Mannanafnanefnd, úrskurður 10. mars 2010
Mál nr. 16/2010 Eiginnafn: Kira
Hinn 10. mars 2010 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 16/2010:
Eiginnafnið Kira (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Kiru, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Kira (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.