu með samning við ríkið en þar megi finna þverfagleg teymi sem m.a. samanstandi af geðlæknum, barnageðlæknum, sálfræðingum og geðhjúkrunarfræðingum.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að ríkislögreglan og héraðslögreglan beri ábyrgð á löggæslu í Lettlandi. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Þá sé sjálfstæði dómstóla tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kveði lög í Lettlandi á um bann við mismunun og ofbeldi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis. Ríkisstjórnin hafi framfylgt lögunum á áhrifaríkan hátt. Frjáls félagasamtök hafi greint frá tilfellum um áreitni og hatursorðræðu gagnvart minnihlutahópum. Þá hafi mörg slík atvik ekki verið tilkynnt til lögreglu þar sem þolendur hafi ekki borið traust til lögreglunnar til að rannsaka þessi mál á skilvirkan hátt. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2021 kemur fram að innanríkisráðuneyti landsins hafi í júlí 2021 sett á fót starfshóp sem vinni að úrræðum til að taka á hatursglæpum. Af framangreindum skýrslum má ráða að löggæsluyfirvöldum sé stjórnað með skilvirkum hætti og borgarar landsins geti leitað til lögreglunnar telji þeir brotið á sér.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skuli taka hana til efnismeðferðar. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga verður því aðeins beitt ef stjórnvöld telja, á grundvelli hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar eftir því sem við á, að skilyrði þess séu uppfyllt. Ákvæði 2. mgr. 36. gr. er til viðbótar þeirri vernd sem 3. mgr. 36. gr. veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd.
Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.
Kærandi er karlmaður á [...]sem staddur er einsamall hér á landi. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hans væri góð. Kærandi hafi glímt við þunglyndi en andleg heilsa hans væri góð að svo stöddu. Þá greindi kærandi frá því að vera þolandi pyndinga í Líbíu. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. október til 8. nóvember 2022, kemur m.a. fram að kærandi sé almennt heilsuhraustur. Kærandi hafi greint frá því að vera með verk í hægri úlnlið sem hafi byrjað fyrir mánuði síðan. Kærandi hafi óskað eftir tíma hjá sálfræðingi. Í samskiptaseðli frá Göngudeild sóttvarna, dags. 12. desember 2022, kemur fram að kærandi hafi hitt sálfræðing. Kærandi hafi m.a. greint frá því að líða ágætlega en geta ekki sofið auk þess sem hann vilji gleyma ákveðnum hlutum. Samkvæmt gögnum málsins á kærandi tíma hjá sálfræðingi 17. apríl 2023.
Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 29. september 2022, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 2. janúar 2023, um frekari framlagningu gagna í málinu. Engin frekari gögn um heilsufar bárust. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar hans geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda sé með þeim hætti að hann teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Lettlandi verður ráðið að kærandi hafi aðgang að heilbrigðiskerfinu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Lettlandi að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu og ríkisborgarar Lettlands en einstaklingar þurfi að skrá sig á næstu heilsugæslu til að geta fengið tilvísun sem veitir þeim aðgang að niðurgreiddri heilbrigðisþjónustu. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Þá greindi kærandi frá því að hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í Lettlandi en að hann þyrfti yfirleitt að bíða í tvo til þrjá daga eftir tíma hjá lækni. Kærunefnd tekur fram að kærandi hefur dvalið og starfað samfleytt í Lettlandi á grundvelli alþjóðlegrar verndar frá árinu 2018. Með vísan til þess og að kærunefnd telur viðeigandi heilbrigðisþjónustu í boði í Lettlandi verður ekki fallist á að þörf hafi verið á frekari rannsókn hvað varðar áfallasögu kæranda eða að nauðsynlegt hafi verið að bíða eftir frekari heilsufarsgögnum.
Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hafa aðeins fengið félagslega framfærslu um tíma. Þá hafi hann ekki haft aðgang að félagslegum húsnæðisúrræðum í Lettlandi. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður í Lettlandi kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi heimild til að stunda atvinnu, hafi aðgang að húsnæðismarkaðnum og eigi rétt á félagslegri aðstoð. Er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Lettlandi séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hann geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á að lögum rétt á og þarf á að halda í Lettlandi. Líkt og komið hefur fram eiga handhafar alþjóðlegar verndar í Lettlandi rétt á fjárhagsstuðningi og framfærslubótum fyrstu mánuðina eftir að þeim er veitt alþjóðleg vernd. Samkvæmt framburði kæranda hafi hann haft atvinnu í Lettlandi frá árinu 2018 þangað til hann kom hingað til lands.
Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að hann hafi orðið fyrir fordómum og mismunun í Lettlandi auk þess sem ráðist hafi verið á hann í nokkur skipti þar í landi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár lettneskra yfirvalda verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt geti hann leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hann geti vænst þess að staða hans, í ljósi sömu aðstæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðstæður hans í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 29. september 2022 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína 12. september 2022.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við brottvísun eða frávísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.
Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hans til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Athugasemdir kæranda við hina kærðu ákvörðun og reglur stjórnsýsluréttar
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann telji að ekki hafi verið tekið fullnægjandi viðtal við hann en viðtali hafi verið frestað þegar hann hóf frásögn sína af pyndingum sem hann hafi orðið fyrir í Líbíu. Síðar hafi kæranda verið tilkynnt að Útlendingastofnun teldi ekki ástæðu til að ljúka viðtalinu gegn mótmælum kæranda. Kærandi telur að um sé að ræða ófullnægjandi rannsókn Útlendingastofnunar sem aðeins stofnunin sjálf hafi möguleika á að bæta úr.
Af gögnum málsins má sjá að sérfróðir starfsmenn Útlendingastofnunar hafi lagt mat á málsástæður og stöðu kæranda. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 29. september 2022. Aðspurður kvað kærandi líkamlega heilsu sína góða. Þá greindi kærandi frá því að andlega heilsa hans væri góð að svo stöddu en að hann hefði glímt við þunglyndi. Þá greindi kærandi jafnframt frá því að vera þolandi pyndinga eftir fangelsisdvöl í Líbíu. Af endurriti viðtals við kæranda má sjá að fulltrúi Útlendingastofnunar hafi spurt nánar út í andlegt og líkamlegt heilsufar kæranda, s.s. hvort kærandi hafi leitað til læknis í viðtökuríki og hvaða áhrif þeir atburðir sem hann hafi orðið fyrir hafi haft á líf hans. Þá var kæranda leiðbeint um að leggja fram frekari gögn í tengslum við heilsufar sitt. Af ákvörðun Útlendingastofnunar má sjá að lagt var til grundvallar að kærandi hefði glímt við þunglyndi og með hliðsjón af því lagt mat á aðgang umsækjenda um alþjóðlega vernd að viðeigandi heilbrigðisþjónustu í Lettlandi. Með tilliti til heildarmats í máli kæranda telur kærunefnd ljóst að ítarlegri rannsókn á heilsufari kæranda, s.s. með framhaldsviðtali hjá stofnuninni og framlagningu frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í máli hans enda bera framlögð heilsufarsögn, þ. á m. gögn frá sálfræðingi ekki með sér að hann glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Mál þetta snýr að því hvort taka skuli umsókn kæranda til efnismeðferðar en eins og að framan greinir nýtur kærandi virkrar alþjóðlegrar verndar í Lettlandi í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og var umsókn hans um alþjóðlega vernd ekki tekin til efnismeðferðar. Er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hvað þetta varðar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Vegna umfjöllunar kæranda í greinargerð um að hann sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, vill kærunefnd árétta að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið og á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur m.a. fram að við meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun tryggja, eins fljótt og kostur er, að fram fari, með aðstoð viðeigandi sérfræðinga, einstaklingsbundin greining á því hvort umsækjandi teljist vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Sé hann í slíkri stöðu skal stofnunin meta hvort hann hafi einhverjar sérþarfir, t.d. þörf á tiltekinni heilbrigðisþjónustu. Þá er tekið fram í 2. mgr. sama ákvæðis að ákvæði IV., V. og VII. kafla stjórnsýslulaga um andmælarétt, um birtingu ákvörðunar, rökstuðning o.fl. og um stjórnsýslukæru og viðeigandi ákvæði I. og IX. kafla laga um útlendinga gilda ekki um ákvörðun um sérstaklega viðkvæma stöðu samkvæmt 1. mgr. Skilgreining á stöðu samkvæmt 1. mgr. hefur ekki önnur réttaráhrif en þau sem sérstaklega er getið í lögum eða reglugerð. Kærunefnd telur því ljóst að mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum eða reglugerð. Kærunefnd leggur þannig áherslu á að ákvörðun um hvort umsækjandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu er annað en mat á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda þó svo að þessi hugtök skarist nokkuð. Að því er varðar mat Útlendingastofnunar á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda tekur kærunefnd fram að kæranda var leiðbeint um framlagningu heilsufarsgagna við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, en í viðtali var honum leiðbeint um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem hann teldi hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun. Er það mat kærunefndar að mál kæranda hafi verið nægjanlega upplýst er varðar heilsufar hans og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður hans. Þegar litið er til þeirra viðmiða sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga setur fram er ljóst að þau gögn sem liggja fyrir í málinu benda ekki til þess að frekari gagnaöflun geti haft áhrif á niðurstöðu málsins. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að gera athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á þeim einstaklingsbundnu aðstæðum kæranda sem horfa beri til við mat á því hvort rétt sé að taka umsókn hans til efnismeðferðar hér á landi.
Vegna umfjöllunar í greinargerð kæranda um reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum og beitingu 32. gr. a reglugerðarinnar tekur kærunefnd sérstaklega fram að hún telji ljóst að það leiði bæði af orðalaginu „viðmið“ og tilvísun í reglugerðinni um að þau séu í „dæmaskyni“ að ekki sé um að ræða tæmandi upptalningu á þeim sjónarmiðum sem komið geta til greina við mat á því hvort sérstakar ástæður eru fyrir hendi í máli. Af því leiðir að aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu eða hærra alvarleikastigi, geta haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður eru ekki sérstaklega undanskildar, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Kærunefnd áréttar í þessu samhengi að við meðferð mála hjá kærunefnd er ávallt horft til einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins við mat á því hvort sérstakar ástæður mæli með því að mál verði tekið til efnismeðferðar, í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þ.m.t. heilsufars hans og annarra þátta sem benda til viðkvæmrar stöðu einstaklingsins. Kærunefnd leggur því áherslu á að heildarmat sé lagt á atvik í hverju máli fyrir sig á grundvelli einstaklingsbundinna aðstæðna einstaklingsins og aðstæðna í viðtökuríki. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda að þessu leyti.
Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við hana. Að framangreindu röktu er varakröfu kæranda hafnað.
Frávísun
Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi hingað til lands 26. júlí 2022 og sótti um alþjóðlega vernd 12. september 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Athygli kæranda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Bjarnveig Eiríksdóttir Sandra Hlíf Ocares