Mál nr. 13/2020 úrskurður 20. febrúar 2020
Mál nr. 13/2020 Eiginnafn: Stormey (kvk.)
Hinn 20. febrúar 2020 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 13/2020 en erindið barst nefndinni 11. febrúar.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Eiginnafnið Stormey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Stormeyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn.