Mannanafnanefnd, úrskurður 26. mars 2010
Mál nr. 20/2010 Eiginnafn: Febrún
Hinn 26. mars kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 20/2010:
Eiginnafnið Febrún (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Febrúnar og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Febrún (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.