Mál nr. 83/2015 Úrskurður 18. nóvember 2015
Mál nr. 83/2015 Eiginnafn: Aldey
Hinn 18. nóvember 2015 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 83/2015 en erindið barst nefndinni 16. nóvember:
Eiginnafnið Aldey (kvk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Aldeyjar, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Aldey (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.