Mál nr. 79/2015 Úrskurður 18. nóvember 2015
Mál nr. 79/2015 Aðlögun kenninafns: Alexdóttir
Hinn 18. nóvember 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 79/2015 en erindið barst nefndinni 12. nóvember:
Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 12. nóvember 2015, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni xxx um að xxx taki upp kenningu til föður síns, Aleksej. Óskar hún að kenninafnið verði ritað Alexdóttir.
Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.
Úrskurðarorð:
Fallist er á föðurkenninguna Alexdóttir.