Hoppa yfir valmynd

Nr. 643/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 27. október 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 643/2023

í stjórnsýslumálum nr. KNU23090014 og KNU23090016

Kæra [...] og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 3. september 2023 kærði [...], fd. [...] (hér eftir nefndur A) og hinn 4. september 2023 kærði [...], fd. [...] (hér eftir nefndur B), ríkisborgarar Indlands (saman nefndir kærendur) ákvarðanir Útlendingastofnunar dags. 31. ágúst 2023 um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.

Af kærum má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að þeim verði veittar vegabréfsáritanir til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og bárust kærur þeirra fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, með síðari breytingum, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsóknum, dags. 23. ágúst 2023, óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins í 16 daga, frá 13. september 2023 til 28. september 2023. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 31. ágúst 2023. Kærunefnd bárust kærur frá kærendum dags. 3. og 4. september 2023. Frekari fylgigögn voru lögð fram með tölvubréfi dags. 5. september 2023.

III.    Málsástæður og rök kærenda

Í kæru vísar kærandi A til fyrirliggjandi ákvörðunar Útlendingastofnunar sem hafi valdið honum vonbrigðum enda hafi hann talið að öll fylgigögn hafi verið lögð fram með umsókn sinni. Kærandi A óskar eftir tækifæri til þess að bæta úr umsókn sinni eftir því sem þurfa þykir. Þá bendir hann á að hluti hótelbókana væru undir nafni kæranda B, en þeir hafi ætlað að ferðast saman um Ísland ásamt þriðja manni. Kærandi A vísar til þess að hann hafi ætlað sér að ljúka því að bóka hótelgistingar þegar vegabréfsáritunin lægi fyrir. Hann hafi þó skilning á því að hótelbókanir þurfi að liggja fyrir þegar umsókn sé lögð fram og vilji leiðrétta það sem fyrst. Kærandi B vísar til sömu skýringa og málsástæðna og kærandi A að því frátöldu að hótelbókanir séu flestar skráðar undir nafni kæranda B.

Með tölvubréfi dags. 5. september 2023 lögðu kærendur fram hótelbókanir fyrir tímabilið 13. til 27. september 2023. Hver bókun hafi verið til einnar nætur í senn og hafi þær verið staðsettar vítt og breitt um landið. Allar bókanirnar hafi verið fyrir þrjá fullorðna og ýmist skráðar undir nafni kæranda A eða kæranda B.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt.

Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í nokkrum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem nefnd eru ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja í reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum kærenda er merkt í reit 2 vegna synjunar á umsóknum þeirra, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þeir gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun óskuðu kærendur ekki eftir slíkum rökstuðningi.

Íslenska sendiráðið í Nýju-Delí tekur á móti og fer með meðferð umsókna um vegabréfsáritanir til Íslands sem lagðar eru fram á Indlandi, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Í gögnum málsins liggur m.a. fyrir afrit úr málaskrá Útlendingastofnunar vegna mála kærenda þar sem málsmeðferð umsókna þeirra hjá utanríkisþjónustunni er rakin. Í tilfelli beggja kærenda kemur fram að ekki hafi verið lagðar fram bókanir fyrir hótel eða annars konar gistingu fyrir dagana 14. til 17. september 2023 og 18. til 22. september s.á. Kærendur hafi báðir undirritað hluta gátlista er lýtur að fylgigögnum sem skorti með umsókn, dags. 23. ágúst 2023, en þeim hafi verið veittur fimm daga frestur til að bæta úr því. Samkvæmt fulltrúa sendiráðsins hafi kærendur ekki bætt úr þessu og lagði fulltrúinn því til að umsóknum þeirra yrði synjað. Með tölvubréfi dags. 5. september 2023 lögðu kærendur fram frekari gögn vegna málsins, þ.m.t. hótelbókanir fyrir þá daga sem tilgreindir eru í málaskrá Útlendingastofnunar að hafi vantað upp á.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi þess að nú liggja fyrir gögn í máli kærenda sem áhrif geta haft á niðurstöðu mála þeirra, er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kærenda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á þau nýju gögn sem nú hafa verið lögð fram.

Að framangreindu virtu eru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kærenda til nýrrar meðferðar.

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda til nýrrar meðferðar.

The decisions of the Directorate of Immigration in the appellants cases are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the cases.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum