Mál nr. 58/2012, úrskurður 13. september 2012
Mál nr. 58/2012 Eiginnafn: Issi
Hinn 13. september 2012 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 58/2012 en erindið barst nefndinni sama dag:
Eiginnafnið Issi (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Issa, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Issi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.