Hoppa yfir valmynd

Nr. 142/2019 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 27. mars 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 142/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19020012

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 5. febrúar 2019 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. janúar 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.

Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga auk 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 17. september 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann sama dag, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Grikklandi. Þann 24. september 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Grikklandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá grískum yfirvöldum, dags. 5. október 2018, synjuðu þau viðtöku kæranda þar sem honum hefði þegar verið veitt alþjóðlega vernd þar í landi og hefði gilt dvalarleyfi í Grikklandi til 7. júní 2021. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, m.a. þann 28. nóvember 2018, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað þann 14. janúar 2019 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 22. janúar 2019 og kærði kærandi ákvörðunina þann 5. febrúar 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 14. febrúar 2019 ásamt fylgigögnum. Þá bárust kærunefnd viðbótargögn 5. mars 2019. Kærunefnd veitti kæranda frest til 20. mars 2019 til þess að leggja fram frekari heilsufarsgögn. Frekari gögn bárust kærunefnd þann 26. mars 2019.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnun kom fram að kæranda hefði verið veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi og dvalarleyfi með gildistíma til 7. júní 2021. Umsókn hans um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Grikklands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Grikklands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun mótmælt því að vera sendur aftur til Grikklands en hann hafi lýst aðstæðum þar sem sérstaklega slæmum. Kærandi hafi verið heimilislaus og sofið í almenningsgörðum sem hafi gert hann berskjaldaðan fyrir árásum. Kærandi kveði sig óttast tengdafjölskyldu sína sem búi í Grikklandi en þau hafi ítrekað beitt hann ofbeldi frá því hann hafi gifst. Kærandi hafi leitað í þrígang til grísku lögreglunnar vegna líkamsárása fjölskyldunnar en lögreglan hafi brugðist þannig við að setja kæranda í fangelsi í tvo daga. Þá kveði kærandi að hann hafi þurft að leita sér matar í ruslatunnum, auk þess sem hann hafi mætt miklum fordómum frá almenningi og verið hent út af mörkuðum þegar hann hafi reynt að kaupa sér mat.

Kærandi kveður sig enn vera að jafna sig eftir árásir sem hann hafi orðið fyrir í Grikklandi og í [...]. Lögreglubíl hafi verið ekið yfir hann í Grikklandi með þeim afleiðingum að hann hafi [...]. Hafi honum í kjölfarið verið meinað um læknisaðstoð. Kærandi hafi einungis fengið aðstoð í Grikklandi eftir að hann hafi gert [...], en þá hafi hann verið [...] á [...]. Til að deyfa líkamlegan sársauka hafi kærandi [...]. Þá kveði kærandi andlega heilsu sína vera slæma. Þar að auki kveði kærandi sig hafa verið [...] í heimaríki, þar sem hann hafi verið barinn og honum gefið rafstuð.

Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna komi fram grunur um að kærandi þjáist af geðsjúkdómi eða hafi orðið fyrir [...]. Kærandi hafi þörf fyrir þjónustu geðlæknis, en kærandi hafi hins vegar verið ósamvinnuþýður og rokið út úr viðtali við geðlækni. Í símtali milli talsmanns kæranda og hjúkrunarfræðings á Göngudeild sóttvarna, sem vísað sé til í greinargerð kæranda, sé það mat hjúkrunarfræðings að kærandi noti [...] sem valdi minnisleysi hans. Þá hafi kærandi greint lækni á Göngudeild frá því að hann hafi lent í slagsmálum við lögreglu í heimaríki, en hann hafi barist um og fengið höfuðhögg. Hafi kærandi í kjölfarið legið í dái á sjúkrahúsi í einhvern tíma. Þá hafi læknir á Göngudeild sóttvarna hér á landi sent kæranda með sjúkrabíl á [...], en þar hafi kærandi verið [...] frá 10. febrúar sl. þar sem hann hafi verið metinn í mikilli [...].

Í greinargerð sinni gerir kærandi alvarlega athugasemd við það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki verið metinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi glími við mikla og alvarlega andlega vanlíðan, m.a. vegna þess ofbeldis sem hann hafi þurft að þola á lífsleiðinni. Þá vísi kærandi til þess að hann glími við [...] og hafi gert tilraun [...], svo sem áður segir. Kærandi hafi enn fremur upplifað mikið óöryggi í Grikklandi en hann sé sérstaklega berskjaldaður sem flóttamaður í landinu. Taki kærandi fram að hann hafi verið [...] ára þegar hann hafi komið til Grikklands. Þá sé ljóst af gögnum málsins að kærandi muni glíma við andlega erfiðleika til framtíðar. Telji kærandi engan vafa leika á því að kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji jafnframt fráleitt að Útlendingastofnun leggi til grundvallar að hann hafi ekki verið móttækilegur fyrir þeim úrræðum sem heilbrigðisstarfsfólk hér á landi hafi borið á borð fyrir hann, en kærandi hafi ítrekað lent á vegg þegar hann hafi sótt læknistíma á Göngudeild sóttvarna, s.s. vegna tungumálaörðugleika. Hann hafi einnig í eitt skipti, í reiðiskasti, hafnað sálfræðilegri meðferð. Hafi Útlendingastofnun borið að líta til framlagðra gagna í málinu, sem öll kveði við sama tón er varði alvarleika veikinda kæranda. Vísi kærandi í þessu sambandi til rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. einnig 23. og 25. gr. laga um útlendinga.

Kærandi telur það skjóta skökku við að Útlendingastofnun meti það sem svo að fyrirliggjandi gögn um heilsufar kæranda varpi nægjanlegu skýru ljósi á stöðu hans til að unnt sé að taka ákvörðun í málinu. Bendi kærandi á að þau gögn sem lögð hafi verið fyrir stofnunina hafi sterklega gefið til kynna að kærandi glími við alvarleg veikindi. Kærandi hafi margoft óskað eftir því að hitta sálfræðing en erfitt hafi verið að ná í túlk sem kærandi skilji. Auk þess bendi kærandi á að í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 19. október 2018, komi fram að hjúkrunarfræðingur telji kæranda þurfa „miklu meiri og aðra meðferð en sálfræðiþjónustu.“ Útlendingastofnun líti framhjá þessu og vísi einungis til þess að kærandi hafi notið ríks aðgengis að íslenskum heilbrigðisstofnunum. Telji kærandi þessa nálgun stofnunarinnar vera mikla einföldun á raunverulegum aðstæðum kæranda.

Þá telur kærandi að Útlendingastofnun gangi út frá því að þau skilyrði sem fram komi í 32. gr. a reglugerðar nr. 540/2017, með síðari breytingum, í tengslum við túlkun 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þurfi að vera uppfyllt til þess að sérstakar ástæður verði taldar vera uppi í málinu. Kærandi taki fram að þau viðmið sem sett séu fram í 32. gr. a reglugerðarinnar séu nefnd í dæmaskyni og því séu ekki tæmandi taldir þeir þættir sem taka beri tillit til við mat á því hvort sérstakar ástæður eigi við. Atriði sem talin séu upp í dæmaskyni geti ekki komið í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og hafi stofnuninni því borið að framkvæma slíkt heildarmat en ekki einungis að horfa til afmarkaðra og þröngra skilyrða í umræddri reglugerð.Kærandi telur að lýsingar hans á erfiðum aðstæðum sínum í Grikklandi séu í samræmi við heimildir um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks í Grikklandi, sem vísað er til í greinargerð kæranda. Ítreki kærandi þó að mikið skorti á fullnægjandi geðheilbrigðisþjónustu fyrir þessa hópa í Grikklandi.Kærandi byggir á því að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Vísi kærandi í því sambandi til lögskýringargagna að baki ákvæðinu, ummæla í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 81/2017 og túlkunar kærunefndar á þeim ummælum. Kærandi telji ljóst að ekki séu gerðar kröfur um að umsækjendur um alþjóðlega vernd glími við mikil og alvarleg veikindi til að uppi séu sérstakar ástæður í málum þeirra í skilningi laga um útlendinga. Það nægi að umsækjendur teljist vera einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Bendi kærandi á að í nýlegum úrskurðum kærunefndar virðist nefndin hafa horfið frá fyrri framkvæmd og ekki gefið sérstaklega viðkvæmri stöðu umsækjenda um alþjóðlega vernd aukið vægi við mat á sérstökum ástæðum. Þvert á móti geri kærunefnd kröfu um að veikindi séu mikil og alvarleg til að uppi teljist sérstakar ástæður í málum, sbr. úrskurð nr. 8/2019 frá 15. janúar 2019. Telji kærandi að af þessu misræmi megi ráða að reglugerð nr. 540/2017, með síðari breytingum, hafi meira vægi en lög um útlendinga við mat á því hvort sérstakar ástæður teljist vera í málum umsækjenda um alþjóðlega vernd. Bendir kærandi á að slíkt sé þvert á vilja löggjafans og markmiðum laga um útlendinga.Sökum viðkvæmrar stöðu sinnar telji kærandi ljóst að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Grikklandi verði hann sendur þangað. Vísi kærandi í því sambandi til úrskurðar kærunefndar nr. 393/2018 frá 27. september 2018, en kærandi telji að aðstæður sínar svipi til framangreinds úrskurðar. Með vísan til fyrri reynslu kæranda, andlegra kvilla hans og annarra heimilda um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttafólks í Grikklandi megi ljóst vera að kærandi verði fyrir alvarlegri mismunun, sbr. 32. gr. reglugerðar um útlendinga, í Grikklandi vegna stöðu sinnar. Óvíst sé hvort kærandi muni þola að verða endursendur til Grikklands vegna alvarleika veikinda hans.Krafa kæranda er enn fremur reist á 3. mgr. 36. gr., sbr. 42. gr. laga um útlendinga, sem mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement, sbr. einnig 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Af þeim upplýsingum sem greina frá aðstæðum þeirra einstaklinga sem hafa fengið alþjóðlega vernd í Grikklandi megi færa sterk rök fyrir því að þær aðstæður sem kærandi megi búast við þar í landi varðandi t.a.m. möguleika á húsnæði, framfærslu, aðgengi að menntun, heilbrigðis- og félagsþjónustu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Þá óskar kærandi eftir því að kærunefnd hlutist til um að aflað verði sálfræðimats á andlegu ástandi kæranda í ljósi áðurnefndrar umfjöllunar um sérstaklega viðkvæma stöðu kæranda.V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamálaÁkvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendingaÍ 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt a-lið 1. mgr. 36. gr. er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hafi umsækjandi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd eða annars konar vernd í öðru ríki eða ef hann, eftir að hafa dvalist í ríki þar sem hann þurfti ekki að sæta ofsóknum, gat óskað eftir því að fá viðurkennda stöðu sem flóttamaður og, ef hann var talinn flóttamaður, fengið vernd í samræmi við alþjóðasamning um stöðu flóttamanna.

Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt alþjóðleg vernd í Grikklandi þann 27. apríl 2018 og hefur gilt dvalarleyfi þar í landi til 7. júní 2021. Að mati kærunefndar felur sú vernd sem kærandi nýtur í Grikklandi í sér virka alþjóðlega vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi [...] ára gamall karlmaður sem kveðst vera kvæntur og eiga [...] son, en hann viti ekki hvar fjölskylda hans sé niðurkomin. Kærandi hefur meðal annars greint frá því í viðtölum að hann hafi verið beittur ofbeldi, glími við minnisleysi og hafi enga tilfinningu í [...].

Af læknisfræðilegum gögnum sem kærandi hefur lagt fram í málinu má sjá að kærandi hafi þurft að leita á geðdeild Landspítalans. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna kemur fram að kærandi hafi verið sendur á bráðaþjónustu geðsviðs þann 12. október 2018 vegna [...] og andlegrar vanlíðanar. Þar var kærandi metinn í [...] en hafi hafnað lyfjum. Í samskiptaseðlum, dags. 12. desember 2018, 28. og 30. janúar 2019, kemur fram að kærandi hafi verið greindur með [...] af völdum [...], [...] og [...] (e. [...]).

Í göngudeildarskrá geðdeildar, dags. 7. febrúar 2019, kemur fram að kærandi hafi verið fluttur á bráðaþjónustu geðsviðs í fylgd lögreglu en hann hafi [...]. Var kærandi [...] í [...] þann sama dag þar sem kærandi var metinn [...] og [...]. Í framhaldi var kærandi [...] í [...]. Í læknabréfi, dags. 15. febrúar 2019, kemur fram að við innlögn kæranda á [...] þann 7. febrúar sl. hafi hann verið metinn alvarlega þunglyndur og með [...] við komu. Hann hafi verið ógnandi og [...] auk þess sem hann hafi verið í [...] í aðdraganda komu. Í læknabréfinu kemur fram að að líðan kæranda hafi farið hratt batnandi og [...]. Hann sé í [...] og hafi fengið ávísað þunglyndislyfjum. Kærandi hafi verið útskrifaður af [...] þann sama dag og þá hafi ekki borið á neinum [...] einkennum síðustu tvo sólarhringa og ekki haft neina [...]. Þá mætti kærandi á [...] þann 27. febrúar sl. þar sem félagsráðgjafi mat kæranda ekki lengur [...] né [...], auk þess sem engin [...] kæmu fram. Samkvæmt nýjustu gögnum málsins hefur kærandi verið í lyfjameðferð hjá lækni á Göngudeild sóttvarna.

Í greinargerð kæranda er farið þess á leit við nefndina að hún hlutist til um að framkvæmt verði sálfræðilegt mat á kæranda. Í ljósi umfangs og eðlis þeirra gagna sem lágu fyrir um heilsu kæranda hjá kærunefnd taldi nefndin ekki tilefni til þess að leggjast í gagnaöflun að eigin frumkvæði um andlega heilsu hans.

Að mati kærunefndar er ljóst, með vísan til fyrirliggjandi heilsufarsgagna, að veikindi kæranda séu þess eðlis að hann hafi sérþarfir sem taka þurfi tillit til. Það er því mat kærunefndar að kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður í Grikklandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Grikklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2017 – Country Reports on Human Rights Practices – Greece (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Greece (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Asylum Information Database, National Country Report: Greece (European Council on Refugees and Exiles, mars 2018),
  • Commissioner for Human Rights: Report of the Commissioner for Human Rights of the Council of Europe, Dunja Mijatovic, following her visit to Greece from 25 to 29 June 2018 (Council of Europe, 6. nóvember 2018),
  • ECRI Report on Greece (fifth monitoring cycle) (European Commission against Racism and Intolerance, 24. febrúar 2015),
  • EU/Greece: Pressure to Minimize Number of Migrants Identified as ´vulnerable´ (Human Rights Watch, 1. júní 2017),
  • Freedom in the World 2018 – Greece (Freedom House, 1. ágúst 2018);
  • Greece as a Country of Asylum – UNHCR‘s Recommendations (UNHCR, 6. apríl 2015),
  • Migration Flows and Refugee Protection – Administrative challenges and human rights issues (The Greek Ombudsman, apríl 2017),
  • Petition to the European Parliament – Regarding degrading reception conditions and EU funding in Greece (Solidarity Now, mars 2017),
  • Reports of the Special Rapporteur on the human rights of migrants on his mission to Greece, (United Nations, General Assembly, 24. apríl 2017),
  • State of the World‘s Minorities and Indigenous Peoples 2016 – Greece (Minority Rights Group International, 12. júlí 2016),
  • UNHCR observations on the current asylum system in Greece (UNHCR, desember 2014) og
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 19. janúar 2019).

Af framangreindum gögnum má sjá að grísk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur m.a. bent á þau neikvæðu áhrif sem efnahagur Grikklands hefur haft á aðstæður einstaklinga sem hafa hlotið alþjóðlega vernd þar í landi og möguleika þeirra á að aðlagast grísku samfélagi. Að mati kærunefndar er ljóst af framangreindum gögnum að þeir einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi lifa oft á jaðri samfélagsins og búa í sumum tilvikum við félagslega einangrun. Einstaklingar með alþjóðlega vernd eiga hins vegar sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar og í dvalarleyfi þeirra felst nú jafnframt sjálfkrafa aðgangur að vinnumarkaði. Þá veita frjáls félagasamtök einstaklingum með alþjóðlega vernd aðstoð við að kynna sér réttindi sín í Grikklandi.

Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi eiga rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi hefur bág fjárhagsstaða gríska ríkisins haft mikil áhrif á heilbrigðiskerfi landsins og hefur kostnaðarþátttaka almennings aukist við kaup á lyfjum og þjónustu. Þannig geti verið vandkvæðum bundið að sækja sér heilbrigðisþjónustu í Grikklandi og þá sérstaklega sérhæfða heilbrigðisþjónustu, m.a. vegna skorts á fjármagni og starfsfólki. Á þetta jafnt við um alla borgara Grikklands, bæði gríska ríkisborgara og aðra sem hafa rétt til dvalar í ríkinu.

Sem fyrr segir eiga einstaklingar með alþjóðlega vernd sama rétt til félagslegrar aðstoðar og grískir ríkisborgarar en aðgengi þeirra að húsnæði er háð sömu skilyrðum og takmörkunum og aðgengi annarra ríkisborgara þriðju ríkja með löglega dvöl í Grikklandi. Fá gistiskýli eru í boði fyrir heimilislausa auk þess sem ekkert húsnæði er til staðar sem einungis er ætlað einstaklingum með alþjóðlega vernd. Erfitt getur reynst að fá pláss í gistiskýlum þar sem aðsóknin er mikil og eru dæmi um að einstaklingar með alþjóðlega vernd hafist við í yfirgefnum húsum við mjög bágar aðstæður. Á þetta einnig við um einstaklinga sem hafa verið sendir til Grikklands frá öðrum Evrópuríkjum.

Í framangreindum gögnum kemur fram að grísk yfirvöld veiti einstaklingum með alþjóðlega vernd sem búa undir fátæktarmörkum fjárhagsaðstoð í formi mánaðarlegra greiðslna. Einstaklingar sem hyggjast nýta sér úrræðið þurfa að uppfylla ýmis skilyrði og má sem dæmi nefna að þeir þurfa að hafa kennitölu, skattnúmer, gilt dvalarleyfi og bankareikning. Þá þurfa þeir m.a. að framvísa leigusamningi í þeim tilvikum þegar þeir búa í leiguhúsnæði og í tilviki heimilislausra einstaklinga þurfa þeir að framvísa vottorði um heimilisleysi frá gistiskýlinu eða sveitarfélaginu þar sem þeir búa. Þá kemur fram í fyrrnefndum gögnum að engin sérúrræði eru til staðar varðandi félagsþjónustu fyrir fólk í viðkvæmri stöðu, s.s. þolendur pyndinga.

Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að dæmi séu um að flóttafólk sé beitt ofbeldi, þ. á m. af hendi grísku lögreglunnar. Þá kemur fram að þarlend lög og stjórnarskrá leggi bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Enn fremur séu ofbeldisbrot rannsökuð af grísku lögreglunni en embætti umboðsmanns rannsaki meint brot lögreglu. Af framangreindri skýrslu verður ráðið að ýmsir annmarkar séu á dómskerfi landsins en sjálfstæði dómstóla sé tryggt í framkvæmd, svo og réttindi brotaþola og sakborninga. Þá kemur fram á vefgátt um evrópsk réttarkerfi (e. European e-Justice Portal) að útlendingar í Grikklandi sem séu þolendur glæpa og tali hvorki né skilji grísku eigi rétt á túlkaþjónustu og upplýsingum um mál þeirra á tungumáli sem þeir skilji.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016.

Í ákvörðun í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013 fjallaði dómstóllinn um endursendingar einstaklinga til ríkja þar sem þeir hafa hlotið alþjóðlega vernd. Í ákvörðuninni kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við slíka endursendingu nái ekki alvarleikastigi 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóta alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem stendur til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að valda broti á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæltu gegn endursendingu.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í Grikklandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í Grikklandi telur kærunefnd að tryggt sé að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Hefur kærandi m.a. borið fyrir sig að aðstæður hans í Grikklandi hafi verið slæmar, hann hafi verið heimilislaus og lögreglan hafi margoft handtekið hann og aðra flóttamenn og beitt þá ofbeldi. Þá kvaðst kærandi óttast ofbeldi af hálfu tengdafjölskyldu sinnar, hann hafi leitað til lögreglu vegna þess en viðbrögð lögreglu hafi verið að fangelsa kæranda sjálfan í tvo daga. Kærandi hafi þá einnig borið fyrir sig að hafa orðið fyrir miklum fordómum í Grikklandi.

Þrátt fyrir aðgangshindranir sem lýst hefur verið hér að framan hefur kærandi heimild til að stunda atvinnu í Grikklandi og á rétt á félagslegri aðstoð til jafns við gríska ríkisborgara. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að kærandi geti leitað ásjár grískra yfirvalda, verði hann fyrir mismunun á grundvelli kynþáttar þar í landi. Má jafnframt ráða af fyrirliggjandi gögnum að óttist kærandi um öryggi sitt í Grikklandi geti hann leitað til lögreglu eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Að mati kærunefndar bera gögn málsins því ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Svo sem áður hefur komið fram þá hefur kærandi glímt við andleg veikindi og leitað sér heilbrigðisþjónustu hjá geðdeild Landspítala en hann hefur meðal annars verið [...] á [...] fyrr á þessu ári. Af heilsufarsupplýsingum sem liggja fyrir í málinu má ráða að kærandi er nú ekki í innlögn á sjúkrastofnun vegna veikinda sinna. Þá kemur m.a. fram í gögnum frá [...] að kærandi sé ekki lengur [...] né [...], sbr. nóta frá 27. febrúar 2019. Þá kemur fram í læknabréfum frá 6. og 19. mars sl. að kærandi hafi verið í lyfjameðferð hjá lækni á Göngudeild sóttvarna en af gögnunum má ráða að framhald meðferðarinnar sé m.a. háð fylgni kæranda við hana. Af framburði kæranda svo og af gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Grikklandi, verður ráðið að kærandi eigi rétt á endurgjaldslausri grunnheilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu og nauðsynlegum lyfjum. Í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti fengið viðhlítandi aðstoð í Grikklandi vegna heilsufarsvandamála sinna. Því telur kærunefnd gögn málsins ekki benda til þess að kærandi glími við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 393/2018 frá 27. september 2018. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í áðurgreindum úrskurði í ljósi einstaklingsbundinna aðstæða kærenda í því máli, einkum þar sem um var að ræða fjölskyldu með börn þar sem konan var jafnframt barnshafandi.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 28. nóvember 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 17. september 2018.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 15. september 2018. Samkvæmt gögnum málsins sótti hann um alþjóðlega vernd þann 17. september 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin. 

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                                    Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta