Mannanafnanefnd, úrskurður 8. mars 2010
Mál nr. 15/2010 Eiginnafn: Þórar
Hinn 8. mars 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 15/2010:
Eiginnafnið Þórar (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Þórars, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Þórar (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.