Mannanafnanefnd, úrskurðir 9. október 2008
FUNDARGERÐ
Ár 2008, fimmtudaginn 9. október, var haldinn símafundur í mannanafnanefnd. Viðstödd voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreint mál var tekið fyrir:
1. Mál nr. 59/2008 Eiginnafn: Aðólf (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Aðólf (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Aðólfs, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Aðólf (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.