Hoppa yfir valmynd

Nr. 623/2023 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

 

Hinn 2. nóvember 2023 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 623/2023

í stjórnsýslumáli nr. KNU23040089

 

Kæra […]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. apríl 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kúbu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. apríl 2023, um að synja kæranda um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af kæru kæranda má skilja að hún krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist á umsókn hennar um alþjóðlega vernd hér á landi. Þá er þess krafist að kæra fresti réttaráhrifum.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 19. september 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 30. ágúst 2022 og 8. febrúar 2023 ásamt talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 21. apríl 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Var framangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 25. apríl 2023. Með tölvubréfi, dags. 25. apríl 2023, greindi talsmaður kæranda frá því að hún hygðist ekki leggja fram greinargerð og vísaði til greinargerðar kæranda til Útlendingastofnunar, dags. 28. október 2022, og viðbótargreinargerðar, dags. 21. febrúar 2023.

III.     Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna þátttöku sinnar í mótmælum gegn yfirvöldum.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og henni skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerðum kæranda til Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi sé ung, ógift og barnlaus kona og menntaður byggingarverkfræðingur. Hún sé fædd og uppalin í […] á Kúbu þar sem hún hafi búið þar til hún hafi flúið vegna ástandsins í landinu. Efnahagsástand almennings sé slæmt á Kúbu og hámenntað fólk sé með lág laun, hún hafi verið með 34 dollara í laun á mánuði og geti ekki með þeim tekjum unnið fyrir sér. Kærandi hafi verið í starfi sem byggingarverkfræðingur hjá ríkisfyrirtæki á Kúbu en eftir ástæðulausar ásakanir af yfirmanni þar um stuld á byggingarefni af verkstað, sem hún telji að megi rekja til mótmæla hennar gegn stjórnvöldum á Kúbu, hafi hún ákveðið að mæta ekki meira til þeirrar vinnu og flúið til Íslands. Þar sem hún hafi gert samning, sem sé skylt að gera, um að hluti af launum hennar færu til ríkisins í tvö ár eftir námslok til að greiða fyrir háskólanám, hafi sá samningur fallið úr gildi þegar hún hafi hætt starfinu. Því félli prófskírteini hennar einnig úr gildi. Kærandi hafi því verið svipt menntun sinni og geti ekki starfað sem byggingarverkfræðingur. Kærandi óttist að vera sett í fangelsi fyrir tilbúnar sakir og telji sig hvergi örugga í Kúbu.

Kærandi hafi tekið þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum á Kúbu í júlí 2021 og telji að fylgst hafi verið með henni, fjölskyldu hennar og heimili síðan. Rafmagn hafi verið tekið af heimili fjölskyldunnar að ástæðulausu og eitt skipti hafi fata full af skít verið sett við húsið, sem hún telji að hafi verið ógnandi skilaboð ætluð henni. Kærandi telji sig ekki örugga í heimaríki sínu, hún álíti sig þar í lífshættu og óttist að vera sett í fangelsi vegna tilbúinna saka. Kærandi hafi greint frá því að henni hafi liðið illa andlega undanfarið vegna ástandsins í heimaríki og sagst ekki geta snúið þangað aftur vegna einræðis stjórnvalda og kúgunar á skoðanafrelsi.

Kærandi byggi aðalkröfu sína um að henni verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður á því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sinna og mótmæla gegn stjórnvöldum og að hún geti ekki snúið aftur þangað vegna ástandsins. Kærandi geti ekki unnið fyrir sér vegna lágra launa, hún hafi verið svipt starfsréttindum og menntun, flest fyrirtæki séu í ríkiseigu og hún eigi á hættu tilhæfulausar ásakanir eins og í síðasta starfi sínu. Ótti kæranda sé persónulegur og raunverulegur. Hótanir hafi beinst að henni svo sem þegar fata full af skít hafi verið sett á tröppur heimilis hennar og síendurtekið rafmagnsleysi á heimili hennar. Jafnframt vísar kærandi til þess að hún hafi sérstök tengsl hér á landi enda búi […] hér. Til stuðnings varakröfu kæranda um að henni verði veitt viðbótarvernd vísar kærandi til þess að hún eigi á hættu alvarlegan skaða og ógn í heimaríki.

Til stuðnings þrautavarakröfu sinni um að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða vísar kærandi til aðstæðna sinna í heimaríki og að þær sýni að hún hafi þörf fyrir vernd. Með vísan til umfjöllunar að framan og fyrirliggjandi upplýsinga um heimaríki kæranda telur hún að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi í vegi fyrir endursendingu hennar þangað.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað kúbversku vegabréfi. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi kúbverskur ríkisborgari.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kúbu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • Amnesty International Report 2021/22 – Cuba (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Annual Report of the Inter-American Commission on Human Rights 2021 (IACHR, 2022);
  • Brief analysis of conflict-related incidents and protests in selected countries (covering 8 – 14 October 2022) (ACLED, https://acleddata.com/dashboard/#/dashboard);
  • Chapter IV.B Cuba. Annual report 2021 (Inter-American Commission on Human Rights, 1. júní 2022);
  • Congressional Research Service: Cuba: U.S. Policy Overview (uppfært 28. desember 2022);
  • Cuba Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, febrúar 2022);
  • Country Reports on Human Rights Practices 2021: Cuba (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • Country Reports on Human Rights Practices 2022: Cuba (U.S. Department of State, 20. mars 2023;
  • Cuba: New penal code that came into force on 1 December 2022 tightens restrictions on freedom of expression and assembly (Amnesty International, 2. desember 2022);
  • Cuba Overview (The World Bank, skoðað 19. október 2023);
  • Cuba protests: latest information (Amnesty International, 22. júlí 2021);
  • Cuba: Repressive Rules for Doctors Working Abroad (Human Rights Watch, 23. júlí 2020);
  • Cuba – Statistics & Facts (Statista, 18. nóvember 2021);
  • Factsheets, reforms in Cuba (WOLA Advocacy for Human rights in the Americas, 30. nóvember 2016);
  • Freedom in the World 2023 - Cuba (Freedom House, 2023);
  • Hospitals in Cuba (https://www.internationalinsurance.com/hospitals/cuba/, sótt 20. október 2023);
  • IOM (UN Migration);
  • July 11 in Cuba: A Year Later (Advocacy for Human Rights in the Americas (WOLA), 7. júlí 2022);
  • Political Repression in Cuba Ahead of the 2023 Parliamentary Elections (Acled, 23. mars 2023);
  • Prison or Exile. Cuba´s Systematic Repression of July 2021 Demonstrators (Human Rights Watch, júlí 2022);
  • Situation of Human Rights on Cuba (Inter-American Commission on Human Rights, 3. febrúar 2020);
  • The Health System in Cuba: Origin, Doctrine and Results (Salim Lamrani, Études caribéennes, 7. júlí 2021);
  • The State of the World´s Human Rights: Cuba 2022 (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • The World Factbook – Cuba (CIA, uppfært 11. október 2023);
  • World Report 2023 – Cuba (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • 2021 Country Security Report (U.S. Department of State´s Overseas Security Advisory Council (OSAC), 13. september 2021).

Í framangreindum gögnum kemur fram að Kúba sé eyríki í Karabíska hafinu með um 11 milljónir íbúa. Árið 1945 gerðist Kúba aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1995 og samning Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1980. Kúba er einræðisríki með eins flokka kerfi þar sem kommúnistaflokkurinn er eini löglegi stjórnmálaflokkurinn. Fidel Castro hafi leitt uppreisnarher til sigurs árið 1959 og stjórnað þar til bróðir hans, Raul Castro, hafi tekið við í febrúar 2008. Miguel Díaz-Canel hafi verið handvalinn til að taka við, verið samþykktur sem forseti af þjóðþinginu og tekið við embætti 19. apríl 2018. Þá hafi hann leyst fyrrverandi forseta, Raul Castro, af hólmi sem ritari Kommúnistaflokksins 19. apríl 2021.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að kosningar í landinu séu hvorki frjálsar né sanngjarnar. Viðskiptabann við Bandaríkin hafi verið í gildi frá árinu 1961. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafi frá desember 2014 sýnt viðleitni til að koma á diplómatískum samskiptum við kúbversku ríkisstjórnina og hafi bæði ríkin opnað sendiráð í sínum löndum frá júlí 2015. Viðskiptabannið sé enn í gildi og samband Bandaríkjanna og Kúbu stirt.

Efnahagskerfið sé að mestu ríkisrekið þó einkavæðing og erlendar fjárfestingar hafi aukist. Raul Castro hafi byrjað að færa Kúbu í átt að blönduðu hagkerfi með sterkari einkageira og merkja megi breytingar þó þær séu hægfara. Með nýrri stjórnarskrá sem Kúba hafi samþykkt árið 2019 hafi verið stigið skref til umbóta en yfirráð yfir efnahagsmálum hafi haldist hjá ríkinu. Covid-19 heimsfaraldurinn hafi bitnað harkalega á kúbversku efnahagslífi. Ríkisstjórnin hafi lækkað hagvaxtaspá sína fyrir árið 2022 úr 4% í 2%. Þá hafi hæg endurreisn ferðaþjónustunnar haft áhrif á hagkerfið, auk áhrifa vegna innrásar Rússlands í Úkraínu, þ.m.t. á matvæli og eldsneytisverð. Stórfelldur bruni í ágúst 2022 sem hafi skemmt helstu olíugeymslu Kúbu og fellibylurinn Ian, sem hafi valdið miklum skemmdum í vesturhluta Kúbu í lok september 2022 hafi ennfremur haft neikvæð áhrif á efnahag landsins.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur fram að innanríkisráðuneytið hafi eftirlit með lögreglu, öryggissveitum og fangelsiskerfinu. Þjóðarbyltingarlögreglan (e. The National Revolutionary Police) sé æðsta löggæslustofnun ríkisins. Sérhæfðar deildir öryggissviðs ráðuneytisins beri ábyrgð á eftirliti og að halda niðri sjálfstæðri stjórnmálastarfsemi. Forysta ríkisins, þar á meðal meðlimir hersins, haldi uppi virkri stjórn á öryggissveitum. Trúverðugar heimildir beri með sér að meðlimir öryggissveitanna hafi framið fjölda ofbeldisverka og að pólitískum föngum hafi fjölgað. Þá séu aðstæður í fangelsum afar bágbornar.

Í sömu skýrslu kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda séu ólögleg og handahófskennd morð, þ.m.t. án dóms og laga, mannshvörf, pyndingar, ómannúðleg og vanvirðandi meðferð öryggissveita á pólitískum andófsmönnum, varðhaldsföngum og föngum, erfiðar og lífshættulegar aðstæður í fangelsum, handahófskenndar handtökur og gæsluvarðhald pólitískra fanga og skerðing á sjálfstæði dómstóla. Í skýrslunni kemur fram að handahófskennd eða ólögmæt afskipti af friðhelgi einkalífs viðgangist og stjórnvöld hafi beint hefndaraðgerðum gegn fjölskyldumeðlimum vegna meintra brota einstaklinga. Þá séu í landinu alvarlegar takmarkanir á tjáningar- og fjölmiðlafrelsi þar sem ofbeldi og hótanir um ofbeldi gegn blaðamönnum tíðkist í auknum mæli auk þess sem ritskoðun og meiðyrðalög séu notuð gegn einstaklingum sem gagnrýni forystu stjórnvalda auk þess sem stjórnvöld stundi alvarlegar takmarkanir á netfrelsi. Vanmáttur borgaranna til að hafa áhrif á stjórn ríkisins með friðsamlegum hætti í frjálsum og sanngjörnum kosningum, þ.m.t. alvarlegar og óeðlilegar takmarkanir á stjórnmálaþátttöku auk mikillar spillingar innan stjórnkerfisins. Þrátt fyrir að það sé stefnumál stjórnvalda, þá láta þau hjá líða að rannsaka og lögsækja þá sem fremji ofbeldisverk og refsileysi gerenda sé því enn útbreitt. Ennfremur ríki refsileysi vegna opinberrar spillingar.

Í sömu skýrslu kemur fram að stjórnarskrá Kúbu frá 2019 kveði á um tjáningarfrelsi borgaranna, þ. á m. blaðamanna og annarra fjölmiðlamanna, en með því skilyrði að tjáningin „samrýmist markmiðum sósíalísks samfélags“. Lögin kveði á um fangelsisrefsingu frá þremur mánuðum að 15 ára fangelsi fyrir að gagnrýna stjórnmálamenn eða dreifingu áróðurs gegn stjórnvöldum. Þá hafi stjórnvöld takmarkað tjáningu og aðgengi að samfélagsmiðlum s.s. Facebook, Instagram og Telegram, m.a. á efni sem stjórnvöld telji „viðkvæm“. Kúbversk stjórnvöld haldi áfram að bæla niður og refsa fyrir hvers kyns andóf og opinbera gagnrýni. Hinn 11. júlí 2021 hafi tugþúsundir manna streymt út á götur víðs vegar um eyjuna og hafið friðsamleg mótmæli vegna efnahagsmála, lyfjaskorts, viðbragða stjórnvalda við Covid-19 heimsfaraldrinum, takmarkana á tjáningarfrelsi og banns á rétti fólks til að safnast saman á friðsamlegum samkomum. Ríkisstjórnin hafi brugðist við með harkalegum aðgerðum, þar á meðal víðtæku varðhaldi mótmælenda, aðgerðarsinna og almennra borgara. Í kjölfar mótmælanna hafi hundruð mótmælenda verið sóttir til saka og dæmdir, þar á meðal 25 ólögráða börn.

Í skýrslu Human Rights Watch frá 2022 komi fram að mótmælin hafi verið þau stærstu og útbreiddustu í áratugi. Þess hafi verið krafist að kúgun stjórnvalda yrði hætt og hafi stjórnvöld verið gagnrýnd fyrir að gera ekkert til að uppfylla grunnþarfir borgaranna. Kúbverjar séu orðnir langþreyttir á efnahagsástandinu í landinu en auk þess hafi Covid-19 heimsfaraldurinn gert illt verra og stjórnvöld séu sökuð um að nýta sér ástandið til að brjóta enn frekar á borgurum sínum. Öryggissveitir hafi mætt mótmælendum með táragasi, barsmíðum og handtökum. Forsetinn hafi kallað til „alla byltingarsinna og kommúnista til að takast á við þessi mótmæli“, sem sé tilvísun í 4. gr. stjórnarskrárinnar, sem veiti borgurum rétt til að „berjast með hvaða hætti sem er, þar á meðal með vopnum í bardaga“ gegn hverjum þeim sem „ætlar að kollvarpa pólitísku, félagslegu og efnahagslegu skipulagi sem komið er á með þessari stjórnarskrá“. Í október 2021 hafi yfirvöld hafnað beiðni um að veita leyfi fyrir friðsamlegum mótmælum sem fyrirhuguð hafi verið 15. nóvember 2021 og haft uppi hótanir gegn skipuleggjendum. Yfirvöld hafi lýst yfir að fyrirhuguð mótmæli, sem hópur listamanna og andófsmanna hafi skipulagt, væru ólögleg. Seinna í októbermánuði hafi ríkissaksóknari gefið út yfirlýsingu þar sem fólk hafi verið varað við saksókn ef mótmælin færu fram.

Í grein um heilbrigðiskerfið í Kúbu frá árinu 2021 og í frétt á vef Human Rights Watch frá 23. júlí 2020, kemur fram að eftir byltinguna árið 1959 hafi stjórnvöld á Kúbu einsett sér að veita öllum borgurum alhliða heilbrigðisþjónustu og vandaða ókeypis menntun. Þá kemur fram að heilbrigðiskerfi Kúbu þyki lofsvert á heimsvísu, m.a. vegna þess að það sé ókeypis fyrir alla borgara landsins. Það séu engin einkasjúkrahús eða heilsugæslustöðvar á Kúbu þar sem allir þættir heilbrigðisþjónustunnar séu reknir af stjórnvöldum og miði stefna stjórnvalda einkum að öflugum forvörnum. Heilbrigðisþjónusta hafi verið í forgangi og þyki sjálfsögð mannréttindi allra borgara landsins enda hafi náðst mikill árangur í baráttu við ýmis konar sjúkdóma og sé meðallífaldur 79 ár sem sé á pari við ríkustu lönd heims. Þá eigi þær fjölmörgu heilbrigðisstofnanir sem starfi í landinu að aðlaga sig að þörfum þess hóps sem leiti til þeirra, t.d. ef mikill fjöldi sjúklinga sé með sykursýki eða háan blóðþrýsting þá sé þjónustu við þá hópa efld. Þó hrjái ýmislegt heilbrigðisþjónustuna, m.a. þarfnist innviðir endurnýjunar, flestar byggingar séu í slæmu ástandi og þarfnist viðgerða. Læknar glími einnig við ýmis vandamál, svo sem lyfjaskort og skort á lækningatækjum. Viðskiptabann Bandaríkjanna hafi haft mikil áhrif á aðgang Kúbu að lækningatækjum þar sem búnaður sé fluttur alla leið frá Kína sem geti tekið langan tíma að fá afhentan. Þrátt fyrir að ekki séu starfandi einkarekin sjúkrahús eða heilsugæslustöðvar, þá séu starfandi sérhæfðar heilsugæslustöðvar sem séu sérstaklega ætlaðar diplómötum og ferðamönnum. Bestu sjúkrahúsin og læknar sinni ferðamönnum og stjórnmálamönnum og almennir borgarar þurfi að lifa við skerta þjónustu. Í janúar 2022 hafi yfirvöld viðurkennt að skortur væri á lyfjum í landinu og að um 88 af þeim 262 lyfjum sem væru talin mikilvægust væru ófáanleg í landinu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um stöðu mannréttinda í Kúbu kemur fram að stjórnarskráin kveði á um jafnan rétt kvenna og karla. Konur hafi sömu réttindi og skyldur í hjónabandi, við skilnað, við forsjárskyldur og til atvinnu. Lög kveði á um bann við nauðgunum og ,,lostafullri misnotkun“ gegn báðum kynjum. Viðurlög við nauðgun séu að minnsta kosti fjögurra ára fangelsi auk þess sem kynferðisleg áreitni sé refsiverð. Þá hafi nýleg fjölskyldulög í landinu styrkt réttindi kvenna og stúlkna, m.a. með því að efla rétt til barnseigna og leggja bann við heimilisofbeldi og öllum líkamlegum refsingum. Í skýrslum baráttuhópa um kvenréttindi komi hins vegar fram að glæpir gegn konum séu vanskráðir og stjórnvöld rannsaki málin ekki með fullnægjandi hætti.

Á vefsíðu AACRAO (The American Association of Collegiate Registrars and Admissions Officers) kemur fram að menntun á Kúbu er ókeypis, frá grunnskóla til doktorsnáms. Menntun er í hávegum höfð og höfuðáhersla á að hafa hana aðgengilega fyrir alla. Að jafnaði velji nemendur námsfög sem höfða til þeirra og nemendur hafi tækifæri til að snúa aftur í skóla til endurmenntunar og skipta um starfsferil ef þeir vilja og eftirspurn er eftir því starfi.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna stjórnmálaskoðana sinna og almenns ástands.

Mat á trúverðugleika frásagna kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum frá heimaríki kæranda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fædd og uppalin í […], í […] héraði á Kúbu og hafa búið þar þangað til hún hafi flúið heimaríki sitt. Kærandi hafi tekið þátt í almennum mótmælum 11. júlí 2021. Hún hafi útskrifast sem byggingarverkfræðingur í desember 2021 og starfað sem slíkur hjá ríkisfyrirtækinu […] í næstum sjö mánuði áður en hún hafi komið til Íslands. Starfið hafi verið starfsnám enda sé fólki skylt að vera í starfsnámi í tvö ár eftir útskrift til þess að greiða háskólanum til baka fyrir námið sem sé ókeypis. Kærandi hafi lýst því að hún hafi lent í vandræðum í vinnunni þegar hún hafi komist að því að byggingarefni hafi verið stolið af byggingarsvæði sem […] hafi fylgst með. Hún hafi tilkynnt yfirmanni sínum um stuldinn sem hafi þó ekki aðhafst og sagt henni að halda áfram að hafa eftirlit á þessum stað og að það væri ekki hennar verkefni að hafa áhyggjur af slíku. Kærandi hafi ekki viljað vinna áfram og verið hrædd um að eitthvað myndi koma fyrir og að hún yrði látin bera ábyrgð á stuldinum. Þegar hún hafi verið send aftur á svæðið eftir mánuð hafi hún sótt um leyfi frá vinnunni og tekið sér þriggja mánaða leyfi. Hún hafi því ekki klárað starfsnámið, námsskírteini hennar sé ekki í gildi og atvinnumöguleikar engir. Kærandi kvaðst óttast um stöðu sína í landinu, vegna almenns ástands og þess að hún hafi ekki getað unnið vinnuna sína almennilega vegna ástandsins.

Kærandi hefur greint frá því að hún hafi einungis tekið þátt í mótmælum einu sinni, 11. júlí 2021, en þá hafi þúsundir manna mótmælt á götum úti og fjöldi fólks verið handtekinn. Gögn bera með sér að efnt hafi verið til fleiri mótmæla á síðustu árum í Kúbu vegna almennra aðstæðna, m.a. í borginni […], og að yfirvöld hafi í einhverjum tilvikum handtekið almenna borgara vegna þátttöku þeirra. Þá hafi yfirvöld gripið til ýmissa aðgerða til þess að sporna gegn mótmælum sem og annars konar andstöðu við stjórnvöld. Gögn benda þó til þess að athygli og aðgerðir stjórnvalda til að bæla niður andstöðu beinist einkum að aðgerðarsinnum, lista- og blaðamönnum og öðrum sem fari hátt með stjórnmálaskoðanir sínar og séu áberandi í gagnrýni sinni. Þrátt fyrir viðbrögð stjórnvalda benda heimildir til þess að fjöldi frjálsra félagasamtaka starfi í landinu sem berjist fyrir réttindum íbúa og þá hafi á síðustu árum orðið aukning í sjálfstæðri fjölmiðlaumfjöllun á veraldarvefnum. Kærandi kvað að eftir að hún hafi mætt til mótmæla í júlí 2021 hafi hún orðið vör við að hún væri undir sérstöku eftirliti og að tilraunir hafi verið gerðar til að koma höggi á hana. Fata með skít hafi verið skilin eftir fyrir utan hús fjölskyldu hennar og þau hafi ítrekað verið rafmagnslaus. Kærandi hefur að mati kærunefndar ekki leitt rökstuddar líkur að því að þessi atvik tengist því að hún hafi tekið þátt í mótmælum þetta eina sinn eða að hún hafi verið eða sé undir sérstöku eftirliti af hálfu stjórnvalda. Við það mat hefur kærunefnd einkum litið til þess að kærandi kveðst m.a. hafa getað klárað háskólanám sitt í lok árs 2021, fengið starfssamning við ríkisrekið fyrirtæki í janúar 2022 og getað ferðast án hindrana hingað til lands í september 2022. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Þá verður ekki talið að gögn málsins beri með sér að kærandi eigi á hættu að sæta ofsóknum af öðrum ástæðum er tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá telur kærunefnd jafnframt að samlegðaráhrif þeirra atriða sem kærandi hefur vísað til sem hugsanlegar ástæður ofsókna séu ekki þess eðlis eða nái því marki að hún teljist eiga á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.

Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Kærandi vísar til þess að hún sé í hættu vegna almenns ástands og erfiðra efnahagslegra aðstæðna í heimaríki. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið á Kúbu sé víða ótryggt sökum náttúruhamfara og efnahagsþrenginga, m.a. í kjölfar Covid-19 heimsfaraldursins, og að fjöldi þeirra sem yfirgefið hafa landið hafi aukist verulega síðustu ár. Það er þó mat kærunefndar að virtum framburði kæranda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið á Kúbu að kærandi eigi ekki á hættu meðferð sem brjóti gegn 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, s.s. að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði henni gert að snúa til Kúbu.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Telur kærunefnd því ljóst að kærandi uppfylli heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Kærandi hefur greint frá erfiðum aðstæðum í heimaríki vegna þess að hún hafi mótmælt aðgerðum ríkisstjórnarinnar og aðstæðum í landinu en einnig vegna starfa sinna sem byggingarverkfræðingur og takmarkana stjórnvalda á frelsi þeirra, m.a. til tjáningar. Kærandi telur m.a. ljóst að hún geti ekki lifað öruggu og eðlilegu lífi fjarri ofbeldi og áreiti stjórnvalda og að ástand mannréttindamála þar í landi sé slæmt og félagslegar aðstæður bágbornar. Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í athugasemdum kemur jafnframt fram að erfiðar almennar aðstæður geti tekið til óvenjulegra aðstæðna á borð við náttúruhamfarir eða langvarandi stríðsástand í heimaríki. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður á Kúbu telur kærunefnd að þrátt fyrir erfiðleika í heimaríki kæranda séu almennar aðstæður í heimaríki ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli erfiðra almennra aðstæðna.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Í gögnum málsins kemur fram að kærandi sé almennt heilsuhraust, hún sé nýlega útskrifuð úr byggingarverkfræði og hafi verið starfandi þar til hún hafi yfirgefið heimaríki sitt. Kærandi hefur greint frá því að hún óttist það að geta ekki starfað sem byggingarverkfræðingur í heimaríki. Kærandi hefur að mati kærunefndar ekki leitt líkur að því að hún geti ekki fengið atvinnu í heimaríki. Hún hafi greint frá því að hún hafi búið hjá foreldrum sínum og eigi kærasta í heimaríki. Menntun Kúbverja er þungamiðja samfélagsins og er hún gjaldfrjáls fyrir alla. Stjórnarskrá Kúbu kveður á um rétt borgara til atvinnu. Af skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins er ljóst að borgurum verði í einhverjum tilvikum sagt upp störfum og mæti hindrunum, hafi þeir tjáð sig um pólitískar skoðanir í óþökk stjórnvalda. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað verður ekki séð annað en að kærandi geti snúið aftur til heimaríkis og farið aftur í skóla eða endurnýjað atvinnusamning. Þrátt fyrir að stjórnvöld kveði niður mótmæli og skerði tjáningarfrelsi þegna sinna þá verður ekki talið að frásögn hennar um að prófskírteini hennar hafi verið gert ógilt, eigi við rök að styðjast. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki sýnt fram á að hún hafi verið áreitt vegna stjórnmálaskoðana sinna eða vegna þátttöku í mótmælum. Verður því ekki byggt á öðru en að hún geti, óski hún þess, snúið aftur til starfa sem byggingarverkfræðingur eða annarra starfa og að hún hafi verið fær um að framfleyta sér og muni vera það áfram. Er það mat kærunefndar að kærandi sé fær um að framfleyta sjálfri sér og njóti auk þess stuðnings fjölskyldu í heimaríki. Stjórnarskrá Kúbu kveði á um jafnan rétt kvenna og karla. Konur hafi sömu réttindi og skyldur í hjónabandi, við skilnað, við forsjárskyldur, framfærslu heimilis og til atvinnu. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga .

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hún verði ekki send áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar hér að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 19. september 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hún því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa henni úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun var kæranda tilkynnt að Útlendingastofnun væri með það til skoðunar hvort brottvísa bæri henni frá landinu með endurkomubanni til tveggja ára. Var kæranda gefið færi á að tjá sig um það og hafa uppi andmæli. Kærandi kvað frænku sína og fjölskyldu hennar búa hér á landi.

Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hennar og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hennar eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frests sem henni er gefinn og fari til heimaríkis eða annars lands þar sem hún hefur heimild til dvalar.

Í ákvörðunarorðum Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og tekið fram að yfirgefi hún landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

 

Sindri M. Stephensen                                                                    Þorbjörg I. Jónsdóttir


 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta