Hoppa yfir valmynd

Nr. 128/2018 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Þann 20. mars 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 128/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18020029

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 12. febrúar 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […], og vera ríkisfangslaus (hér eftir nefndur kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. janúar 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og endursenda hann til Þýskalands.

Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar á Íslandi með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016, og 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga. Til vara gerir kærandi kröfu um að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka málið til meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.         Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 11. september 2017. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum þann sama dag kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Þann 19. september 2017 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 25. september 2017 barst svar frá þýskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 27. nóvember 2017 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að hann skyldi endursendur til Þýskalands. Kærandi kærði ákvörðunina þann 7. desember 2017 til kærunefndar útlendingamála. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 714/2017, dags. 21. desember 2017, felldi kærunefnd ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi og lagði fyrir stofnunina að taka málið til nýrrar meðferðar. Útlendingastofnun ákvað þann 17. janúar 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar og hann skyldi endursendur til Þýskalands. Kærði kærandi ákvörðunina þann 12. febrúar 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 22. febrúar 2018, ásamt fylgigögnum.

III.          Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi endursendur til Þýskalands. Lagt var til grundvallar að Þýskaland virði ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu og flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna, þar með talið bann við endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi kæranda kynni að vera í hættu (non-refoulement). Því fæli flutningur kæranda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga. Þá var talið að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá var það mat stofnunarinnar að sérstakar aðstæður í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga væru ekki til staðar í málinu. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Aðstæður kæranda féllu ekki undir 16. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og væru ekki slíkar að ástæða væri til að beita 1. mgr. 17. gr. reglugerðarinnar í málinu. Kærandi skyldi yfirgefa Ísland og bæri að senda hann til Þýskalands, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun bar kærandi því við að hann væri ríkisfangslaus, sbr. 1. mgr. 39. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun Útlendingastofnunar var tekið fram að þýsk stjórnvöld hafi samþykkt að taka við kæranda, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Af 1., 2. og 3. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar sé ljóst að ríkisfangslausir einstaklingar heyri undir reglugerðina. Í ljósi þess að efnismeðferð umsókna um alþjóðlega vernd og umsókna um stöðu ríkisfangsleysis einstaklinga haldist í hendur skv. lögum um útlendinga taldi stofnunin, með vísan til heimildar til að krefja Þýskaland um að taka við umsókn kæranda á grundvelli Dyflinnarsamstarfsins, að heimild til þess að synja umsókn hans um efnismeðferð hér á landi, nái bæði til málsástæðna á grundvelli ríkisfangsleysis og þess að hann sé flóttamaður.

IV.          Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að hann sé ríkisfangslaus Róhingja múslimi. Hann sé fæddur í Bangladess en hann hafi aldrei verið viðurkenndur sem ríkisborgari landsins. Fjölskylda hans hafi flúið frá Mjanmar til Bangladess áður en hann hafi fæðst. Faðir hans hafi fengið landskika og lítið hús að launum fyrir störf sín frá atvinnurekanda sínum en eftir andlát hans hafi fjölskylda kæranda ekki haft skjöl til að sýna fram á eignarétt sinn og fjölskylda fyrrum atvinnurekandans skipað þeim að yfirgefa landið og hús þeirra brennt.

Í greinargerð kemur fram að við skoðun á Göngudeild sóttvarna hafi verið staðfest að kærandi þjáist af sykursýki. Kærandi hefur jafnframt greint frá því að hann finni fyrir streitu, hann hafi áhyggjur af afdrifum móður sinnar og hann eigi erfitt með svefn. Þá hafi hann hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna í tvígang.

Varðandi aðstæður sínar í Þýskalandi hafi kærandi greint frá því að hann hafi fengið lokasynjun í máli sínu í Þýskalandi og hann hafi ekki notið aðstoðar lögfræðings endurgjaldslaust. Það hafi aldrei komið fram við meðferð máls hans þar í landi að hann sé ríkisfangslaus eða Róhingja múslimi. Hann hafi aldrei verið spurður frekar um uppruna eða ríkisfang.

Í greinargerð kæranda er á því byggt að möguleikar hans til þess að fá mál sitt endurupptekið í Þýskalandi séu takmarkaðir. Til þess að umsókn um alþjóðlega vernd fái aðra umfjöllun hjá þýskum yfirvöldum þurfi hún að uppfylla ákveðin skilyrði, þ.e. að aðstæður sem fyrri ákvörðun byggðist á hafi breyst, ný gögn liggi fyrir eða umsækjandi geti bent á vankanta á fyrstu málsmeðferðinni. Þá þurfi að auki að sýna fram á að honum hafi verið ómögulegt að byggja á hinum nýju málsástæðum í fyrstu málsmeðferðinni og að ekki séu liðnir þrír mánuðir síðan að umsækjandi hafi orðið meðvitaður um þær. Mælt sé með því að endurupptökubeiðni fylgi ítarleg greining á ástæðum þess að umsækjandi telji sig uppfylla skilyrði laganna. Á sama tíma standi umsækjendum ekki til boða gjaldfrjáls aðstoð lögfræðings við að leggja fram slíka beiðni auk þess sem þeim sé ekki veitt tækifæri til þess að tjá sig áður en ákvörðun um endurupptöku sé tekin. Jafnframt séu lögin óskýr um réttindi einstaklinga sem hafi lagt fram slíka umsókn en stjórnvöld hafi víðtækar heimildir til að koma umsækjendum sem uppfylla ekki fyrrnefnd skilyrði í varðhald á meðan þeir bíði brottvísunar. Af þessu verði að telja ólíklegt að þýsk stjórnvöld taki mál kæranda til meðferðar á grundvelli ríkisfangsleysis hans heldur verði honum að öllum líkindum brottvísað og hann fluttur til Bangladess.

Krafa kæranda er m.a. byggð á því að uppi séu sérstakar ástæður í máli hans í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og vísar kærandi til lögskýringargagna með ákvæðinu. Þá vísar kærandi til nýlegra úrskurða kærunefndar þar sem fjallað sé um vægi þeirra sjónarmiða sem skipti máli við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi skv. ákvæðinu. Stjórnvöld þurfi að hafa tvennt í huga við mat á því hvort sérstakar ástæður séu uppi í máli. Annars vegar hvort um sé að ræða sérstaklega viðkvæman einstakling í skilningi 6. tölul. 3. gr. laganna og hvort einstaklingsbundnar ástæður muni leiða til þess að hann teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki og hins vegar hvort umsækjandi sem ekki fellur undir 6. tölul. 3. gr. laganna muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna annarra þátta. Byggt er á því í greinargerð að taka þurfi frásögn kæranda til greina í heild sinni.

Þá er í greinargerð kæranda fjallað um aðstæður ríkisfangslausra einstaklinga og m.a. vísað til niðurstöðu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna varðandi helstu ástæður ríkisfangsleysis og hvaða áhrif það hafi á líf einstaklings að vera ríkisfangslaus og viðmiðunarreglna um mat á ríkisfangsleysi frá stofnuninni. Jafnframt er gerð grein fyrir aðstæðum kæranda og fjölskyldu hans í heimaríki og stöðu Róhingja múslima í Mjanmar og Bangladess. Þá kemur fram í greinargerð að kærandi hafi lagt fram gögn um ríkisfangsleysi hans til stuðnings frásögn hans.

Vísað er til úrskurðar kærunefndar er varðar umsókn um alþjóðlega vernd skv. 39. gr. laga um útlendinga, um viðurkenningu á stöðu sem ríkisfangslaus einstaklingur, þar sem kærunefnd hafi synjað því að taka slíka umsókn til efnismeðferðar. Á því sé byggt, þrátt fyrir þann úrskurð kærunefndar, að slíkar sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli kæranda sem skyldi íslensk stjórnvöld til þess að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, þar sem möguleikar kæranda til að fá ríkisfangsleysi sitt viðurkennt í Þýskalandi séu hverfandi vegna takmarkaðra möguleika á endurupptöku málsins þar í landi.

Þá er á því byggt í greinargerð kæranda að hann njóti verndar 42. gr. laga um útlendinga sem mæli fyrir um grundvallarreglu þjóðaréttar um non-refoulement. Fyrir liggi að kærandi hafi fengið lokasynjun í Þýskalandi og verði hann sendur þangað standi hann frammi fyrir flutningi til Bangladess þar sem hann sé réttindalaus sem Róhingja múslimi og aðstæður afar slæmar og mannréttindi virt að vettugi.

Í greinargerð kæranda er jafnframt byggt á því að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 þar sem hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga.

Þá barst kærunefnd útlendingamála bréf frá Rauða krossinum varðandi gildistöku reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Þar koma m.a. fram sjónarmið um lagaskil, afturvirkni laga og andmælarétt.

V.           Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að þýsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Þýskalands er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á sérþörfum sbr. 25. gr. og 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga

Kærandi er […] ára gamall einstæður karlmaður og kveðst vera ríkisfangslaus Róhingja múslimi. Af gögnum um heilsufar kæranda, sem hann hefur lagt fram við meðferð málsins, má sjá að kærandi hafi verið greindur með insúlínóháða sykursýki án fylgikvilla og hafi fengið uppáskrifuð lyf vegna hennar, sbr. m.a. samskiptaseðla frá Göngudeild sóttvarna dags. 27. september 2017 og 30. janúar 2018. Þá hefur kærandi greint frá því að hann þjáist af svefnleysi og honum líði illa yfir afdrifum fjölskyldu sinnar í heimaríki. Af samskiptaseðlum frá Göngudeild sóttvarna má sjá að kærandi hafi hitt þar sálfræðing í tvígang.

Með tilliti til gagna málsins er það mat kærunefndar að kærandi sé ekki í sérstaklega viðkvæmri stöðu að því er varðar meðferð máls hans hér á landi, enda fær kærunefnd ekki séð að aðstæður hans séu þess eðlis að hann hafi sérstakar þarfir sem taka þarf tillit til við meðferð máls hér eða að hann geti ekki að fullu eða með engu móti nýtt sér rétt eða uppfyllt skyldur sem kveðið er á um í lögum um útlendinga án aðstoðar eða sérstaks tillits, sbr. 6. tölul. 3. gr. og 25. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the World 2018 – Germany (Freedom House, 2. febrúar 2018);
  • World Report 2018 – European Union (Human Rights Watch, 18. janúar 2018);
  • Germany 2016 Human Rights Report (United States Department of State, 3. mars 2017);
  • Amnesty International Report 2016/17 - Germany (Amnesty International, 22. febrúar 2017);

  • Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, mars 2017);
  •  

  • Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015) og
  • ECRI Report on Germany (European Commission against Racism and Intolerance, 25. febrúar 2014).

Í málinu liggur fyrir að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd í Þýskalandi. Í ofangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á viðtali áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge). Umsækjendur sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geta skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Frekari skilyrði eru að umsækjandi hafi verið ófær um, án þess að bera mikla sök á því sjálfur, að bera málsástæðuna fyrir sig í fyrri málsmeðferð og að umsóknina þurfi að leggja fram innan þriggja mánaða frá því að umsækjandi varð meðvitaður um málsástæður viðbótarumsóknarinnar. Umsækjendur geta borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Þýsk yfirvöld tryggja umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi en frjáls félagasamtök veita almennt gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð á fyrsta stigi málsmeðferðar. Á kærustigi eiga umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geta þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda. Umsóknir eru metnar og þær samþykktar séu þær ekki álitnar bersýnilega tilhæfulausar. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá ekki endurgjaldslausa aðstoð lögfræðings við að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða við að bera synjun á viðbótarumsókn undir dómstóla.

Þýskaland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna meðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eiga rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. lyfjum. Í ljósi þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður í Þýskalandi telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærandi geti leitað sér heilbrigðisþjónustu við hæfi þar í landi.

Kærandi kveðst m.a. óttast að þýsk yfirvöld endursendi hann til heimaríkis hans. Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að í Þýskalandi sé almennt veitt fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi ógnað. Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda eindregið til þess að málsmeðferð þýskra yfirvalda sé fullnægjandi og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að tryggja að réttur þeirra sé ekki brotinn og að einstaklingsbundið mat verði lagt á aðstæður þeirra. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli. Þá er Þýskaland bundið að þjóðarétti til að fylgja reglunni um að einstaklingum skuli ekki vísað brott þangað sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu (non-refoulement). Telji kærandi framangreind réttindi sín vera brotin getur hann leitað réttar síns fyrir þýskum dómstólum og Mannréttindadómstól Evrópu. Þá er Þýskaland m.a. aðili að alþjóðasamningi um réttarstöðu ríkisfangslausra einstaklinga.

Athugun kærunefndar á aðstæðum umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að líta svo á að aðstæður eða móttökuskilyrði þeirra þar í landi séu þess eðlis að hætta sé á að endursending kæranda þangað brjóti í bága við 1. eða 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga eða 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kæranda séu tryggð úrræði til að leita réttar síns í Þýskalandi bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Enn fremur er haft til hliðsjónar að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur ekki lagst gegn endursendingu umsækjenda um alþjóðlega vernd til Þýskalands á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

 

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Líkt og áður hefur komið fram kveðst kærandi vera ríkisfangslaus Róhingja múslimi. Af gögnum máls um heilsufar kæranda má sjá að kærandi þjáist af insúlínóháðri sykursýki án fylgikvilla og hafi fengið uppáskrifuð lyf vegna hennar. Þá hafi kærandi hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna í tvö skipti. Kærandi hefur greint frá því að hann þjáist af svefnleysi og honum líði illa yfir afdrifum fjölskyldu sinnar.

Af framangreindum gögnum sem kærunefnd hefur aflað og kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi má ráða að samkvæmt þýskum lögum er umsækjendum tryggður aðgangur að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa á að halda, og þ. á m. lyfjum. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað um heilbrigðiskerfið í Þýskalandi er það mat nefndarinnar að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar í málinu að kæranda bíði fullnægjandi og aðgengileg heilbrigðisþjónusta í Þýskalandi. Kærunefnd beinir því hins vegar til Útlendingastofnunar að fyrir flutning kæranda til Þýskalands verði upplýsingar um heilsufar kæranda sendar til þýskra stjórnvalda í samræmi við 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

Kærandi byggir á því að taka beri mál hans til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga því hann hafi takmarkaða möguleika á að fá mál sitt endurupptekið hjá þýskum stjórnvöldum. Kærandi ber því fyrir sig að hann hafi ekki verið spurður um hvort hann sé ríkisfangslaus í viðtali vegna málsmeðferðar hans hjá þýskum stjórnvöldum. Það hafi því ekki legið fyrir við meðferð máls hans þar í landi að hann væri ríkisfangslaus Róhingja múslimi. Kærandi hefur við málsmeðferð hans hér á landi lagt fram gagn, sem hann kveður vera frá stjórnvöldum í Bangladess, sem hann telur að styðji frásögn hans um stöðu hans þar í landi. Svo sem fram hefur komið geta skilyrði endurupptöku fyrir þýskum stjórnvöldum verið uppfyllt m.a. ef nýjar upplýsingar eða gögn liggja fyrir í máli umsækjanda eða ef verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd borið mál sitt undir þýska dómstóla sé endurupptökubeiðni þeirra hafnað. Að mati kærunefndar eru ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að í Þýskalandi séu til staðar raunhæf úrræði fyrir kæranda til að leita eftir endurskoðun á niðurstöðu í máli hans, en í því sambandi hefur kærunefnd m.a. litið til þess að kærandi teljist ekki einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu og af gögnum máls verði ekki séð að aðstæður hans séu með þeim hætti að úrræðið sé óraunhæft. Að mati nefndarinnar verður því ekki litið svo á að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda að þessu leyti teljist svo sérstakar að rétt sé að taka mál hans til efnismeðferðar á þeim grundvelli. Kærunefnd áréttar sérstaklega að nefndin hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort skilyrði slíkrar endurupptöku séu fyrir hendi í máli kæranda enda er mat um það á forræði þýskra stjórnvalda.

Kærunefnd hefur yfirfarið þau gögn sem kærandi lagði fram með kæru sinni, svo og skýrslur og upplýsingar um aðstæður í Þýskalandi. Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 1. nóvember 2017 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 11. september 2017.

Reglur stjórnsýsluréttar

Kærandi byggir á því að með ákvörðun sinni hafi Útlendingastofnun brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga þar sem hin kærða ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli ófullnægjandi upplýsinga. Stofnunin hafi ekki kannað möguleika kæranda á því að óska eftir endurupptöku á máli sínu verði hann sendur til Þýskalands.

Rannsóknarreglan í 10. gr. stjórnsýslulaga mælir fyrir um að stjórnvald afli þeirra gagna sem eru nauðsynleg svo mál sé nægilega upplýst. Reglan gerir kröfu um rannsókn sem er fullnægjandi grundvöllur ákvörðunar stjórnvalds en gerir hvorki kröfu um að aflað sé allra upplýsinga sem varpað gætu ljósi á málið né að stjórnvald afli ófáanlegra gagna. Þá segir í 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga að við meðferð mála vegna umsókna um alþjóðlega vernd skuli Útlendingastofnun afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar er fjallað um aðstæður og málsmeðferð í Þýskalandi og um einstaklingsbundnar aðstæður kæranda. Þá er sérstaklega tekin afstaða til umræddrar málsástæðu kæranda um möguleika hans á að fá mál sitt endurupptekið fyrir þýskum yfirvöldum og í því sambandi vísað til alþjóðlegra skýrslna þar um. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og öll gögn í máli kæranda. Að mati kærunefndar verður ekki talið að skort hafi á rannsókn Útlendingastofnunar er þetta atriði varðar. Svo sem fram hefur komið hefur kærunefnd yfirfarið þau gögn sem aflað var við meðferð málsins, svo og skýrslur og önnur gögn um aðstæður í Þýskalandi, og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Það er því mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar í máli kæranda hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 og andmælaréttur

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars sl. voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Að mati kærunefndar fól gildistaka reglugerðarinnar ekki í sér íþyngjandi breytingar á réttarstöðu kæranda. Koma því sjónarmið um afturvirkni laga, að því marki sem þau kynnu að vera sambærileg varðandi setningu stjórnvaldsfyrirmæla, ekki til skoðunar þessu máli.

Þá verður ekki litið svo á setning reglugerðarinnar feli í sér að ný gögn eða upplýsingar hafa bæst við í máli hans sem kæranda hafi verið ókunnugt um. Stendur andmælaréttur aðila máls því ekki í vegi fyrir því að kærunefnd úrskurði í málinu þótt kæranda hafi ekki verið veitt sérstakt tækifæri til að koma að sjónarmiðum varðandi setningu umræddrar reglugerðar. Í því sambandi áréttar kærunefnd að kærandi hefur ekki óskað eftir því að málinu verði frestað, sbr. 18. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Samantekt

Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

 

 

Úrskurðarorð

 

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

 

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

 

 

Anna Tryggvadóttir

 

 

Erna Kristín Blöndal                                                                                       Þorbjörg Inga Jónsdóttir

                                                                                             


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta