Mál nr. 81/2015 Úrskurður 18. nóvember 2015
Mál nr. 81/2015 Eiginnafn: Bría
Hinn 18. nóvember 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 81/2015 en erindið barst nefndinni 12. nóvember:
Eiginnafnið Bría (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Bríu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Bría (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.