Hoppa yfir valmynd

Nr. 526/2018 - Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 28. nóvember 2018 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 526/2018

í stjórnsýslumáli nr. KNU18100029

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 16. október 2018 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur 16. júlí 1978, og vera ríkisborgari [...] (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 27. september 2018, um að taka ekki til efnismeðferðar umsókn hans um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa honum frá landinu.Kærandi krefst þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsókn kæranda til efnislegrar meðferðar hér á landi með vísan til 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og 2. mgr. 36. gr. sömu laga.Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 2. júlí 2018. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, þann 3. júlí 2018, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Finnlandi. Þann 23. júlí 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Finnlandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þann 23. júlí 2018 barst svar frá finnskum yfirvöldum þess efnis að þau samþykktu viðtöku kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Útlendingastofnun ákvað þann 27. september 2018 að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að honum skyldi vísað frá landinu. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda þann 2. október 2018 og kærði kærandi ákvörðunina þann 16. október 2018 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 25. október 2018 ásamt fylgigögnum auk þess sem frekari gögn voru lögð fram þann 1. nóvember 2018. Í greinargerð sinni óskaði kærandi eftir því að fá að koma fyrir nefndina og tjá sig um efni málsins. Kærunefnd taldi ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina, sbr. 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar var sú að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd yrði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi og hann skyldi fluttur til Finnlands. Flutningur kæranda til Finnlands fæli ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. og 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hann fengi hér vernd eða að sérstakar aðstæður væru fyrir hendi þannig að ástæða væri til að beita ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærandi var ekki talinn í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem áhrif hefði á mál hans. Var umsókn kæranda um alþjóðlega vernd því synjað um efnismeðferð, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, og skyldi hann fluttur til Finnlands.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er greint frá því sem fram kom í viðtölum kæranda hjá Útlendingastofnun. Kærandi hafi upplýst að hann hafi starfað fyrir [...]. Meðlimir [...] hafi verið á móti starfi hans og hafi gert tilraun til að drepa hann árið 2006. Fjölskylda kæranda hafi lent í miklum hremmingum eftir flótta kæranda. Bróðir hans hafi verið skotinn, amma hans pynduð og drepin og fjölskyldan hafi lagt á flótta. Kærandi mótmæli því að vera sendur til Finnlands. Kærandi kveður að hann hafi aðstoðað finnsku öryggis- og eftirlitsþjónustuna, Supo, við að finna hryðjuverkamenn. Kærandi hafi sent skýrslur um einstaklinga í flóttamannabúðunum til yfirmanns búðanna eða aðstoðarmanns hennar, sem hafi áframsent þær til Supo. Meðfylgjandi greinargerð kæranda sé yfirlýsing frá aðstoðarmanninum um að kærandi hafi veitt upplýsingar til Supo. Kæranda hafi borist hótanir frá tveimur aðilum sem hafi dvalið í búðunum en þeir hafi komist að njósnum hans. Í kjölfarið hafi kærandi verið sendur í skjól í Norður-Finnlandi. Aðspurður hvort kærandi óttist einhvern eða eitthvað í Finnlandi hafi kærandi greint frá því að hann óttist að verða sendur aftur til heimaríkis. Þá óttist hann aðila í Finnlandi sem hafi ógnað lífi hans. Þá kvað kærandi að hann hafi ekki fengið framfærslu frá finnskum yfirvöldum þar sem hann hafi átt fé sér til framfærslu og hafi einungis haft aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu. Kærandi hafi ekki gert sér grein fyrir því að hann ætti rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiþjónustu en hann hafi verið með lögfræðing á eigin kostnað. Þá eru í greinargerð kæranda gerðar athugasemdir við málsmeðferðina í Finnlandi. Kærandi hafi m.a. fengið rangar leiðbeiningar auk þess sem ekki hafi verið tekið til greina að kærandi hafi verið að aðstoða Supo. Aðspurður um líkamlegt heilsufar greindi kærandi frá því að í Finnlandi hafi verið grunur um að hann sé með [...] en samkvæmt niðurstöðum rannsókna sé hann með [...]. Í framlögðum komunótum frá Göngudeild sóttvarna komi fram að skv. rannsóknarniðurstöðum frá Finnlandi þjáist kærandi af [...] og hafi fengið lyf vegna þessa. Aðspurður um andlegt heilsufar hafi kærandi greint frá því að hann sé kvíðinn, stressaður og þjáist af þunglyndi. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna komi fram að kærandi þjáist af svefntruflunum, kvíða og einbeitingarleysi sem gæti tengst áfallasögu hans. Honum hafi verið ávísuð geðdeyfðarlyf vegna þessa. Kærandi hafi hitt sálfræðing á Göngudeild sóttvarna í nokkur skipti. Þann 9. október 2018 hafi kærandi leitað til Útlendingastofnunar í mikilli örvæntingu og [...].

Kærandi gerir athugasemd við mat Útlendingastofnunar á því hvort hann sé í viðkvæmri stöðu. Bent er á að sú staðreynd hvort kærandi sé haldinn alvarlegum veikindum eða yfir standi meðferð við þeim sem óforsvaranlegt sé að rjúfa eigi með réttu ekki að koma til skoðunar við mat á því hvort einstaklingur sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu skv. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Ljóst sé að lögin geri það ekki að skilyrði að umsækjendur um alþjóðlega vernd séu haldnir alvarlegum veikindum eða yfir standi meðferð við þeim sem óforsvaranlegt sé að rjúfa til að teljast til sérstaklega viðkvæmra einstaklinga. Margt bendi til þess að kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt fyrirliggjandi heilsufarsgögnum þjáist kærandi af svefntruflunum, kvíða og einbeitingarleysi og hafi fengið ávísuð geðdeyfðarlyf auk þess sem kærandi hafi hitt sálfræðing og [...]. Skylda íslenskra stjórnvalda skv. rannsóknarreglunni í 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er áréttuð og farið er fram á að kærunefnd útlendingamála endurmeti stöðu kæranda.

Í greinargerð kæranda er að finna athugasemdir við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar. Í ákvörðuninni komi fram að kærandi hafi ekki vísað til neinna atvika sem bendi til þess að honum sé lögregluvernd útilokuð í Finnlandi. Kærandi bendir á að hann hafi greint frá því að lögreglan hafi öskrað á hann þegar hann hafi sótt um alþjóðlega vernd í annað sinn og neitað að taka við umsókn hans. Þá er m.a. tekið fram að finnsk yfirvöld hafi ekki tekið yfirlýsingu aðstoðarmannsins til greina og gagnrýnt kæranda fyrir að hafa ekki lagt hana fram í fyrra málinu. Kærandi telur að ljóst sé að hann hafi fullreynt möguleika sína á að fá umsókn sína endurskoðaða fyrir finnskum stjórnsýsludómstólum. Sé sú fullyrðing Útlendingastofnunar, að kærandi muni geta lagt fram viðbótarumsókn hjá finnskum yfirvöldum vegna nýrra gagna, því röng. Þá telur kærandi að svo virðist sem ekki hafi verið tekið tillit til yfirlýsingarinnar í trúverðugleikamati Útlendingastofnunar en hún staðfesti að kærandi hafi verið að aðstoða Supo. Í greinargerð kæranda er þá gerð athugasemd við notkun Útlendingastofnunar á hugtakinu „kerfisbundinn galli“ og bendir kærandi m.a. á að ekki sé þörf á því að sanna að kerfisbundinn galli sé á hæliskerfi viðtökuríkis á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar til að unnt sé að koma í veg fyrir endursendingu. Þá er vísað til nýjustu skýrslu Amnesty International þar sem fram komi að líkurnar á því að umsækjendum um alþjóðlega vernd sé snúið til landa þar sem þeir eigi á hættu ómannúðlega og vanvirðandi meðferð sé sífellt að aukast. Áréttar kærandi að finnsk stjórnvöld hafi verið að vísa [...] til síns heima í miklum mæli.

Þá er í greinargerð kæranda að finna umfjöllun um 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, í tengslum við 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Fram kemur að frá því að ákvæðið um sérstakar ástæður hafi komið inn í lög um útlendinga, hafi þróunin verið sú að gefa sérstaklega viðkvæmri stöðu einstaklinga aukið vægi við mat á sérstökum ástæðum. Af úrskurðum kærunefndar sé ljóst að kærunefnd hafi við túlkun sína á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga gert vægari kröfur en gerðar séu í umræddri reglugerð, og í hinni kærðu ákvörðun, við mat á heilsufari og sérstökum ástæðum. Þá sé ljóst að skilyrði reglugerðarinnar varðandi sérstakar ástæður séu mun þrengri en kveðið sé á um í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að lögum um útlendinga og úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Þær kröfur sem gerðar séu í hinni kærðu ákvörðun hafi því enga stoð í lögum og gangi gegn lögmætisreglunni.

Varðandi ítarlega umfjöllun um aðstæður og réttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd í Finnlandi er vísað til umfjöllunar í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar dags. 17. september 2018. Þó er áréttað að [...].

Í greinargerð kæranda er byggt á því að ekki megi senda hann til Finnlands vegna non-refoulement reglu þjóðaréttar en reglan feli bæði í sér bann við beinni endursendingu til ríkis þar sem líf og frelsi einstaklings kunni að vera í hættu og jafnframt endursendingu til þriðja ríkis ef fyrirsjáanlegt er að það muni senda hann áfram í slíka hættu. Fyrir liggi að finnsk stjórnvöld hafi þegar synjað kæranda um alþjóðlega vernd. Kærandi hafi leitast eftir því að fá þeirri niðurstöðu hnekkt á kærustigi án árangurs og fyrir liggi að með endursendingu til Finnlands muni yfirvöld þar í landi áframsenda hann til [...] þar sem hann sé í hættu. Með vísan til 3. mgr. 36. gr., sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga sé því íslenskum stjórnvöldum skylt að taka umsókn hans um alþjóðlega vernd hér á Íslandi til efnislegrar meðferðar. Stjórnvöldum sé ekki heimilt að vísa til almennrar staðhæfingar þess efnis að Finnland veiti fullnægjandi vernd gegn brottvísunum umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra og frelsi sé ógnað (non-refoulement), heldur beri að líta til raunverulegra og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda í máli þessu. Þá eru aðstæður í [...] og ástand mannréttindamála þar í landi raktar og vísað í alþjóðlegar skýrslur því til stuðnings.

Telji kærunefnd að mál kæranda falli ekki undir 42. gr., sbr. 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga byggir kærandi á því að taka skuli mál hans til efnislegrar meðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Um mat á því hvenær einstaklingur telst eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki er vísað til úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 nr. 550/2017 og 552/2017, og úrskurða frá 24. október 2017 nr. 583/2017 og 586/2017. Í málunum hafi ákvarðanir Útlendingastofnunar verið felldar úr gildi og nefndin komist að því að þegar viðkvæm staða umsækjenda verði, að mati stjórnvalda, talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökulandi skuli það sjónarmið hafa mikið vægi við matið. Kærandi leggur áherslu á að framkvæmt sé ítarlegt einstaklingsbundið mat á því hvort viðkvæm staða kæranda verði talin leiða til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar í Finnlandi. Með vísan til viðkvæmrar stöðu kæranda, annmörkum á málsmeðferð hans í Finnlandi, yfirvofandi brottvísun hans frá Finnlandi, upplifun hans í finnsku flóttamannabúðunum og stefnu finnskra yfirvalda sé margt sem bendi til þess að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í málinu og að íslenskum stjórnvöldum beri að taka umsókn kæranda til efnismeðferðar með vísan til 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í 1. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef heimilt sé að krefja annað ríki sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar um að taka við umsækjanda.

Fyrir liggur í máli þessu að finnsk stjórnvöld hafa samþykkt viðtöku á kæranda á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, en Ísland skuldbatt sig til að fylgja reglugerðinni með samningi Íslands, Noregs og Evrópusambandsins frá 19. janúar 2001, um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram í aðildarríki eða á Íslandi eða í Noregi. Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Samþykki Finnlands er byggt á því að kærandi hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd þar í landi. Eru skilyrði c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga uppfyllt.

Í 2. mgr. 36. gr. kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Í 32. gr. a-b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 32. gr. a kemur m.a. fram að með sérstökum ástæðum sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan, aðrar en þær sem myndu að jafnaði rúmast innan 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá er m.a. nefnt í dæmaskyni ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, ef umsækjandi af sömu ástæðu getur vænst þess að staða hans verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki og ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð við er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki.

Þá er í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekið fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Við mat á því hvort senda eigi umsækjanda um alþjóðlega vernd til ríkis, sem hefur samþykkt að taka við honum á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, ber stjórnvöldum að leggja sjálfstætt mat á hvort aðstæður þar brjóti gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem kveður á um að enginn maður skuli sæta pyndingum eða ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið lagt til grundvallar að sú meðferð, sem einstaklingur eigi von á, verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til þess að falla undir 3. gr. sáttmálans. Við það mat verði að horfa til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar og í einhverjum tilvikum kyns, aldurs og heilsufars viðkomandi. Þá ber stjórnvöldum að leggja mat á hvort málsmeðferð vegna umsókna um alþjóðlega vernd tryggi umsækjendum raunhæfa leið til að ná fram rétti sínum, sbr. 13. gr. sáttmálans. Í samræmi við framkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu skal mat á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd og móttöku og aðbúnaði umsækjenda í viðtökuríki taka mið af einstaklingsbundnum aðstæðum í hverju máli.

Greining á hvort kærandi sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu

Samkvæmt gögnum málsins er kærandi karlmaður á miðjum aldri. Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann glími við svefnvandamál, kvíða, stress og þunglyndi. Hvað líkamlegt heilsufar varðar kvað kærandi að það sé grunur um að hann sé með [...] en annars sé hann hraustur. Ráða má af komunótu frá Göngudeild sóttvarna dags. 19. júlí 2018 að kærandi hafi afhent læknum á deildinni rannsóknarniðurstöður sínar frá Finnlandi. Fram kemur í komunótu dags. 27. júlí 2018 að læknir á deildinni hafi yfirfarið niðurstöðurnar og að samkvæmt þeim sé kærandi ekki með [...] en hann sé með [...]. Varðandi andlegt heilsufar kæranda þá kemur fram í framlögðum gögnum frá Göngudeild sóttvarna að kærandi hafi hitt sálfræðing [...]. Þá hafa verið lögð fram gögn frá [...]. Í gögnunum kemur m.a. fram að kærandi hafi leitað til [...]. Mat læknis var að kærandi væri hvorki í [...]. Kærandi hafi í kjölfarið verið settur í eftirfylgd hjá [...]. Fram kemur í göngudeildarnótu dags. 12. október 2018 að kærandi glími við [...]. Þá hafi kærandi ekki fundið miklar framfarir á andlegri heilsu sinni, sbr. göngudeildarnóta dags. 26. október 2018.

Af gögnum málsins er ljóst að kærandi sé almennt við ágæta líkamlega heilsu en hann glími þó við vandamál [...]. Þá hafi kærandi glímt við tiltekna andlega erfiðleika og fengið viðeigandi aðstoð og lyf. Kærunefnd telur þó að gögn málsins, þ. á m. framburður kæranda og framlagðar komunótur, beri ekki með sér að kærandi sér í sérstaklega viðkvæmri stöðu sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga.

Aðstæður og málsmeðferð í Finnlandi

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð í Finnlandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Freedom in the World – Finland (Freedom House, 28. maí 2018),
  • 2017 Country Reports on Human Rights Practices – Finland (United States Department of State, 20. apríl 2018),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Finland (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Comments by the UNHCR Regional Representation for Northern Europe on the draft Law Proposal of 15 April 2016 amending the Aliens Act of the Republic of Finland (UN High Commissioner for Refugees, maí 2016),
  • Country Factsheet: Finland 2016 - European Migration Network (European Commission),
  • Response of the Finnish Government to the report of the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) on its visit to Finland from 22 September to 2 October 2014 (Council of Europe: Committee for the Prevention of Torture, 6. október 2015),
  • Report to the Finnish Government on the visit to Finland carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) from 22 September to 2 October 2014 (Council of Europe: Committee for the Prevention of Torture, 20. ágúst 2015),
  • Administrative Detention of Migrants in the District Court of Helsinki (Law and the Other in Post-Multicultural Europe - University of Helsinki, 2015),
  • Upplýsingar af heimasíðu finnska félags- og heilbrigðisráðuneytisins (www.stm.fi),
  • Upplýsingar af heimasíðu finnsku útlendingastofnunarinnar (www.migri.fi),
  • Upplýsingar af heimasíðu Refugee Advice Centre (www.pakolaisneuvonta.fi) og
  • Upplýsingar af heimasíðu Rauða krossins í Finnlandi (www.redcross.fi).

Umsækjendur um alþjóðlega vernd sem fengið hafa synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun Finnlands geta kært niðurstöðuna til stjórnsýsludómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá stjórnsýsludómstólnum eiga þeir möguleika á því að kæra þá niðurstöðu til æðri stjórnsýsludómstóls að fengnu leyfi þess dómstóls. Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá hinum æðri stjórnsýsludómstól eða ekki fékkst leyfi til að fara með umsóknina fyrir æðri stjórnsýsludómstólinn eiga þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd. Jafnframt eiga umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brýtur í bága við ákvæði mannréttindasáttmálans.

Finnland er aðildarríki Evrópusambandsins og hefur innleitt tilskipanir sambandsins vegna málsmeðferðar og móttöku umsækjenda um alþjóðlega vernd nr. 32/2013 og 33/2013. Samkvæmt framangreindum gögnum má sjá að ákveðin þjónustuúrræði eru í boði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Finnlandi. Umsækjendur eiga til að mynda rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu og geta þeir fengið hjálp við að leita sér aðstoðar vegna heilsufarsvandamála sinna. Þá eiga umsækjendur í Finnlandi rétt á húsnæði, mataraðstoð og vasapeningum, geti þeir ekki framfleytt sér sjálfir. Þá eiga umsækjendur rétt á endurgjaldslausri túlkaþjónustu í viðtölum sínum hjá finnsku útlendingastofnuninni.

Í upplýsingum frá útlendingastofnun Finnlands kemur fram að þeir sem séu endursendir til landsins á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar fari almennt í móttökumiðstöðvar en geti í einhverjum tilfellum sætt varðhaldi. Móttökumiðstöðvarnar séu opnar en varðhald lokað og gildi mismunandi löggjöf um úrræðin. Þeim sem dvelja í móttökumiðstöðvum stendur til boða sama þjónusta og öðrum umsækjendum um alþjóðlega vernd. Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd geta verið settir í varðhald t.d. vegna þess að ekki sé hægt að bera kennsl á viðkomandi, ferðaáætlun sé óljós eða þegar líklegt sé að viðkomandi muni láta sig hverfa til að forðast brottvísun frá landinu. Þá geti umsækjendur sem hafi fengið neikvæða lokaniðurstöðu verið settir í varðhald fyrir brottflutning frá landinu. Varðhaldsmiðstöðvarnar séu reknar og starfræktar af finnsku útlendingastofnuninni og sé ein varðhaldsmiðstöðvanna sérstaklega ætluð viðkvæmum einstaklingum. Þá sé aðgangur að heilbrigðisþjónustu til staðar fyrir einstaklinga í varðhaldi. Varðhald geti varað að jafnaði í nokkra daga til nokkrar vikur en í einstaka tilfellum geti varðhald varað í nokkra mánuði. Skylt sé að leiða umsækjendur fyrir héraðsdóm þar sem dómari ákveði hvort beita eigi varðhaldi. Umsækjandi eigi rétt á löglærðum talsmanni sem gæti hagsmuna hans fyrir dómstólum þar sem fjallað sé um lögmæti varðhaldsins.

Einnig komi fram í framangreindum gögnum að finnska útlendingastofnunin greini og þjónusti viðkvæma umsækjendur um alþjóðlega vernd og hafi móttaka og þjónusta við viðkvæma einstaklinga verið í þróun undanfarin ár. Starfsfólk móttökumiðstöðva fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd fái sérstaka þjálfun í að greina andleg veikindi og bregðast við þeim, og hafi verkferlar verið innleiddir vegna slíkra tilvika. Þá sé starfrækt sérstök móttökumiðstöð fyrir andlega veika umsækjendur um alþjóðlega vernd sem þurfi á sérhæfðri aðstoð að halda. Móttökumiðstöðvarnar í Helsinki, Turku og Oulu hafi komið upp sérstöku móttökukerfi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd með sérstakar þarfir, þ.e. einstaklinga sem þurfi á auknum stuðningi að halda svo sem vegna heilsufarsvandamála. Í þessu sérstaka móttökukerfi felist m.a. að aukinn fjöldi starfsfólks sé sérfræðimenntaður. Finnska útlendingastofnunin, ásamt félags- og heilbrigðisstarfsmönnum, þjálfi starfsfólk móttökumiðstöðvanna. Umsækjandi um alþjóðlega vernd fái aðeins aðgang að slíkum móttökumiðstöðvum þegar aðstæður séu ekki viðunandi í þeirri móttökumiðstöð sem hann dveljist í. Þær móttökumiðstöðvar sem bjóði upp á aukinn stuðning við umsækjendur séu staðsettar í borgum sem hafi margra ára reynslu af móttöku fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Einstaklingar sem sendir eru til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd í Finnlandi. Við framlagningu slíkrar umsóknar er fyrst tekið til skoðunar hvort ný gögn séu í málinu eða uppi séu nýjar málsástæður sem geti orðið grundvöllur veitingar alþjóðlegrar verndar. Ef ekki eru uppi nýjar málsástæður í málinu er umsóknin að jafnaði ekki metin tæk til meðferðar án þess að nýtt viðtal sé tekið við viðkomandi. Í þeim tilvikum sem uppi eru nýjar málsástæður fer fram viðtal við umsækjanda varðandi aðstæður hans og málið tekið til efnislegrar meðferðar. Umsækjandi á rétt á að áfrýja í báðum tilvikum, þ.e. ákvörðun um að málið sé ekki tækt til efnislegrar meðferðar og efnislegri ákvörðun málsins.

Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér er ljóst að finnsk stjórnvöld uppfylla skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð við umsækjendur um alþjóðlega vernd skv. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á lögfræðiþjónustu við meðferð máls síns hjá finnsku útlendingastofnuninni og á kærustigi. Umsækjendur eiga að sama skapi rétt á þjónustu löglærðra talsmanna í viðtölum sínum hjá útlendingastofnuninni en slík þjónusta er þó ekki endurgjaldslaus nema sérstaklega ríkar ástæður liggi að baki umsókn þeirra eða ef viðkomandi umsækjandi er fylgdarlaust barn. Þá eiga umsækjendur ekki rétt á endurgjaldslausri lögfræðiaðstoð vegna viðbótarumsóknar.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins það með sér að stjórnvöld í Finnlandi veiti fullnægjandi vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til landa þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra eða frelsi ógnað (non-refoulement). Er þá sérstaklega litið til þess að þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að málsmeðferð finnskra yfirvalda sé nægilega vönduð og veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd viðunandi úrræði til að leita réttar síns auk þess að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður þeirra. Ekkert bendir til þess að [...] umsækjendum sé synjað sjálfkrafa um alþjóðlega vernd í Finnlandi eða þeir endursendir til heimaríkis án þess að leyst sé úr málum þeirra á einstaklingsgrundvelli.

Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Finnlandi er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði í Finnlandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hann verði ekki sendur áfram til annars ríkis þar sem líf hans eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Áður hefur verið greint frá aðstæðum kæranda. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því að þegar hann hafi dvalið í Finnlandi hafi hann sent yfirvöldum upplýsingar um einstaklinga sem hafi dvalið með honum í móttökumiðstöð þar í landi og að þessir einstaklingar hafi hótað honum. Það er mat kærunefndar, m.t.t. þeirra upplýsinga sem liggja fyrir um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í Finnlandi, að þarlend yfirvöld séu í stakk búin til þess að veita umsækjendum fullnægjandi vernd gegn hótunum og ofbeldi og að kærandi geti leitað til lögreglunnar og annarra yfirvalda telji hann sig vera í hættu í Finnlandi. Fær það jafnframt stoð í framburði kæranda en hann hefur greint frá því að þegar honum hafi borist hótanir í flóttamannabúðunum þá hafi hann verið færður í öruggt húsnæði. Kærandi hefur jafnframt borið fyrir sig að annmarkar hafi verið á meðferð máls hans í Finnlandi. Í ljósi skýrslna sem kærunefnd hefur kynnt sér er það mat nefndarinnar að kærandi geti lagt fram viðbótarumsókn um alþjóðlega vernd m.a. ef aðstæður hafa breyst eða annmarkar voru á fyrri málsmeðferð. Þá bera gögn málsins, að mati kærunefndar, ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að kærandi geti af sömu ástæðu vænst þess að staða hans verði verulega síðri en almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga.

Fram hefur komið í málinu að kærandi glími við andleg veikindi, m.a. [...], og hefur kærandi lagt fram gögn því til stuðnings. Það er þó mat kærunefndar að kærandi glími ekki við mikil og alvarleg veikindi, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá verður ekki séð af gögnum málsins að fyrir hendi sé ástæða í máli kæranda er varðar heilsufar hans sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Finnlandi megi ráða að umsækjendur um alþjóðlega vernd hafi aðgang að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu, og er það mat kærunefndar að kærandi komi til með að hafa aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu þar í landi í samræmi við þarfir hans.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál hans verði tekið til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 3. september 2018 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærandi hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hann lagði fram umsókn sína þann 2. júlí 2018.

Vegna athugasemdar kæranda í greinargerð tekur kærunefnd fram að aðstæður hans teljast ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum nefndarinnar nr. 550/2017 og 552/2017 frá 10. október 2017 og nr. 583/2017 og 586/2017 frá 24. október 2017. Vísar kærunefnd í því sambandi m.a. til þess að í framangreindum úrskurðum var um að ræða önnur viðtökuríki.Athugasemdir við ákvörðun ÚtlendingastofnunarSvo sem fram hefur komið gerir kærandi í greinargerð sinni ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og málsmeðferð stofnunarinnar og telur ekki tilefni til þess að gera athugasemdir þar um. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Gildistaka breytinga á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017

Með reglugerð nr. 276/2018, sem tók gildi 14. mars 2018 voru gerðar breytingar á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Sem fyrr segir telur kærandi m.a. breytingarreglugerðina skorta lagastoð þar sem ákvæði hennar þrengi að þeim sjónarmiðum sem beri að líta til við túlkun 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Tilvitnuð ákvæði reglugerðar nr. 276/2018 eru sett með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga þar sem segir að ráðherra hafi heimild til að setja reglugerð um framkvæmd 36. gr. laganna. Löggjafinn hefur því framselt ráðherra vald til að útfæra framangreind ákvæði nánar og ljóst að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja honum um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg eins og að framan hefur verið lýst. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um þessar athugasemdir kæranda.

Frávísun

Óljóst er hvenær kærandi kom hingað til lands en hann sótti um alþjóðlega vernd þann 2. júlí 2018. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hefur hann því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsókn hans um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður kæranda því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda hafði hann verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsóknar hans hófst hjá Útlendingastofnun.Kærandi skal fluttur til Finnlands eigi síðar en 6 mánuðum eftir birtingu þessa úrskurðar, sbr. til hliðsjónar 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í máli þessu hafa finnsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hans um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda kæranda til Finnlands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvörðun Útlendingastofnunar er því staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

 

Anna Tryggvadóttir

Árni Helgason                                                                                    Erna Kristín Blöndal


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta