Hoppa yfir valmynd

Nr. 473/2019 Úrskurður

KÆRUNEFND ÚTLENDINGAMÁLA

Þann 7. nóvember 2019 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 473/2019

í stjórnsýslumáli nr. KNU19080006

Kæra [...]

og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

 

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Þann 6. ágúst 2019 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari [...] (hér eftir kærandi) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 22. júlí 2019, um að taka ekki til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barna hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir A), og [...], fd. [...], ríkisborgara [...] (hér eftir B), um alþjóðlega vernd á Íslandi og vísa þeim frá landinu.

Þess er krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að stofnuninni verði gert að taka umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi, í fyrsta lagi með vísan til sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, og í öðru lagi með vísan til 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. 42. gr. sömu laga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi þann 10. desember 2018 og f.h. barna sinna. Þann 13. desember 2018 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 2. mgr. 13. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Þar sem ekki barst svar innan tilskilins tímafrests litu íslensk stjórnvöld svo á að ítölsk stjórnvöld hefðu samþykkt viðtöku, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, og sendi Útlendingastofnun ítölskum yfirvöldum bréf þess efnis, dags. 28. febrúar 2019. Útlendingastofnun ákvað þann 22. júlí 2019 að taka ekki umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kæranda þann 23. júlí 2019 og kærði hún ákvarðanirnar þann 6. ágúst 2019 til kærunefndar útlendingamála. Greinargerð kæranda barst kærunefnd 16. ágúst 2019 ásamt fylgigögnum. Frekari upplýsingar og gögn bárust frá kæranda þann 20. og 25. september og 4. og 29. október sl.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að ítölsk stjórnvöld bæru ábyrgð á meðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknin yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá hefði kærandi ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður væru fyrir hendi þannig að taka bæri umsókn hennar til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldi hún flutt til Ítalíu.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A og B kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í máli móður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, útlendingalaga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til Ítalíu.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi m.a. greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að frænka sín hafi gert sig út sem vændiskonu á Ítalíu í um fjögur ár. Kvað hún líf sitt hafa verið slæmt og hún hafi verið beitt ofbeldi. Hún hafi m.a. verið handtekin fyrir að stunda vændi en hún hafi ekki notið aðstoðar lögreglunnar við að komast úr vændinu, heldur hafi hún einungis verið dregin fyrir dóm. Hún hafi þá gifst ítölskum manni sem hafi borgað hana út úr vændinu. Hann hafi einn daginn vísað henni á dyr, en neitað að skilja við hana og þau séu því enn gift. Hún hafi í kjölfarið kynnst barnsföður sínum, en sá maður hafi beitt hana og börn hennar ofbeldi. Hún hafi leitað til lögreglunnar vegna þess, en þegar barnsfaðir hennar hafi komist að því hafi hann hótað henni og börnum hennar lífláti. Kærandi kvaðst hafa dvalið á Ítalíu í 16 ár og vera handhafi ótímabundins dvalarleyfis. Hún hafi misst vinnu sína fyrir um þremur árum og þurft að betla til að geta framfleytt sér og börnum sínum. Hún hafi jafnframt misst húsnæði sitt og ekki fengið aðstoð frá ítölskum stjórnvöldum. Hún og fjölskylda hennar hafi þá mætt talsverðum fordómum og sætt mismunun vegna húðlitar síns. Framangreind frænka hennar hafi þá tekið úr henni blóð og hár og látið kæranda sverja eið um hollustu. Kærandi hafi trúað því að bryti hún eiðinn myndi hún láta lífið. Hún hafi tilkynnt frænku sína til lögreglu fyrir um þremur árum en lögreglan hafi þó aldrei haft samband. Kærandi kvað líkamlega heilsu sína ágæta. Andleg heilsa væri jafnframt ágæt, en hún sé einmana og eigi erfitt með svefn. Synir hennar væru þá báðir [...].

Í greinargerð kæranda eru gerðar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar, m.a. við mat stofnunarinnar á trúverðugleika kæranda og á horfum hennar og barna hennar á Ítalíu. Að því er varðar umfjöllun stofnunarinnar um aðgang þeirra að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu er af hálfu kæranda tekið fram að þrátt fyrir að hún og börn hennar hafi átt rétt á heilbrigðisþjónustu þá hafi peningaskortur verið hindrun í vegi fjölskyldunnar og því hafi þau ekki haft aðgang að þjónustunni. Telur kærandi ljóst af heimildum að aðgengi að heilbrigðisþjónustu sé verulega takmarkað og að þeim muni ekki standa fullnægjandi heilbrigðisþjónusta til boða þar í landi. Kærandi gerir jafnframt athugasemdir við umfjöllun Útlendingastofnunar um fordóma á Ítalíu og það mat stofnunarinnar að kynþáttafordómar þurfi að ná þeim þröskuldi að teljast til viðvarandi mannréttindabrota til þess að vera teknir inn í mat á því hvort að aðili sé í hættu eða í sérstökum aðstæðum þar í landi. Kærandi telur jafnframt að frásögn hennar af mansali á Ítalíu sé í samræmi við áreiðanlegar heimildir um erfiðar aðstæður þolenda mansals og þann ótta sem þolendum stendur af þeim sem gera þær út í vændi. Telur kærandi að Útlendingastofnun hafi horft framhjá raunveruleika mansalsþolenda á Ítalíu. Kærandi vísar á bug því mati stofnunarinnar að sértæk úrræði séu til staðar á Ítalíu vegna þess ofbeldis sem hún hafi orðið fyrir af hálfu barnsföður, í ljósi þess að hún sé kona af erlendum uppruna sem hafi lítið stuðningsnet, hafi lifað í ótta við barnsföður sinn svo árum skipti og hafi ekki notið liðsinnis lögreglunnar á Ítalíu. Kærandi gerir auk þess athugasemdir við umfjöllun Útlendingastofnunar um það að kærandi og börn hennar muni hafa aðgang að húsnæði verði þau endursend til Ítalíu, en kærandi telur að heimildir bendi til þess að raunveruleikinn sé annar, það sé langt í frá öruggt að þeim verði tryggður aðgangur að móttökumiðstöðvum og verulegar líkur séu á því að þau verði heimilislaus á Ítalíu.

Kærandi gerir auk þess athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á sérstaklega viðkvæmri stöðu hennar. Hún gerir jafnframt athugasemdir við að gögnum frá félagsráðgjafa Reykjavíkurborgar, sem unnið hafi traust og trúnað kæranda, hafi ekki verið gefið sambærilegt vægi og sálfræðigögnum sé að jafnaði gefið. Þá gerir kærandi athugasemd við að stofnunin hafi ekki hlutast til um að framkvæma sálfræðimat á kæranda. Áréttar kærandi að hún sé þolandi mansals, sé illa á sig komin eftir allt það ofbeldi sem hún hafi orðið fyrir og hafi verið í reglulegum viðtölum og rætt slæma líðan við félagsráðgjafa. Með vísan til framangreinds telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni á fullnægjandi hátt, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Kærandi gerir þá fyrirvara við lagastoð reglugerðar nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017. Kærandi bendir m.a. á að þau atriði sem talin séu upp í dæmaskyni í 32. gr. a umræddrar reglugerðar komi ekki í stað heildarmats á einstaklingsbundnum aðstæðum umsækjanda hverju sinni. Telur kærandi að færa megi rök fyrir því að aðstæður hennar og barna hennar séu það einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið. Áréttar kærandi að frásögn hennar og þær heimildir sem hún hafi vísað til bendi til þess að hún og börn hennar muni eiga afar erfitt uppdráttar á Ítalíu vegna alvarlegrar mismununar sem þar viðgangist og takmarkaðs aðgengis að heilbrigðisþjónustu, félagslegri þjónustu og húsnæðis- og vinnumarkaði.

Kærandi vísar til greinargerðar sinnar til Útlendingastofnunar að því er varðar frekari umfjöllun um aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu auk þess að vekja m.a. athygli á nýlegri skýrslu um aðstæður einstaklinga sem teljist sérstaklega viðkvæmir og eru endursendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Skýrslan sýni m.a. að sérstaklega viðkvæmir umsækjendur um alþjóðlega vernd standi frammi fyrir raunverulegri hættu á því að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð við endursendingu til Ítalíu. Kærandi áréttar þá þær leiðbeiningar sem koma fram í greinargerð innanríkisráðuneytisins frá því í desember 2015 um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu. Telur kærandi ljóst að íslenskum stjórnvöldum beri að líta til greinargerðarinnar við rannsókn á málinu, þá sérstaklega í ljósi viðkvæmrar stöðu kæranda og barna hennar. Kærandi telur margt benda til þess að hún sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, en hún sé einstæð móðir tveggja ungra drengja, hafi mátt þola gróft og ítrekað ofbeldi, andleg líðan hennar sé slæm og hún sé þolandi mansals. Vísar kærandi til viðtala hennar við félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg, en hann hafi m.a. metið hana í mikilli þörf fyrir sálfræðiaðstoð. Áréttar kærandi skyldu kæruefndar til að leggja ítarlegt og heildstætt mat á stöðu hennar og barna hennar.

Kærandi áréttar að börn teljist ávallt til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd, hvort sem þau séu í fylgd umönnunaraðila eða ekki, og íslenskum stjórnvöldum sé skylt að hafa ávallt það sem barni sé fyrir bestu í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Eldri drengur kæranda sé [...] og sá yngri [...]. Þeir séu báðir [...]. Telur kærandi ljóst að börnin hafi ekki fengið viðunandi læknisaðstoð á Ítalíu. Þá hafi kærandi greint frá því að þeir hafi upplifað mikið ofbeldi af hálfu föður síns og hafi enga aðstoð fengið við að vinna úr afleiðingum ofbeldisins. Faðir drengjanna hafi þá ætlað að skilja eldri drenginn eftir á Ítalíu og fara með þann yngri og móður hans til [...] til þess [...] með því að taka hann af lífi. Telur kærandi ljóst að það þjóni ekki hagsmunum drengjanna að vera sendir aftur til Ítalíu þar sem ekkert bíði þeirra nema öryggisleysi, óvissa og ofbeldisfullur faðir sem hafi haft áætlanir um að yfirgefa annan son sinn og taka hinn af lífi.

Kærandi vísar til þess að sérstakar ástæður séu fyrir hendi í máli hennar og barna hennar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í þeim efnum fjallar kærandi almennt um og gerir grein fyrir inntaki og túlkun á ákvæðinu, m.a. með hliðsjón af lögskýringargögnum og fyrri úrskurðum kærunefndar útlendingamála. Kærandi vísar þá til úrskurða kærunefndar frá 29. maí 2018 nr. 242/2018 og 11. júlí sl. nr. 339/2019 en kærandi telur aðstæður í málunum tveimur svipa verulega til aðstæðna kæranda og barna hennar. Vísar kærandi í því samhengi til jafnræðisreglu stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Að því er varðar mat á því hvenær einstaklingur teljist eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vísar kærandi til fyrri úrskurða kærunefndar frá 10. október 2017 nr. 550/2017 og 552/2017 og frá 24. október 2017 nr. 583/2017 og nr. 586/2017. Telur kærandi að eðli málsins samkvæmt valdi viðkvæm staða fjölskyldunnar því að hún muni eiga erfitt uppdráttar á Ítalíu. Með tilliti til ástands flóttamannamála á Ítalíu og sérstaklega viðkvæmrar stöðu kæranda og barna hennar séu horfur þeirra þar svo slæmar að ekki sé unnt að endursenda þau í slíkar aðstæður. Telur kærandi óumdeilanlegt að sérstakar ástæður séu uppi í máli hennar í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og íslenskum stjórnvöldum beri skylda til þess að taka umsókn fjölskyldunnar til efnismeðferðar.

Kærandi gerir þá kröfu um að mál hennar verði tekið til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 3. mgr. 36. gr. sömu laga, en í ákvæðinu megi finna regluna um non-refoulement, eða bann við að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kann að vera í hættu. Telur kærandi að aðstæður flóttafólks og umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu séu svo slæmar að þær jafnist á við ómannúðlega og vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Jafnframt samræmist aðstæður flóttamanna á Ítalíu skilgreiningu á ofsóknum á skilningi flóttamannahugtaksins.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Réttarstaða barna kæranda

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skal það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kæranda og A hjá Útlendingastofnun og gögn um heilsufar hennar og barna hennar. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A og B sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A og B verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A og B eru í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Ítalíu á umsóknum kæranda og barna hennar er byggð á því að ítölsk stjórnvöld hafi ekki svarað beiðni um endurviðtöku innan tilskilins frests, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja ítölsk stjórnvöld um að taka við kæranda og börnum hennar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Einstaklingsbundnar aðstæður kæranda

Kærandi er kona [...]. Hún kom hingað til lands ásamt tveimur ólögráða börnum sínum. Samkvæmt gögnum máls er kærandi almennt við góða líkamlega heilsu, en hún hafi þó m.a. fengið lyf vegna járnskorts og [...]. Kærandi kveðst hafa verið látin stunda vændi á Ítalíu og að hún hafi verið beitt ofbeldi á þeim tíma. Þá hafi barnsfaðir hennar beitt hana og börn hennar ofbeldi. Kærandi hefur sótt viðtalstíma hjá félagsfræðingi hjá Reykjavíkurborg og í gögnum frá umræddum félagsfræðingi kemur m.a. fram að í viðtölum við hana komi skýrt fram hversu veikt andlegt ástand hennar sé, hún hafi miklar áhyggjur af framtíðinni og hún eigi mjög erfitt með að tjá sig um atvik sem hafi átt sér stað í lífi hennar. Hún þurfi nauðsynlega á sálfræðiaðstoð að halda. Í vottorði frá sálfræðingi hjá Reykjavíkurborg, dags. 13. september sl., kemur m.a. fram að andleg líðan kæranda sé ekki góð og mikilvægt sé að hún fái áframhaldandi stuðning vegna þess. Kærandi hafi þá sótt viðtal hjá ráðgjafa í Kvennaathvarfinu þann 13. september sl.

Samkvæmt gögnum máls eru börnin A og B [...]. [...].

Í ljósi ofangreinds og með hliðsjón af ungum aldri barna kæranda er það mat kærunefndar að gögn málsins beri með sér að fjölskyldan í heild hafi sérþarfir í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem taka hefur þurft tillit til við meðferð málsins.

Aðstæður á Ítalíu

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • Italy 2018 Human Rights Report (United States Department of State, 13. mars 2019),
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, 16. apríl 2019),
  • World Report 2019 – European Union (Human Rights Watch, 17. janúar 2019),
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2018 (European Asylum Support Office, 24. júní 2019),
  • Report concerning the implementation of the Council of Europe Convention on Action against Trafficking in Human Beings by Italy (Council of Europe: Group of Experts on Action against Trafficking in Human Beings, 25. janúar 2019),
  • 2019 Trafficking in Persons Report – Italy (United States Department of State, 20. júní 2019),
  • Freedom in the World 2019 – Italy (Freedom House, febrúar 2019),
  • Amnesty International Report 2017/18 – Italy (Amnesty International, 22. febrúar 2018),
  • Mutual Trust is Still Not Enough. The situation of persons with special needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish Refugee Council og Swiss Refugee Council, 12. desember 2018),
  • Wave Country Report 2017 (Women against Violence Europe, mars 2018),
  • The Journey of Hope: Education for Refugee and Unaccompanied Children in Italy (Education International Research, 31. maí 2017),
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017),
  • Investing in Children´s Services – Improving Outcomes (European Social Network, 2016),
  • Multi-country Study on the Drivers of Violence Affecting Children. Italian Report (Istituto degli Innocenti, 2016),
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerance, 7. júní 2016),
  • Reception conditions in Italy. Report of the current situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees (Swiss Refugee Council, ágúst 2016),
  • Italy: The permesso di soggiorno illimitata, including its physical characteristics; requirements and procedures to obtain and renew the document; rights of holders of the document (Immigration and Refugee Board of Canada, 6. mars 2015),
  • Information note, Dublin transfers post-Tarakhel: Update on European case law and practice (Elena, European legal network on asylum, október 2015),
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights’ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, mars 2014),
  • UNHCR Recommendations on Important Aspects of Refugee Protection in Italy (UNHCR, júlí 2013),
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati - http://www.cir-onlus.org/en/),
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (http://hatecrime.osce.org/italy) og
  • Upplýsingar af vefsíðu samtakanna Baobab Experience (https://baobabexperience.org/).

Í framangreindum gögnum kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd eru sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geta þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni þá hefur hann kost á því að bera synjunina undir dómstóla (í. Tribunale Civile). Jafnframt eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun skv. 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.

Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, eru frjáls félagasamtök til staðar sem veita umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eiga almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veita gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu. Þá geta umsækjendur lagt fram beiðni um gjafsókn (í. gratuito patrocinio) kjósi þeir að bera endanlega synjun á umsókn sinni undir dómstóla.

Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér má ráða að í ítalska hæliskerfinu sé ekki skimað kerfisbundið eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera viðkvæmir einstaklingar. Hins vegar getur greining á þolendum pyndinga eða alvarlegs ofbeldis átt sér stað á öllum stigum umsóknarferlisins um alþjóðlega vernd. Svokallaðar svæðisnefndir (í. Commissione territoriale per il riconoscimento della protezione internazionale) taka ákvörðun á fyrsta stigi málsmeðferðar og geta þær m.a. óskað eftir því að umsækjandi fari í sérstaka læknisskoðun þar sem fram fer mat á því hvaða áhrif ofsóknir og ofbeldi hafa haft á umsækjanda. Slíkt mat sé framkvæmt í samræmi við leiðbeiningarreglur sem gefnar hafa verið út af heilbrigðisráðuneytinu varðandi þjónustu til handa flóttamönnum sem þjást af andlegum veikindum og/eða eru þolendur pyndinga, nauðgana eða annars konar andlegs-, líkamlegs- og kynferðislegs ofbeldis.

Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd eiga rétt á gistirými í móttökumiðstöðvum. Samkvæmt lagabreytingu, sem tók gildi í desember 2018, eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir eru til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum ítölskum móttökumiðstöðvum sem staðsettar eru í sjö héruðum landsins. Ef engin pláss eru til staðar í slíkum móttökumiðstöðvum eru til staðar gistirými í móttökumiðstöðvum sem nefnast CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria). CAS miðstöðvarnar eru einungis ætlaðar til tímabundinnar dvalar en vegna mikils fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu nýtur meiri hluti umsækjenda um alþjóðlega vernd eingöngu þjónustu í CAS miðstöðvunum. Aðstæður þar hafa verið gagnrýndar, m.a. þar sem einhverjar miðstöðvar séu lítið kyntar og þar verði vart við skort á heitu vatni og rafmagni. Þá kemur fram í fyrrgreindum gögnum að frjáls félagasamtök og trúfélög bjóði upp á gistiaðstöðu en þau séu einnig af skornum skammti. Samkvæmt fyrrgreindri lagabreytingu frá því í desember 2018 heita búsetuúrræði sem áður hétu SPRAR og voru aðgengileg umsækjendum um alþjóðlega vernd nú SIPROIMI (e. System for the Protection of Beneficiaries of International Protection and Unaccompanied Foreign Minors) og eru þau nánast eingöngu ætluð þeim sem eru handhafar alþjóðlegrar verndar og fylgdarlausum börnum. Þá kemur fram í skýrslu Asylum Information Database að virða skuli einingu fjölskyldunnar þegar kemur að úthlutun á gistirýmum í móttökumiðstöðvum. Þó þekkist dæmi þess að feður fái ekki úthlutað gistirými með fjölskyldu sinni en fái þess í stað úthlutað plássi í öðrum álmum eða móttökumiðstöðvum ásamt öðrum karlmönnum. Mæður og börn séu þó almennt hýst saman.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu, bæði börn og fullorðnir, eiga sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þeir þurfa þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fá þeir útgefið tryggingarkort sem veitir þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna. Fyrir útgáfu tryggingarkortsins eiga umsækjendur um alþjóðlega vernd þó rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Skortur á sérhæfingu í málefnum flóttamanna og tungumálakunnátta gerir þó sumum umsækjendum um alþjóðlega vernd erfitt fyrir að sækja sér viðunandi heilbrigðisþjónustu, einkum einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fá aðgang að ítalska vinnumarkaðnum tveimur mánuðum eftir að þeir hafa lagt fram umsókn sína. Þó kemur fram í framangreindum gögnum að atvinnuleysi á Ítalíu hafi verið mjög mikið á undanförnum árum og erfitt hafi reynst fyrir marga, bæði ítalska ríkisborgara sem og umsækjendur um alþjóðlega vernd, að finna atvinnu.

Foreldrar barna á aldrinum þriggja mánaða til tveggja ára geta sótt um aðgang að vöggustofum en aðgengi að þeim og gjöldum er stjórnað af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Börn á aldrinum þriggja til sex ára eiga þá að geta fengið aðgang að leikskólum, og í einhverjum tilvikum bjóða sveitarfélög upp á lækkuð gjöld, falla frá gjöldum eða bjóða forgang að plássi þegar aðstæður krefjast slíks og tiltekin skilyrði eru uppfyllt. Í skýrslu Asylum Information Database og skýrslu samtakanna Education International Research kemur m.a. fram að ítölsk lög kveði á um skólaskyldu til 16 ára aldurs. Öll börn sem dvelja á ítölsku yfirráðasvæði eiga því rétt á skyldubundinni menntun frá sex til 16 ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá eiga erlend börn rétt á sérstakri aðstoð hafi þau sérþarfir og jafnframt bjóða sumir skólar upp á sérstakt undirbúningsnámskeið til að aðstoða erlenda nemendur við að aðlagast skólanum. Þegar erlend börn leggja fram umsókn um skólavist þá er krafist sömu upplýsinga um barnið og hjá ítölskum börnum og skortur á framlagningu gagna á ekki að koma í veg fyrir að barn sé skráð í skólann.

Af framangreindum skýrslum verður ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna sé vandamál á Ítalíu en ítölsk stjórnvöld hafi gripið til aðgerða til að sporna við kynþáttafordómum og mismunun á grundvelli kynþáttar, m.a. með lagasetningu. Í kjölfar athugasemda alþjóðlegra eftirlitsnefnda, stofnana og frjálsra félagasamtaka hafa ítölsk yfirvöld tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum, þ. á m. með gerð aðgerðaráætlunar gegn kynþáttahyggju (e. National Action Plan against Racism, Xenophobia and Intolerance). Þá hefur rannsóknum og ákærum fjölgað í málum er varða mismunun, hatursorðræðu og hatursglæpi á grundvelli kynþáttar og þjóðernis.

Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana. Jafnframt séu sérstök úrræði til staðar að því er varðar ofbeldi gagnvart konum og börnum, þ. á m. sérstakar neyðarlínur sem opnar eru allan sólarhringinn, auk þess sem til staðar eru kvennaathvörf í flestum héruðum landsins þar sem hægt er að leita eftir aðstoð og ráðgjöf. Þá sé til staðar barnaverndarkerfi, sem grípa eigi inn í ef þörf krefur. Í ofangreindum skýrslum, þ.m.t. skýrslu United States Department of State, kemur fram að ítölsk stjórnvöld hafi ekki náð að útrýma mansali en hafi þó á undanförnum árum gripið til ýmissa aðgerða í því skyni að berjast gegn mansali, m.a. með gerð og eftirfylgni með aðgerðaráætlun gegn mansali (e. National Action Plan against Trafficking in, and Serious Exploitation of, Human Beings) og með aukinni samvinnu ríkisstofnana og frjálsra félagasamtaka. Þá hefur Ítalía á undanförnum árum sett aukið fjármagn í rannsóknir á mansali í landinu sem og til ýmissa frjálsra félagasamtaka sem aðstoða þolendur mansals. Meðal úrræða sem eru til staðar á Ítalíu eru sérstök húsnæðisathvörf fyrir þolendur mansals. Auk þess hefur verið lögð áhersla á þjálfun lögreglumanna og annarra viðeigandi starfsmanna í þessum málaflokki.

Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laganna kemur fram að ef beiting 1. mgr. myndi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því ríki sem senda á umsækjanda til, skuli taka umsókn til efnismeðferðar. Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun aðildarríkis um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu hefur verið byggt á því að sú meðferð sem einstaklingur á von á við brottvísun eða frávísun verði að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi til að ákvörðunin verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars. Við mat á umræddu alvarleikastigi hefur dómstóllinn jafnframt litið til annarra þátta, t.d. hvort einstaklingurinn er í viðkvæmri stöðu, sbr. t.d. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Khlaifia o.fl. gegn Ítalíu (nr. 16483/12) frá 15. desember 2016. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. dóm í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012. Þrátt fyrir það verði 3. gr. mannréttindasáttmálans ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. dóm í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011.

Að því er varðar aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu hefur Mannréttindadómstóll Evrópu lagt til grundvallar að uppbygging móttökukerfis fyrir umsækjendur og almennar aðstæður á Ítalíu séu ekki þess eðlis að þær standi í vegi fyrir öllum sendingum umsækjenda um alþjóðlega vernd til landsins, sbr. t.d. ákvörðun í máli Ali o.fl. gegn Sviss (mál nr. 30474/14) frá 4. október 2016. Aftur á móti hefur í framkvæmd dómstólsins verið byggt á því að viðhlítandi trygging verði að liggja fyrir af hálfu ítalskra yfirvalda um viðunandi móttökuaðstæður áður en umsækjendur um alþjóðlega vernd sem eru í svo viðkvæmri stöðu að þeir þurfi sérstaka vernd eru sendir þangað. Um endursendingar umsækjenda um alþjóðlega vernd til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar vísar kærunefnd jafnframt til dóms Hæstaréttar frá 1. október 2015 í máli nr. 114/2015.

Að mati kærunefndar eru einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar ekki slíkar að vegna stöðu þeirra sem umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu verði endursending þeirra þangað talin ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð. Þá er ekki fallist á með kæranda að aðstæður þeirra þar feli í sér ofsóknir gagnvart kæranda og börnum hennar. Með vísan til umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu er það niðurstaða kærunefndar að synjun á efnismeðferð umsókna kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd leiði ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá benda öll gögn til þess að kærandi hafi raunhæf úrræði á Ítalíu, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að hún og börn hennar verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga kemur fram að ef svo standi á sem greini í 1. mgr. skuli þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæli annars með því. Í 32. gr. a og 32. gr. b reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, sbr. 4. mgr. 36. gr. laganna, koma fram viðmið varðandi mat á því hvort taka skuli umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar vegna sérstakra tengsla eða ef sérstakar ástæður mæla með því. Þá segir í 2. mgr. 36. gr. laganna að ef meira en 12 mánuðir hafa liðið frá því að umsókn um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum og tafir á afgreiðslu hennar eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs skal taka hana til efnismeðferðar.

Aðstæðum kæranda og barna hennar hefur þegar verið lýst og telur kærunefnd að þær séu ekki þess eðlis að þau viðmið sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga eigi við í málinu. Heilsufar kæranda sé almennt gott líkamlega en hún hefur glímt við andlega erfiðleika. Það liggur fyrir í gögnum málsins að A og B hafi fengið fullnægjandi aðstoð hér á landi [...] og séu almennt við góða líkamlega og andlega heilsu að öðru leyti. Kærunefnd telur að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi, A og B glími nú við mikil og alvarleg veikindi sem meðferð er aðgengileg við hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá er það mat nefndarinnar að ekki sé fyrir hendi ástæða er varðar heilsufar þeirra sem sé svo einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði framhjá henni litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í ljósi framangreindra upplýsinga um aðstæður á Ítalíu áréttar kærunefnd að ekki séu forsendur til annars en að leggja til grundvallar að þau geti leitað sér fullnægjandi og aðgengilegrar þjónustu þar í landi í samræmi við þarfir sínar.

Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi og börn hennar muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærandi sér mismunað eða óttist hún um öryggi sitt að einhverju leyti á Ítalíu séu þarlend yfirvöld í stakk búin til þess að veita henni og börnum hennar fullnægjandi vernd. Kærandi geti því leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum. Af framangreindum gögnum um aðstæður á Ítalíu verður jafnframt ráðið að þótt fordómar og mismunun á grundvelli kynþáttar séu til staðar á Ítalíu búi ítölsk stjórnvöld yfir fullnægjandi úrræðum til að bregðast við þeim. Kærunefnd áréttar að framangreind gögn beri með sér að ítölsk löggæsluyfirvöld hafi yfir að ráða fullnægjandi úrræðum til að bregðast við hótunum og ofbeldisbrotum sem íbúar landsins og þeir sem dvelja þar verði fyrir. Þá séu til staðar frjáls félagasamtök og kvennaathvörf sem m.a. bjóði upp á ráðgjöf og þjónustu til kvenna sem eru þolendur heimilisofbeldis. Kærunefnd telur þá rétt að líta til þess að kærandi kveðst hafa verið búsett á Ítalíu frá árinu 2002 og hún tali ítölsku. A og B eru [...]. Hún og börn hennar hafi haft aðgang að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu, og eldra barn hennar hafi gengið þar í skóla. Kærunefnd bendir þá á að samkvæmt gögnum málsins kveðst kærandi vera handhafi ótímabundins dvalarleyfis á Ítalíu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað er ljóst að sem handhafi slíks dvalarleyfis, hefur kærandi m.a. aðgang að félagslegri þjónustu á vegum ítalskra stjórnvalda auk þess að hafa rétt til atvinnuþátttöku. Að ofangreindu sögðu telur nefndin ljóst að kæranda og börnum hennar standi til boða viðeigandi úrræði og aðstoð á Ítalíu og að mati nefndarinnar benda gögn málsins ekki til þess að heilsufar kæranda eða aðstæður hennar og barna hennar að öðru leyti séu þess eðlis að kærandi geti ekki sjálf borið sig eftir slíkum úrræðum.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma jafnframt fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Sem fyrr segir eru mæður og börn sem leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu vistuð saman. Þá verður ráðið af ofangreindum gögnum að leyst sé úr umsóknum þeirra m.t.t. meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar. Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kæranda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd á Ítalíu er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Ítalíu samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda þau til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kæranda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Vegna athugasemdar í greinargerð kæranda tekur kærunefnd fram að aðstæður kæranda eru ekki sambærilegar aðstæðum sem fjallað var um í úrskurðum kærunefndar útlendingamála nr. 550/2017 og nr. 552/2017 frá 10. október 2017 og úrskurðum nr. 583/2017 og nr. 586/2017 frá 24. október 2017. Kærunefnd telur að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í framangreindum úrskurðum, m.a. þar sem ekki sé um að ræða sömu viðtökuríki. Að því er varðar tilvísun kæranda til úrskurða kærunefndar nr. 242/2018 frá 29. maí 2018 og nr. 339/2019 frá 11. júlí sl. er það mat kærunefndar að ekki sé hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu kærenda í þeim úrskurðum, m.a. þegar litið er til þess að í báðum málum var um að ræða einstaklinga sem höfðu aðra réttarstöðu á Ítalíu en kærandi og aðstæður þeirra því ekki sambærilegar.

Það er jafnframt mat kærunefndar að málsástæður kæranda að öðru leyti verði ekki taldar til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barna hennar er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæli með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun þann 26. mars 2019 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málanna sem bendir til þess að hún eða börn hennar hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Þá telur kærunefnd ljóst að síðari málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í málum kæranda og barna hennar þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar þann 10. desember 2018.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar

Svo sem fram hefur komið gerir kærandi m.a. athugasemdir við lagastoð reglugerðar nr. 276/2018, um breytingu á reglugerð um útlendinga, auk þess að gera athugasemdir við mat á aðstæðum hennar og barna hennar á Ítalíu og við rannsókn Útlendingastofnunar.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd lagt einstaklingsbundið mat á umsókn kæranda og komist að niðurstöðu um að synja henni og börnum hennar um efnismeðferð með vísan til ákvæða laga um útlendinga eins og þau hafa verið útfærð í reglugerð um útlendinga. Er niðurstaða í málinu byggð á túlkun kærunefndar á framangreindum ákvæðum og sjónarmiðum sem nefndin telur málefnaleg en áður hefur komið fram í úrskurðum kærunefndar að reglugerðina skortir ekki lagastoð. Þá hefur kærunefnd endurskoðað alla þætti málsins og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun. Að mati kærunefndar er því ekki tilefni til frekari umfjöllunar um athugasemdir kæranda.

Frávísun

Kærandi kveðst hafa komið hingað til lands þann 9. desember 2018. Hún og börn hennar sóttu um alþjóðlega vernd þann 10. desember 2018. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar enda verður að líta á umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd sem áform um að dveljast í landinu meira en 90 daga, sbr. til hliðsjónar 3. mgr. 42. gr. reglugerðar um útlendinga. Verður þeim því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærandi og börn hennar skulu flutt til Ítalíu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kæranda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

Samantekt

Í málum þessum hafa ítölsk stjórnvöld fallist á að taka við kæranda og umsókn hennar um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd hér á landi og senda þau til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

Kæranda er leiðbeint um að með úrskurði kærunefndar nr. 350/2019, dags. 28. ágúst 2019, ákvað nefndin að breyta framkvæmd varðandi afmörkun 12 mánaða tímabilsins sem vísað er til í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Eins og fram kemur í úrskurðinum eru lok tímabilsins þegar fyrir liggur endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi vegna þess stjórnsýslumáls sem hófst með framlagningu umsóknar um alþjóðlega vernd. Þessi breytta stjórnsýsluframkvæmd leiðir til þess að þótt ekki komi til flutnings kæranda úr landi innan 12 mánaða frá upphafi málsins hefur það ekki þýðingu fyrir þann frest sem 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga tekur til.

 

Úrskurðarorð

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

 

Áslaug Magnúsdóttir

Árni Helgason                                                                                                             Bjarnveig Eiríksdóttir


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta