Hoppa yfir valmynd

Nr. 570/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. nóvember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 570/2019

í stjórnsýslumálum nr. KNU19090030 og KNU19090031

 

Kæra […]

[…]

og barna þeirra

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 17. september 2019 kærðu […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir K) og […], fd. […], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 27. ágúst 2019 um að synja kærendum og börnum þeirra, […], fd. 5. janúar 2007, ríkisborgari Nígeríu (hér eftir A) og […], fd. 2. september 2010, ríkisborgari Nígeríu (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærendur krefjast þess aðallega að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kærendum og börnum þeirra verði veitt staða flóttamanna með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kærendum og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara er þess krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að kærendum og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Þá vísa kærendur til þess að skv. 2. mgr. 45. gr. laga um útlendinga eigi maki útlendings sem njóti alþjóðlegrar verndar og börn hans yngri en 18 ára rétt á alþjóðlegri vernd.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

K og börn kærenda sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi þann 26. september 2018. M sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þann 14. október 2018. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun m.a. þann 10. og 12. júlí 2019 ásamt talsmanni sínum. Viðtal við A fór fram í Barnahúsi þann 19. mars 2019. Með ákvörðunum, dags. 27. ágúst 2019, synjaði Útlendingastofnun kærendum og börnum þeirra um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Voru ofangreindar ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála þann 17. september 2019. Kærunefnd barst greinargerð kærenda þann 30. september 2019. Viðbótargögn bárust kærunefnd þann 11. og 30. október og 25. nóvember 2019. Í greinargerð óskaði kærandi eftir að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd annars vegar á því að M sé í hættu í heimaríki vegna skuldar við glæpahópinn Black Axe sem stundi fíkniefnasölu og mansal og hafi lánað M fé á Ítalíu sem hann hafi ekki greitt til baka. Hins vegar sé K í hættu vegna þess að hún óttist manninn sem hafi þvingað hana í vændi og sé í hættu á endurteknu mansali. Þá óttist K að hún og dóttir hennar eigi á hættu kynfæralimlestingar í heimaríki.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur séu ekki flóttamenn og þeim skuli synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi skv. ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli A kom fram að í ljósi framburðar kærenda í viðtölum við Útlendingastofnun hefði verið talið tilefni til að taka viðtal við A. Viðtal við A fór fram í Barnahúsi þann 19. mars 2019. Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli B kom fram að barnið væri svo ungt að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við það. Fram kom að umsókn B væri grundvölluð á framburði foreldra þess og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum foreldra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að börnum kærenda væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis. Börnum kærenda var vísað frá landinu.

Kærendum var vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun tilkynnti kærendum jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð kærenda kemur fram að kærendur séu handhafar ótímabundinna dvalarleyfa á Ítalíu en þau hafi dvalið þar í landi frá árinu 2001. Bæði börn kærenda hafi fæðst á Ítalíu. Fram kemur að kærendur hafi kynnst í lest á Ítalíu árið 2002 eða 2003, gengið í hjónaband og síðar eignast A og B. K hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún hafi þurft að flýja heimaríki sitt þegar hún hafi verið 19 ára gömul þar sem fjölskylda hennar hafi ætlað að láta umskera hana. Hún hafi borgað manni til að aðstoða sig við að yfirgefa landið en hann hafi útvegað henni vinnu í Egyptalandi þar sem hún hafi dvalið í tvö ár. Maðurinn hafi fengið hana til sverja eið um að hún myndi greiða skuldina til baka og síðar sent hana til Ítalíu þar sem hún hafi verið þvinguð í vændi. Eftir að K hafi hitt M hafi hún sagt manninum sem hafi þvingað hana í vændi að hún myndi ekki greiða honum meiri peninga. Hafi maðurinn þá sagt að hún myndi þurfa að greiða upp skuld sína ef hann myndi hitta hana í Afríku. K óttist að fjölskylda hennar muni láta umskera sig og dóttur sína verði þeim vísað aftur til Nígeríu. Auk þess óttist hún manninn sem hafi selt hana í vændi á Ítalíu. Í greinargerð kærenda kemur ennfremur fram að M hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að honum hafi margsinnis verið hótað af glæpasamtökum sem kalli sig Black Axe. M hafi boðist að ganga til liðs við samtökin þegar hann hafi verið í skóla árið 1991 en hætt við þar sem hann hafi átt að drepa mann úr öðru gengi. Hann hafi í kjölfarið hætt í skóla vegna hræðslu við gengið og fengið vinnu í borginni Benín. Gengið hafi komist að því hvar M var niðurkominn og byrjað að hóta honum. Árið 2001 hafi M yfirgefið Nígeríu og flúið til Ítalíu. Þegar faðir M hafi látist í desember 2016 hafi M þurft að fara til Nígeríu til þess að vera viðstaddur útför hans. M hafi ekki haft efni á ferðinni og því leitað til Black Axe og fengið lán. Honum hafi verið fylgt af meðlimum samtakanna til Nígeríu og meðlimir samtakanna verið viðstaddir jarðaförina. Við endurkomu M til Ítalíu hafi samtökin reynt að fá hann til að selja fíkniefni til þess að greiða skuldina. M hafi ekki viljað gera það vegna ótta um öryggi barna sinna. Í greinargerð kærenda kemur fram að nágranni fjölskyldunnar á Ítalíu hafi misnotað A kynferðislega á meðan M hafi verið við útför föður síns í Nígeríu og K hafi verið í vinnunni. M óttist um líf sitt og heilsu fjölskyldunnar. M sé þunglyndur, áhyggjufullur og fái kvíðaköst. Þá þjáist K af sykursýki og þurfi á lyfjum að halda og A sé með astma. Kærendur geti ekki leitað til lögreglu í Nígeríu þar sem hún sé verulega spillt.

Í greinargerð kærenda er fjallað almennt um aðstæður í Nígeríu, m.a. um alvarleg mannréttindabrot, spillingu innan stjórnkerfisins, bága stöðu kvenna, háa tíðni kynfæralimlestinga gagnvart konum og stúlkum, mansal sem skipulagða glæpastarfsemi, mikinn fjölda glæpagengja í líkingu við Black Axe, útbreitt ofbeldi gagnvart börnum og skort á heilbrigðisþjónustu. Kærendur vísa til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Í greinargerð er fjallað um hagsmuni barna kærenda. Börn kærenda hafi aldrei farið utan Evrópu og eigi engin tengsl við Nígeríu fyrir utan uppruna foreldra sinna. Börn teljist ávallt til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og sé íslenskum stjórnvöldum skylt að hafa ávallt það sem barni sé fyrir bestu í forgangi þegar teknar séu ákvarðanir um málefni þess. Kærendur vísa til ákvæða barnalaga nr. 76/2003, barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, laga um útlendinga og tilskipana Evrópusambandsins nr. 2011/95/EB, 2013/33/EB og 2013/32/EB. Þá vitna kærendur til þess að í fjölda alþjóðlegra sáttmála sé kveðið á um vernd fjölskyldunnar og rétt barna til að vera með foreldrum sínum. Mikilvægt sé að veita börnunum vernd í öruggu umhverfi þar sem þau þurfi ekki að óttast frekari ofsóknir eða ofbeldi.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi, skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Rekja megi ástæðu flótta K til þess að hún hafi orðið fyrir tilraun til nauðgunar og fjölskylda hennar þá greint frá fyrirætlunum sínum um að umskera hana enda hafi fjölskyldan hennar talið að reynt hafi verið að nauðga henni vegna þess að hún hafi ekki verið umskorin. Í kjölfarið hafi hún flúið og síðar verið þvinguð í vændi á Ítalíu. Kærendur komi frá borginni […] þar sem mansalsstarfsemi sé mikil. K óttist manninn sem hafi þvingað hana í mansal auk þess sem kærendur hafi ekkert stuðningsnet í heimaríki sínu. K, ásamt dóttur sinni, sé því berskjölduð fyrir því að sæta mansali við endursendingu til Nígeríu. Til stuðnings kröfu sinni vísa kærendur til athugasemda með frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga nr. 80/2016 ásamt nýlegri ákvörðun Útlendingastofnunar í máli 2018-10936. Í ljósi þessa megi rekja ótta K við ofsóknir til aðildar hennar að tilteknum þjóðfélagshópi, þ.e. nígerískra kvenna sem séu þolendur mansals. Þá myndi nígerískar konur sem eigi á hættu kynfæralimlestingar einnig sérstakan þjóðfélagshóp og tilheyri K og dóttir hennar þeim þjóðfélagshópi, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá sé einnig um að ræða samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafi eða geti haft sömu áhrif á einstakling og ofsóknir skv. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá sé ljóst að nígerísk yfirvöld geti ekki eða vilji ekki veita þolendum mansals tilskilda vernd og því beri að leggja til grundvallar að yfirvöld í Nígeríu hafi hvorki vilja né getu til að veita kærendum þá vernd sem þau þurfa gagnvart ofsóknaraðilum sínum, sbr. c-lið 4.m gr. 38. gr. sömu laga.

Kærendur telja að með endursendingu þeirra til Nígeríu yrði brotið gegn meginreglunni um non-refoulement, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun muni brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefjast kærendur þess til vara að þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur fjalla í greinargerð um inntak ákvæðisins með vísan til lögskýringargagna máli sínu til stuðnings. Kærendur eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. K stafi ógn af manninum sem hafi þvingað hana í vændi, auk þess sem hún óttist að hún og dóttir hennar A verði kynfæralimlestar verði þær sendar aftur, enda hafi K þurft að flýja þaðan vegna áforma fjölskyldu hennar um að umskera hana. Þá hafi M flúið heimaríki sitt vegna hótana glæpagengisins Black Axe sem hann skuldi peninga vegna ferðar sinnar til Nígeríu árið 2017. Kærendur treysti ekki lögreglunni í Nígeríu sökum spillingar, auk þess sem yfirvöld skorti getu og vilja til að stemma stigu við árásum þeirra og veiti því ekki borgurum nauðsynlega vernd gegn þeim. Með vísan til framangreinds sé ljóst að kærendur uppfylli skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga enda eigi þau á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð af hálfu fjölskyldu K og glæpagengisins Black Axe. Kærendur eigi í hættu á að hljóta alvarlegan skaða verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá sé ekki raunhæft að kærendur geti leitað nokkurrar verndar hjá yfirvöldum sökum spillingar.

Til þrautavara krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ákvæðið heimili veitingu slíks dvalarleyfis þegar útlendingur geti sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Kærendur vísa til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að útlendingalögum. Þar komi m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og tekið sem dæmi viðvarandi mannréttindabrot og sú aðstaða að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Þá segi í athugasemdum að til greina komi að minni kröfur séu gerðar til að börn njóti verndar og fái dvalarleyfi á grundvelli 74. gr., eigi þau ekki rétt á dvalarleyfi á öðrum grundvelli. Í greinargerð kærenda kemur fram að mikið sé um vegalausa einstaklinga innan Nígeríu og kynnu kærendur og börn þeirra að standa frammi fyrir því að enda vegalaus og fá m.a. ekki notið nauðsynlegrar heilbrigðisþjónustu. K sé greind með sykursýki og þurfi því á lyfjum og heilbrigðisþjónustu að halda en skortur og ójafnt aðgengi sé að læknisaðstoð og heilbrigðisstarfsfólki í Nígeríu, auk þess sem takmarkaður aðgangur sé að læknismeðferðum. Þá telji kærendur framfærslu barnanna sinna ekki vera örugga í heimaríkinu og því verði að telja það börnunum fyrir bestu að vera veitt vernd hér á landi.

Í greinargerð kærenda koma fram ýmsar athugasemdir við ákvarðanir Útlendingastofnunar, m.a. hvernig trúverðugleikamati hafi verið háttað og að stofnunin hafi stuðst við óuppfærðar heimildir við ákvörðun málanna. Þá hafi Útlendingastofnun litið framhjá ákvörðun sinni í öðru máli sem sé afar sambærilegt máli kærenda.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað nígerískum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og börn þeirra séu nígerískir ríkisborgarar.

Réttarstaða barna kærenda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd með foreldrum sínum og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2017/18 – Nigeria (Amnesty International, 22. febrúar 2018);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, 28. mars 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (FGM) (U.K. Home Office, 13. ágúst 2019);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Medical and Healthcare issues (U.K. Home Office, 28. ágúst 2018);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, 4. júlí 2019);
  • Country Profile: FGM in Nigeria (28 Too Many, október 2016);
  • EASO COI Meeting Report – Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 1. ágúst 2017);
  • EASO Country Guidance – Nigeria – Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Actors of Protection (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO Country of Origin Information Report – Nigeria – Country Focus (European Asylum Support Office, júní 2017);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Security Situation (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Sex trafficking of women (European Asylum Support Office, október 2015);
  • EASO – Country of Origin Information Report – Nigeria – Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • Freedom in the World 2019 – Nigeria (Freedom House, 4. febrúar 2019);
  • Information on trafficking including, situation for returnees of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • Nigeria 2018 Human Rights Report (US Department of State, 13. mars 2019);• Nigeria: Returforhold for kvinner som har arbeidet i prostitusjon i Europa (Landinfo, 20. mars 2017);
  • Nigeria: The Black Axe confraternity, also known as the Neo-Black Movement of Africa, including their rituals, oahts of secrecy, and use of symbols or particular signs; whether they use force to recruit individuals (2009-November 2012) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. desember 2012) og
  • World Report 2019 – Nigeria (Human Rights Watch, janúar 2019).

Nígería er sambandslýðveldi með rúmlega 203 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðalögreglunnar (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslu evrópsku flóttamannastofnunarinnar frá 2017 séu nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi gerst uppvísir af því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá hafi mannréttindasamtök greint frá því að u.þ.b. 100.000 lögregluþjónar hafi veitt efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun á lögreglumönnum sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar en þó tíðkist í miklum mæli að leysa slík mál á óformlegan hátt. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Mútuþægni sé víðfeðmur vandi í ríkinu og samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2018 hafi stofnanir sem annist kvörtunarmál í ríkinu greint frá uppsögnum lægra settra lögreglumanna vegna kvartana almennings um fjárkúganir af hálfu starfsmannanna. Þó hafi fá mál verið rannsökuð eða farið fyrir dómstóla. Fram kemur í ofangreindum gögnum að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkiráðuneytisins frá 2017 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu standi þeim sem óttist einstaklinga sem starfi ekki fyrir ríkið almennt til boða skilvirk vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu og er almennt talið að um sé að ræða skilvirkt úrræði fyrir borgara Nígeríu.

Í ofangreindum gögnum kemur fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram kemur að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur fært að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti reyna koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo hefur NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benin, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri and Markudi. Þá kemur fram í skýrslum að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. Hafi NAPTIP unnið með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP einatt útskúfaðar úr samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoð við aðlögun að samfélaginu. Þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi í hefndaraðgerðum. Lögreglan í ríkinu hafi þó almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn.

Samkvæmt ofangreindum gögnum er umskurður á konum og stúlkubörnum útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengast sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi á milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 0-14 ára sé um 15-25%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurða. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo fylki þar sem kærendur höfðu búsetu. Þar mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega 8 þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmi umskurð á konum eða stúlkum. Fram kemur í ofangreindum gögnum að í sumum tilfellum álíti lögreglan í Nígeríu umskurð kvenna vera einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við umskurði kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar í Nígeríu hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaáætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moskna, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema umskurð kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að verknaðurinn sé enn löglegur í sumum fylkjum, skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.

Þá kemur fram í framangreindum gögnum að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt árið 2003 lög um réttindi barnsins (e. the Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið samþykki löggjöfina heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis að samþykkja lagasetninguna til þess að hún taki gildi í hverju fylki. Árið 2016 hafi 24 fylki af 36 tekið lögin í gildi og séu flest þeirra í suðurhluta Nígeríu m.a. Edo fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu.

Framangreind gögn bera með sér að mikið sé um leynileg glæpasamtök og bræðralög í Nígeríu. Algengt sé að slík samtök séu á skólalóðum en þau stundi einnig umfangsmikla glæpastarfsemi fyrir utan háskólasvæðin. Samtökin séu þekktust fyrir ógnandi hegðun og ofbeldi gagnvart nemendum, kennurum, lögreglu og öðrum samtökum. Dæmi séu jafnvel um að stjórnmálamenn ráði slík samtök til þess að beita andstæðinga sína ofbeldi. Eitt alræmdasta bræðralagið séu samtökin Black Axe og sé meginmarkmið samtakanna skipulögð glæpastarfsemi. Bera heimildir með sér að starfsemi þeirra nái til Ítalíu og víðar um Evrópu. Fram kemur að samtök og bræðralög sem þessi séu bönnuð samkvæmt stjórnarskránni. Þá hafi þau einnig verið bönnuð með lögum sem samþykkt hafi verið árið 2004, Secret Cult and Cult Related Activities (Prohibition) Bill. Talið sé að ef aðilar neiti að ganga í slík samtök eða reyni að ganga úr þeim þá geti þeir orðið fyrir ofbeldi. Þó séu samtök sem þessi ekki jafn áhrifamikil og þau hafi verið áður fyrr. Heimildir bera þá með sér að lögregla ákæri fyrir glæpi sem framdir séu af hópum og samtökum líkt og fyrir hvern annan glæp. Lögregluyfirvöld hafi í fjölda tilfella handtekið einstaklinga sem séu tengdir slíkum samtökum.

Samkvæmt ofangreindum gögnum er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan- og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum bæjaryfirvalda, annað stigið sé starfækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt en talið sé að allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki aðgang að lyfjum. Fram kemur að þrátt fyrir ofangreindan skort sé í boði meðferð við sykursýki á opinberum spítölum í landinu, þá einkum á þéttbýlli svæðum. Samkvæmt ofangreindum gögnum sé þá töluverður fjöldi opinberra og einkarekinna sjúkrahúsa í Nígeríu sem bjóði upp á sálfræðiþjónustu. Flest sjúkrahúsin séu staðsett í borgum og þéttbýli og meðferð sé aðgengileg á öllum geðvandamálum. Þá séu einnig reknar opinberar stofur þar sem hægt sé að fá þjónustu geðlækna, geðhjúkrunarfræðinga og sálfræðinga. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. útlendingalaga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærendur byggja umsókn sína á því að K og dóttir kærenda, A, hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir sem rekja megi til aðildar þeirra að tilteknum þjóðfélagshópi, þ.e. kvenna sem eigi á hættu kynfæralimlestingu. Þá sé K einnig þolandi mansals og sé í hættu á að verða fyrir endurteknu mansali. Auk þess hafi M ástæðuríkan ótta við að verða ofsóttur vegna samskipta hans við glæpasamtökin Black Axe í heimaríki. Einnig sé um að ræða samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafi sömu áhrif á kærendur og ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og þau geti ekki leitað ásjár yfirvalda í heimaríki, sbr. c-lið 4.m gr. 38. gr. sömu laga.

Með vísan til þess sem fram hefur komið í málinu fellst kærunefnd á að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að K hafi um tíma verið þolandi mansals og verið neydd til að stunda vændi á Ítalíu. Þá verður einnig lagt til grundvallar að M hafi átt í einhvers konar samskiptum við glæpasamtökin Black Axe í heimaríki.

Meðal þeirra gagna sem kærendur lögðu fram hjá Útlendingastofnun voru fjögur myndbönd sem M kveður að tekin hafi verið við útför föður hans í Nígeríu og sýni meðlimi Black Axe spila spil á kistu föður hans. Útlendingastofnun taldi ekki hafa verið sýnt fram á að um væri að ræða jarðarför föður M. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði M fram ýmis skjöl þann 30. september 2019 í tengslum við útför föður síns og yfirlýsingu máli sínu til stuðnings. Þá lagði M fram annað myndband þann 11. október 2019 sem hann kveður sýna meðlim Black Axe vera að hóta sér. Í ljósi framlagðra gagna hjá kærunefnd telur nefndin ekki ástæðu, eins og atvikum er háttað í þessu máli, til þess að draga í efa frásögn M þess efnis að um útför föður hans hafi verið að ræða. Ekki hefur þó verið sýnt fram á að mennirnir í framlögðum myndböndum sem sjást spila spil við kistu föður M séu meðlimir glæpasamtakanna Black Axe. Þá hefur ekki verið sýnt fram á að sá einstaklingur sem kemur fram á myndbandi og virðist hóta M sé meðlimur Black Axe en ekkert hefur komið fram í málinu sem styður við trúverðugleika myndbandsins. Að mati kærunefndar hafa myndböndin því ekki þýðingu í málinu og verða þau af þeim sökum ekki talin styðja við málsástæður kærenda. Í skjali sem kærunefnd barst þann 30. september 2019 greindi M frá því að ótta hans megi að mestu leyti rekja til samskipta hans við glæpasamtökin Black Axe árið 2017 en ekki til fyrri samskipta hans við samtökin árið 1991. Einnig greindi M frá því að hann hafi ekki vitað að það hefðu verið glæpasamtökin Black Axe sem hefðu lánað honum peninga fyrir ferðalaginu til Nígeríu árið 2017 þar sem honum hafi verið sagt af manninum sem benti honum á samtökin að um væri að ræða lánveitendur. Sú frásögn M er þó ekki í samræmi við frásögn hans í viðtali hjá Útlendingastofnun þar sem hann greindi frá því að hafa leitað til Black Axe sem hafi aðstoðað hann og jafnframt sagt M að hann yrði að borga þeim til baka og ganga til liðs við þá. Í viðtali M hjá Útlendingastofnun kvað M hafa leitað til lögreglu á Ítalíu vegna glæpasamtakanna Black Axe en að hún hafi ekki aðhafst. M greindi þá frá því í áðurnefndu skjali að meðlimir glæpasamtakanna hafi verið viðstaddir útför föður síns í Nígeríu en um hafi verið að ræða aðra menn en þá sem hann hafi átt í samskiptum við árið 1991, fyrir utan einn eldri mann sem M kvað hafa verið við stjórn. M greindi þó ekki frá nafni meints aðila og lagði ekki fram frekari gögn frásögn sinni til stuðnings. Af þeim sökum og í ljósi misræmis í framburði M telur kærunefnd frásögn hans um samskipti hans við samtökin árið 2017 ótrúverðuga og verður hún ekki lögð til grundvallar við úrlausn málsins. Kærunefnd telur þó ekki hægt að útiloka að M hafi átt í einhverjum samskiptum við glæpasamtökin í heimaríki í gegnum tíðina en ekki á þann hátt að það kunni að leiða til alþjóðlegrar verndar.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst K vera hrædd um að stórfjölskylda hennar myndi reyna aftur að umskera hana og þvinga hana til þess að umskera dóttur sína. K óttist einnig að hitta manninn sem hafi þvingað hana í vændi. Kærunefnd óskaði eftir skýringum frá K þann 22. nóvember 2019 vegna stimpils í vegabréfi hennar sem sýnir að hún hafi ferðast til Nígeríu í mars 2013. Í viðtali hjá Útlendingastofnun minntist K ekki á fyrrgreinda ferð og var hún jafnfram ekki spurð út í ferðalagið. Kvaðst K þó ekki hafa komið til Nígeríu í langan tíma. Í svari sem kærunefnd barst frá K þann 25. nóvember 2019 greindi hún frá því að hún hafi heimsótt heimabæ sinn […] í Nígeríu og dvalið þar í þrjár vikur vegna veikinda móður sinnar. Móðir hennar hafi fengið slag og sé bundin við hjólastól. Lagði K m.a. fram nokkrar myndir af konu í hjólastól sem hún kvað vera af móður sinni. K kvaðst hafa verið í felum og passað upp á öryggi sitt en einungis hafi móðir hennar og systir vitað af dvöl hennar í Nígeríu. Þá hafi hún endurnýjað vegabréfið sitt á meðan dvöl hennar stóð þar sem það hafi verið ódýrara en að gera það á Ítalíu.

Samkvæmt ofangreindum skýrslum sem kærunefnd hefur kynnt sér geta konur sem eiga á hættu umskurð myndað sérstakan þjóðfélagshóp í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Við mat á því hvort að konur og stúlkur hafi almennt ástæðuríkan ótta við umskurð skal samkvæmt framangreindum skýrslum m.a. líta til aldurs, þjóðernishóps þeirra, viðhorfs foreldra þeirra, menntunar og baklands þeirra. Tíðni umskurða á konum og stúlkum sé oft tengd siðum innan þeirra ættbálka sem þær tilheyri. Aðspurð í viðtali hjá Útlendingastofnun hvort K tilheyrði þjóðfélagshópi kvaðst hún ekki tilheyra neinum sérstökum ættbálki í Nígeríu. M kvaðst tilheyra ættbálknum Benin. Rannsókn kærunefndar leiddi ekki í ljós að sérstakur siður væri innan ættbálksins Benin varðandi umskurð kvenna. Þá kemur fram í ofangreindum skýrslum að líkurnar á umskurði séu mestar hjá stúlkum sem séu undir 5 ára aldri en líkurnar fari minnkandi eftir það. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst K ekki óttast móður sína eða systur en sé hrædd um að stórfjölskyldan láti umskera sig og dóttur sína. Í ofangreindum skýrslum kemur fram að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum stúlknanna en nánir ættingjar geti stundum haft áhrif á ákvörðunina. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis. Það liggur fyrir að foreldrar K létu ekki umskera hana sem barn og af því og framburði K má því ráða að viðhorf foreldra K gagnvart umskurði kvenna sé neikvætt. Þá liggur jafnframt fyrir að vilji kærenda sé að koma í veg fyrir að dóttir þeirra verði umskorin af stórfjölskyldu K. Aðspurð hvort stórfjölskylda hennar hafi þá haft samband við hana kvað K svo ekki vera. Kærendur kváðust bæði vera frá Edo fylki en samkvæmt ofangreindum gögnum var fylkið það fyrsta í Nígeríu til þess að leggja bann við umskurði kvenna en aðgerðin var bönnuð í október 1999. Þá hafi yfirvöld í samstarfi með frjálsum félagasamtökum og Sameinuðu þjóðunum unnið að því að afnema umskurð kvenna. Með vísan til þess sem fram hefur komið er það mat kærunefndar að K og dóttir kærenda, A, hafi ekki ástæðuríkan ótta við að verða þolendur umskurðar í heimaríki sínu.

Við mat á því hvort að konur hafi almennt ástæðuríkan ótta við að vera þvingaðar í mansal skal samkvæmt ofangreindum skýrslum m.a. líta til þess hversu mikið smyglarinn viti um bakgrunn konunnar og fjölskyldu hennar, hvort að fjölskylda konunnar hafi tekið þátt í smyglinu og hvort að konan hafi borið vitni gegn smyglaranum. Í viðtali K hjá Útlendingastofnun kvað hún vin sinn hafa bent sér á smyglarann. Þá hafi smyglarinn ekki haft samband við hana frá því hún hafi kynnst M og hún viti ekki hvar hann sé niðurkominn í dag. Jafnframt kvaðst hún ekki þekkja smyglarann eða hans bakgrunn. Þá má ráða af framburði K að fjölskylda hennar hafi ekki tekið þátt í smyglinu eða að K hafi borið vitni gegn honum. K nýtur stuðnings eiginmanns síns og kvað hún móður sína og systur búa í Nígeríu en með tilliti til framburðar K og heimsóknar K til Nígeríu árið 2013 má ráða að hún sé í góðu sambandi við þær. Þrátt fyrir að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu benda gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér ekki til þess að þeir verði almennt fyrir ofsóknum við heimkomu. Til staðar séu innviðir í heimaríki sem sérhæfi sig í þjónustu og aðstoð við þolendur mansals. Gögn bendi þá til þess að yfirvöld hafi getu til þess að aðstoða þolendur mansals. Það er því mat kærunefndar að K eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, bæði hjá stofnuninni NAPTIP og lögreglu, telji hún vera þörf á því. Þá lítur kærunefnd einnig til þess að langt er liðið frá því að kærandi var þolandi mansals.

Kærendur hafa ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða að þau óttist ofsóknir af hálfu yfirvalda í heimaríki sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá benda önnur gögn málsins ekki til þess að slíkar ofsóknir hafi átt sér stað eða að kærendur eigi þær á hættu. Fram kom í viðtölum kærenda hjá Útlendingastofnun að þau hafi ekki leitað til lögreglu í Nígeríu m.a. vegna þess að þau teldu lögregluna vera spillta og að hún myndi ekki aðhafast. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt skilvirk vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Kærendur hafa ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að þau geti ekki notið verndar lögreglu eða sýnt fram á það að öðru leyti. Er það því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kærendum vernd gegn þeim athöfnum sem kærendur telja að sér stafi hætta af, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafa því raunhæfan möguleika á að leita ásjár stjórnvalda í heimaríki sínu telji þau sig þurfa þess.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Útlendingastofnun tók viðtal við A þann 19. mars 2019 en í ljósi ungs aldurs B taldi Útlendingastofnun ekki þörf á að taka viðtal við hann. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni A og B samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum A og B nægilega komið á framfæri með fyrrgreindu viðtali, gögnum frá sálfræðingum A, framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Í viðtalinu sem tekið var í Barnahúsi greindi A frá því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu nágranna síns á Ítalíu árið áður. Samkvæmt gögnum sem kærunefnd bárust hefur A sótt sálfræðimeðferð hér á landi síðastliðna mánuði, fyrst hjá Reykjavíkurborg og síðar í Barnahúsi, vegna kynferðisofbeldisins sem hún hafi orðið fyrir. Í byrjun meðferðar í Barnahúsi hafi A greint frá einkennum áfallastreitu og lágs sjálfsmats. Þá segir að þrátt fyrir að meðferðin í Barnahúsi hafi gengið vel sé A enn að glíma við afleiðingar ofbeldisins. Þá liggur fyrir að börn kærenda hafi aldrei komið til Nígeríu þar sem þau hafi fæðst á Ítalíu og búið þar með foreldrum sínum áður en fjölskyldan hafi komið til Íslands. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður A, horfir kærunefnd m.a. til þess að börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og njóta stuðnings þeirra. Líkt og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki þeirra. Jafnframt muni þau hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að aðstæður barnanna verði ekki taldar slíkar að þeim skuli vera veitt vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í umfjöllun kærunefndar um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða er frekari umfjöllun um hagsmuni A með vísan til 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau og börn þeirra hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefndin að aðstæður kærenda og barna þeirra þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefndin því ljóst að kærendur og börn þeirra uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börn þeirra uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Þannig komi til greina að minni kröfur séu gerðar til að börn njóti verndar og fái dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. ef þau fá ekki alþjóðlega vernd samkvæmt umsókn eða eigi ekki rétt á dvalarleyfi á öðrum grundvelli. Í samræmi við framkvæmd annars staðar sé einnig tekið tillit til þess hvernig aðstæður í heimalandi séu, þ.m.t. hvort framfærsla barns sé örugg. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, telur kærunefnd ljóst að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Í viðtali við A, sem fram fór í Barnahúsi, greindi hún frá kynferðisofbeldi sem hún hafi orðið fyrir á Ítalíu. Kvaðst hún eftir það hafa orðið hrædd við karlmenn. Hún væri einnig hrædd við að verða fyrir fordómum og einelti ef það myndi fréttast hér á landi að hún hafi verið beitt kynferðisofbeldi. Hún kvað foreldra sína hafa verið efnalitla og að hún teldi að þau hafi betlað á götunum á Ítalíu. Þá sagði A að henni hafi stundum liðið eins og hana langi ekki til þess að lifa lengur. Samkvæmt gögnum sem kærunefnd bárust hefur A sótt sálfræðimeðferð hér á landi síðastliðna mánuði, fyrst hjá Reykjavíkurborg og síðar í Barnahúsi, vegna kynferðisofbeldisins sem hún hafi orðið fyrir. Hún hafi mætt í sex viðtöl hjá sálfræðingi á vegum Reykjavíkurborgar og a.m.k. 14 viðtöl í Barnahúsi. Samkvæmt bréfi frá […], klínískum sálfræðingi í Barnahúsi, hafi A tjáð sig í viðtölum um fleiri áföll sem hún hafi orðið fyrir á Ítalíu, m.a. þegar hún hafi orðið vitni að átökum milli föður hennar og nágranna sem hafi haldið á vopni og hótað föður hennar lífláti. Þá hafi hún orðið fyrir grófu einelti og fordómum af hálfu skólafélaga og annarra á Ítalíu. Í byrjun meðferðar í Barnahúsi hafi A greint frá einkennum áfallastreitu og lágs sjálfsmats. Þá segir að þrátt fyrir að meðferðin í Barnahúsi hafi gengið vel sé A enn að glíma við afleiðingar ofbeldisins. Hún hafi tjáð mikla reiði, óöryggi og áhyggjur við að þurfa að flytja frá Íslandi til Afríku. Hún hafi aðlagast vel í skóla og hafi eignast góðar vinkonur í fyrsta skipti á ævi sinni og sé hrædd um að missa þær.

Ekki er ástæða til að draga í efa frásögn A af kynferðisofbeldinu. Þá liggur fyrir í málinu að A, sem er fædd á Ítalíu, hefur aldrei komið til Nígeríu og hefur hún tjáð mikla reiði og óöryggi við að þurfa að flytja frá Íslandi til Afríku. Í ljósi framangreinds telur kærunefnd A hafa sýnt fram á að yrði henni gert að fara til ríkis sem hún hefur ekki komið til áður og þekkir ekki myndi það hafa í för með sér aukið óöryggi og mögulega langvarandi afturför hvað varðar andlega heilsu hennar.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hann væri greindur með þvagsýrugigt og háan blóðþrýsting og taki inn lyf við því. Hann þjáist jafnframt af kvíða. K sé greind með sykursýki 2 og taki inn lyf vegna þess. Í ljósi frásagnar kærenda um félagslegar aðstæður þeirra og heilsu telur kærunefnd jafnframt að hætta sé á að kærendur séu ekki nægilega í stakk búin til þess að veita A þann stuðning sem ljóst sé að hún þarfnist bæði vegna andlegrar heilsu hennar og almennrar velferðar A og B. Það er mat kærunefndar að með hliðsjón af ofangreindu, og með vísan til mats á hagsmunum A, sbr. 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, verði talið að aðstæður A séu þess eðlis að A teljist hafa sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Niðurstaða kærunefndar er byggð á heildstæðu mati á þeim aðstæðum sem bíða A og fjölskyldu hennar í heimaríki en við það mat hefur kærunefnd litið sérstaklega til þess að A sé að glíma við afleiðingar kynferðisofbeldis og að líkur séu á því að hún muni upplifa óstöðugleika og óöryggi yrði henni gert að fara til heimaríkis þeirra sem gæti haft alvarlegar og hugsanlega óafturkræfar afleiðingar fyrir andlega heilsu hennar.

Í ljósi meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar verður því lagt fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi hér á landi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra að því er varðar synjun á umsóknum um alþjóðlega vernd. Lagt verður fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og börnum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 74. gr. laga um útlendinga.

 

Úrskurðarorð

Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Ákvarðanir Útlendingastofnunar hvað varðar umsóknir kærenda og barna um alþjóðlega vernd eru staðfestar.

The Directorate is instructed to issue the appellants and their children residence permits based on Article 74 of the Act on Foreigners no. 80/2016. The decisions of the Directorate of Immigration with regard to the appellants and their children’s applications for international protection are affirmed.

 

Hjörtur Bragi Sverrisson

Árni Helgason                                  Þorbjörg Inga Jónsdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta