Hoppa yfir valmynd

Mál nr. 9/2014.  Úrskurður kærunefndar útboðsmála:

Úrskurður kærunefndar útboðsmála 3. október 2014

í máli nr. 9/2014:

Ístak hf.

gegn

Isavia ohf. og

Ríkiskaupum           

Með kæru 13. maí 2014 kærir Ístak hf. ákvörðun Ríkiskaupa um val tilboðs í útboði fyrir Isavia ohf. nr. 15606 auðkennt „Stækkun Suðurbyggingar til vesturs 2014, SSV14-07 Jarðvinna, burðarvirki og ytri frágangur“. Endanlegar kröfur kæranda eru að tilboði Íslenskra aðalverktaka hf. verði vísað frá vegna formgalla og að kærunefnd útboðsmála yfirfari tilboð sem bárust í heild sinni.

Varnaraðila var gefinn kostur á að tjá sig um kæruna og bárust athugsemdir 15. maí 2014 þar sem þess var aðallega krafist að öllum kröfum kæranda yrði vísað frá en til vara að þeim yrði hafnað auk þess sem kæranda yrði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð. Athugasemdir Íslenskra aðalverktaka hf. bárust nefndinni 22. maí 2014. Kærandi skilaði ekki athugasemdum við greinargerðir varnaraðila og Íslenskra aðalverktaka hf.

Með ákvörðun 26. maí 2014 aflétti kærunefnd útboðsmála sjálfkrafa banni við samningsgerð.

I

Hið kærða útboð lýtur að stækkun suðurbyggingar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Útboðið var lokað og haldið í kjölfar forvals 15614 sem auglýst var á Evrópska efnahagssvæðinu. Samkvæmt grein 0.3.7. í útboðsgögnum skyldi samanburður tilboða byggjast á yfirfarinni (leiðréttri) heildartilboðsupphæð á tilboðsblaði. Þá sagði eftirfarandi: „Ef margföldunar‐ og/eða samlagningaskekkjur finnast í tilboðsskrá skal gera viðeigandi leiðréttingar á niðurstöðutölum tilboðs, en einingaverð er bindandi fyrir bjóðendur. Einingaverð er einnig bindandi, gagnvart þeim magnaukningum, viðbótarverkum og aukaverkum sem verktaki kann að verða beðinn um að framkvæma. Við yfirferð tilboða er einingarverð bjóðenda sett inn í tilboðsskrá útboðsgagna. Hafi bjóðandi breytt magni, fellt niður línur eða bætt línum við tilboðsskrána kemur það ekki fram við yfirferð, enda er slíkt óheimilt. Verkkaupi áskilur sér engu að síður rétt til að líta á slík tilboð sem gild, enda gildi þá ákvæði greinar 0.3.1 Gerð og frágangur tilboðs um að óútfylltir liðir teljist innifaldir í öðrum liðum. Verkkaupi áskilur sér rétt til að láta minni háttar vöntun eða formannmarka á fylgigögnum með tilboði ekki hafa áhrif á gildi tilboða, enda hafi vöntunin eða annmarkinn að mati verkkaupa ekki áhrif á tölulega niðurstöðu tilboðs, jafnræði bjóðenda sé ekki raskað og ógildi tilboðs fæli í sér strangari ákvörðun en nauðsynlegt væri vegna eðlis og umfangs annmarkans.“

Tilboð voru opnuð 8. maí 2014 og átti kærandi lægsta tilboðið, 1.281.496.887 krónur, en tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. var næst lægst, 1.319.234.897 krónur. Með tölvuskeyti varnaraðila 9. sama mánaðar var kæranda tilkynnt að við yfirferð tilboða hefði fundist reiknivilla í tilboði Íslenskra aðalverktaka hf. þar sem bjóðandinn hefði lagt tilboðsliði, sem voru valkostir í tilboðsskrá, saman við heildartilboðið. Tekið hefði verið fram að liðurinn ætti ekki að vera innifalinn í heildarupphæð tilboðs. Samkvæmt þessu lækkaði tilboð Íslenskra aðalverktaka í 1.272.391.997 krónur og varð þannig lægsta tilboðið sem ákveðið var að taka.

II

Kærandi reisir málatilbúnað sinn á því að varnaraðila hafi ekki verið heimilt að leiðrétta tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. Tekið hafi verið fram að liðurinn, sem bjóðandinn bætti við tilboð sitt, hafi samkvæmt verklýsingu ekki átt að vera innifalinn í heildarupphæðinni. Af því leiði að tilboðið sé haldið formgalla en ekki reiknivillu og því beri að vísa tilboðinu frá. Kærandi telur auk þess að margar villur hafi verið í magntöflu fyrirtækisins á framlagðri excel-skrá. Jafnvel þótt sú magntafla hafi verið til leiðbeiningar krefst kærandi þess að nefndin yfirfari tilboð í heild sinni.

III

Varnaraðilar byggja frávísunarkröfu sína á því að kæran uppfylli ekki formkröfur enda sé ekki krafist ógildingar á vali tilboðs. Auk þess hafi kærandi haft nægan tíma til að gera athugasemdir við magnskrárnar og því sé kærufrestur liðinn. Þá sé gerð krafa um að nefndin yfirfari öll tilboð en nefndin hafi ekki heimild til þess.

Varnaraðilar telja að heimilt hafi verið að leiðrétta tilboð enda hafi heimild til þess komið fram í grein 0.3.7 í útboðsskilmálum. Auk þess sé almennt viðurkennt að í opinberum innkaupum hafi kaupandi svigrúm til þess að leiðrétta augljós mistök í tilboði. Íslenskir aðalverktakar hf. hafi gert reiknivillu í tilboði sínu með því að bæta við kostnaðarliðum sem áttu ekki að vera í heildarupphæð tilboðsins. Varnaraðili telur sig hafa haft heimild til leiðréttingar á slíkum augljósum mistökum við tilboðsgerð og því hafi hann valið það tilboð sem var hagstæðast.

 Íslenskir aðalverktakar tóku undir sjónarmið varnaraðila og ítrekuðu að rétt hafi verið að leiðrétta tilboð félagsins.

IV

Kæra málsins lýtur fyrst og fremst að meðferð varnaraðila á tilboðum eftir að tilboðsfresti lauk en að ekki magnskrám útboðsgagna. Kæranda var tilkynnt um val tilboða 9. maí 2014 og að til grundvallar valinu lægju leiðréttar tilboðstölur. Kæra barst kærunefnd 13. maí 2014 og var þannig borin undir nefndina innan lögmælts kærufrests.

Skilja verður málatilbúnað kæranda á þá leið að krafist sé ógildingar á þeirri ákvörðun varnaraðila að velja tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. í fyrrgreindu útboði. Lýtur kæran því efnislega að úrræðum nefndarinnar samkvæmt 1. mgr. 97. gr. laga nr. 84/2007 um opinber innkaup. Krafa kæranda um yfirferð tilboða er að vísu ekki í samræmi við lögbundin úrræði nefndarinnar en getur þó verið eðlilegur liður í meðferð málsins, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Eru því engin efni til frávísunar kærunnar.

Í málinu er ágreiningslaust að Íslenskir aðalverktakar hf. bættu ranglega tilteknum liðum við tilboðsfjárhæð sína. Er ekki heldur um það deilt að tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. var í raun lægsta tilboðið að teknu tilliti til leiðréttingar. Ræðst lögmæti ákvörðunar um val á tilboði þannig af því hvort varnaraðila hafi verið heimilt að leiðrétta tilboð fyrirtækisins.

Þótt bjóðanda sé almennt óheimilt að leiðrétta eða breyta tilboði sínu eftir opnun hefur kærunefnd útboðsmála talið kaupanda heimilt að leiðrétta tilboð ef um er að ræða augljósa villu við tilboðsgerð og fullnægjandi forsendur fyrir leiðréttingu koma fram í tilboðsgögnum. Er þá horft til þess að með slíkri leiðréttingu er í reynd ekki haggað við grundvallarþáttum tilboðs þannig að samkeppni sé raskað eða um mismunun sé að ræða. Var í útboðsgögnum að finna nánari ákvæði til samræmis við þessa meginreglu opinberra innkaupa. Samkvæmt gögnum málsins fólst breyting varnaraðila á tilboði Íslenskra aðalverktaka hf. eingöngu í því að dregnir voru frá liðir sem ekki áttu heima í heildartilboðsfjárhæð samkvæmt útboðsgögnum. Að mati nefndarinnar var varnaraðilum heimil slík breyting samkvæmt þeim viðmiðum sem áður greinir.

Samkvæmt framangreindu telur nefndin að varnaraðilar hafi ekki brotið gegn lögum um opinber innkaup við val á tilboði í hinu kærða útboði. Verður öllum kröfum kæranda því hafnað.

Rétt þykir að málskostnaður falli niður.

Úrskurðarorð:

Kröfu kæranda, Ístaks hf., um ógildingu á vali varnaraðila, Isavia ohf., á tilboði Íslenskra aðalverktaka hf. í útboðinu nr. 15606 auðkennt „Stækkun Suðurbyggingar til vesturs 2014, SSV14-07 Jarðvinna, burðarvirki og ytri frágangur“, er hafnað.

Málskostnaður fellur niður

 

                                                                          Reykjavík, 3. október 2014.

                                                                          Skúli Magnússon

                                                                          Ásgerður Ragnarsdóttir

                                                                          Stanley Pálsson


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta