Matsnefnd eignarnámsbóta, úrskurður 1. júní 2005
Ár 2005, miðvikudaginn 1. júní, er í matsnefnd eignarnámsbóta samkvæmt lögum nr. 11/1973 tekið fyrir matmálið nr. 2/2005.
Vegagerðin
gegn
Ragnari Sigurðssyni
og í því kveðinn upp svohljóðandi
ÚRSKURÐUR
Úrskurð þennan kveða upp Allan Vagn Magnússon, héraðsdómari og varaformaður matsnefndar eignarnámsbóta, ásamt meðnefndarmönnunum, Benedikt Bogasyni, héraðsdómara og Sverri Kristinssyni, löggiltum fasteignasala, en formaður hefur kvatt þá til starfa í málinu skv. heimild í 2. mgr. 2. gr. laga nr. 11/1973.
Með bréfi dagsettu 16. febrúar 2005 beiddist eignarnemi sem er Vegagerðin Borgartúni 5 og 7, Reykjavík þess með vísan til 46. gr. vegalaga nr. 45/1994 og laga nr. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms að matsnefnd eignarnámsbóta mæti bætur vegna framkvæmda við vega- og jarðgangagerð í landi Syðri-Fjarðar, Sveitarfélaginu Hornafirði.
Eignarnámsþoli er Ragnar Sigurðsson, Syðra-Firði, sveitarfélaginu Hornafirði.
Í september 2003 var framkvæmdin kynnt almenningi og opinberum aðilum, og jafnframt leitað eftir afstöðu Skipulagsstofnunar til matsskyldu, sbr. 6. gr. laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum framkvæmda. Með bréfi dags. 12. nóvember 2003 tilkynnti Skipulagsstofnun eignarnema að framkvæmdin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Viðræður aðila um bætur leiddu ekki til samkomulags.
Framkvæmdir eignarnema felast í lagningu Hringvegar í 1146 m tvíbreiðum jarðgöngum undir Almannaskarð á milli Skarðsdals og Skarðsfjarðar í sveitarfélaginu Hornafirði. Gangamunni norðan skarðsins verður í um 82 m hæð yfir sjávarmáli, en sunnan skarðsins í landi Horns í um 43 m hæð í klettabelti neðan við Almannaskarð. Við gangamunna beggja vegna verða byggðir vegskálar, 90 m langur norðan megin en 72 m langur sunnan megin. Heildarlengd framkvæmdakaflans er 5,4 km, þar af eru jarðgöng um 1,3 km, nýr vegur um 1,4 km og endurbætur á núverandi vegi á um 2,7 km kafla.
Eignarnámið nær til landspildu undir vegsvæði vegna breikkunar núverandi vegar auk nýs vegarkafla að gangamunna. Við gangamunna er byggður vegskáli og nær eignarnámið til lands undir það mannvirki. Loks kveður eignarnemi eignarnámið ná til lands yfir jarðgöngum allt þar til miðlína þeirra er á 30 m dýpi undir yfirborði Syðra-Fjarðar. Flatarmál hinnar eignarnumdu spildu sé 5,61 ha., og hafi þá verið tekið tillit til þess að miðað er við að núverandi vegi hafi tilheyrt 1,46 ha.
Samkvæmt framansögðu sundurliðast flatarmál hins eignarnumda lands sem hér segir:
Vegsvæði Hringvegar: 7,07 ha.
Til frádráttar núv. vegsvæði -1,46 ha.
Samtals skerðing lands: 5,61 ha.
Auk framangreinds er andlag eignarnámsins malarefni úr Fjarðará í landi Syðri-Fjarðar. Um er að ræða námu 1, sem er í um 2 km fjarlægð frá sjálfu framkvæmdasvæðinu.
Framkvæmdatími samkvæmt útboðslýsingu hófst í mars 2004 og verklok í síðasta lagi 15. júní 2005.
KRÖFUGERÐ
Aðalkrafa eignarnema er að bætur fyrir andvirði hins eignarnumda lands og jarðefnis til vegagerðar taki mið af Orðsendingu eignarnema um landbætur o.fl. nr. 15/2004. Miðað verði við að um sé að ræða land hæft til beitar. Bætur fyrir jarðefni miðist við að um sé að ræða burðarlagsefni og að náman sé staðsett utan markaðssvæða.
Þá er gerð sú krafa að kröfu eignarnámsþola um bætur fyrir jarðefni úr jarðgöngum verði vísað frá nefndinni.
Til vara er þess krafist, að bætur vegna hins eignarnumda lands taki hins vegar mið af úrskurði í matsmáli nr. 3/2004 vegna Horns. Bætur vegna efnistöku úr Fjarðará taki mið af Orðsendingu nr. 15/2004.
Enn fremur er þess krafist til vara að kröfu eignarnámsþola um bætur vegna jarðefnis úr göngum verði hafnað eða að öðrum kosti verði bætur fyrir jarðefni úr göngum mun lægri en krafist er af hálfu eignarnámsþola og að hámarki 7 kr./m3 sbr. Orðsending um landbætur o.fl. nr. 14/2005.
Af hálfu eignarnámsþola, er þess krafist að bætur til handa eignarnámsþola vegna þeirrar eignaskerðingar og verðmætarýrnunar sem hljótast muni af framkvæmdum Vegagerðarinnar verði metnar að minnsta kosti að fjárhæð 5.921.000 krónur. Jafnframt er krafist málskostnaðar úr hendi matsbeiðanda.
SJÓNARMIÐ EIGNARNEMA.
Eignarnemi bendir á að hið eignarnumda land sé að stærstum hluta meðfram núverandi Hringvegi í landi Syðri-Fjarðar. Sáralitla breytingu verði að gera á legu Hringvegar í landi Syðri-Fjarðar frá því sem nú er að frátöldu því landi sem leggja verði undir gangamunnann, vegskála og tengingu við Hringveg. Þar sem um sé að ræða land meðfram núverandi vegi sem nú þegar hafi verið raskað vegna vegarins sé raunveruleg skerðing nytjalands mun minni en ef um væri að ræða nýtt vegsvæði sem skeri land á nýjum stað en áður var. Öll aðstaða til búskapar og annarra nytja jarðarinnar sé óröskuð þrátt fyrir eignarnámið. Slæm veður geti orðið í næsta nágrenni hinnar eignarnumdu spildu þar sem mjög hvasst geti orðið í Almannaskarði, einkum í norðaustanátt. Hin eignarnumda spilda sé í hlíðinni norðan megin við Almannaskarð. Í fljótu bragði verði að telja að það land, sem hin eignarnumda spilda liggi um, geti vegna aðstæðna, legu og landkosta fyrst og fremst nýst sem úthagi fyrir sauðfé. Verði ekki séð að eignarnámið geti haft í för með sér neikvæð áhrif á nýtingu landsins til beitar eða annars sem aðstæður leyfi. Samkvæmt gildandi aðalskipulagi sé nýting landsins fyrst og fremst hefðbundin landbúnaðarnot. Auk þess sé heimilt að nýta hluta landsins undir urðun sorps og hafi jörðin verið leigð Papafirði ehf. sem samkvæmt fyrirtækjaskrá reki skólpveitur, sorphreinsun og skylda starfsemi. Eðlilegt sé að við mat á verðmæti hins eignarnumda verði tekið mið af þeirri nýtingu sem sé í samræmi við áform skv. aðalskipulagi. Eignarnámið hafi engin áhrif á þessi not jarðarinnar, nema ef væri jákvæð áhrif vegna bættra samgangna sem fylgi göngum undir Almannaskarð. Auðveldara verði með alla flutninga sorps og úrgangs til og frá Syðra-Firði og betri tengsl við aðra hluta sveitarfélagsins.
Af hálfu eignarnema er á því byggt að engar bætur eigi að koma fyrir land sem tilheyri nú þegar vegsvæði Hringvegar enda hafi það land verið hluti vegar og því eign og í umráðum eignarnema. Skerðing lands vegna fyrirhugaðra framkvæmda taki einungis til þess lands, sem tekið sé til viðbótar sem að mestu sé vegna breikkunar en einnig færslu vegarins frá núverandi legu hans.
Af hálfu eignarnema er á því byggt, að bætur til eignarnámsþola eigi að miðast við sannað fjárhagslegt tjón hans af eignarnáminu. Til frádráttar bótum eigi að koma hagsbætur þær, sem ætla megi að hljótist af framkvæmdum. Vegagerðin gefi út verðgrundvöll sem miðað sé við þegar bætur séu greiddar fyrir landbúnaðarland og malarefni til vegagerðar að höfðu samráði við Bændasamtök Íslands. Almennt sé miðað við verðgrundvöll þennan þegar boðnar séu bætur fyrir landbúnaðarland, þegar það sé í meðallagi verðmætt, og skerðing á ræktunarlandi hafi ekki tilfinnanleg áhrif á heildarstærð ræktanlegs lands viðkomandi jarðar. Núgildandi orðsending um landbætur sé nr. 15/2004, en verði væntanlega endurskoðuð síðar á þessu ári með hliðsjón af verðlagsþróun. Samkvæmt orðsendingunni séu lágmarksbætur fyrir ræktunarhæft land undir veg 28.000 kr./ha. en óræktunarhæft gróið land með 10.500 kr./ha. Eignarnemi telur ekki í ljós leitt að verðmæti þess lands sem hér um ræði sé meira en sem þessu nemi. Eignarnámið beinist fyrst og fremst að landi meðfram vegi og sé flatarmál hinnar eignarnumdu spildu lítið í hlutfalli við heildarstærð jarðarinnar og muni því lítið um þá spildu sem tekin sé eignarnámi. Eignarnemi hafi almennt stuðst við þá viðmiðun sem fram komi í orðsendingu um landbætur í samningum við landeigendur á þessu svæði og í nágrannahéruðum. Orðsending eignarnema sé viðurkennd viðmiðun við mat á verðmæti landbúnaðarlands enda gerð í samráði við Bændasamtök Íslands. Þegar svo háttar til sem hér og ekki liggi fyrir gögn um hærra landverð sé eðlilegt að taka mið af orðsendingunni. Verðviðmiðun í orðsendingu eignarnema hafi verið endurskoðuð í samræmi við verðlagþróun undanfarin ár og hafi hækkanir verið langt umfram almennar vísitöluhækkanir og þannig hlutfallslega haldið í við hækkanir á fasteignaverði. Fram komi í gögnum að fasteignamat jarðarinnar Syðri-Fjarðar fyrir utan ræktað land sé 321 þúsund krónur. Með hliðsjón af stærð jarðarinnar sé meðalverð á ha. lægra en miðað sé við í bótatilboði eignarnema. Fram komi að 18,2 ha. ræktaðs lands séu metnir á tæpar 963 þúsund krónur eða tæpar 53.000 kr./ha. sem sé mun lægra en gert sé ráð fyrir að greitt sé fyrir ræktað lands skv. orðsendingu eignarnema. Til hliðsjónar megi hafa samninga um kaup á jörðum í næsta nágrenni Syðri-Fjarðar en hafa verði þó allan fyrirvara á því þar sem um misjafna landkosti, legu og mögulegar nytjar sé að ræða.
Varðandi mat á bótum almennt er einnig vísað til fyrri úrskurða matsnefndar eignarnámsbóta eftir því sem við geti átt. T. d. megi líta á úrskurð í máli nr. 4/1998, sem að einhverju leyti geti talist sambærilegt mál sem hægt sé að hafa til hliðsjónar en þar hafi bætur fyrir 11,13 ha. verði metnar að fjárhæð 90.000 kr., eða um 8.000 kr./ha., en litið hafi verið sérstaklega til þess að undirlendi jarðarinnar væri afar lítið og því öll skerðing bagaleg og bætur þar með ákvarðaðar hærri en ella.
Eignarnemi telur að miða eigi við Orðsendingu eignarnema nr. 15/2004 við mat á bótum fyrir jarðefni til vegagerðar úr landi Syðri-Fjarðar. Efnið henti vel í burðarlag vegar og sé því miðað við þann verðflokk í orðsendingu. Ennfremur sé miðað við að um sé að ræða námu utan markaðssvæða og verðið því 14 kr./m3. Orðsending eignarnema hafi verið sú viðmiðun sem horft hafi verið til við mat á bótum fyrir jarðefni til vegagerðar. Í máli þessu liggi fyrir að náman í Syðra-Firði sé fjær Höfn í Hornafirði en svo að það geti borgað sig að flytja þaðan efni til mannvirkjagerðar. Hornfirðingar sæki efni annað, s.s. í námur í landi Horns. Engu breyti í því samhengi þó að göngin stytti flutningsleiðina eitthvað og auðveldi flutninga þar sem þrátt fyrir allt verði áfram styttra að sækja efni í námur nær Höfn. Efnið sé tekið úr Fjarðará þar sem nægt efni sé til staðar fyrir hugsanlega framtíðarnotkun landeiganda eða annarra, s.s. eignarnema. Endurnýjun eigi sér stað þar sem áin beri fram stöðugt meiri möl í stað þeirrar sem tekin sé. Efnistakan muni því ekki hafa í för með sér varanlega skerðingu og tjónið af þeim sökum minna en ella. Þar sem ekki sé um aðra kaupendur að efninu að ræða en eignarnema sé ekki fyrir hendi markaður fyrir jarðefni úr námunni. Af þeim sökum liggi fyrir að eignarnámsþoli hefði ekki getað selt efnið til annarra en eignarnema og það því vart hafi fjárhagslegt gildi nema fyrir eignarnema. Enn fremur liggi fyrir að nægt efni sé til staðar sýni aðrir áhuga á að kaupa efni og verður eignarnámsþoli því ekki af tekjum af sölu efnis við eignarnámið. Bætur að fjárhæð 14 kr./m3 muni því bæta að fullu tjón eignarnámsþola af efnistökunni og vel það.
Eignarnemi mótmælir því að eignarnámsþola beri bætur fyrir jarðefni úr jarðgöngum. Krefst eignarnemi þess aðallega að kröfum eignarnámsþola þar að lútandi verði vísað frá nefndinni en til vara er þess krafist að kröfum þessum verði alfarið hafnað.
Krafa um frávísun sé á því byggð að eignarnemi hafi ekki tekið umrætt efni eignarnámi. Eignarnemi viðurkenni ekki eignarrétt eignarnámsþola að umræddu jarðefni. Af hálfu eignarnema sé á því byggt, að samkvæmt almennum meginreglum eignaréttarins um inntak eignarréttar yfir fasteign nái réttur landeiganda til nýtingar auðlinda í jörðu aðeins til venjulegrar nýtingar á eign sem eðlilegt og skynsamlegt sé að gera ráð fyrir á hverjum tíma. Við losun og uppgröft bergs af miklu dýpi við jarðgangagerð verði berg sem áður hafi verið ónýtanlegt með öllu aðgengilegt og nýtanlegt fyrir tilverknað eignarnema og með ærnum tilkostnaði. Ekki sé eðlilegt með tilliti til hagsmuna eignarnámsþola eða eignarnema að viðurkenna að við þessar aðstæður verði eignamyndun hjá eignarnámsþola á kostnað almennings. Verði slík niðurstaða ekki leidd af skýringu á ákvæðum laga nr. 57/1998 um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu þar sem þau vísi alfarið til almennra meginreglna eignaréttarins um inntak og umfang eignarréttinda yfir auðlindum undir yfirborði fasteignar. Komi það fram í greinargerð með frumvarpi til laganna. Matsnefnd eignarnámsbóta hafi ekki það hlutverk að fjalla um og úrskurða um ágreining sem snúi að eignarrétti yfir verðmætum. Af þeim sökum sé það krafa eignarnema, að nefndin vísi frá kröfu um bætur fyrir umrætt jarðefni þar sem það sé ekki viðurkennt sem andlag eignarnáms í málinu og ágreiningur er um eignarrétt að því. Jarðefni úr göngum hafi ekki verið vinnanleg auðlind undir yfirborði Syðri-Fjarðar fyrr en eignarnemi hóf framkvæmdir. Eignarréttur landeiganda til efnisins hafi því ekki verið fyrir hendi samkvæmt lögum um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu nr. 57/1998 og almennum meginreglum eignaréttarins. Við uppgröft efnisins hafi eignarnemi eignast efnið og verið frjálst að ráðstafa því að vild án bótagreiðslna til eignarnámsþola. Með hliðsjón af framangreindu sé eignarnemi þeirrar skoðunar að úrskurður í máli nr. 3/2004, þar sem matsnefnd eignanámsbóta ákvarðaði bætur fyrir efni úr göngunum til eigenda jarðarinnar Horns, sé án fordæma og í andstöðu við meginreglur eignaréttarins. Fordæmisgildi úrskurðarins sé takmarkað þar sem niðurstaðan sé mjög umdeilanleg, án fordæma og feli í sér ótvíræða stefnubreytingu.
Verði ekki fallist á að vísa beri kröfu um bætur fyrir jarðefni úr göngum frá nefndinni sé þess krafist til vara, að engar bætur verði metnar vegna jarðefnis úr göngum, eða a.m.k. mun lægri en krafist sé af eignarnámsþola. Eignarnámsbótum sé ætlað að bæta skerðingu á fjárhagslegum verðmætum sem eignarnámsþoli verði fyrir við eignarnámið. Ekki sé með nokkru móti hægt að sjá að hann verði fyrir fjárhagslegu tjóni við það eitt að eignarnemi noti umrætt jarðefni. Það almenna skilyrði bótaréttar, að fjárhagslegt tjón hafi orðið, sé því ekki fyrir hendi. Um sé að ræða jarðefni sem grafið sé úr jörðu af miklu dýpi undir landi Syðri-Fjarðar. Dýrar ráðstafanir og tæknibúnað í gangagerð þurfi til þess að losa efnið og koma því upp á yfirborð jarðar. Til að þessi vinnsla gæti borgað sig þyrfti efni að vera mjög verðmætt. Augljóst sé að ekki sé mögulegt með skynsamlegum hætti að vinna efni með svo miklum kostnaði þegar nægt grjót sé og muni verða til staðar til vinnslu af yfirborði jarðar. Mikið magn jarðefnis falli til við gangagerðina og sé það misjafnt að gæðum. Efnið sé lagskipt þar sem skiptist á efni sem nothæft sé í fyllingar og ónothæft efni. Flokka þurfi frá ónothæft efni og koma fyrir utan vegfyllingar eða á frálagsstaði. Eignarnemi ábyrgist ráðstöfun umrædds efnis, kosti frágang þess og sjái um að aka því í frálagshaug ef nauðsynlegt sé. Þar sem eignarnemi beri allan kostnað af frágangi og meðhöndlun efnisins sé eðlilegt að hann geti jafnframt nýtt efnið ef þess sé kostur án bótagreiðslna til eignarnámsþola, honum að skaðlausu. Þar sem allur kostnaður af vinnslu og meðhöndlun efnisins sé á herðum eignarnema og almennings sé eðlilegt að efnið sé nýtt í almannaþágu án bótagreiðslna til eignarnámsþola. Sú staðreynd að eignarnemi getur nýtt efnið til vegagerðar geri ekki að verkum að efnið verði sjálfkrafa skilgreint sem nýtanleg auðlind undir yfirborði Syðri-Fjarðar. Efni sem grafið sé af meira en 30 metra dýpi sé utan þeirra marka sem raunhæft sé og skynsamlegt að gera ráð fyrir við vinnslu á venjulegu jarðefni til mannvirkjagerðar. Algerlega óraunhæft hefði verið að nýta efnið ef ekki hefði komið til gerðar ganganna og hefði aldrei komið til þess að öðrum kosti. Óhemju kostnaður sé af því að sprengja og fjarlægja grjót úr jörðu af því dýpi sem hér um ræði. Eignarnemi kosti alfarið þær ráðstafanir sem nauðsynlegar séu til að unnt sé að nýta efnið og sé því eigandi þess. Eignarnámsþoli geti ekki kallað til eignar- og bótaréttar fyrir efni sem gert sé nýtanlegt á kostnað almennings. Hvað sem líði fræðilegum vangaveltum um eignarrétt að bergi djúpt undir yfirborði jarðar sé ljóst að eignarnámsþoli verði ekki fyrir fjárhagslegu tjóni við það að bergið sé fjarlægt enda sé það honum með öllu ónýtanlegt og án fjárhagslegs gildis. Að eignarnemi nýti berg í þágu mannvirkjagerðar í almannaþágu og á kostnað almennings sé eðlilegt enda hafi hann sjálfur gert það nýtanlegt með jarðgangagerðinni. Sú staðreynd að eignarnemi geti nýtt bergið til vegagerðar hafi ekki sjálfkrafa í för með sér að meta eigi eignarnámsþola bætur fyrir bergið. Þar sem bergið sé ónýtanlegt vegna legu þess djúpt í jörðu hafi það ekki fjárhagslegt gildi fyrir eignarnámsþola. Með því að gera honum bætur fyrir notkun eignarnema á sprengdu berginu hlytist af óeðlileg auðgun eignarnámsþola á kostnað eignarnema þar sem hann fengi bætur fyrir hagsmuni sem honum séu einskis virði en eignarnemi geri nýtanlega á sinn kostnað með framkvæmdum þeim sem séu tilefni eignarnámsins. Sá kostur sé því nærtækastur að ákvarða engar bætur fyrir efnið þar sem það hafði ekki fjárhagslegt gildi fyrir eignarnámsþola, ef á annað borð er fallist á að eignarréttur fasteignareiganda nái til efnisins. Þeirri röksemd hafi verið hreyft í þessu samhengi að þar sem eignarnemi greiði bætur fyrir jarðefni úr námum utan alfaraleiðar, þar sem enginn annar kaupandi sé að því og aðrir nýtingarmöguleikar ekki fyrir hendi, beri á sama hátt að greiða bætur fyrir jarðefni úr jarðgöngum. Viðurkennt sé í íslenskum rétti að ekki gilda sömu reglur um eignarrétt fasteignareiganda á yfirborði og neðanjarðar. Eignarréttur ofanjarðar er talinn heimila landeiganda öll almenn not og veitir honum full umráð og ráðstöfunarrétt yfir eign með þeim takmörkunum sem leiða má af lögum og réttindum annarra. Öðru máli gegni um eignarrétt neðanjarðar sem sé takmarkaður við ákveðnar nýtingarheimildir. Vinnsla umrædds efnis sem slík feli ekki í sér kvaðir á eigninni.
Af framangreindu leiði að með öllu væri óeðlilegt að viðurkenna bótakröfu landeiganda vegna jarðefnis úr göngum. Verði það gert hagnist landeigandi óeðlilega á framkvæmdinni á kostnað almennings án þess að eign hans hafi verið skert með sama hætti. Fráleitt er að fallast á svo háa kröfu sem lögmaður eignarnámsþola hefur sett fram. Ef fallast ætti á bótarétt yrði að horfa til þess fjárhagslega tjóns sem ætla má að eignarnámsþoli verði fyrir við að efnið er numið úr jörðu. Í fljótu bragði verður ekki komið auga á að slíkt tjón verði yfirhöfuð. Verði fallist á að allt að einu beri að meta bætur ber í hæsta lagi að miða við lægsta gjaldi skv. Orðsendingu um landbætur nr. 15/2004, eða 7 kr./m3.
Til stuðnings ofangreindum kröfum og sjónarmiðum vísar eignarnemi til vegalaga nr. 45/1994, einkum ákvæða IX. kafla laganna. Vísað er til laga um framkvæmd eignarnáms nr. 11/1973. Ennfremur er vísað til 72. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 með síðari breytingum. Vísað er til hefðbundinna skýringa á þessum lagaákvæðum og til almennra ólögfestra reglna og viðurkenndra sjónarmiða um ákvörðun eignarnámsbóta.
SJÓNARMIÐ EIGNARNÁMSÞOLA.
Eignarnámsþoli bendir á að í matsbeiðni og greinargerð sé út frá því gengið að hið eignarnumda nemi samtals 5,61 ha. Við þetta er af hálfu eignarnámsþola gerð sú grundvallarathugasemd að af málatilbúnaði eignarnema megi ráða að á svæðinu milli vegastöðva 400 og 1500 sé einungis gert ráð fyrir 40 metra helgunarsvæði, þrátt fyrir skýr fyrirmæli í 33. gr. vegalaga um 60 metra helgunarsvæði í tilviki sem þessu.
Í 1. mgr. i.f. 72. gr. stjórnarskrárinnar segi að fullt verð skuli koma fyrir hlut sem eignarnám er gert í. Samkvæmt hefðbundnum sjónarmiðum við verðlagningu eigna sé rétt, við mat á því hvað teljist fullt verð í skilningi stjórnarskrárákvæðisins, að líta til þess hvert sé líklegt söluverðmæti eignarinnar, notagildi eignarinnar eða hver kostnaður sé fyrir eignarnámsþola að útvega sér sambærilega eign. Því sjónarmiði sem teljist hagstæðast fyrir eignarnámsþola ber að beita.
Líta verði til staðsetningar landsins í námunda við helsta þéttbýliskjarna landsfjórðungsins, þá möguleika sem í því felast og þau áhrif sem sú staðsetning hefur á markaðsverð jarðarinnar. Þá gæti þess grundvallar misskilnings í málatilbúnaði eignarnema að unnt sé, til framtíðar litið, að miða fyrst og fremst við það að stundaður verði búskapur á jörðinni. Engar líkur séu á því við núverandi skilyrði að búskapur verði til framtíðar stundaður í landi Syðri Fjarðar. Land jarðarinnar sé miklu heppilegra til að reisa á því sumarbústaði eða eftir atvikum aðra byggð á heilsársgrundvelli og/eða reka þar aðra starfsemi tengda ferðamennsku. Auki tilvist Almannaskarðsganga slíka möguleika almennt séð í Lóni og nærsveitum. Þá er bent á þá staðreynd að framan að jörðin sé fjalllend og nýtanlegt undirlendi minna, sem því nemi. Þá sé nauðsynlegt að vekja á því sérstaka athygli að um aukið land undir vegastæði sé að ræða miðað við núverandi stöðu og þrátt fyrir það ónæði sem stafi af núverandi þjóðvegi yfir Almannaskarð feli fyrirhuguð vegalagning í sér þá breytingu að tvöfalt vegakerfi verði á jaðri jarðarinnar þar sem skilur á milli vegar að jarðgöngum annarsvegar og vegar yfir Almannaskarð hinsvegar. Liggi fyrir stefnumarkandi og skýrar niðurstöður matsnefndar eignarnámsbóta í þá veru að við vegalagningu sem þessa sé óhjákvæmilegt annað en að reikna með því að áhrifa vegalagningar gæti langt út fyrir hefðbundið helgunarsvæði vegar.
Af framangreindu verði í fyrsta lagi ráðið að eignarnemi miði við of lítið land þegar gengið sé út frá 5,61 ha. Sé þá jafnframt áréttað að á svæðinu milli vegastöðva 400 og 1500 sé einungis gert ráð fyrir 40 metra helgunarsvæði í stað 60 metra. Í annan stað telur eignarnámsþoli að viðmiðunin 100.000 krónur pr. ha. sé umtalsvert of lág. Ljóst sé að þar taki eignarnemi mið af verðákvörðun í tilvitnuðum úrskurði í máli nr. 3/2004, þar sem kr. 100.000.- eru lagðar til grundvallar pr. ha. Þá niðurstöðu telur eignarnámsþoli vera umtalsvert of lága.
Til hliðsjónar um eðlilegt viðmiðunarverð vísast til kaupsamninga um jarðir á svæðinu.
Eignarnámsþoli telur eðlilegt að miða við 250.000 krónur pr. ha. og að teknu tilliti til raunverulegrar ónýtingar lands af völdum vegalagningarinnar verði miðað við að heildarbætur fyrir það land sem beinlínis er eignarnumið og það land sem ónýtist að hluta eða öllu nemi 2.500.000 krónur.
Upphaflega hafi eignarnemi ráðgert að nýta 19.000 úr efnisnámu í Fjarðará. Endanlegt efnismagn liggi hins vegar ekki fyrir en að svo stöddu verði miðað við umrædda 19.000 m3. Eignarnemi hafi boðið 14 krónur pr. m3 þrátt fyrir þá staðreynd að fyrir ári síðan hafi hann samið við eiganda Horns um 50 kr pr. m3 fyrir efni úr námu handan Hornfjalls. Augljóslega sé námuvinnsla í landi Syðri Fjarðar fyllilega samkeppnishæf við námuvinnslu Hornafjarðarmegin. Þess utan muni jarðgöng um Almannaskarð leiða til almennrar verðhækkunar fasteigna og fasteignaréttinda í Lóni öllu og nærsveitum. Niðurstaða þessa þáttar getur ekki ráðist af neinu öðru en því verði sem eignarnemi samdi um við nákvæmlega sambærilegar aðstæður vegna lagningar vegarins að Almannaskarði, Hornafjarðarmegin fyrir ári síðan. Í því tilviki var svo sem fyrr segir miðað við kr. 50 pr m3, en eðlilegt er að sú fjárhæð taki breytingum í samræmi við byggingavísitölu. 50 kr. : 289,5 (mars 2004) x 312,8 (maí 2005) gerir kr. 54.-
Í greinargerð eignarnema sýnist miðað við það að eingöngu komi bætur fyrir land undir jarðgöng þar til komið sé á 30 metra dýpi en eftir það komi ekki sérstakar bætur til. Þessari aðferðafræði sem telja verði án nokkurrar lagaheimildar er mótmælt. Þvert á móti beri að bæta eignarnámsþola að fullu fyrir þann hluta jarðganganna sem sannarlega liggur undir landi fasteignar hans. Við mat á bótum beri að hafa þá meginreglu íslensk réttar í huga að eignarráð fasteignareiganda ná jafnt til umráða og nota undir yfirborði jarðar sem yfir því. Hafi í eignarrétti verið viðurkennt að miða verði við þær kröfur sem eðlilegt sé að viðurkenna af tilliti til hagsmuna landeiganda, sbr. t.d. 2. og 3. gr. auðlindalaga nr. 57/1998. Við mat á bótum til eignarnámsþola vegna þess hluta framkvæmdarinnar sem felist í jarðgöngum undir landi hans sé eðlilegt að líta til þess efnis sem tekið verði vegna gangagerðarinnar, sem samtals nemur 85.000 m3., sbr. upplýsingar sem fram koma í niðurstöðum Skipulagsstofnunar á skjali nr. 10. Þar komi jafnframt fram að allt verði það efni nýtt af eignarnema til vegagerðar í nýjan veg af flokki C1. Lagt er til grundvallar að helmingur þess efnis sem úr göngunum kemur tilheyri Syðra Firði og það verðlagt með sama hætti og skv. samkomulagi eignarnema og eiganda Horns í tilvitnuðu máli. Leggur eignarnámsþoli áherslu á að hér sé um lágmarksbótaviðmið að ræða. Landbætur vegna ganganna geti aldrei numið lægri fjárhæð, enda verði jafnframt að hafa í huga þær framtíðar skorður sem tilvist ganganna setur nýtingu eignarnámsþola á þessum hluta jarðarinnar.
Í úrskurði Matsnefndar eignarnámsbóta í matsmálinu nr. 3/2004 sé eðlilega fallist á það að eignarnema beri undir kringumstæðum sem þessum að bæta eignarnámsþola það efni sem fjarlægt er úr jörðu fasteignar hans.
Málatilbúnaður eignarnema um þennan þátt málsins, þ.e. göngin, sé allur mjög sérkennilegur að mati eignarnámsþola. Fyrst sé til þess að taka að eignarnemi krefst “frávísunar” á óframkomnum kröfum eignarnámsþola á efnisbótum vegna jarðefnavinnslu úr göngunum. Hér sé um stjórnsýslunefnd að ræða en ekki dómstól og allt svigrúm hennar hvað formhlið máls varði því með öðrum hætti. Að öðru leyti sýnist málatilbúnaður eignarnema byggjast á þeim dæmalausa skilningi að hann fari með ákvörðunarvald þess hvaða þætti nefndin leggi til grundvallar, við mat á eignarröskunum vegna lagningar vegar og jarðganga um land jarðarinnar. Eðli málsins samkvæmt hljóti eignarnámið að taka til þess, sbr. 45. gr. vegalaga nr. 45/1994 og áratugalanga framkvæmd á grundvelli laga nr. 11/1973 um framkvæmd eignarnáms. Væri sú niðurstaða fráleit ef eignarnemi, sem í tilviki vegalaga fari bæði með þá hagsmuni sem um sé að ræða og heimildina til að ákveða eignarnám þeirra vegna, gæti í matsbeiðni takmarkað þá þætti sem matsnefnd bæri að líta til við mat á eignarnámsbótum, sem eðli málsins samkvæmt eigi að vera heildarmat á allri þeirri eignarýrnun sem eignarnámsþoli verði fyrir.
Kenningum um takmarkanir eignarréttarins af þeim toga sem eignarnemi vill halda fram hér hafi síðast verið hreyft af alvöru á sjötta áratug síðustu aldar en löngu sé viðurkennt að eignarráðum niður á við verði ekki sett slík útmæld takmörk. Kröfugerð eignarnámsþola í þessa veru taki heldur ekki mið af sérstökum bótum fyrir það land jarðarinnar sem liggi ofan ganganna, enda liggi ekki fyrir að meðferð þess sæti að lögum sérstökum takmörkunum. Sé raunar allur réttur áskilinn af því tilefni. Kröfugerð taki þvert á móti mið af áætluðu verðmæti þeirra jarðefna sem unnin verði úr gangastæðinu og nýtt. Verði engin frekari sönnunarbyrði lögð á eignarnámsþola þar um og þá ekki heldur um meint fjárhagslegt tjón vegna efnistökunnar.
Jarðrask, átroðningur og tímabundin óþægindi.
Ljóst sé að eignarnámsþoli og þeir aðilar sem frá honum leiða rétt á jörðinni hafi á framkvæmdatímanum orðið fyrir óþægindum og ónæði vegna vegalagningarinnar. Auk átroðnings og jarðrasks utan vegstæða sé ljóst að sauðfjárbúskapur og beit hafi orðið fyrir nokkurri truflun á framkvæmdatímanum. Í tilvitnuðu máli vegna sömu framkvæmdar, nr. 3/2004, hafi umsamdar og ákvarðaðar bætur vegna þessa þáttar, sem og tímabundinna afnota lands numið samtals 500.000 krónum. Eignarnámsþoli viðurkenni hins vegar að sá átroðningar og röskun sem hann hafi orðið fyrir sé ekki sambærilegur þeirri röskun sem orðið hafi í landi Horns. Til þess að gæta ýtrustu sanngirni fallist eignarnámsþoli á að áætla bætur vegna þessa mjög varlega eða sem 1/5 þeirra bóta sem greiddar voru eiganda Horns vegna sama, og geri því kröfu um greiðslu vegna þessa að fjárhæð 100.000 krónur.
Samandregið telur eignarnámsþoli að við ákvörðun bóta beri Matsnefnd eignarnámsbóta að líta til framkominna sjónarmiða um landbætur að fjárhæð kr. 2.500.000.-, framsettra bótasjónarmiða vegna jarðganga að lágmarksfjárhæð kr. 2.295.000.-, bóta vegna efnistöku úr námu að fjárhæð kr. 1.026.000.- og jarðrasks, átroðnings og tímabundinna óþæginda og óhagræðis að fjárhæð kr. 100.000.- Nemi þetta samtals framsettum kröfum eignarnámsþola um lágmarksbætur að fjárhæð kr. 5.921.000.-
Vísað er til 65. og 72. gr. stjórnarskrárinnar og hefðbundinna sjónarmiða við verðmat eigna við eignarnám og innlausn.
Ítrekuð er tilvísun til auðlindalaga nr. 57/1998 og vegalaga nr. 45/1994.
Þá vísast, eftir því sem við á, til ákvæða Vegalaga nr. 45/1994, einkum 9. kafla laganna.
Málskostnaðarkrafan er reist á 11. gr. laga nr. 11/1973.
Eignarnemi hefur veitt andsvör við því sem fram kemur í greinargerð eignarnámsþola og eignanámsþoli gert athugasemdir við það. Er þar fyrst og fremst um að ræða endurtekningu á sjónarmiðum sem hér eru rakin að framan og nánari útlistun og reifun á þeim.
NIÐURSTAÐA
Eignarnámið nær í fyrsta lagi til spildu sem vegarstæðið er á. Samkvæmt gögnum málsins er heildarlengd vegarkafla þess sem gera á 5,4 km, þar af eru jarðgögn 1,3 km, nýr vegu um 1,4 km og endurbætur á núverandi vegi á um 2,7 km kafla. Land það sem eignarnemi telur eignarnámið taka til er samtals 7,07 ha. Samkvæmt 33. gr. vegalaga nr. 45/1994 þarf leyfi Vegagerðarinnar til mannvirkjagerðar á 30 metra kafla frá miðlínu stofnvega. Í því tilviki sem hér er leyst úr krefur eignarnemi um svæði sem nær 20 metra frá miðlínu vegar. Með hliðsjón af tilvitnuðu lagaákvæði telur nefndin að eignarnáminu verði ekki settar þrengri skorður en af því leiðir. Verða bætur til eignanámsþola við þetta miðaðar og er spildan vegna þessa 2,2 ha stærri en eignarnemi vill miða við. Þá verður litið til þess að geil myndast milli gangnamunna og gamla þjóðvegarins sem verður illnýtanleg.
Við ákvörðun bóta vegna lands þess sem tekið er eignarnámi verður litið til þess að landið er fjarri mestu þéttbýlisvæðum landsins en þó í námunda við Höfn í Hornafirði. Þá er höfð hliðsjón af verði eigna á sama svæði og þróun verðlags á fasteignamarkaði að undanförnu sem hefur farið stighækkandi. Þá koma nýtingarmöguleikar til athugunar en þeir eru takmarkaðir.
Að þessu öllu athuguðu er það niðurstaða nefndarinnar að verðmæti þeirrar spildu sem hér er fjallað um sé 1.000.000 krónur.
Ljóst er að eignarnemi þarf að sprengja og flytja grjót úr göngunum og enda þótt fallast megi á það að hér sé ekki um arðvænlegt grjótnám í sjálfu sér að ræða nýtist það eignarnema við vegagerð hans. Telur matsnefndin að efni þetta allt sé háð eignarrétti landeiganda. Ekki verður fallist á það með eignarnema að eignarráð landeiganda séu takmörkuð miðað við 30 metra eins og hann heldur fram. Fyrir þeirri málsástæðu skortir lagarök og getur hún ekki takmarkað úrlausnarvald nefndarinnar við ákvörðun bóta vegna skerðingar eignarréttinda. Kemur og hér til að samkvæmt 3. gr. laga nr. 57/1998 fylgir eignarréttur að auðlindum í jörðu eignarlandi. Verður þá einnig að hafna kröfu eignarnema um frávísun þessa þáttar matsins.
Við mat á bótum vegna efnis úr göngunum verður hins vegar að líta til þess að mjög takmörkuð not hefði verið unnt að hafa af efni þessu nema vegna framkvæmda eignarnema. Öflun og nýting efnisins verður því vegna framkvæmda hans og verður að taka mið af því við ákvörðun bóta. Samkvæmt upplýsingum eignarnema nemur magn efnis sem kom úr göngunum 58.970 m3. Með tilliti til þess sem segir um hlut eignarnema í öflun efnisins þykja bætur til eignarnámsþola vegna þessa hæfilega ákveðnar 1.061.460 krónur (58.970 * 18 krónur).
Samkvæmt upplýsingum eignarnema sem fengnar voru að tilhlutan nefndarinnar og eru óumdeildar er magn jarðefna sem hann fær úr námu í Fjarðará 15.600 m3 og eru bætur vegna þessarar efnistöku hæfilega ákveðnar 780.000 (15.600 *50 krónur).
Loks verður fallist á kröfu eignarnámsþola um bætur fyrir jarðrask og óþægindi að fjárhæð 100.000 krónur.
Samkvæmt framansögðu ákvarðast bætur til eignanámsþola 2.941.460 krónur og 534.012 krónur í málskostnað.
Eignarnemi greiði 650.000 krónur til ríkisjóðs vegna kostnaðar við starf matsnefndar eignarnámsbóta í máli þessu.
ÚRSKURÐARORÐ
Eignarnemi Vegagerðin greiði eignarnámsþola Ragnari Sigurðssyni 2.941.460 krónur og 534.012 krónur í málskostnað.
Eignarnemi greiði 650.000 krónur til ríkissjóðs vegna starfa matsnefndar eignarnámsbóta í máli þessu.
Allan V. Magnússon
Benedikt Bogason
Sverrir Kristinsson