Mál nr. 82/2015 Úrskurður 18. nóvember 2015
Mál nr. 82/2015 Eiginnafn: Alan
Hinn 18. nóvember 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 82/2015 en erindið barst nefndinni 16. nóvember:
Eiginnafnið Alan (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Alans, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Alan (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.