Mál nr. 502/2023-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 502/2023
Fimmtudaginn 18. janúar 2024
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 14. október 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. september 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 24. janúar 2023 og var umsóknin samþykkt 14. febrúar 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. september 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt á boðað námskeið.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 14. október 2023. Með bréfi, dags. 19. október 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 16. nóvember 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 21. nóvember 2023. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hann hafi flutt til Selfoss þann 15. ágúst 2023 og hafi þá breytt bæði heimilisfangi sínu og þjónustuskrifstofu. Það hafi greinilega ekki vistast því kærandi hafi fengið boð á námskeið í bænum í lok ágústmánaðar. Kærandi hafi ekki vitað að nýja heimilisfangið hefði ekki vistast og hafi haldið að hann ætti samt að mæta í bæinn á þetta námskeið. Í fyrstu viku septembermánaðar hafi kærandi verið lasinn og vegna þess að hann hafi talið sig skyldugan til að mæta á námskeiðið hafi hann sent póst og látið vita að hann myndi reyna að mæta í vikunni á eftir. Síðar hafi kærandi fengið þær upplýsingar frá fjölskyldumeðlimum að hann þyrfti ekki að mæta í bæinn þar sem hann sé búsettur á Selfossi, það hljóti að vera einhver villa. Kærandi hafi þann 9. eða 10. september 2023 skoðað sitt svæði á heimasíðu Vinnumálastofnunar og tekið eftir því að hvorki heimilisfang né þjónustuskrifstofa hafi vistast rétt og þá breytt því í annað sinn sem hafi virkað.
Kærandi tekur fram að hann hafi sent inn skýringarbréf þar sem fram komi að hann hefði búið á Selfossi frá 15. ágúst 2023 og að hann hefði ekki getað mætt í bæinn með rútu, hann væri enn að jafna sig eftir veikindi. Einnig að hann myndi gjarnan vilja taka þátt í námskeiði sem væri nær ef það væri í boði og að hann hefði tvisvar sinnum reynt að breyta heimilisfangi og þjónustuskrifstofu en það hafi ekki vistast. Umsókn kæranda hafi í kjölfarið verið sett á bið vegna fjarveru á námskeiði. Þá hafi kærandi skoðað sitt svæði og séð að breytingar á heimilisfangi og þjónustuskrifstofu hafi ekki vistast. Kærandi hafi þá hringt í þjónustuver Vinnumálastofnunar og sagt þjónustufulltrúa frá öllu framangreindu. Þjónustufulltrúinn hafi gert breytingar fyrir kæranda og nú sé hann kominn með rétt heimilisfang og rétta þjónustuskrifstofu. Kærandi hafi aftur sent inn skýringarbréf sem ekki hafi verið tekið mark á því umsókn hans hafi verið sett á bið í þrjá mánuði.
Að mati kæranda sé ekki í lagi að setja umsókn hans á bið vegna villu í kerfi Vinnumálastofnunar. Kærandi óski eftir að mál hans verði endurskoðað strax því hann sé með ákveðnar greiðsluskuldbindingar.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 24. janúar 2023. Með erindi, dags. 14. febrúar 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt með tveggja mánaða bið vegna starfsloka á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Útreiknaður bótaréttur kæranda hafi verið 100%.
Þann 29. ágúst 2023 hafi kærandi verið boðaður á námskeið til aðstoðar við atvinnuleit. Námskeiðið hafi verið haldið í fjögur skipti á tímabilinu 4. til 14. september 2023. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu í farsíma og á uppgefið netfang hans. Áminning hafi verið send kæranda með sama hætti og að framan greini þann 1. september 2023.
Þann 8. september 2023 hafi Vinnumálastofnun borist tölvupóstur frá kæranda en fram að þeim tíma hafi kærandi ekkert mætt á áðurnefnt námskeið. Kærandi hafi tekið fram að hann hefði ekki getað mætt á námskeiðið dagana 4. og 7. september vegna alvarlegra veikinda en að hann hygðist reyna sitt besta til að ljúka námskeiðinu. Tölvupósti kæranda hafi verið svarað 11. september og hann hafi verið upplýstur um að hann gæti skilað inn skýringum og læknisvottorði í gegnum „Mínar síður“.
Þann 14. september 2023 hafi Greiðslustofu Vinnumálastofnunar borist tilkynning þess efnis að kærandi hefði ekkert mætt á umrætt námskeið. Með erindi, dags. 18. september 2023, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda. Áréttað hafi verið að hefði kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerð án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Skýringar kæranda hafi borist Vinnumálastofnun 18. og 23. september 2023. Kærandi hafi greint frá því að hann hefði því miður ekki getað mætt á námskeiðið vegna þess að hann hefði flutt búferlum á Selfoss og einnig vegna langtíma veikinda sinna.
Með erindi, dags. 25. september 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar sökum þess að hann hefði ekki mætt á umrætt námskeið. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 4. mgr. sömu greinar. Frekari skýringar og beiðnir um endurupptöku ákvörðunar hafi borist Vinnumálastofnun dagana 23. til 28. september 2023. Alls séu skráðar 11 færslur frá kæranda í kerfi Vinnumálastofnunar þá daga. Endurupptaka málsins hafi farið fram 25. september 2023 og kæranda hafi verið tilkynnt um niðurstöðu þess þann sama dag en ákvörðun stofnunarinnar hafi verið staðfest þrátt fyrir nýjar skýringar kæranda.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. liður 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á námskeið sem hafi verið haldið í fjögur skipti á tímabilinu 4. til 14. september 2023. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tilgreindar hafi verið tímasetningar og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umrætt námskeið en þær lúti að því að upp hafi komið veikindi hjá honum en einnig að það væri bæði dýrt og tímafrekt að ferðast frá Selfossi til Hafnarfjarðar til að sækja námskeið. Hann hafi af þeim sökum ekki getað mætt á námskeiðið. Þá hafi kærandi í kæru sinni sagst hafa tilkynnt til Vinnumálastofnunar að hann hefði búið á Selfossi frá 15. ágúst 2023 og tilkynnt um forföll sín.
Í kerfum stofnunarinnar sé ekki að sjá að kærandi hafi gert tilraun til þeirra breytinga á heimilisfangi og þjónustuskrifstofu, líkt og hann hafi vísað til. Athugasemdir í kæru og í innsendum skýringum eftir 23. september er varði ráðgjöf frá fjölskyldu hans um að það væri rangt að honum bæri að mæta á námskeið í Hafnarfirði hefðu leitt til þess að hann hafi látið undir höfuð leggjast að klára námskeiðið.
Fyrir liggi hins vegar tölvupóstur frá 9. september 2023 þar sem kærandi hafi sagst ekki getað mætt á námskeiðið 4. og 7. september sökum „[alvarlega] veikinda“ en að hann muni reyna sitt besta til að „mæta 11 og 14 og klara það með style.“ Að mati Vinnumálastofnunar sé ljóst að slíkt geti ekki talist fullnægjandi tilkynning um forföll. Vinnumálastofnun vísi í því samhengi til þess að kæranda hafi sérstaklega verið greint frá því að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar og að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta yrðu stöðvaðar. Þá þyki stofnuninni rétt að árétta að námskeiðið hafi verið haldið í fjögur skipti en fyrir liggi að kærandi hafi aldrei mætt á umrætt námskeið.
Með vísan til alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sér það mat Vinnumálastofnunar að skýringar þær sem kærandi hafi fært fram teljist ekki gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Með því að hafa hvorki mætt á umrætt námskeið né boðað forföll hafi kærandi brugðist skyldum sínum samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 29. ágúst 2023 tilkynnt að hann væri boðaður á starfsleitarnámskeiðið „Atvinnuleitin frá A-Ö“ sem yrði haldið í fjögur skipti dagana 4., 7., 11. og 14. september 2023 hjá HH ráðgjöf, Hafnarfirði. Kæranda var greint frá því að skyldumæting væri á námskeiðið og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfangið [email protected]. Jafnframt var kæranda greint frá því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi var minntur á boðað námskeið þann 1. september 2023 og var jafnframt hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga. Kærandi hafði samband við Vinnumálastofnun 8. september 2023 og tilkynnti að hann hefði ekki náð að mæta á námskeiðið dagana 4. og 7. september vegna alvarlegra veikinda en að hann myndi reyna sitt besta til að mæta síðustu tvo daga námskeiðsins. Fyrir liggur að kærandi mætti ekki heldur á námskeiðið dagana 11. og 14. september 2023. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi flutt út á land um miðjan ágúst 2023 og talið sig hafa breytt heimilisfangi og þjónustuskrifstofu í kerfi Vinnumálastofnunar. Það hafi greinilega ekki virkað þar sem hann hafi fengið boð á framangreint námskeið í lok ágústmánaðar. Kærandi telji ekki rétt að hann sé beittur viðurlögum vegna villu í kerfi Vinnumálstofnunar.
Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt í vinnumarkaðsúrræði sem honum var gert að sækja. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 14. febrúar 2023 á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. september 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir