Hoppa yfir valmynd

Úrskurður nr. 73/2016

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 23. febrúar 2016 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 73/2016

í stjórnsýslumáli nr. KNU15030024

Kæra […]

og sona hennar […]

og […]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Með stjórnsýslukæru, dags. 20. mars 2015, kærði kona er kveðst heita […], fd. […], að sögn ríkisborgari […] (hér eftir nefnd kærandi) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 16. mars 2015, um að synja henni og sonum hennar, […], fd. […], og […], fd. […], um hæli á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f laga, nr. 96/2002, um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsóknir kæranda og sona hennar til nýrrar efnismeðferðar. Til vara er þess krafist að kæranda og sonum hennar verði veitt staða flóttamanna skv. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna, sbr. 44. gr. laga um útlendinga, og verði veitt hæli eða viðbótarvernd sem slíkum á Íslandi, sbr. VII. kafla laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að henni og sonum hennar verði veitt dvalarleyfi á Íslandi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 12. gr. f sömu laga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 1. mgr. 30. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests, sbr. 3. mgr. 30. gr. sömu laga.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til landsins þann 25. júní 2014 og sótti um hæli sama dag hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 28. janúar 2015 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 16. mars 2015, synjaði Útlendingastofnun kæranda um hæli jafnframt því sem henni var synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði þá ákvörðun til kærunefndar útlendingamála við birtingu þann 20. mars 2015. Þann 26. mars 2015 var óskað eftir greinargerð frá löglærðum talsmanni kæranda og barst hún kærunefnd þann 17. apríl s.á.

Þann 8. febrúar 2016 kom kærandi fyrir kærunefnd útlendingamála og gerði grein fyrir máli sínu, sbr. 5. mgr. 3. gr. b laga um útlendinga. Viðstaddur var löglærður talsmaður kæranda.

Kæra þessi hefur hlotið hefðbundna málsmeðferð, gagnaöflun er lokið og er málið hér með tekið til úrskurðar.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Kærandi byggði umsókn sína um hæli og dvalarleyfi hér á landi á því að hún geti ekki snúið aftur heim þar sem hún sé hrædd við konu föður síns og að hún muni reyna að drepa hana til að [...] föður hennar. Einnig byggði kærandi á fjárhagslegum ástæðum og litlum lífsgæðum í heimalandinu. Útlendingastofnun taldi frásögn kæranda að mestu trúverðuga og í samræmi við fyrirliggjandi upplýsingar um […], þrátt fyrir að hún hafi gefið upp mismunandi ástæður fyrir hælisumsókn hjá stofnuninni og lögreglu.

Fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar að kærandi hafði engin skilríki eða annað til að sýna á sér deili við komuna til landsins og var því talinn leika vafi á því hver hún væri. Ekkert kom þó fram við meðferð málsins sem gaf tilefni til að draga í efa að kærandi væri sannarlega frá […] og var það lagt til grundvallar hjá Útlendingastofnun.

Útlendingastofnun fjallaði um aðstæður í […] og það ástand sem ríkir í […] landsins vegna […]. Kom m.a. fram að Sameinuðu þjóðirnar mæla gegn endursendingu einstaklinga þangað. Var það mat Útlendingastofnunar að almennt ástand í […] utan þessara svæða sé hvergi nærri slíkt að fólk eigi þar almennt á hættu ofsóknir eða ómannúðlega meðferð. Þrátt fyrir upplýsingar um að spilling væri vandamál í […], ekki síst hjá lögreglunni, þá standi fólki sem telur sig vera í hættu í […] almennt til boða vernd yfirvalda. Einnig geti það flutt sig um set innanlands til að tryggja öryggi sitt. Lögregla sé starfandi í landinu sem hafi sett sér siðareglur og gögn benda til þess að stjórnvöld séu að vinna að því að útrýma spillingu.

Var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hefði ekki gefið tilefni til að ætla að hún þurfi á alþjóðlegri vernd að halda vegna aðstæðna sinna enda bendi upplýsingar til þess að viðunandi aðstoð sé í boði af hálfu yfirvalda í […]. Ennfremur hafi kærandi borið að hún væri ekki í lífshættu utan heimilis föður hennar. Að þessu virtu var það mat Útlendingastofnunar að synja bæri kæranda um hæli skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga og að 45. gr. sömu laga ætti ekki við.

Varðandi kröfu kæranda um dvalarleyfi á grundvelli 12. gr. f greinir í ákvörðun Útlendingastofnunar að ekki verði talið að kærandi sé í þeirri aðstöðu í heimalandi að hún réttlæti veitingu dvalarleyfis á grundvelli 12. gr. f útlendingalaga, hvorki með vísan til mannúðarsjónarmiða né sérstakra tengsla kæranda við Ísland.

Að lokum var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 18. gr. útlendingalaga. Þá kom fram að kæra frestaði réttaráhrifum sbr. 1. mgr. 32. gr. útlendingalaga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi hafi komið hingað til lands þann 25. júní 2014. Hún hafi búið undanfarin sex ár á […]. Samkvæmt lögregluskýrslu hafi fundist gilt dvalarleyfi á […], á nafni kæranda, gefið út 3. apríl 2013 og gilt í þrjú ár frá útgáfudegi. Með kæranda í för hafi verið tveggja ára sonur hennar og hafi kærandi verið barnshafandi, gengin sex mánuði á leið. Kæranda hafi fæðst sonur í október 2014. Barnsfaðir og unnusti kæranda hafi komið hingað til lands í kjölfarið og sótt um hæli þann 18. nóvember 2014.

Kærandi kvað aðstæður sínar og fjölskyldu sinnar á […] hafa verið slæmar og því hafi hún ákveðið að freista þess að fá vernd hér á landi fyrir sig, son sinn og ófætt barn. Kærandi hafi verið atvinnulaus og séð fyrir sér og syni sínum með því að betla peninga og mat. Þá kvað kærandi aðstæður sínar í heimalandi ekki góðar og að hún óttist um líf sitt verði hún send þangað. Ástandið í […] sé afar bágborið og gróf mannréttindabrot framin þar daglega. Faðir kæranda sé fjölkvænismaður og hún sé í hættu að verða fyrir ofsóknum af hendi einnar af eiginkonum hans. Konan hafi drepið móður kæranda með því að eitra fyrir henni og afkomendur móður kæranda séu allir í hættu á heimili föður hennar af þessum sökum.

Aðstæður kæranda og fjölskyldu hennar hér á landi séu á allan hátt mun betri en þær sem bíði þeirra í […].

Í greinargerð er þess krafist að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi vegna þess að stofnunin hafi brotið gegn lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins sem og rannsóknarreglu skv. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Telur kærandi að hún uppfylli öll skilyrði 46. gr. laga um útlendinga sbr. 44. gr. sömu laga, því hafi stjórnvöldum borið að veita henni hæli hér á landi. Einnig er vísað í 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, máli kæranda til stuðnings. Kveðst kærandi vera í ríkri þörf fyrir vernd fyrir sig og börnin sín. Kærandi óttist örlög fjölskyldunnar verði þau send til […], einkum hvaða framtíð bíði barna sinna þar.

Er ofangreint byggt á því að í ákvörðun Útlendingastofnunar komi fram að Sameinuðu þjóðirnar hvetji ríki heims til þess að endursenda ekki einstaklinga til […] nema að vel athuguðu máli. Verði því að telja það einkennilegt að Útlendingastofnun geti metið ástandið í […] á þann hátt að ekkert sé því til fyrirstöðu að ung móðir með tvö börn verði send aftur til lands þar sem jafn ómannúðlegt ástand ríki og í […], án þess að vísa í gögn sem styðji það mat stofnunarinnar. Fjölskyldan verði flóttamenn í eigin ríki og ekkert sé fjallað um heilbrigðisþjónustu sem í boði sé fyrir börn í heimalandi eða annan aðbúnað sem fjölskyldan komi til með að búa við. Ennfremur hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun, sem fram hafi farið á ensku en móðurmál kæranda sé […], verið greinilegt að kærandi hafi ekki skilið fyllilega þær spurningar sem beint hafi verið að henni og ekki haft nægileg tök á ensku til þess að gefa greinargóðar lýsingar á aðstæðum í heimlandi sínu og ástæðum hælisumsóknar sinnar.

Af þessum sökum sé óhjákvæmilegt að ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á hælisumsókn kæranda verði ógilt og stofnuninni verði gert að endurskoða ákvörðun sína. Lögmætisregla og rannsóknarregla stjórnsýslulaga séu öryggisreglur og leiði brot á þeim alla jafna til ógildingar stjórnvaldsákvörðunar. Í tilviki kæranda sé hvort tveggja um brot gegn lögmætisreglu og rannsóknarreglu að ræða.

Krafa kæranda um dvalarleyfi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga um útlendinga, sé byggð á öllu ofangreindu og lögð sérstök áhersla á að kærandi hafi ríka þörf fyrir vernd vegna erfiðra félagslegra aðstæðna í heimalandi sínu sem og vegna ótta um líf sitt þar í landi.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagarammi

Í máli þessu gilda ákvæði laga nr. 96/2002 um útlendinga með síðari breytingum, reglugerð nr. 53/2003 um útlendinga með áorðnum breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að þegar kærandi sótti um hæli á Íslandi hafi hún ekki framvísað neinum skilríkjum eða öðru til að sýna á sér deili. Í málinu hefur ekkert komið fram sem gefur til kynna að kærandi sé ekki frá […] líkt og hún kveðst vera frá og er það því lagt til grundvallar í málinu.

Mat á því hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Við meðferð máls er litið til þess hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem geti haft áhrif á niðurstöðu máls hennar. Með því getur verið átt við hvort kærandi hafi mátt þola pyndingar, hvort kærandi sé barn eða hvort umsókn hans varði börn hennar, hvort kynhneigð eða kynferði kæranda geti haft áhrif eða hvort kærandi geti verið ríkisfangslaus. Mat á stöðu kæranda fer ávallt fram og eru þau atriði sem koma til skoðunar ekki tæmandi.

Kærunefndin tekur undir með Útlendingastofnun að með vísan til þess að kærandi ferðast með tveimur ungum börnum sínum er litið svo á að fjölskyldan í heild teljist í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Réttarstaða barna kæranda

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að ákvarða réttarstöðu barnsins í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar.

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 segir: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.“ Ákvæðið sækir einkum fyrirmynd til inngangsákvæða Barnasáttmálans, einkum 3. gr. Í 1. mgr. 1. gr. barnalaga, nr. 76/2003, segir að barn eigi rétt á að lifa, þroskast og njóta verndar, umönnunar og annarra réttinda í samræmi við aldur sinn og þroska og án mismununar af nokkru tagi. Í 2. mgr. 1. gr. sömu laga segir að það sem barni er fyrir bestu skuli ávallt hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess.

Svo sem fram er komið kom sonur kæranda með henni hingað til lands og hún eignaðist annan son hér á landi. Haldast úrskurðir er varða foreldra og börn þeirra í hendur í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar, þegar barn er í fylgd annars eða beggja foreldra. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd beggja foreldra sinna.

Landaupplýsingar

[…]

Kærunefnd útlendingamála hefur farið yfir gögn og skýrslur um aðstæður í […] m.a.:

Í ofangreindum gögnum kemur fram að í […] landsins berjist stjórnvöld gegn […] sem hafa skipulagt margar árásir á almenning og opinberar stofnanir á svæðinu. Átökin hafa leitt til dauða þúsunda manna og hrakið fleiri en [...] milljónir einstaklinga á innbyrðis flótta. Pyntingar, handahófskennd manndráp og frelsissviptingar eiga sér stað af hálfu bæði […] stjórnvalda. Öryggissveitir og lögregla starfa að mestu í skjóli refsileysis í landinu og stjórnvöld rannsaka sjaldan brot af hálfu þessara aðila. Þá eru ýmsar takmarkanir á öðrum grundvallarmannréttindum borgaranna s.s. tjáningarfrelsinu, aðgangi að réttlátri málsmeðferð fyrir dómstólum og ofbeldi gegn konum og börnum er útbreitt. Trúfrelsi er tryggt í stjórnarskrá landsins og er það almennt virt þó svo að bæði kristið fólk og múslimar kvarti undan mismunun á þeim svæðum þar sem þeir eru í minnihluta.

a. Aðalkrafa kæranda

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda til nýrrar efnismeðferðar.

Kærandi byggir aðalkröfu sína á því að Útlendingastofnun hafi brotið gegn lögmætisreglu stjórnsýsluréttarins með því að synja henni um hæli hér á landi. Ætlað brot á lögmætisreglu rökstyður kærandi með því að hún uppfylli ákvæði 46. gr. útlendingalaga, sbr. 44. gr. sömu laga og því hafi stjórnvöldum borið að veita henni hæli hér á landi. Kærandi kveðst vera í ríkri þörf fyrir vernd sem fjölskyldan fái ekki í heimaríki þeirra.

Lögmætisregla stjórnsýsluréttarins er jafnan greind í tvo grundvallarþætti, annars vegar formþátt sem felur í sér að ákvarðanir stjórnvalda megi ekki vera andstæðar áskilnaði laga um töku ákvarðana og hins vegar heimildarþátt sem felur í sér að stjórnvöld verði að hafa heimild í lögum til að taka bindandi ákvarðanir um réttindi og skyldur borgaranna.

Hvað sem líður mati Útlendingastofnunar í máli þessu verður ekki fallist á að stofnunin hafi brotið gegn lögmætisreglunni, þar sem að ákvörðun hennar byggði á skýrri lagastoð og var ekki andstæð áskilnaði laga um töku ákvörðunar.

Kærandi byggir aðalkröfu sína í öðru lagi á því að Útlendingastofnun hafi brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með því að hafa ekki rannsakað með fullnægjandi hætti stöðu mála í […] eða málsástæður kæranda. Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess, að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra upplýsinga. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í málinu. Um frekari afmörkun á hversu ítarlega beri að rannsaka mál, ber m.a. að líta til þess hversu mikilvægt það er. Því tilfinnanlegri eða meira íþyngjandi sem stjórnvaldsákvörðun er, þeim mun strangari kröfur verður að gera til rannsóknar á þeim atvikum sem leiða til niðurstöðunnar. Markmið rannsóknarreglunnar er að tryggja að stjórnvaldsákvarðanir verði bæði löglegar og réttar. Í þeim tilvikum þegar ákvörðun stjórnvalds byggist á mati verður að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar eru svo hægt sé að beita þeim sjónarmiðum sem ætlun er að byggja stjórnvaldsákvörðun á. Að auki ef deilt er um málsatvik sem hafa verulega þýðingu fyrir úrlausn málsins ber stjórnvöldum að leggja áherslu á að rannsaka þann þátt þess.

Kærunefndin fellst ekki á það með kæranda að slíkur ágalli hafi verið á rannsókn málsins að ógilda beri ákvörðun Útlendingastofnunar. Ljóst er að stofnunin kynnti sér aðstæður í […] og vísaði til þeirra gagna sem stofnunin studdi ákvörðun sína við án þess að allt efni þeirra hafi verið tíundað í ákvörðun hennar. Verður ekki annað séð en að Útlendingastofnun hafi rannsakað málið á fullnægjandi hátt í samræmi við umsókn kæranda um hæli.

Að framangreindu virtu er kröfu kæranda um að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og stofnuninni falið að taka umsókn kæranda til nýrrar efnismeðferðar því hafnað.

b. Varakrafa kæranda

Kærandi krefst þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og breytt á þann veg að kærandi og börn hennar fái réttarstöðu flóttamanna skv. 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna.

Til að teljast flóttamaður hér á landi þarf kærandi að sýna fram á að aðstæður hans séu slíkar að þær falli undir 1. eða 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga. Krafa kæranda byggir á því að hún og fjölskylda hennar fái ekki fullnægjandi vernd í heimalandi hennar vegna mögulegra ofsókna frá fjölskyldu hennar.

Í 1. mgr. 44. gr. laga nr. 96/2002 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki, eða vill ekki, vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og viðauka við samninginn frá 31. janúar 1967. Um skilyrði þess að teljast flóttamaður er frekar mælt í 44. gr. a.

Almennt ber að telja ótta umsækjanda ástæðuríkan ef hann getur á nægilega skýran hátt sýnt fram á að áframhaldandi dvöl í heimalandi sé honum óbærileg af ástæðum sem tilgreindar eru í ákvæðinu, eða yrði óbærileg af sömu ástæðum ef hann sneri aftur. Þessi sjónarmið þurfa jafnframt ekki endilega að byggjast á persónulegri reynslu umsækjanda, heldur geta ofsóknir sem vinir hans eða ættingjar eða aðrir sem tilheyra sama þjóðfélagshópi hafa orðið fyrir, gefið til kynna að ótti hans við að verða fyrr eða síðar fórnarlamb ofsókna sé ástæðuríkur.

Í 44. gr. a laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir, á hvaða grundvelli slíkar ofsóknir geta byggt og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Til þess að um sé að ræða ofsóknir skv. 1. mgr. 44. gr. verður að vera um að ræða athafnir sem í eðli sínu, eða vegna þess að þær eru endurteknar, fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samansafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 3. mgr. 44. gr. a eru taldir upp þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þar segir að:

Þeir sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eru:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess, og

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið þessarar málsgreinar, þar með talið alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 44. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Þótt fallist sé á að einstaklingur í þessari aðstöðu skuli njóta vafans upp að ákveðnu marki, verður kærandi a.m.k. að sýna fram á að líkur séu á að hans bíði ofsóknir í heimalandi. Samkvæmt meginreglum um túlkun flóttamannahugtaksins, sem fram koma í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, er m.a. miðað við það að viðkomandi þurfi almennt að sýna fram á að gildar ástæður liggi til grundvallar ótta við ofsóknir og að hugarástand flóttamannsins skipti ekki eitt máli heldur verði yfirlýsing hans einnig að fá stuðning í hlutlægum og staðreynanlegum aðstæðum, sbr. Handbók um réttarstöðu flóttamanna. Um málsmeðferð og skilyrði samkvæmt flóttamannasamningnum frá 1951 og bókun frá 1967 um réttarstöðu flóttamanna (Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Reykjavík 2008).

Krafa kæranda er sem fyrr segir byggð á því að hún óttist eina af eiginkonum föður síns sem hún telur hafa myrt móður sína. Þá hafi hún ekki búið í […] síðan hún var sjö ára því verði erfitt fyrir hana að hefja nýtt líf með unga syni á framfæri sínu.

Kærandi hefur ekki borið fyrir sig að hafa sætt ofsóknum eða áreiti af hendi yfirvalda í […]. Þá kom fram í viðtali kæranda hjá Útlendingastofnun að hún teldi sig ekki vera í lífshættu neins staðar nema inni á heimili föður síns. Því verður ekki talið að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimalandi sínu í skilningi 1. mgr. 44. gr., sbr. 1. mgr. 44. gr. a, laga um útlendinga. Að öllu framangreindu virtu telur kærunefndin ljóst að kærandi og synir hennar uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 44. gr. útlendingalaga fyrir veitingu stöðu flóttamanns.

Í 2. mgr. 44. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að flóttamaður samkvæmt útlendingalögum telst einnig útlendingur sem telst ekki flóttamaður samkvæmt ákvæði A-liðar 1. gr. alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna ef raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til heimalands.

Í ljósi þess sem að framan er rakið telur kærunefndin að aðstæður kæranda í heimalandi hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 44. gr. laganna. Þá telur kærunefndin ekkert fram komið sem bendir til þess að hætt sé við því að kærandi eða synir hennar sæti ómannúðlegri og/eða vanvirðandi meðferð við heimkomuna, sbr. 2. mgr. 44. og 1. mgr. 45 gr. laganna.

c. Þrautavarakrafa kæranda

Til þrautavara krefst kærandi að sér verði veitt dvalarleyfi á Íslandi af mannúðarástæðum, sbr. 12. gr. f laga nr. 96/2002, laga um útlendinga.

Samkvæmt ákvæðinu er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi, þótt skilyrðum sé annars ekki fullnægt, ef rík mannúðarsjónarmið standa til þess eða vegna sérstakra tengsla útlendingsins við landið. Í 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að veita megi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf á vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum, eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til eða vegna annarra atvika sem ekki má með réttu gera honum að bera ábyrgð á. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í skýringum með 2. gr. laga nr. 115/2010 sem breyttu ákvæði 12. gr. f útlendingalaga er fjallað um mjög íþyngjandi félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimalandi og er sem dæmi nefnt aðstæður kvenna sem sætt hafi kynferðislegu ofbeldi eða sem aðhyllast ekki kynhlutverk sem eru hefðbundin í heimaríki þeirra og af þessum sökum eigi þær hættu á útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Kærandi hefur borið því við að lífið í […] geti orðið erfitt fyrir hana og fjölskyldu hennar þar sem að staða fátæks fólks í landinu sé afar slæm. Í fyrrgreindum skýringum með 2. gr. laga nr. 115/2010 kemur fram að íþyngjandi félagslegar aðstæður verði að jafnaði ekki taldar taka til neyðar af efnahagslegum rótum, s.s. fátæktar eða húsnæðisskorts. Kærandi er fædd í […] og á þar ættingja auk þess sem unnusti hennar er fæddur og uppalinn þar og á einnig ættingja þar í landi. Kærunefnd telur því að aðstæður kæranda við endurkomu til heimalands séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi ákvæðis 2. mgr. 12. gr. f laga um útlendinga.

Þá kemur fram í ofangreindum skýringum með 2. gr. laga nr. 115/2010 það sjónarmið að almennt séð beri að taka sérstakt tillit til barna hvort sem þau eru fylgdarlaus eða ekki. Þá beri að líta til þess hvort framfærsla, þá sérstaklega fylgdarlausra barna, sé tryggð. Líkt og komið hefur fram þá telur kærunefnd að kærandi geti lifað og starfað í heimalandi sínu og þannig tryggt börnum sínum fullnægjandi framfærslu. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimalands þeirra. Börn kæranda komu hingað til lands í fylgd með foreldrum sínum og verða í fylgd með þeim við endursendingu til heimalands þeirra.

Kærunefndin hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 44. gr. útlendingalaga og teljist því ekki flóttamaður. Þegar framburður kæranda er virtur í heild sinni ásamt gögnum málsins er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi heldur ekki sýnt fram á ríka þörf á vernd á grundvelli mannúðarsjónarmiða eins og kveðið er á um í 12. gr. f útlendingalaga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda og barna hennar í […] séu ekki með þeim hætti að rík mannúðarsjónarmið standi til þess að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna skv. 12. gr. f útlendingalaga. Þá hefur kærunefnd litið til þess að kærandi hefur haft gilt dvalarleyfi á […]frá árinu 2013.

Jafnframt telur kærunefndin kæranda eða börn hennar ekki uppfylla skilyrði 12. gr. f útlendingalaga um sérstök tengsl við landið. Eins og fram kemur í gögnum málsins hefur kærandi aðeins dvalið á Íslandi í tengslum við hælisumsókn sína.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í máli kæranda og barna hennar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 33. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá því að beiðni um það er synjað. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því ákvörðun var tekin

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður

Anna Valbjörg Ólafsdóttir Pétur Dam Leifsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta