Nr. 166/2018 - Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 166/2018
Miðvikudaginn 4. júlí 2018
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eggert Óskarsson lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 27. apríl 2018, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 3. apríl 2018 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 1. apríl 2017.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með rafrænni umsókn, móttekinni 19. febrúar 2018, sótti barnsmóðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með barni þeirra frá X 2016. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 6. mars 2018, var kærandi upplýstur um framangreinda umsókn og honum gefinn kostur á að leggja fram gögn sem sýndu fram á að greiðsla meðlags hafi átt sér stað á umbeðnu tímabili. Með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 3. apríl 2018, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá 1. apríl 2017.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. apríl 2018. Með bréfi, dags. 3. maí 2018, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 29. maí 2018, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. júní 2018. Frekari gögn bárust frá kæranda, dags. 6. júní 2018, og voru þau kynnt Tryggingastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 18. júní 2018. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi gerir kröfu um að ákvörðun Tryggingastofnunar um milligöngu meðlagsgreiðslna aftur í tímann verði felld úr gildi eða greiðslur lækkaðar.
Í kæru er byggt á því að kærandi hafi ekki fengið bréf Tryggingastofnunar. Þá segir að kærandi hafi búið með barnsmóður sinni og borgað allt sem þurfti fyrir dóttur þeirra. Kærandi vísar til þess að meðfylgjandi kæru sé afrit af millifærslum frá honum til barnsmóður hans síðustu tvö ár. Þetta sé þó einungis hluti af þeim greiðslum sem hann hafi greitt til hennar. Fram kemur að síðan þau hafi hætt saman hafi þau verið með sameiginlega forsjá og barnið sé hjá honum aðra hvora viku þar sem hann sjái um hana á allan hátt, til dæmis kaupi föt og borgi lækniskostnað. Kærandi segir að óréttlátt sé að greiða meðlag aftur í tímann þar sem hann hefði þá getað byrjað að borga strax ef það sé það sem hann hafi átt að gera. Hann sé ekki ósáttur við að greiða meðlag, eingöngu að greiða það aftur í tímann.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að kærð sé ákvörðun stofnunarinnar um að samþykkja beiðni barnsmóður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hennar með dóttur þeirra frá 1. apríl 2017. Tryggingastofnun hafi tilkynnti kæranda með bréfi, dags. 3. apríl 2018, að stofnunin hafi samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til hennar frá 1. apríl 2017 með dóttur þeirra. Tryggingastofnun hafði borist umsókn barnsmóður kæranda 19. febrúar 2018 um meðlag aftur í tímann, ásamt staðfestingu á samkomulagi um forsjá og meðlag frá Sýslumanninum á B, dags. 7. júní 2017, þar sem fram komi að kærandi skuli greiða einfalt meðlag með dóttur þeirra frá 1. apríl 2017 til 18 ára aldurs.
Í 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé kveðið á um það að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga. Í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að tólf mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar hafi borist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. ekki við.
Í 3. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga, segi að þegar sótt sé um greiðslu meðlags aftur í tímann á grundvelli meðlagsákvörðunar sem sé eldri en tveggja mánaða skuli gefa meðlagsskyldum aðila kost á að sýna fram á að meðlag hafi þegar verið greitt fyrir sama tímabil og sótt sé um.
Samkvæmt 67. gr. barnalaga nr. 76/2003 sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.
Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka til greina önnur gögn en þau sem talin séu upp í framangreindum ákvæðum við milligöngu um greiðslu meðlags.
Um heimildarákvæði sé að ræða í 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar og sé því ekki um að ræða rétt umsækjanda um meðlagsgreiðslur frá Tryggingastofnun aftur í tímann, heldur heimild stofnunarinnar til að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur aftur í tímann, þó aldrei lengur en eitt ár. Í þeim tilvikum þegar sótt sé um meðlag aftur í tímann samkvæmt meðlagsákvörðun sem sé eldri en tveggja mánaða þá beri stofnuninni samkvæmt 3. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 945/2009 að gefa meðlagsgreiðanda kost á að sýna fram á að meðlag hafi verið greitt fyrir sama tímabil og sótt sé um.
Kæranda hafi verið sent bréf, dags. 6. mars 2018, og honum gefinn kostur á að sýna fram á greiðslu meðlags til barnsmóður sinnar frá 1. apríl 2017 en ekkert svar hafi borist við því bréfi. Því hafi Tryggingastofnun samþykkt að hafa milligöngu á meðlaginu til barnsmóður kæranda frá þeim tíma sem komi fram í meðlagsákvörðun, dags. 7. júní 2017, eða frá 1. apríl 2017, enda sé um að ræða greiðslu meðlags ekki lengra en 12 mánuði aftur í tímann frá því að umsókn og löggild meðlagsákvörðun hafi borist stofnuninni.
Með kæru hafi verið lagt fram yfirlit yfir handahófskenndar millifærslur til barnsmóður kæranda frá X 2016 til X 2018, en um sé að ræða mismunandi fjárhæðir í hvert skipti. Þá komi hvergi fram að um greiðslu meðlags sé að ræða. Tryggingastofnun geti ekki litið á þessar millifærslur sem reglubundnar meðlagsgreiðslur með dóttur kæranda eins og meðlagsákvörðun kveði á um. Innsend gögn gefi því ekki tilefni til að breyta ákvörðun Tryggingastofnunar um upphafstíma milligöngu meðlagsgreiðslna til barnsmóður kæranda.
Hvað varðar þá athugasemd kæranda að hann hafi ekki fengið bréf Tryggingastofnunar þá sé það tekið fram að bæði bréf stofnunarinnar til kæranda hafi verið endursend stofnuninni, þrátt fyrir að hafa verið send á lögheimili kæranda samkvæmt Þjóðskrá.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 1. apríl 2017.
Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur er hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.
Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni sem hann hefur á framfæri sínu snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003. Samkvæmt 4. mgr. sömu greinar er stofnuninni heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að tólf mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 20. gr. laganna ekki við.
Þá segir í 6. mgr. 63. gr. laganna að heimilt sé að setja reglugerð um framkvæmd þessarar greinar þar sem meðal annars sé kveðið á um fyrirframgreiðslu meðlags þegar foreldri eða börn séu búsett erlendis og um hámarksgreiðslur sem Tryggingastofnun ríkisins inni af hendi. Reglugerð nr. 945/2009 um framkvæmd meðlagsgreiðslna og annarra framfærsluframlaga hefur verið sett með stoð í framangreindu lagaákvæði. Samkvæmt 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar skal gefa meðlagsskyldum aðila kost á að sýna fram á að meðlag hafi þegar verið greitt fyrir það tímabil sem sótt er um.
Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsmóðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með dóttur þeirra frá 4. nóvember 2016. Stofnunin samþykkti umsóknirnar á grundvelli samkomulags kæranda og barnsmóður hans sem staðfest var af Sýslumanninum á B um forsjá, lögheimili og meðlag, dags. X 2017. Samkvæmt samningnum ber kærandi meðlagsskyldu frá 1. apríl 2017 til 18 ára aldurs barnsins. Þá liggur fyrir að greiðslurnar voru ekki samþykktar lengra aftur í tímann en heimild 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar kveður á um.
Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga og reglugerða. Samkvæmt 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar ber stofnuninni lögbundin skylda til að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur sé þess farið á leit við stofnunina í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir. Í ákvæðinu, sem er grundvöllur ákvörðunar stofnunarinnar, segir nánar tiltekið að hver sá sem fær úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni geti snúið sér til stofnunarinnar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags samkvæmt úrskurðinum og sama gildir um staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur.
Kærandi vísar til þess að hann hafi borgað fyrir barnið það sem þurfti og þá hafi hann millifært á reikning barnsmóður sinnar. Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að af 1. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar verði ráðið að meginreglan sé sú að Tryggingastofnun beri að greiða meðlag í samræmi við meðlagsákvörðun. Þá telur úrskurðarnefndin að ákvæði 4. mgr. 63. gr. laganna feli í sér takmörkun á greiðslu meðlags aftur í tímann, þ.e. að ekki sé heimilt að greiða meðlag lengra en tólf mánuði aftur í tímann talið frá byrjun þess mánaðar sem viðeigandi gögn bárust Tryggingastofnun. Í ljósi þess og með hliðsjón af þróun lagaákvæðisins og lögskýringargögnum telur úrskurðarnefnd velferðarmála að túlka verði heimild Tryggingastofnunar til greiðslu aftur í tímann samkvæmt 4. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar á þá leið að stofnuninni beri almennt að greiða aftur í tímann í samræmi við lagaákvæðið ef meðlagsákvörðun kveður á um það, sbr. úrskurð úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 312/2017. Að mati nefndarinnar felur heimildin því ekki í sér nánari ótilgreind skilyrði sem þarf að uppfylla til þess að greiðsla aftur í tímann geti átt sér stað. Þá telur úrskurðarnefndin að reglugerðarheimildin í 70. gr., sbr. 6. mgr. 63. gr. laga um almannatryggingar, feli ekki í sér heimild til að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarkar lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá Tryggingastofnun.
Með vísan til framangreinds er það mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja meðlagsmóttakanda um milligöngu meðlagsgreiðslna allt að tólf mánuði aftur í tímann, þrátt fyrir að meðlagsmóttakandi hafi fengið greiðslur frá meðlagsgreiðanda á því tímabili sem sótt sé um, sbr. 3. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar. Að því virtu verður hin kærða ákvörðun ekki felld úr gildi með vísan til greiðslna frá kæranda til barnsmóður hans.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 3. apríl 2018 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsmóður kæranda frá 1. apríl 2017.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 3. apríl 2018 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 1. apríl 2017 til barnsmóður A, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir