Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 196/2015

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 9. desember 2015 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 196/2015

í stjórnsýslumáli nr. KNU15060001

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 29. maí 2015 kærði [...], fd. [...], að sögn [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. maí 2015, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um hæli á Íslandi og endursenda hann til Spánar.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn hans um hæli til efnislegrar meðferðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002 og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um hæli á Íslandi þann 16. janúar 2015. Leit að fingraförum kæranda í svokölluðum Eurodac gagnagrunni skilaði engum niðurstöðum. Þann 15. maí 2015 var beiðni um viðtöku kæranda beint til yfirvalda á Spáni, sbr. 2. mgr. 12. gr. reglugerðar evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 18. maí sl. barst svar frá spænskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli 4. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 27. maí 2015 að taka ekki umsókn kæranda um hæli hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Spánar. Kærandi kærði ákvörðunina við birtingu þann 29. maí 2015 til kærunefndar útlendingamála auk þess að óska eftir frestun réttaráhrifa á hinni kærðu ákvörðun á meðan mál hans væri til meðferðar. Fallist var á frestun réttaráhrifa á meðan málið væri til kærumeðferðar með bréfi kærunefndar, dags. 25. júní 2015. Greinargerð kæranda barst kærunefndinni 17. júlí 2015. Þann 16. september sl. kom kærandi fyrir kærunefndina og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddir voru talsmaður kæranda og túlkur. Þann 22. október 2015 barst kærunefnd viðbótarathugasemdir vegna kæru frá talsmanni kæranda.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að hælisumsókn kæranda yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Spánar. Lagt var til grundvallar að Spánn virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Flutningur kæranda til Spánar fæli því ekki í sér brot gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu.

Varðandi andmæli kæranda tók Útlendingastofnun fram að kærandi gæti leitað til lögreglu á Spáni óttist hann tiltekna aðila og spænsk lögregluyfirvöld ættu að vera fær um að bregðast við með fullnægjandi hætti. Þá gæti hann leitað til stjórnvalda og dómstóla.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi kveðst vera [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 22. maí 2015 greindi kærandi frá því að hann hræðist að fara aftur til Spánar þar sem hann hafi ferðast á fölsuðum skilríkjum þangað og að Spánn sé [...]. Margir aðilar frá því svæði séu búsettir á Spáni og kærandi óttist ofsóknir af þeirra hálfu. Honum hafi verið hótað á heimasvæði sínu að hann yrði drepinn reyndi hann að flýja. Það að kærandi hafi flúið á fölsuðum skilríkjum frá [...] geti orðið til þess að hann lendi í alvarlegum vandræðum eða jafnvel verði drepinn af stjórnvöldum á heimasvæði hans eða af aðilum á þeirra vegum á Spáni. Kærandi kvaðst geta hugsað sér að dvelja á Spáni en telur sig ekki öruggan þar nú.

Í greinargerðinni segir að svo virðist vera að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað málið og um staðlaðan texta sé að ræða í hinni kærðu ákvörðun. Hvergi sé tekið á þeim ótta sem kærandi kveðst myndi búa við á Spáni sem lýtur að ofsóknum af hendi einstaklinga frá heimaslóðum hans. Vísað er til skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um Spán frá júní 2014, skýrslu Amnesty International frá 2011, skýrslu nefndar um afnám kynþáttamisréttis frá 2011 og skýrslu Global Detention Project frá apríl 2015. Þá er vísað til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli A.C. og annarra gegn Spáni, sem ýti undir ótta kæranda [...] án þess að umsókn hans verði skoðuð gaumgæfilega á Spáni. Hann treysti ekki spænskum stjórnvöldum fyrir máli sínu og óttist að fá ekki réttláta málsmeðferð og úrlausn mála sinna verði hann sendur til Spánar. Þar að auki sé ekki hægt að útiloka að endursending kæranda til Spánar myndi brjóta gegn 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga, sbr. 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Á því er byggt í greinargerð kæranda að aðstæður hans hafi ekki verið skoðaðar á einstaklingsgrundvelli. Í ljósi framangreinds dóms Mannréttindadómstólsins sé hætt við að mál hans fái ekki vandaða og efnislega málsmeðferð á Spáni. Mikilvægt sé að frásögn kæranda sé skoðuð og að tryggt sé að hann verði ekki sendur í þær aðstæður sem bíða hans í [...]. Óbreytt ákvörðun Útlendingastofnunar fæli í sér brot á rannsóknarreglum stjórnsýsluréttar og laga um útlendinga. Þá er í greinargerð kæranda vísað til tillagna Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna til að takast á við ástandið á Miðjarðarhafi og svipaðar tillögur European Council on Refugees and Exiles.

Í viðbótarathugasemdum við kæru kemur fram kærunefndin hafi óskað eftir því í viðtali kæranda hjá nefndinni að frekari gögn yrðu lögð fram varðandi frásögn kæranda af hugsanlegum ofsóknum [...], (s. [...]) á Spáni. Þar kemur m.a. fram að stjórnvöld í [...] hafi formlega viðveru á Spáni og í Madríd sé starfandi sendinefnd þeirra. Það sé til þess fallið að valda kæranda ótta við ofsóknir. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um hryðjuverk á Spáni frá árinu 2012 hafi verið fjallað um atvik þar sem fjórum einstaklingum var rænt á Spáni og þeir fluttir í [...] í [...]. Þremur þeirra hafi síðar verið bjargað úr búðunum. Ekki sé víst að öll tilvik um nauðungarflutning fólks aftur í flóttamannabúðirnar rati í skýrslur og að ekki sé fullvíst að spænsk stjórnvöld geti nokkuð aðhafst þegar slíkt kemur upp. Þá er í viðbótarathugasemdunum fjallað um [...] honum ekki tryggð sömu réttindi og öðrum borgurum á Spáni svo sem vernd ef hann yrði fluttur gegn vilja sínum úr landi, hvort sem það væri af stjórnvöldum eða aðilum óháðum þeim. Þetta geri hann sérstaklega berskjaldaðan gagnvart ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð á Spáni. Þá hermi áreiðanlegar heimildir að réttindi [...] séu ekki tryggð á Spáni og ekki ávallt virt þrátt fyrir ítrekaðar úrlausnir dómstólar þar í landi í slíkum málum. Þar að auki er vísað til [...] er þetta atriði varðar. Ljóst sé að öryggi kæranda sé ekki tryggt á Spáni og að beita ætti 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga í málinu.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

1. Afmörkun úrlausnarefnis

Fyrir liggur í máli þessu að spænsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli 1. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Úrlausnarefni kærumáls þessa er að skera úr um hvort Útlendingastofnun hafi tekið rétta ákvörðun þegar ákveðið var að taka ekki umsókn kæranda um hæli til efnismeðferðar og vísa honum til Spánar. Úrlausnarefni málsins er afmarkað við það hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn kæranda um alþjóðlega vernd.

2. Lagarammi

Í máli þessu gilda aðallega ákvæði laga um útlendinga nr. 96/2002, með síðari breytingum, ákvæði reglugerðar nr. 53/2003 um útlendinga, með áorðnum breytingum og ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Auk þess ber að taka mið af ákvæðum Dyflinnarreglugerðarinnar en Ísland skuldbatt sig til að fylgja henni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um hæli sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla hennar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á hælisumsókn. Jafnframt ber að líta til annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í d-lið 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga kemur fram að stjórnvöld geti, með fyrirvara um ákvæði 45. gr. laganna, synjað að taka til efnismeðferðar hælisumsókn ef krefja megi annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda (Dyflinnarmál). Þó kemur fram í 2. mgr. 46. gr. a sömu laga að ekki skuli endursenda flóttamann til annars ríkis hafi hann slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða sérstakar ástæður mæli annars með því. Samkvæmt 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga má einnig ekki senda útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir sem gætu leitt til þess að hann skuli teljast flóttamaður eða ef ekki er tryggt að hann verði ekki sendur til slíks svæðis. Samsvarandi verndar skal útlendingur njóta sem vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Við mat á því hvort beita skuli þessum ákvæðum í Dyflinnarmálum þarf einkum að kanna hvort aðstæður hælisleitenda í því ríki, sem endursenda á hælisleitanda til samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, kunni að brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Sé svo er óheimilt að senda hælisleitandann þangað og skal þá taka hælisumsókn viðkomandi til efnismeðferðar hér, sbr. einnig undanþágureglu 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Eftir atvikum þarf enn fremur að skoða hvort slíkur ágalli sé á málsmeðferð þess ríkis, sem endursenda á til, að það brjóti í bága við 13. gr. mannréttindasáttmálans.

3. Aðstæður og málsmeðferð á Spáni

Samkvæmt framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu í málum er varða Grikkland og Ítalíu getur sú staða komið upp að óheimilt sé að endursenda hælisleitendur til einstakra ríkja vegna ástands í viðkomandi móttökuríki. Aðildarríki mannréttindasáttmálans verða að vera meðvituð um alvarlega galla við meðferð hælisumsókna eða í móttöku hælisleitenda í því aðildarríki sem endursenda skal til á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Verður því að skoða aðstæður hælisleitenda og málsmeðferð á Spáni.

Kærunefnd útlendingamála hefur farið yfir skýrslur um aðstæður og málsmeðferð á Spáni, sbr. m.a. Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Spain (UNHCR, júní 2014); Spain 2014 Human Rights Report (United States Department of State, 25. júní 2015); Dublin II Regulation: National Report: European network for tecnical cooperation on the application of the Dublin II Regulation - Spain (European Council on Refugees and Exiles, 20. júní 2012); Dublin II national asylum procedure in Spain (Forumréfugiés og CEAR, 2012); Amnesty International Report 2014/15 - Spain (Amnesty International, 25. febrúar 2015); Freedom in the world 2015 – Spain (Freedom House, 31. mars 2015) og EDAL Country Overview – Spain (European Database of Asylum Law, 2012).

Samkvæmt þeim gögnum eru aðstæður og þjónusta við hælisleitendur góðar á meginlandi Spánar en ákveðin vandamál eru á landsvæðum Spánar í Norður-Afríku (Ceuta og Melilla). Efnahagsaðstæður og atvinnuleysi á Spáni hafa leitt til niðurskurðar í velferðarkerfi ríkisins, þar á meðal þjónustu við hælisleitendur. Málsmeðferð hælisumsókna getur verið löng og Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur gert athugasemdir við að horfa þurfi meira á þörf hælisleitandans fyrir vernd við meðferð hælismála þar í landi og einnig þurfi að auka beitingu tilmæla og leiðbeininga frá Flóttamannastofnun.

Í greinargerð kæranda er vísað til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli A.C. og annarra gegn Spáni máli kæranda til stuðnings. Í dóminum komst Mannréttindadómstóllinn að þeirri niðurstöðu að spænsk stjórnvöld hefðu brotið gegn 13. gr. mannréttindasáttmálans þar sem stuttur málsmeðferðartími hafi komið í veg fyrir að kærendur í málinu gátu fært rök fyrir máli sínu, áður en þeir voru endursendir til heimalands síns. Kærunefnd leitaði til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um upplýsingar varðandi málsmeðferð á Spáni. Spurning nefndarinnar laut að því hvort að Flóttamannastofnun hefði vitneskju um svipuð tilvik og áttu sér stað í ofangreindum dómi og hvort slík tilvik væru algeng í málsmeðferð hælisumsókna hjá spænskum stjórnvöldum. Samkvæmt upplýsingum frá Flóttamannastofnun eru tvær mismunandi málsmeðferðir vegna hælisumsókna á Spáni, annars vegar málsmeðferð við landamæri (e. border procedure) og hins vegar málsmeðferð innanlands (e. inland procedure). Hælisumsóknir einstaklinganna í ofangreindum dómi Mannréttindadómstólsins heyrðu undir málsmeðferð við landamæri. Hvað þá tegund málsmeðferðar varðar þá sé enn skortur á raunhæfum réttarúrræðum, þar sem kæra á ákvörðun í hælismáli frestar ekki réttaráhrifum og verndar ekki gegn endursendingu. Hins vegar fara umsóknir einstaklinga, sem eru endursendir til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, alltaf í málsmeðferð innanlands. Samkvæmt ofangreindu telur kærunefnd ljóst að umsókn kæranda mun ekki fara í málsmeðferð við landamæri á Spáni og því sé ekki hætta á að brotið verði gegn 13. gr. mannréttindasáttmálans við endursendingu þeirra, af þeim sökum.

Athugun kærunefndar á aðstæðum hælisleitenda á Spáni hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði hælisleitenda á Spáni séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda til Spánar brjóti í bága við 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, verði hann sendur þangað. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns á Spáni bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Ennfremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu hælisleitenda til Spánar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Af þeim skýrslum og gögnum sem kærunefndin hefur kynnt sér má ráða að kærandi getur leitað sér aðstoðar lögregluyfirvalda á Spáni óttist hann að á honum verði brotið.

4. Sérstök tengsl við landið eða aðrar sérstakar ástæður skv. 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga nr. 96/2002

Aðspurður um tengsl við Ísland í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 4. maí 2015 kvaðst kærandi ekki hafa þekkt neinn áður en hann kom til Íslands, en hér væri maður búsettur sem væri í sömu fjölskyldu og móðir hans. Kærunefndin telur ekkert vera í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga. Þá benda gögn ekki til þess að aðstæður hans séu að öðru leyti svo sérstakar að ákvæði 2. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga eigi við. Verður því ekki talið að ástæða sé til að taka mál kæranda til efnismeðferðar á grundvelli sérstakra tengsla við Ísland eða annarra sérstakra ástæðna.

5. Reglur stjórnsýsluréttar

Í greinargerð kæranda er á því byggt að brotið hafi verið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 3. mgr. 50. gr. laga um útlendinga nr. 96/2002. Því er haldið fram að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað mál kæranda og að um staðlaðan texta í ákvörðuninni sé að ræða. Hvergi sé tekið á þeim ótta sem kærandi kveðst myndi búa við á Spáni sem lýtur að ofsóknum af hendi einstaklinga frá heimaslóðum hans. Þá hafi mál hans ekki verið skoðað á einstaklingsgrundvelli.

Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 skal Útlendingastofnun sjá til þess, að málið sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í málinu. Um frekari afmörkun á hversu ítarlega beri að rannsaka mál, ber m.a. að líta til þess hversu mikilvægt það er. Því tilfinnanlegri eða meira íþyngjandi sem stjórnvaldsákvörðun er, þeim mun strangari kröfur verður að gera til rannsóknar á þeim atvikum sem leiða til niðurstöðunnar. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Í þeim tilvikum þegar ákvörðun stjórnvalds byggist á mati verður að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru svo hægt sé að beita þeim sjónarmiðum sem ætlun er að byggja stjórnvaldsákvörðun á. Að auki ef deilt er um málsatvik sem hafa verulega þýðingu fyrir úrlausn málsins ber stjórnvöldum að leggja áherslu á að rannsaka þann þátt þess.

Kærunefnd útlendingamála hefur farið yfir öll gögn varðandi mál kæranda og telur ekki að slíkur ágalli sé á rannsókn og málsmeðferð Útlendingastofnunar við úrlausn málsins þannig að ógilda beri ákvörðun Útlendingastofnunar af ofangreindum ástæðum. Í ákvörðun Útlendingastofnunar eru málsástæður kæranda reifaðar, sem komu fram í viðtali kæranda hjá stofnuninni, þar á meðal ótta hans við einstaklinga frá [...]. Þá er í ákvörðun Útlendingastofnunar sérstaklega fjallað um að ef kærandi óttist hótanir eða aðgerðir tiltekinna aðila eigi hann að geta leitað til lögreglu eða annarra yfirvalda á Spáni sem ættu að vera fær um að bregðast við með fullnægjandi hætti. Kærunefndin telur því ljóst að Útlendingastofnun hafi við meðferð málsins tekið tillit til málsástæðna og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda.

Í skýringarriti með stjórnsýslulögunum (Stjórnsýslulög – skýringarrit (Páll Hreinsson, forsætisráðuneytið, 1994)) kemur fram að í málum á fyrra stjórnsýslustigi ætti tiltölulega stuttur rökstuðningur að nægja til þess að uppfylla skilyrði 22. gr. stjórnsýslulaga. Það er mat kærunefndar að þrátt fyrir stuttan rökstuðning í ákvörðun Útlendingastofnunar fullnægi hann skilyrðum 22. gr. stjórnsýslulaga. Það að um staðlaðan texta sé að ræða sé ekki eitt og sér brot gegn rannsóknarreglu stjórnsýslulaga né 22. gr. laganna um rökstuðning stjórnvaldsákvörðunar. Kærunefndin telur þó að það væru vandaðri stjórnsýsluhættir ef Útlendingastofnun gerði grein fyrir því á hvaða upplýsingum og gögnum er byggt á í niðurstöðu um aðstæður hælisleitenda á Spáni. Engu að síður er það mat kærunefndar að slíkur skortur á tilvísun til gagna leiði ekki til ógildingar hinnar kærðu ákvörðunar. Með vísan til ofangreindrar niðurstöðu kærunefndar um aðstæður á Spáni er ljóst að sá ágalli á ákvörðun Útlendingastofnunar hafi ekki leitt til rangrar efnislegrar niðurstöðu og sé því ekki slíkur að ógilda beri ákvörðunina af þeirri ástæðu.

6. Samantekt

Í máli þessu hafa spænsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um hæli á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er fallist á að Útlendingastofnun hafi verið rétt að synja um efnismeðferð á umsókn kæranda um hæli hér á landi og ákveða að senda kæranda til Ítalíu með vísan til d-liðar 1. mgr. 46. gr. a laga um útlendinga.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er það niðurstaða kærunefndar útlendingamála að staðfesta beri ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Pétur Dam Leifsson Vigdís Þóra Sigfúsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta